Morgunblaðið - 12.01.2019, Page 1
Leið ofteins oggeimveru
Stjarnaná dregl-inum
13. JANÚAR 2019SUNNUDAGUR
Í mat hjádóttur
mafíósa
Lady Gaga hefurbreytt um stíl oger stjarna endur-fædd á rauðadreglinum 20
Skjá-
væddkynslóð
Þótt snjalltæki ogleikjatölvur hafiýmsa kosti hafa sér-fræðingar víða umheim áhyggjur afofnotkun 12
Veitingastaðurí París vekurhörð viðbrögð 6
L A U G A R D A G U R 1 2. J A N Ú A R 2 0 1 9
Stofnað 1913 10. tölublað 107. árgangur
HUGMYNDA-
AUÐGI OG HÁTT
ORKUSTIG
TEIKNINGAR Í
KENNSLUBÓKUM
Á SÝNINGU
BÓKASAFN KÓPAVOGS 12RAUÐHETTA bbbbn 49
Horfur eru á kólnandi veðri, að
sögn Helgu Ívarsdóttur, veðurfræð-
ings hjá Veðurstofu Íslands. Það
eru mikil umskipti frá hlýjustu jan-
úarbyrjun það sem af er öldinni.
Í dag gæti orðið slydda og jafnvel
snjókoma í efri byggðum höfuð-
borgarsvæðisins. Horfur eru á
hvassviðri og jafnvel stormi á Vest-
fjörðum og við Breiðafjörð og dá-
litlum éljum í kvöld.
Á morgun eykst frostið og er út-
lit fyrir að sunnudagurinn verði
fremur kaldur um mest allt land.
Eftir helgina er væntanleg lægð
sem verður mun kaldari en þær
sem hingað hafa komið undanfarið.
Úrkoman gæti orðið slydda og jafn-
vel rigning seinnipart mánudags
syðst á landinu, ef spáin gengur eft-
ir. Í kjölfar lægðarinnar kólnar
strax aftur og lítur út fyrir að frost-
ið herði á miðvikudag en svo dragi
úr því á fimmtudag. »6
Morgunblaðið/Hari
Vetrarveður Útlit er fyrir að fólk þurfi að
klæða af sér kuldann næstu daga.
Vetur konungur er
væntanlegur með
kólnandi veður
„Áhrifin eru jákvæð án þess að
hafa áhrif á afköstin,“ segir Sonja
Ýr Þorbergsdóttir, formaður
BSRB. Vísar hún í máli sínu til nið-
urstaða rannsókna á tilraunaverk-
efni ríkisins á styttingu vinnuvik-
unnar.
Segir Sonja að BSRB fari fram á
að vinnuvikan verði stytt án launa-
skerðingar. Þetta verði eitt af for-
gangsverkefnum í kjaraviðræðum
BSRB. Málþing um styttingu
vinnuvikunnar fer fram í Hörpu í
dag. »10
Stytting vinnuviku
forgangsverkefni
„Þetta eru einkum tvenns konar
áhrif sem við höfum áhyggjur af.
Annars vegar áhrif þessarar sjón-
rænu oförvunar og svo líka hvaða
góðu virkni er ýtt í burtu vegna
þess að barnið er í skjátækjunum,“
segir Björn Hjálmarsson, sér-
fræðilæknir á barna- og unglinga-
geðdeild Landspítalans, BUGL, í
viðtali í Sunnudagsblaði Morg-
unblaðsins.
Björn segir vísindasamfélagið
ekki hafa tekið nægilega við sér og
rannsakað til hlítar afleiðingar
mikillar skjánotkunar.
Síðasta sumar skilgreindi al-
þjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO,
tölvuleikjafíkn sem nýja tegund af
geðröskun. Þá er talað um rafrænt
skjáheilkenni, sem er nýyrði sem
lýsir skaðlegum einkennum ofnotk-
unar á snjalltækjum og er þá hugs-
anlegt forstig að því sem getur
þróast út í fíkn.
Stór hluti fer umfram hámarks-
tíma
„Þegar farið er yfir þessi þol-
mörk fer að bera á reiði, pirringi,
kvíði getur aukist og barnið staðið
sig almennt verr í því að mæta kröf-
um fullorðna fólksins,“ segir Björn
en það er afar misjafnt hvernig
gengur að halda utan um skjátíma
barna og unglinga en stór hluti
barna fer langt umfram þann há-
markstíma sem bandarísku barna-
læknasamtökin ráðleggja í skjá-
tækjum.
