Morgunblaðið - 12.01.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2019
Nice&Mónakó
sp
ör
eh
f.
Vetur 1
Glæsileg ferð á frönsku rivíeruna eða Côte d‘Azur þar
sem við njótum lífsins og tökum þátt í hátíðahöldum
heimamanna á blómahátíð í Nice og upplifum
ævintýralega sítrónuhátíð í Menton. Fetum í fótspor
kvikmyndastjarna í Cannes og látum suðrænan blæ leika
um okkur í furstadæminu Mónakó.
28. febrúar - 7. mars
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Verð: 208.800 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Mjög hlýir dagar komu í þessari
viku. Á miðvikudaginn var mjög heitt
á Austfjörðum. Á Dalatanga komst
hitinn í 18,5 °C, í Bjarnarey 17,8 °C og
á Eskifirði 17,0 °C. Einnig var heitt
víða á hálendinu þennan dag. Þannig
mældust 15,5 °C á Eyjabökkum. Á
fimmtudaginn komst hitinn í 18,8 °C á
Dalatanga, 17,3 °C á Eskifirði og 16,9
°C á Fáskrúðsfirði.
Úrkoma í Reykjavík hefur mælst
um 30 millimetrar í byrjun ársins og
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
„Þetta er hlýjasta janúarbyrjun það
sem af er öldinni,“ segir Trausti Jóns-
son veðurfræðingur um 10 fyrstu
daga janúarmánaðar.
Meðalhiti í Reykjavík þessa daga
er 4,9 stig, 5,5 stigum ofan meðallags
árin 1961-1990 og 3,8 ofan meðallags
síðustu tíu ár.
„Trúlega fellur hiti mánaðarins
eitthvað á samanburðarlistum næsta
þriðjung mánaðarins – bæði er útlit
fyrir kólnandi veður og samkeppni
við aðra hlýja janúarmánuði mjög
ströng,“ segir Trausti ennfremur.
Kaldastir á þessari öld voru dag-
arnir tíu árið 2001, meðalhiti þá -4,7
stig. Sé litið til lengri tíma (144 ár) er
hiti dagana tíu nú í 3. til 4. hlýjasta
sæti, hlýrri voru þeir 1972 [6,8 stig]
og 1973 [5,5], en jafnhlýir 1964. Kald-
astir voru þeir 1903, meðalhiti -7,7
stig, segir Trausti.
Á Akureyri er meðalhiti dagana tíu
5,1 stig, 7,5 stigum ofan meðallags
1961-1990, en 5,4 stig ofan meðallags
sömu daga síðustu tíu árin.
Á landinu hefur að tiltölu verið
hlýjast við Upptyppinga, hiti þar
+6,1 stigi ofan meðallags síðustu tíu
ár, og vikið í Torfum í Eyjafirði er 5,1
stig. Minnst er vikið í Seley, +2,0
stig.
er það nærri meðallagi. Á Akureyri
hefur úrkoma aðeins mælst um 1
mm. Sólskinsstundir í Reykjavík hafa
mælst 5,7, fjórum stundum undir
meðallagi.
Veturinn hefur verið mjög hlýr.
Í yfirliti Veðurstofunnar um tíð-
arfar kemur fram að nóvember 2018
var hlýr og hiti var yfir meðaltali á
landinu öllu. Óvenjuhlýtt var í desem-
ber og var hiti vel yfir meðallagi í öll-
um landshlutum.
Hlýjasta janúarbyrjunin
Hiti langt yfir meðallagi Útlit er fyrir kólnandi veður
Morgunblaðið/sisi
Iðgrænir vellir Þessi mynd var tekin 10. janúar sl. en ekki 10. júlí í fyrra.
Víkingsvöllurinn er sem á sumardegi rétt eins og aðrir knattspyrnuvellir.
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Þrjú fyrirtæki sem fjárfesta í eða
reka ferðaþjónustu á Akureyri vinna
áætlanir um að hraða uppbyggingu
flugstöðvarinnar
á Akureyrarflug-
velli til að hún
anni núverandi og
væntanlegu milli-
landaflugi. Telja
þau unnt að koma
í gagnið nauðsyn-
legri viðbót við
flugstöðina fyrir
mun lægri fjár-
hæðir en hingað
til hefur verið rætt um. KEA lýsir
sig reiðubúið til að byggja aðstöðuna
og leigja til ríkisins.
Bresk ferðaskrifstofa skipuleggur
leiguflug frá borgum í Bretlandi til
Akureyrar og hollensk ferðaskrif-
stofa hefur slíkt flug síðar í vetur.
Halldór Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri KEA, segir að aðstaða
í flugstöðinni sé óviðunandi fyrir
millilandaflug. Hún sé of lítil, geti
ekki þjónað almennilega meðalstór-
um þotum. Farþegarnir geti þurft að
bíða í röðum úti eftir að komast að í
innritun og í strætisvögnum eftir að
komast inn í flugstöðina. Þá sé flug-
stöðin flöskuháls í frekari framþróun
millilandaflugs.
