Morgunblaðið - 11.10.2018, Side 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
fyrir heim
Stærð: 200 x 103 x 69 cm
Svefnflötur: 145 x 200 cm
Springdýna
Rúmfatageymsla í sökkli
Verð 120.000 kr.
Þægilegir svefnsófar
á góðu verði
ili
Sendum
um
land allt
Skoðið miðjublaðið og
gerið góð kaup í Bónus
g
Mánudaga - Fimmtudaga
10:00 - 19:00
Föstudaga - Laugardaga
10:00 - 19:30
Sunnudaga
11:00 - 18:00
Smáratorgi
aðeins í Bónus Sm ra or
Lengri opnunartími
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Þetta er hybrid-dróni og sennilega
sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi.
Dróninn er smíðaður fyrir stór-
gripa- og hreindýrasmölun, en einn-
ig er hugmyndin sú að nýta tækið
við leitarstörf og þá með hitamynda-
vél,“ segir drónasérfræðingurinn
Jón Halldór Arnarson í samtali við
Morgunblaðið, en hann var fyrstur
Íslendinga til að ná sér í meistara-
gráðu í drónaverkfræði, frá háskól-
anum í Southampton, og býr auk
þess að réttindum til að fljúga
stórum ómönnuðum flugfartækjum í
atvinnuskyni.
Dróninn sem Jón Halldór hefur
sett saman og hannað er engin smá-
smíð, en tækið býr yfir sex öflugum
mótorum og er heildarbreidd drón-
ans 2,36 metrar. Alls vegur flygildið
22 kíló með fullum tanki af eldsneyti.
„Hann er því í stærri kantinum
þessi,“ segir Jón Halldór og heldur
áfram: „Undir drónanum er mynda-
vél, með 10x stækkun, en við
stefnum að því að skipta þeirri
myndavél út fyrir aðra með 36x
stækkun og innrautt ljós. Hún fer
samt ekki undir alveg strax.“
Ný tækni - stóraukið flugþol
Spurður hver sérstaða þessa
dróna sé umfram aðra segir Jón
Halldór það vera flugþolið. „Þetta
tæki býður upp á möguleika sem
aldrei hafa sést áður. Undir drón-
anum er rafall sem býður upp á
þessa hybrid-lausn. En tæknin er í
raun bara sex mánaða gömul því
fram til þessa hefur ekki verið hægt
að setja bensínmótor á dróna vegna
mikils víbrings frá mótorunum,“
segir hann og bætir við að þessi
samnýting rafmagns og jarðefna-
eldsneytis í drónatækni bjóði upp á
stóraukið flugþol. „Fyrir vikið getur
hann flogið í allt að fjórar klukku-
stundir og hefur drægni frá 20 kíló-
metrum og upp í 60 kílómetra.“
Jón Halldór segir hönnun drónans
enn í fullum gangi. „Hann verður
áfram í þróun út árið. Hugmyndin er
meðal annars sú að dróninn þoli bet-
ur mismunandi veðráttu og verði
þannig að hægt sé að nota hann í öll-
um aðstæðum,“ segir hann.
Verður til sýnis um helgina
Að baki hönnun og smíði drónans
er fyrirtækið UAS Resource Sup-
port sem er í eigu Jóns Halldórs,
Stefáns Magnasonar, hreindýra-
bónda á Grænlandi, og Ingvars
Garðarssonar fjárfestis. „Staðið hef-
ur til að prófa drónann við raunveru-
legar aðstæður, meðal annars á
Grænlandi, en það hefur aftur á móti
ekki tekist enn. Stefnt er þó að því
að prófunum ljúki á næstu mán-
uðum og gefst þá tækifæri til að
leigja tækið til dæmis í hreindýra-
eða stórgripasmölun,“ segir Jón
Halldór og bendir á að menn hafi
lengi notað þyrlur við smölun. Dróni
sé hins vegar mun ódýrari mögu-
leiki. „Menn gætu þá leigt drónann í
verkið og greitt fyrir daginn svipað
verð og þyrla kostar á klukkutím-
ann.“
Þá er vert að benda áhugasömum
á að dróni Jóns Halldórs og félaga
verður til sýnis á landbúnaðarsýn-
ingunni sem haldin verður í Laugar-
dalshöll í Reykjavík dagana 12. til
14. október næstkomandi. Verður
hægt að skoða og fræðast nánar um
tækið á bás fyrirtækisins Dronefly
sem sérhæfir sig í sölu og viðgerðum
á drónum fyrir áhugafólk og fag-
menn hér á landi.
Hybrid-tækni ryður sér til rúms
Íslensk drónahönnun samnýtir rafmagn og jarðefnaeldsneyti Tæknin gerir flygildinu kleift að
fljúga allt að 60 kílómetra vegalengd og er flugþolið fjórar klukkustundir Hannað til smölunar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vinnujálkur Jón Halldór Arnarson drónasérfræðingur hefur að undanförnu unnið að hönnun og smíði nýs dróna. Er tækið að líkindum hið fyrsta sinnar
tegundar á Íslandi og nýtir það hybrid-tækni til að stórauka flugþol. Áhugasamir geta virt drónann fyrir sér í Laugardalshöll í Reykjavík um helgina.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Prófanir Dróninn er enn í hönnun og mun því taka frekari breytingum.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
HVAR ER NÆSTA
VERKSTÆÐI?