Morgunblaðið - 11.10.2018, Blaðsíða 74
74 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018
Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is
Glæsilegt
úrval af
trúlofunar- og
giftingarhringapörum
AF BÓKUM
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Fyrir sextíu árum millilentutveir ferðalangar á flugvell-inum í Delhí hér á Indlandi.
Þeir voru á leið til Nepals, ferð-
uðust með hvítan hund og hugðust
leita að vini sem var talinn af eftir
flugslys í Tíbet. Þetta voru hinn
hugdjarfi blaðamaður Tinni og Kol-
beinn kafteinn og með þeim var
vitaskuld terríerhundurinn Tobbi.
Ég segi að þessi uppdiktaði við-
burður hafi gerst fyrir sextíu árum
en árið 1958 hóf tuttugasta Tinna-
sagan, Tinni í Tíbet, að koma út í
tímaritaformi. Höfundurinn Hergé
lauk henni árið eftir og það var svo
árið 1960 sem hún kom fyrst út á
bók. Síðan hefur sagan verið gefin
út í nánast öllum löndum jarðar,
meðal annars hér á Indlandi hvar
Tinni mun enn vera lesinn – eins og
vera ber. Og margir Tinnaaðdá-
endur nefna Tinna í Tíbet fyrst
þegar spurt er um eftirlætis Tinna-
bók þeirra. Þeim finnst að þar hafi
frásagnar- og teiknitækni Hergés
náð ákveðnum hátindi.
Eftir að hafa farið æði frjáls-
lega með staðreyndir þegar Hergé
sendi Tinna út í heim í fystu bók-
unum, þá tók höfundurinn sig veru-
lega á og tók að leggja mikið upp úr
heimildum og rannsóknarvinnu. Ég
ólst upp með Tinna á íslensku, varð
mikill aðdáandi söguheimsins og
var orðinn 12 ára þegar Tinni í Tíb-
et kom út. Þá tók ég eftir því að á
þriggja tíma stoppi í Delhí ná félag-
arnir að skoða Qutab mínarettuna
háu og Rauða virki en verða að
sleppa Jama Majsid moskunni og
Raj Ghat. Ég ákvað nú sex áratug-
um síðar að feta í fótspor þeirra og
skoða líka staðina sem Tinni vildi
sjá en missti af. Og það var gott
flakk, ég sannreyndi að Hergé var
afar nákvæmur er hann teiknaði
þessa staði – en rétt eins og Tinni
náði ég ekki að sjá þá alla.
Yfirferð Tinni og Kolbeinn í Delhí; þeir vilja sjá margt en ná ekki öllu - missa nær af fluginu. Bænaturninn Qutab mínarettan er frá 1193.
Rauða virki Í bókinni setjast póstkortasölumenn eins og Sunil að Tinna. Raj Ghat Garður þar sem lík Gandhis var brennt var lokaður er ég mætti.
Í fótspor Tinna í millilendingu á Indlandi
Moskan Tinni missti af hinni stóru Jama Majsid.
Morgunblaðið/Einar Falur
Betri er krókur… Frekar en reyna að klofa yfir kúna tók ég á mig krók.
Hrakfarir Kolbeinn fór illa út úr því að klofa yfir kú sem lokaði vegi.