Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 4
4 11. janúar 2018FRÉTTIR Það er staðreynd að… Þjónar faraóa í Egyptalandi smurðu sig með hunangi til þess að flugur myndu herja á þá frekar en hina voldugu yfirmenn sína. Hitler, Mussolini og Stalín voru allir tilnefndir til friðarverðlauna Nóbels. Landkönnuðurinn Peter Freuchen varð undir snjóflóði í einni af ferðum sínum árið 1926. Hann komst lífs af með því að búa til hníf úr eigin hægðum og skera af sér fótinn. Frá og með 1945 hafa allir breskir skriðdrekar státað af búnaði til að hella upp á te. Einn valdamesti sjóræningi allra tíma var kínversk fyrrverandi vændis kona að nafni Ching Shih. Hún lést árið 1844. Öld sápunnar S varthöfði strengdi það ára- mótaheit að fara oftar í sund- laugarnar. Það er heilsubæt- andi og myndi að einhverju leyti rjúfa félagslega einangrun. Breiðholtslaugin varð fyrir valinu því hún er hverfislaugin, jafnvel þó að Dagur Bergþóruson rukki meira ofan í sínar laugar en bæjarstjórar nágrannasveitar félaganna. Þegar Svarthöfði var kominn í sína sundbrók og ætlaði að brokka út í laugina kom baðvörðurinn aðvífandi og setti hendurnar á bringuna á Svarthöfða, klæddur í latexhanska. „Hvert helduru að þú sért að fara?“ spurði hann. Svo benti hann plaggat á veggnum sem sýndi þá staði sem Svarthöfði átti að þrífa sig með sápu; höfuðið, handar- krikana, nárann og fæturna. Stóð vörðurinn síðan yfir Svarthöfða sem þreif sig og ekki laust við að hann fengi einhvers konar nautn út úr þessu. Tveir eldri menn urðu vitni að þessu. Fór baðvörðurinn þá aftur í búrið sitt en Svarthöfði gekk til laugar, smánaður. Í pottinum gat Svarthöfði ekki fylgst með þeim umræðum sem þar fóru fram, hugurinn var annars staðar. Þetta er svo „shitty“. Hvaðan kemur eiginlega þessi stöðuga krafa um þrifnað? Svarthöfði er krúnurakaður og aldrei hef- ur Svarthöfði séð neinn sápa á sér tærnar í sturtu, aldrei. Þar að auki er meira klór en vatn í sundlauginni sjálfri. Samt á að sápa sig allan bæði áður en farið er í laugina og eftir. Þessi krafa er ekki bundin við sundlaugarnar. Alls staðar þar sem Svarthöfði fer er hann neyddur til að þrífa sig. Svarthöfði fer reglulega að heimsækja móður sína á hjúkrunar- heimili þar sem Svarthöfði er skikk- aður til að þvo á sér hendurnar upp úr svíðandi spritti. Á klósettinu í vinnunni hangir plaggat frá Land- lækni þar sem Svarthöfði er krafinn um að sápuþvo hendurnar og nota bursta undir neglurnar við hverja salernisferð. Í mötuneytinu hangir eins plaggat. Alls staðar blasa við auglýsingar um sjampó, svita- lyktareyði og aðra basa til að drepa gerla og eyða náttúrulegri líkams- lykt. Hvaðan kemur þessi krafa? For- feður okkar byggðu þetta land í þúsund ár án þess að þvo sér. Þeir böðuðu sig aldrei og létu hundana sleikja askana. Klósett- pappír var ekki til og þaðan af síð- ur naglaburstar. Ef fólk lifði frum- bernskuna af gat það lifað góðu lífi og myndaði ónæmi gegn flest- um gerlum og pestum. Þetta er allt horfið á öld sápunnar. Í staðinn fáum við psoriasis, exem og flösu af sífelldri sápunotkun fyrir utan hvað þetta kostar nú allt saman mikið. n Svarthöfði ANNAÐ FÓRNARLAMB ÓÐS HUNDS STÍGUR FRAM n Bitinn við Bónus í Faxafeni n Sá hundinn reyna að bíta í Holtagörðum„Ég sagði hon- um að þetta væri óður hundur sem þyrfti að lóga F yrir skemmstu var maður bitinn af hundi sem bund- inn var fyrir utan Húsgagna- höllina. Hlaut sá maður mikil meiðsl af þeirri árás. Nú stíg- ur fram maður