Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 32
Iðnaður er unaður 11. janúar 2019KYNNINGARBLAÐ VÉLFANG EHF: Þekking, reynsla og rík þjónustulund Vélfang ehf. var stofnað vor-ið 2004 af þeim Eyjólfi Pétri Pálmasyni, Skarphéðni Erlings- syni, Stefáni G. Ármannssyni, Þórði Jónssyni og Kristjáni Ragnarssyni. Fyrirtækið hefur vaxið og dafnað og í dag selur fyrirtækið og þjónustar jafnt nýjar sem notaðar vélar og tæki fyrir landbúnað, vélaverktaka, golfvelli og sveitarfélög. 15 ára reynsla „Við veitum framúrskarandi þjónustu og miðlum þekkingu sem byggir á tæplega 15 ára reynslu. Hjá okkur starfar fámenn en öflug liðsheild með mikla starfs- reynslu á sviði bú- og vinnuvéla. Í raun er erfitt að skilgreina starfssvið hvers og eins en eitt eiga starfsmennirnir sam- eiginlegt: Það er rík þjónustulund og vilji til að leysa þau verkefni sem framund- an eru. Við höfum allt frá upphafi lagt áherslu á að ráða gott og öflugt fólk til starfa, sem passar inn í þann hóp og þann góða anda sem fyrir er. Einn okkar er til dæmis svo skáldmæltur að hann getur beinlínis talað í ferskeytlum. Hann heitir Kristján og sér um vísnaþátt fyrirtækisins,“ segir Eyjólfur og bendir á að andinn innan fyrirtækisins sé sér- staklega góður. Þjónustar nýjar vélar, gamlar og varahluti „Starfsmenn okkar keppast við að uppfylla þarfir viðskiptavina sinna, hvort sem um er að ræða sölu og þjónustu á notuðum eða nýjum vélum eða við út- vegun varahluta. Stundum hentar góð, notuð vél jafn vel og ný, og öfugt,“ segir Eyjólfur. Stór hluti af starfsemi Vélfangs ehf. er varahlutaþjónustan. Fyrirtækið er með umboð fyrir fjölda fyrirtækja sem þjónusta vinnuvélar. „Því höfum við tök á að afgreiða flesta sem til okkar koma með skjótum og öruggum hætti,“ segir Eyjólfur. Helstu framleiðendur sem Vélfang hefur umboð fyrir eru CLAAS, Fendt, Kuhn, Redrock, og margir fleiri. JCB heimsklassa fjölskyldufyrirtæki ,,Við erum stolt að segja frá því að Vélfang ehf. tók við umboði fyrir JCB- -vinnuvélar á haustmánuðum 2009. JCB er einn stærsti framleiðandi vinnu- véla í heimi og í gegnum tíðina hefur hann fjárfest mikið í rannsóknum og þróun. Með þessu móti heldur fyrirtæk- ið sér fremst í flokki nýsköpunar og að sama skapi getum við útvegað fyrsta flokks vinnuvélar fyrir viðskiptavini okkar,“ segir Eyjólfur. Gæðafatnaður á góðu verði „Nýlega stækkaði Vélfang verslun sína og ákváðum við að bjóða upp á meira úrval í gæðafatnaði, fyrir alla fjöl- skylduna, minjagripum og leikföngum. Við bjóðum upp á gott vöruúrval af sterkbyggðum vinnufatnaði fyrir alla fjölskylduna, svo sem samfestinga, smekkbuxur, boli, hanska og fleira. Einnig erum við með geysivinsælar hettupeys- ur með traktor framan á og vinnuhanska fyrir börn. Úrval af leikföngunum er alltaf að aukast hjá okkur sökum mikillar eft- irspurnar. Við erum einnig með frábært verð á leikföngunum og fatnaði sem kemur á óvart,“ segir Eyjólfur. Nánari upplýsingar má nálgast á www.velfang.is og Facebook-síðunni Vélfang ehf. Gylfaflöt 32, Grafarvogi og Frosta- götu 2a, Akureyri Sími: 580-8200 Opið alla virka daga frá 08.00–17.00 Netpóstur: velfang@velfang.is n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.