Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Qupperneq 48
48 11. janúar 2018
Tímavélin Gamla auglýsinginVísir 4. júní 1920
S
umarið 1975 fundu nokkrir
krakkar úr Vesturbænum
mannabein grafin við Faxa-
skjól. Beinagrindin var
nokkuð heilleg en fatalaus að
undanskildum einum sokk. Eftir
að krakkarnir grófu upp flest bein-
in kom lögreglan á staðinn en
rannsóknin var ansi ófagmannleg.
Sérstaklega í ljósi þess að senni-
lega var um sakamál að ræða.
Jóhann Wathne var einn þeirra
drengja sem grófu upp beinin.
Hann segir að málið leiti enn þá
á hann þar sem það upplýstist
aldrei.
Eins og í Frank og Jóa
Um páskana árið 1975 voru nokkr-
ir drengir um tólf ára aldur að leik
í fjörukambinum við Faxaskjól í
vesturbæ Reykjavíkur. Grófu þeir
ofan í jörðina og komu þá niður á
tvö stór bein, sennilega lærleggi.
Nokkru síðar, mánudaginn 7. júlí,
fóru þeir aftur á sama stað til að
grafa og komu þá fleiri bein í ljós.
Jóhann Wathne, þá búsettur
við Faxaskjól 4, var einn af þess-
um drengjum. Hann segir að bein-
in hafi fundist við Faxaskjól 12 þar
sem einn af drengjunum bjó, á
um það bil eins metra dýpi innan
í steyptum stokki.
„Við vorum mikið að leika okk-
ur þarna í móunum og skurðun-
um. Þetta var ábyggilega gömul
skotgröf frá tíma herliðsins. Fyrir
framan var hóll og við vorum bún-
ir að grafa okkur í gegnum hólinn
til að gera kofa þarna í gröfinni.
Þegar við fundum lærbeinin var
okkur sagt að þau væru ábyggi-
lega af kúm. Þegar við fórum aftur
að grafa þarna seinna um sumarið
fundum við sokk. Þetta var nokk-
uð heillegur sokkur og við sturt-
uðum kjúkunum og fótbeinunum
úr honum. Þá áttuðum við okkur á
því að þetta væri af manni.“
Drengirnir urðu mjög spenntir
yfir þessum fundi og héldu áfram
að grafa. Þá fundu þeir hvert
beinið á fætur öðru. Einnig fundu
þeir tvær byssukúlur og pípuhaus
en engin önnur föt en sokkinn.
Jóhann segir að strákarnir hafi
alist upp við að lesa bækurnar um
Frank og Jóa. Þarna voru þeir lent-
ir í slíku ævintýri.
„Að lokum fundum við haus-
kúpuna. Einn af okkur tók kjálk-
ann og hljóp um allt með hann.
Þegar við vorum búnir að grafa
þetta allt upp létum við afa eins
okkar vita af fundinum. Hann
hringdi þá á lögregluna.“
Rannsóknarlögreglumenn
komu á svæðið, fóru í gegnum
allan hauginn og tóku beinin.
Einnig grófu þeir sjálfir og fundu
fleiri bein en krakkarnir fundu
þau flest. Svæðið var hins vegar
ekki lokað af eins og venjulega er
gert á vettvangi glæps þó að að-
stæðurnar þættu grunsamlegar.
Krakkarnir héldu
„rannsókninni“ áfram
Magnús Eggertsson og Haukur
Bjarnason sáu um rannsókn máls-
ins hjá lögreglunni. Haukur sagði
við Þjóðviljann þann 9. júlí 1975
að frumrannsókn málsins hefði
tekið tvo tíma, frá klukkan eitt til
þrjú. Lögreglan amaðist ekki við
því að krakkarnir héldu áfram að
grafa.
„Þau eru komin á kaf í lögreglu-
mál, og finni þau fleiri bein eða
skot, mun lögreglan þiggja þá að-
stoð með þökkum,“ sagði Haukur.
Magnús sagði að frekari rannsókn
á staðnum yrði ekki gerð nema að
nýjar upplýsingar kæmu fram sem
krefðust þess. Lögreglan spurði þó
íbúana í nágrenninu, í Faxaskjóli
og Sörlaskjóli, um þennan stað
og hvort þeir hefðu séð eitthvað
óvanalegt í kringum hann en ekk-
ert kom úr því.
Þegar lögreglumennirnir voru
farnir af svæðinu fóru krakkarnir
þangað aftur og héldu áfram að
grafla í jörðinni. Voru þar börn allt
niður í þriggja ára aldur. Fundu
þau þá meira að segja nokkur bein
til viðbótar. Jóhann segir að einn
strákanna hafi átt hund sem tók
eitt beinið og fór að naga það.
„Eftir á að hyggja var undarlegt
hvernig tekið var á þessu máli. Það
var heldur ekki talað um þetta eins
og um sakamál hafi verið að ræða,“
segir hann.
Tölduð þið að þetta hefði verið
morð?
„Já, við fórum alveg á fullt með
það og örugglega frá stríðsárunum
eða síðar út af skotgröfinni. Hverf-
ið fer síðan að byggjast þarna upp
í kringum 1950. Það er enginn sem
dettur þarna og deyr og grefur síð-
an yfir sig. Auk þess hefur líkið
sennilega aðeins verið í sokkum.“
Byrgin fyllt 1954
Í Faxaskjóli reisti hernámsliðið
mikil mannvirki, bragga og fleira.
Á þeim stað sem beinagrindin
fannst var skotæfingasvæði og því
hugsanlegt að byssukúlurnar hafi
verið frá þeim tíma. Kúlurnar voru
45 kalíber sem var harla óvana-
leg stærð fyrir skotvopn á Íslandi.
Hins vegar var stærðin algeng í
skotvopnum fyrir heri. Við stokk-
inn þar sem beinin fundust stóðu
skotmörk sem dátarnir skutu að
og kúlur því hæglega geta lent í
jarðveginum. Það útskýrir hins
vegar ekki af hverju líkið endaði
þarna grafið, að mestu klæðlaust.
Svæðið var vinsælt leiksvæði
barna eftir stríðið. Á fyrri hluta
sjötta áratugarins var það rutt og
grafið ofan í byrgin, meðal annars
grasi, mold og torfi úr görðum í
nágrenninu. Kunnugur maður
sagði að byrgin hefðu verið orðin
full árið 1954. Benti það til þess að
líkið hefði verið sett þar ofan í um
þetta leyti eða síðar. Á móti kemur
að staðurinn var þá orðinn sérlega
óhentugur til þess að grafa lík, að-
eins um þrjátíu metrum frá næsta
íbúðarhúsi.
Karlmaður með slæman neðri
góm
Beinin voru flutt á rannsóknar-
stofu Háskóla Íslands til aldurs-
Nokia 7.1
Með öllu því
nýjasta frá Google
• 12 mp tvöföld
ZEISS myndavél
• full hd+ 5.84” hdr skjár
• 4/64gb minni
ÍMYND
GLÆSILEIKANS
Börn fundu beina-
grind við Faxaskjól
n Óupplýst morð? n Rannsókn ekki tekin alvarlega n Karlmaður um fertugt með slæman góm
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Rannsóknarlögreglan Grófu
eftir beinum og vísbendingum.
Krakkarnir
við Faxa-
skjól Þjóðvilj-
inn 9. júlí 1975.