Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Síða 16
16 11. janúar 2018FRÉTTIR - ERLENT
Þ
ungarokksheimurinn fékk
annað áfall í desember
þegar Pat O’Brien, gítar-
leikari dauðarokkssveitar-
innar Cannibal Corpse, var hand-
tekinn. Hann braust inn og réðst á
lögreglumann með hnífi. Á með-
an brann heimili hans þar sem
fundust tugir skotvopna af ýmsu
tagi og þrjár mennskar hauskúpur.
Aðeins eru nokkrir mánuðir síð-
an gítarleikari þungarokkssveit-
arinnar Manowar var handtekinn
fyrir vörslu barnakláms. Cannibal
Corpse er Íslendingum að góðu
kunn, enda heimsótti hljómsveitin
landið árið 2007 og hélt tvenna vel
heppnaða tónleika á Nasa.
Árás á lögreglumann og
eldsvoði
Þann 10. desember síðastliðinn,
fjórum dögum eftir síðustu tón-
leika á túr Cannibal Corpse, var
O’Brien handtekinn í heimaborg
sinni Tampa í Flórída-fylki. Hafði
hann brotist inn í íbúðarhús-
næði nálægt Northdale-golfvell-
inum og ráðist á lögreglumann
sem kom á vettvang innbrotsins.
Ekki hefur verið gefið upp hverjir
búa í húsnæðinu en O’Brien kom
inn í íbúðina óboðinn um klukk-
an 19. Þegar kona sem býr í íbúð-
inni skipaði honum að fara út
hrinti hann henni í gólfið. Eftir að
búið var að hringja í lögregluna fór
O’Brien út í bakgarðinn og faldi sig
þar.
Lögreglumenn mættu á stað-
inn og skipuðu O’Brien að koma
úr felum. Þá stökk hann á lög-
regluþjón með hníf á lofti en lög-
regluþjónninn skaut hann með
rafbyssu og gerði óvígan. Var hann
í kjölfarið handtekinn og færður á
lögreglustöð.
Á sama tíma og þetta var að ger-
ast barst slökkviliði borgarinnar
tilkynning um að mikill eldur
hefði brotist út í nágrenninu.
Reyndist það vera í húsnæði sem
O’Brien hafði á leigu. Strax var
ljóst að töluvert magn af skotvopn-
um og eldvörpum var í húsnæðinu
en eldurinn var svo mikill að ekki
var hægt að meta umfangið sam-
stundis.
Þann 11. desember var O’Brien
leiddur fyrir dómara. Úlnliðir hans
og ökklar voru hlekkjaðir saman
og hann klæddur í sérstakt vesti
til að koma í veg fyrir að hann gæti
framið sjálfsvíg. Dómari ákvað að
lausnargjaldið yrði fimmtíu þús-
und dollarar, eða tæpar sex millj-
ónir króna, en krafðist þess að
O’Brien gengist undir lyfjapróf
áður en honum yrði sleppt. Var
hann síðan ákærður fyrir að ráð-
ast á lögreglumann með banvænu
vopni og innbrot. Fyrir þessi tvö
brot gæti O’Brien átt yfir höfði sér
lífstíðardóm í fangelsi.
Tvær Uzi-byssur og
þrjár hauskúpur
Dauðarokkarar mala sjaldnast
gull eins og poppstjörnur og því
átti O’Brien ekki fyrir tryggingar-
gjaldinu. Deana Mazurkiewicz,
eiginkona trommara bandsins,
kom á fót hópsöfnun fyrir hann.
Hún sagði:
„Pat er ekki með tryggingu og
hann tapaði öllu sem hann átti.
Þessi söfnun mun hjálpa hon-
um að ná bata og kaupa helstu
nauðsynjar.“
Þremur dögum eftir úrskurðinn
hafði safnast nóg og O’Brien
var sleppt úr varðhaldi. Þá hafði
eldurinn loks verið alveg slökktur
og hægt að meta ástandið á heim-
ilinu. Slökkviliðsmenn fundu þá
gífurlegt magn af skotvopnum.