Halldór bendir á að millilandaflug
frá Akureyri sé hafið og ríkið búið að
fjárfesta í flugþróunarsjóði til að
stuðla að því. Þá nefnir hann að ef
ætlunin er að bæta við flughlöðum til
að styrkja Akureyrarflugvöll sem
varaflugvöll í millilandaflugi af ör-
yggisástæðum þurfi að vera hægt að
koma fólkinu með góðu móti úr flug-
vélunum í hús. Þetta falli því allt
saman.
Þarf að fara hraðar í málið
„Það þarf að fara hraðar í stækk-
un flugstöðvarinnar en áætlanir hafa
verið um, ef á annað borð ætlunin er
að stunda millilandaflug frá Akur-
eyrarflugvelli,“ segir Halldór Jó-
hannsson.
Í skýrslu sem verkfræðistofan
Efla vann fyrir Eyþing og birt var í
september var áætlað að kostnaður
við stækkun flugstöðvarinnar um
1.932 fermetra, samkvæmt eldri
hugmyndum, og breytingar á eldri
byggingu myndu kosta 1.477 millj-
ónir króna og hægt væri að fram-
kvæma þetta á tveimur árum.
KEA, Höldur og SBA, fyrirtæki
sem fjárfesta í eða reka ferðaþjón-
ustufyrirtæki á svæðinu, hafa unnið
að tillögum um hraðari uppbyggingu
aðstöðu í flugstöðinni. Fyrirtækin
hafa unnið í góðu og nánu samstarfi
við Akureyrarbæ sem mjög hefur
látið málið til sín taka á undanförn-
um árum.
Einfaldara og ódýrara hús
AVH - verkfræði- og hönnunar-
stofa á Akureyri hefur gert skissu að
nýrri flugstöð og kostnaðarmetið
verkefnið. Hugmyndirnar ganga út á
að byggja einfaldara hús en fyrri
hugmyndir gerðu ráð fyrir, mun
ódýrara og sem fljótlegt yrði að
reisa. Skissa hefur verið gerð að ein-
földu stálgrindarhúsi norðan við nú-
verandi flugstöð og sem hægt væri
að stækka með millilofti.
Ráðgjafi fyrirtækjanna telur unnt
að reisa 1.000 fermetra byggingu
fyrir 200 til 250 milljónir króna. Ef
talin yrði þörf fyrir stærra hús gæti
1.500 fermetra bygging kostað sam-
svarandi á fermetra, eða 300 til 400
milljónir kr. Inni í þessum áætlunum
er ekki kostnaður við innréttingu
hússins eða tækjabúnað og heldur
ekki kostnaður við hugsanlegar
breytingar á gömlu flugstöðinni.
Húsið mætti í byrjun nota eingöngu
fyrir millilandaflugið.
Bjóðast til að leigja ríkinu
KEA hefur lýst sig reiðubúið til að
byggja húsið, eiga það og leigja rík-
inu. Það gæti tekið sjö til tólf mánuði
að byggja, ef allt gengur upp, en
Halldór segir að undirbúningstíminn
ráðist einnig af framgangi deili-
skipulagsbreytinga.
„Við teljum þetta raunhæfa leið til
að leysa málið. Við viljum hraða því
eins mikið og hægt er. Tíminn er
ekki að vinna með okkur,“ segir
hann.
Hugmyndirnar hafa óformlega
verið kynntar samgönguráðherra og
Isavia, og fyrstu viðbrögð hafa verið
góð, að sögn Halldórs sem segist því
vera bjartsýnn.
Bjóðast til að byggja flugstöð
Þrjú fyrirtæki á Akureyri þróa hugmyndir um hraða uppbyggingu á aðstöðu á Akureyrarflugvelli til að
þjóna millilandafluginu Hugmyndir uppi um einfalda viðbyggingu sem gæti kostað 200 til 250 milljónir
Teikning/AVH
Viðbygging Gróf skissa sýnir 1.500 fermetra viðbyggingu norðan núverandi flugstöðvar á Akureyri. 1.000 fermetra bygging gæti kostað 200-250 milljónir sem er aðeins brot af fyrri áætlunum.
Halldór
Jóhannsson
Kostnaður við að byggja nýja
flugstöð á Akureyrflugvelli gæti
verið tæpir 1,5 milljarðar, kostn-
aður við gerð flughlaða til að
styrkja flugvöllinn sem vara-
flugvöll er 1,6 milljarðar og upp-
setning á ILS-aðflugsbúnaði
kostar 180 milljónir, samkvæmt
skýrslu sem verkfræðistofan
Efla gerði fyrir Eyþing sl. haust.
Kostnaðurinn yrði samtals 3,2
milljarðar, skv. þeim áætlunum.
Bæjarráð Akureyrar sam-
þykkti í október að óska eftir að
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar
aflaði gagna til að gera við-
skipta- og rekstraráætlun fyrir
völlinn og kanna áhrif fjölgunar
farþega með auknu millilanda-
flugi sem og rekstrargrundvöll.
Kostnaður
3,2 milljarðar
AKUREYRARFLUGVÖLLUR