„Það er mjög margt sem á eftir
að rannsaka og ég held við séum
komin á þann stað að það þurfi
stóra lýðheilsurannsókn hérlendis á
áhrifum skjátíma á börn og ung-
linga.“
Kallar eftir lýðheilsurannsókn
Morgunblaðið/Eggert
Rannsókna þörf Björn Hjálmars-
son lýsir áhyggjum af skjátíma.
Sérfræðilæknir á BUGL segir þörf á rannsókn á áhrifum skjátíma á börn
Bankahrunið og þjóðfélagsbreyt-
ingar í kjölfarið gætu verið ein
ástæða þess að líðan unglinga hefur
aldrei verið verri en nú. Þetta segir
Þorgerður L. Diðriksdóttir, for-
maður Félags grunnskólakennara.
Hún segir niðurstöður rann-
sóknar um heilsu og lífskjör grunn-
skólanemenda, sem greint var frá í
Morgunblaðinu í gær, ríma vel við
þann veruleika sem kennarar
þekki. Sjálf á hún um 25 ára
kennsluferil að baki og segir að á
þeim tíma hafi hún orðið vör við
miklar breytingar á andlegri líðan
nemenda. Þátttaka þeirra í íþrótta-
og tómstundastarfi hafi aukist,
hugsanlega sé vinnuálag þar og í
skóla meira en þeir ráði við. »16
Álagið talið meira
en þau ráða við
Íslenska karlalandsliðið í handknattleik, með
marga unga leikmenn innanborðs, lék vel lengst
af í gær þegar það beið lægri hlut fyrir sterku
liði Króata, 27:31, í fyrsta leik sínum á heims-
meistaramótinu í München. Ísland var yfir þegar
skammt var til leiksloka en Króatar tryggðu sér
sigurinn með því að skora sex mörk í röð. Ísland
mætir Spáni í öðrum leik sínum í München á
morgun. » Íþróttir
AFP
Stóðu vel í sterku liði Króata í fyrsta leik á HM
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
KEA býðst til að reisa fyrir eigin
reikning og leigja ríkinu viðbygg-
ingu við flugstöðina á Akureyrar-
flugvelli til að þjóna millilandaflug-
inu. Fyrirtæki í ferðaþjónustu sem
hafa verið að þróa nýjar hugmyndir
um uppbyggingu telja unnt að gera
það á stuttum tíma og með minni
kostnaði en rætt hefur verið um.
Halldór Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri KEA, segir að aðstaða
í flugstöðinni sé óviðunandi fyrir
millilandaflug. Hún sé of lítil og geti
ekki þjónað almennilega meðalstór-
um þotum. Eins og áður hefur komið
fram skipuleggur ferðaskrifstofa
ferðir frá borgum í Bretlandi beint
til Akureyrar og áformað er að slíkt
flug hefjist frá Hollandi á vormán-
uðum. Fyrirtæki í ferðaþjónustu ótt-
ast áhrif þess á starfsemina að nú-
verandi flugstöð rúmar ekki farþega
í millilandaflugi með góðu móti og
hamli það frekari þróun þess.
Áætlanir hafa verið um uppbygg-
ingu aðstöðu á flugvellinum en
stækkun flugstöðvarinnar er ekki
komin á áætlun. „Það þarf að fara
hraðar í stækkun flugstöðvarinnar
en áætlanir hafa verið um, ef á annað
borð ætlunin er að stunda millilanda-
flug frá Akureyrarflugvelli,“ segir
Halldór. Ferðaþjónustufyrirtækin
Höldur og SBA hafa unnið með KEA
að nýjum áætlunum sem kynntar
hafa verið samgönguráðherra og
Isavia.
Vilja byggja flugstöð
Fyrirtæki í ferðaþjónustu á Akureyri vilja flýta stækkun flugstöðvar til að þjóna
millilandafluginu KEA býðst til að reisa ódýra viðbyggingu og leigja ríkinu
Stærri flugstöð
» Fyrirtækin telja unnt að
byggja 1.000 fm viðbyggingu
við flugstöðina á 7-12 mán-
uðum fyrir 200-250 milljónir.
» Byggt verði norðan við nú-
verandi flugstöð og gera hug-
myndir ráð fyrir að þaðan verði
millilandafluginu þjónað.
MBjóðast til að byggja »6