Sumt var í læstum hirslum og
grunur lék á að þar væri sprengi-
efni. Af byssum fundust fimmtíu
haglabyssur, tíu hríðskotarifflar,
tvær Uzi-byssur, tuttugu skamm-
byssur og tvær eldvörpur. Einnig
fundust þúsundir skotfæra og
mörg önnur vopn, sum ólögleg
og O’Brien ekki með leyfi fyrir öll-
um hinum. Það undarlegasta sem
fannst voru hins vegar þrjár haus-
kúpur úr mannfólki.
Þann 20. desember sendi
Cannibal Corpse frá sér eftirfar-
andi yfirlýsingu varðandi hand-
töku O’Brien:
„Sem hljómsveit og einstak-
lingar viljum við ekkert nema það
besta fyrir Pat, bróður okkar og fé-
laga. Við getum ekki gefið frekari
upplýsingar um atvikið en við vilj-
um láta alla vita að Pat er að fá þá
aðstoð sem hann þarfnast og hann
kann að meta þann stuðning sem
hann hefur fengið frá aðdáendum
Cannibal Corpse víðs vegar um
heiminn. Pat er nú hjá fjölskyldu
og vinum og hyggst snúa aftur til
starfa á einhverjum tímapunkti.“
Flösu þeytt á Nasa
Cannibal Corpse var stofnuð í des-
ember árið 1988 í Tampa en Pat
O’Brien gekk til liðs við sveitina
árið 1997. Hann hafði áður verið í
sveitum á borð við Nevermore og
Monstrosity. Cannibal Corpse var
þegar orðið eitt af tveimur stærstu
dauðarokksböndum heims, ásamt
Deicide, en O’Brien var strax
talinn efla bandið til muna. Á
fyrstu plötunni eftir að hann kom
í bandið var hann farinn að semja
lög.
Hljómsveitin spilar þétt
dauðarokk og er bæði þekkt og al-
ræmd fyrir viðurstyggilega texta,
lagatitla og myndskreytingar á
plötum. Meðal laga þeirra má
nefna „Entrails ripped from a
virgin’s cunt“, „Necropedophile“,
„I cum blood“ og „Fucked with a
knife.“ Þeir hafa hins vegar látið
það vera að fremja guðlast eins
og félagar þeirra í Deicide gera
óspart. Plötur Cannibal Corpse
hafa oft verið bannaðar í hinum
ýmsu löndum og hljómsveitinni
meinað að koma fram á tónleik-
um. Til dæmis í Rússlandi þar sem
rétttrúnaðarkirkjan taldi tónlist
þeirra hvetja til voðaverka og kyn-
brenglunar.
Árið 2007 kom Cannibal
Corpse til Íslands og hélt tvenna
vel heppnaða tónleika á Nasa við
Austurvöll. Voru aðrir fyrir átján
ára og eldri en hinir opnir öllum
aldurshópum. Meðal þeirra ís-
lensku banda sem hituðu upp
voru Mínus, Severed Crotch og
Changer. Greinarhöfundur var
viðstaddur aðra tónleikana og
staðfestir að sjaldan eða aldrei
hefur flösu verið þeytt af jafn mik-
illi ákefð hér á landi. n
Gylfaflöt 6 - 8
S. 587 - 6688
fanntofell.is
BORÐPLÖTUR
& SÓLBEKKIR
Gítarleikari Cannibal Corpse
réðst á lögreglumann með hnífi
n Húsið brann til grunna n Þrjár hauskúpur fundust n Íslandsvinur
„Pat er nú hjá fjöl-
skyldu og vinum og
hyggst snúa aftur til starfa
á einhverjum tímapunkti
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Cannibal Corpse Bassaleikarinn Alex Webster
og söngvarinn George Corpsegrinder.
Pat O’Brien Handtekinn í desember.