Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Page 6
6 11. janúar 2018FRÉTTIR
PIZZERIA
DALVEGI 2, 201 KÓPAVOGI
DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI
M
aðurinn sem stytti sér
aldur í fangelsinu Litla-
-Hrauni síðastliðinn
þriðjudag hét Þorleifur
Haraldsson. Þorleifur, sem ætíð
var kallaður Leifi, var fæddur
árið 1974 og var því 44 ára gam-
all þegar hann lést. Hann lætur
eftir sig eina dóttur. Leifi sat inni
fyrir ítrekuð brot á umferðarlög-
um undir áhrifum vímuefna.
Hann var dæmdur í tólf mánaða
fangelsi í byrjun árs 2018. Sam-
kvæmt heimildum DV hafði Leifi
glímt við margs konar fíknivanda
um langa hríð. „Hann átti ekki að
vera í fangelsi heldur í einhverju
meðferðarúrræði. Það er skömm
að því að slík úrræði séu ekki til
hér á landi,“ segir heimildarmað-
ur.
Þriðji á tveimur árum
Þorleifur er þriðji fanginn sem
fellur fyrir eigin hendi innan
veggja íslenskra fangelsa á tveim-
ur árum og sá sjöundi síðan
árið 2001. Þann 13. febrúar 2018
svipti Styrmir Haukdal Kristins-
son sig lífi á Kvíabryggju. Í um-
fjöllun DV um harmleikinn kom
fram að Styrmir hefði glímt við
margvísleg geðræn vandamál.
Árið 2004 skar hann móður sína á
háls í geðveikiástandi. Hún hlaut
ekki varanlegan skaða af en síð-
ar var Styrmir úrskurðaður ósak-
hæfur vegna geðklofa. Ljóst var
að Styrmir þurfti nauðsynlega
á sálrænni aðstoð að halda en
engar skynsamlegar lausnir voru
í boði. Til marks um það var hon-
um boðið að ræða við sálfræðing
í gegnum Skype. Styrmi dreymdi
um að ná tökum á lífi sínu en
fangelsismálayfirvöld brugðust.
Styrmir sagði:
„Ég á mér þann draum að
geta lifað eðlilegu lífi í óvernduðu
umhverfi og það er kannski dá-
lítið barnalegt að segja það en
vitaskuld langar mig að eignast
fjölskyldu í framtíðinni. Mig
langar að standa á eigin fótum,
vera eðlilegur án vímuefna og lifa
samkvæmt því.“
Tæpu ári áður hafði Eiríkur
Fannar Traustason, sem afplán-
aði dóm fyrir hrottalega nauðgun
í Hrísey, svipt sig lífi í fangelsinu
á Akureyri. Skömmu fyrir andlát
sitt hafði Eiríkur Fannar eignast
tvíburasyni með sambýliskonu
sinni, Höllu Björg. „Kannski
hélstu að þú værir að gera mér
greiða með því að svipta þig líf-
inu. Það er óbærileg tilhugsun,“
skrifaði Halla Björg í pistli árið
2018 sem vakti mikla athygli og
varð til þess að umræða um geð-
heilbrigðismál fanga fór á flug.
Sama ár tjáði Ragnheiður
Hilmarsdóttir sig um son sinn,
Hilmar Má Gíslason sem var að-
eins 21 árs þegar hann svipti sig
lífi í fangelsi árið 2007. Hilmar
Már fékk aldrei að hitta sál-
fræðing eða geðlækni á meðan
hann sat á bak við lás og slá þótt
hann hafi verið í brýnni þörf.
Ragnheiður sagði:
„Ég vil að lögð sé áhersla á að
það sé hægt að skila þeim betri
út í þjóðfélagið, þá með betri
og skilvirkari geðlæknaþjón-
ustu og öðru slíku sem má bet-
ur fara.“ Hann var dæmigerður
ungur smáglæpamaður sem var
vistaður á sama gangi og dæmd-
ir morðingjar og ofbeldismenn.
Lítið hefur breyst í þessum efn-
um síðan þá líkt og sorgarsaga
Þorleifs staðfestir en Ragnheiður
sagði:
„Þarna taka þeir þessa ungu
stráka og hreinlega murka úr
þeim lífið. Hann var þarna 21 árs
gamall og þar að auki misþroska
og því mikið eftir á sumum svið-
um. Ungur og áhrifagjarn strák-
ur innan um alla þessa stera-
bolta, hann verður auðvitað
bara að engu.“
Óyfirstíganlegt verkefni fang-
elsissálfræðinga
Í rannsókn Boga Ragnarssonar,
nema í félagsfræði við HÍ, sem
var birt árið 2013 kom fram að á
bilinu 54–69 prósent fanga innan
veggja íslenskra fangelsa glímdu
við þunglyndi. Þá hafði um þriðj-
ungur reynt sjálfsvíg. Afar brýnt
er því fangar fái viðeigandi sál-
fræðiaðstoð, en því er ekki fyrir að
fara eins og staðan er í dag.
Í fangelsum á Íslandi starfa
fjórir sálfræðingar í þremur
stöðugildum. Verkefni þeirra er
ærið, nánast óyfirstíganlegt. Sál-
fræðingarnir eiga að sinna öllum
föngum sem eru í afplánun, öll-
um þeim sem eru á reynslulausn.
Eru þetta hvorki meira né minna
en 600 einstaklingar. Ofan á þetta
bætist að sálfræðingarnir eiga að
sinna starfsfólki og vinna áhættu-
mat vegna þeirra einstaklinga
sem eru að sækja um úrræði eins
og reynslulausn eða Vernd. n
ÞORLEIFUR STYTTI
SÉR ALDUR Á LITLA-HRAUNI
n Sat inni fyrir ítrekuð umferðarlagabrot n Þriðji fanginn á tveimur árum sem fremur sjálfsvíg
Eiríkur Fannar Traustason
Styrmir Haukdal
Þorleifur Haraldsson stytti sér aldur á Litla-Hrauni þann 8.
janúar síðastliðinn.
Hilmar Már Gíslason