Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 56
56 11. janúar 2018 E kki er óalgengt að fólk sé óánægt með frammistöðu lögfræðinga sinna enda nánast sjálfgefið að einhver sitji uppi með svartapétur þegar málalyktir liggja fyrir. Sú var raunin hjá kaupsýslu- manninum Gian Luigi Ferri, þá 55 ára, sem ákvað að gera lýðum ljós vonbrigði hans með þá þjónustu sem hann fékk hjá lögmannastof- unni Pettit & Martin við Cali- fornia-stræti 101 í San Francisco. Óánægður skjólstæðingur Það var þann 1. júlí, 1993, sem Ferri fékk sig loks fullsaddan af viðskiptum sínum við lög- mannastofuna. Þá hafði Ferri ver- ið skjólstæðingur Pettit & Martin í að minnsta kosti tíu ár og hafði að sögn alið á gríðarlegri óbeit í garð stofunnar í mörg ár. Óbeitin var meðal annars tilkomin vegna ráðgjafar sem hafði nokkrum árum áður orðið Ferri dýrkeypt og höggvið verulegt skarð í fjárhag hans. Vel undirbúinn Rétt fyrir klukkan þrjú síðdegis þennan dag fór hann inn í lyftu á jarðhæð byggingarinnar við Cali- fornia-stræti 101, þar sem Pettit & Martin var til húsa, til að undir- strika óánægju sína með þeim hætti að tekið yrði eftir. Ferri fór úr lyftunni á 34. hæð. Hann var greinilega vel undirbú- inn því hann hafði heyrnarskjól á höfðinu og var vopnaður tveim- ur TEC-9 skammbyssum og .45 kalíbera skammbyssu að auki. Fyrstu fórnarlömbin Hann ráfaði um stund á þeirri hæð og fann sín fyrstu fórnarlömb í fundarherbergi sem Pettit & Martin leigði stundum út. Fjögur voru í fundarherberginu; Jack Berman og Jody Jones Sposato, en Sposato var þar stödd til að fá skráða málshöfðun sína, vegna kynbundinnar mismununar, á hendur fyrrverandi vinnuveitana sínum. Þarna voru einnig Deanna Eaves hraðritari og lögfræðingur- inn Sharon O’Roke sem tók niður vitnisburð Sposato. Ekkert þeirra tengdist lögmannastofu Pettit & Martin. Tvö skotin til bana Ferri skaut í gegnum glervegg fundarherbergisins með þeim af- leiðingum að Berman og Sposato létust samstundis. Eaves leitaði skjóls undir borðinu og fékk skot í handlegginn, en O’Roke reyndi að forða sér á hlaupum og var skotin fimm sinnum. Báðar sluppu með líftóruna. Að þessu loknu fór hann á næstu hæð fyrir neðan og notaði til þess stigana í stað lyftunnar. Þar á ganginum gekk hann í flasið á hjónunum John C. og Michelle Scully. Fórnaði sér fyrir eiginkonu sína John, sem vann hjá Pettit & Martin, hafði heyrt skothríðina og hlaupið niður á 33. hæð þar sem hann vissi að eiginkona hans, sem vann hjá annarri lögmannastofu, var. Þau hugðust komast undan með því að nota lyftuna en Ferri stöðvaði för þeirra. Síðar sagði Michelle að þegar Ferri miðaði skammbyssunni á þau hafi eig- inmaður hennar stigið fram fyrir hana og í veg fyrir kúluna. John lést af sárum sínum, en Michelle fékk skot í handlegginn og lifði af. 11 manns féllu fyrir hendi franska flækingsins Josephs Vacher á þriggja ára tímabili sem hófst árið 1894. Vacher myrti fórnarlömb sín, eina konu, fimm unglingsstúlkur og fimm unglingspilta, og afskræmdi og limlesti lík þeirra. Einhver fórnar lambanna voru fjárhirðar sem gættu fjár á afskekktum stöðum. Þau voru stungin ítrekað, rist á kvið og nauðgað á alla vegu. Árið 1897 réðst Vacher á konu á akri í Ardeche í suðaustur hluta Frakklands. Konan varðist og tókst með öskrum að vekja athygli eiginmanns síns og sonar, sem komu henni til bjargar og færðu Vacher í bönd. Hann játaði glæpi sína og endaði ævina í fallöxi 31. desember 1898. SAKAMÁL Betri Svefn SKOTÁRÁSIN Á CALIFORNIA-STRÆTI 101 n Fjárhirslur Ferris höfðu látið á sjá n Hann skellti skuldinni á lögfræðinga sína n Það skyldi reynast þeim dýrkeypt n Hann ákvað að láta vopnin tala „Hann var greinilega vel undirbúinn því hann hafði heyrnarskjól á höfðinu og var vopnaður tveimur TEC-9 skammbyssum og .45 kalíbera skammbyssu að auki. California-stræti 101 Ferri hófst handa á 34. hæð byggingarinnar. Umfjöllun Málinu voru gerð góð skil í fjölmiðlum á sínum tíma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.