sem segist hafa verið bitinn af sama hundi í haust, fyrir utan Bónus í Faxafeni. Einnig að hann hafi séð hundinn gera til- raun til árásar á annan mann við Bónus í Holtagörðum. Í hans til- viki hafi eigandinn brugðist illa við, ekki tekið ábyrgð á dýrinu heldur sakað manninn um að veit- ast að hundinum. Fyrirvaralausar árásir Um síðustu helgi fjallaði DV um hundsárás sem átti sér stað fyrir utan Húsgagnahöllina við Bílds- höfða. Þar var hundur, senni- lega einhvers konar blendings- afbrigði af Labrador, bundinn við reiðhjólastand. Járnsmiður að nafni Guðmundur Helgi Stefáns- son skrapp inn í apótek og sá hundinn þegar hann kom út. Virt- ist hann hinn vinalegasti en tryllt- ist síðan og beit Guðmund í fót- legginn og magann. Fékk hann mikið sár og mar og þurfti að leita til læknis. Guðmundur hafði ekki upp á eigandanum en heyrði tal unglinga sem sögðu hundinn þekktan bithund. „Ég varð fyrir biti af þessum sama hundi, greinilega,“ segir karlmaður á miðjum aldri sem vill ekki láta nafns síns getið. „Sam- kvæmt lýsingunni finnst mér það mjög líklegt. Ég hef séð þennan hund stökkva alveg fyrirvaralaust á mig og aðra.“ Bitinn í hand- legginn Hundurinn sem um ræðir er blendingur af Labrador og Border Collie. Hann var bundinn við handrið fyrir utan Bónusverslunina í Faxafeni. Atvikið átti sér stað þann 19. september síðastliðinn, um sex leytið að kvöldi. „Þessi eigandi er greinilega ekki í lagi. Hann horfði á þetta gerast. Ég kom á hjóli og renndi þarna upp að grindverkinu, skammt frá þar sem hundurinn var bundinn. Ég ætlaði að læsa hjólinu mínu við þetta grindverk. Í því sem ég renni hjólinu mínu fram hjá hundinum stökk hann upp að hendinni á mér þar sem ég hélt um stýrið og beit mig. Hann gjörsamlega trylltist.“ Maðurinn segist hafa orðið dauðskelkaður við þessa árás. Eig- andinn var þá kominn út og húð- skammaði maðurinn hann fyrir þetta. „Ég sagði honum að þetta væri óður hundur sem þyrfti að lóga. Hann brást þá hinn versti við og ásakaði mig um að hafa ráðist á hundinn. Hann var eins illur og hundurinn.“ Stillt upp til að gera fólki lífið leitt Fékkstu áverka eftir árásina? „Það mótaði fyrir tannaförum á handleggnum á mér. En það var ekki í gegnum skinnið, þannig að ég var heppinn. Ég fór því ekki til læknis til að fá sprautu eða neitt slíkt, þótt ég hafi ætlað að gera það.“ Hundeigandinn losaði hundinn og héldu þeir á brott. Maðurinn sem varð fyrir árásinni tók ljós- myndir af þeim eftir orðaskiptin. Sögunni lýkur ekki við þetta at- vik. Skömmu síðar sá maðurinn þennan sama hund, bundinn fyrir utan Bónusverslunina í Holta- görðum. „Þar sá ég að hundurinn veitt- ist að manni sem var á leiðinni inn í búðina. Ólin var hins vegar ekki nógu löng til að hundurinn gæti bitið hann. Þetta ætti að vera lög- reglumál. Það er eins og sé verið að stilla þessum hundi upp til þess að hræða fólk og gera því lífið leitt,“ segir maðurinn. n Bundinn við grindverk Blanda af Labrador og Border Collie. Faxafen Hundurinn og eigandi hans. Hver er hann n Hann er fæddur á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar og byrjaði að leika á sviði tólf ára gamall n Millinafn hans er Þorfinnur n Hann hefur sent frá sér tónlist, sem sungin er af honum sjálfum og öðrum listamönnum n Hann á sjö uppkomin börn með eiginkonu sinni en þrjú þeirra hafa unnið á fjölmiðlum n Hann hefur orðið Íslandsmeistari í akstursíþrótt SVAR: ÓMAR RAGNARSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.