Morgunblaðið - 23.11.2018, Síða 93
MENNING 93
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018
595 1000 . heimsferdir.isBókaðuþína ferð á
BLACK FRIDAY HELGI
TENERIFE & GRAN CANARIA
FLUG &
GISTING
FRÁ 70.000
FLUG
EINGÖNGU
FRÁ 30.000
+
OFURTILBOÐ Í JANÚAR
BÓKAÐU STRAX Í DAG Á
www.heimsferdir.is
báðar leiðir með tösku og handfarangriá mann m.v. 2 saman í herbergi
Hátíðarballettflokkur St. Péturs-
borgar, St. Petersburg Festival Bal-
let, og Sinfóníuhljómsveit Íslands
fluttu í gær hinn sígilda ballett Tsjæ-
kovkíjs, Hnotubrjótinn, og munu
endurtaka leikinn í kvöld og á morg-
un.
Ballettinn er ómissandi hluti af
jóladagskrá margra tónleikahúsa er-
lendis og börn jafnt sem fullorðnir
hlakka árlega til þess að njóta upp-
færslunnar, eins og segir á vef Hörpu
sem stendur að sýningunni í sam-
starfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Verkið á sér stað á aðfangadags-
kvöld en þá fær ung stúlka, María,
fallegan hnotubrjót að gjöf frá töfra-
manninum Drosselmeyer. Nokkru
síðar lifna leikföngin undir jólatrénu
við og hnotubrjóturinn breytist í
prins sem leiðir Maríu inn í ævin-
týraland.
Ballettflokkurinn frá St. Péturs-
borg þykir sameina allt sem einkenn-
ir rússneskan listdans; glæsileika,
ferskleika 21. aldarinnar og heild-
stæða sýningu. Í honum eru fremstu
listdansarar flokksins og dansarar úr
bestu dansflokkum sem viðhalda
hefðum St. Pétursborgar-ballettsins.
Hinn sígildi Hnotubrjót-
ur sýndur í Eldborg
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Glæsileiki Dansarar í St. Petersburg Festival Ballet voru einbeittir á æfingu í Hörpu í gær.
Viðburðadagskráin Fullveldi á
föstudegi heldur áfram í dag í
Listasafni Íslands með málþingi
sem ber yfirskriftina Áskoranir
fullveldis. Það hefst kl. 15 og lýkur
kl. 16.30. Guðrún Nordal, forstöðu-
maður Stofnunar Árna Magnús-
sonar í íslenskum fræðum, flytur
fyrsta erindi, Áskoranir fullveldis
árið 2018, og á eftir henni tekur
Katrín Oddsdóttir lögfræðingur til
máls og flytur erindið Er fullveldi í
raun? Hugleiðingar um stjórnar-
skrármál Íslendinga í samhengi við
efnislegt inntak fullveldishugtaks-
ins. Að lokum flytur Andri Snær
Magnason rithöfundur erindið
Stóru orðin og segir um það á vef
safnsins: „Árið 1809 kynnti Jör-
undur hundadagakonungur ís-
lensku þjóðinni glæný hugtök og
kom þeim til framkvæmda sam-
dægurs. Hann var aðeins á undan
sinni samtíð og það tók okkur að
minnsta kosti 100 ár að skilja hug-
tökin sem hann notaði. Hvaða orð
skiljum við illa í dag sem munu
marka næstu 100 ár lýðveldissög-
unnar?“
Kl. 15.50 hefjast umræður og
munu þær standa yfir í 20 mínútur
eða þar um bil.
Áskoranir full-
veldis á málþingi
Fyrirlesari Guðrún Nordal tekur þátt í
Fullveldi á föstudegi í Listasafni Íslands.
Vöruhönnuðurinn Valdís Steinars-
dóttir hlaut um miðjan mánuð verð-
laun Forum Design de Paris fyrir
Bioplastic Skin. Valdís nam vöru-
hönnun við Listaháskóla Íslands og
eru verðlaunin veitt fyrir hönn-
unarverkefni nýútskrifaðra hönn-
uða. Varð Valdís í fyrsta sæti í
flokki frumgerða fyrir verkefni sitt
sem hún byrjaði á þróa á lokaári í
vöruhönnun. Bioplastic Skin er sér-
stakt umbúðaplast fyrir kjötvörur,
unnið úr dýrahúðum og segir í til-
kynningu að aðalmarkmið þess sé
tvíþætt; að skapa náttúrulegt efni
sem komi í stað mengandi plasts og
jafnframt að vekja almenning til
umhugsunar um fullnýtingu á kjöt-
vörum við neyslu þess.
Skinka Bioplastic Skin utan um skinku.
Hlaut verðlaun fyr-
ir Bioplastic Skin