Morgunblaðið - 12.01.2019, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2019
BORÐPLÖTUR
OG SÓLBEKKIR
• Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré
• Mikið úrval efna, áferða og lita
• Framleiðum eftir óskum hvers og eins
• Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti
gaf til kynna í gær að hann væri
reiðubúinn til þess að lýsa yfir neyð-
arástandi á landamærum Bandaríkj-
anna og Mexíkó ef engin lausn fynd-
ist á deilu demókrata og repúblíkana
á Bandaríkjaþingi um fjármögnun
landamæramúrsins svonefnda. Um
800.000 ríkisstarfsmenn fengu ekki
útborguð laun í gær og voru flug-
umferðarstjórar og bandarískir al-
ríkislögreglumenn þeirra á meðal.
Trump greindi í gær á samskipta-
miðlinum Twitter frá ferðalagi sínu
til landamæranna í fyrradag og sagði
að ástandið væri alvarlegra en talið
hefði verið. Notaði forsetinn orðið
„innrás“ til þess að lýsa fjölda þeirra
sem færu ólöglega yfir landamærin
og hét því að hann myndi láta reisa
stálgirðingu eða múr á landamærun-
um þar sem Bandaríkin yrðu ekki
örugg annars.
Demókratar, sem nú fara með
völdin í neðri deild Bandaríkjaþings,
hafa hins vegar ekki tekið vel í hug-
myndir Trumps um slíka girðingu en
áætlað hefur verið að þær muni
kosta um 5,7 milljarða bandaríkja-
dala, og neita þeir að ræða frekari
fjárveitingu nema Trump samþykki
fjáraukaheimild til þess að opna þær
ríkisstofnanir sem lokaðar eru.
Lindsey Graham, leiðtogi repú-
blikana í öldungadeildinni sagði í
gær að Trump ætti að lýsa yfir neyð-
arástandi en slíkt myndi gefa honum
heimildir til þess að nota fé til varn-
armála í landamæragirðingar. And-
stæðingar forsetans hafa hins vegar
hótað því að slík ákvörðun verði
dregin fyrir dómstóla.
Þokast nær neyðarástandi
Um 800.000 ríkisstarfsmenn fengu ekki útborgað í gær vegna lokunarinnar
AFP
Landamæri Trump heimsótti landa-
mærin við Mexíkó í fyrradag.
Þessi þýski strákur renndi sér kampakátur á sleða sín-
um í gær við Wasserkuppe-fjallið í Fulda-héraði Þýska-
lands. Talsverðar vetrarhörkur hafa verið í mörgum
ríkjum á meginlandi Evrópu og hafa Austurríki og suð-
urhluti Þýskalands orðið sérstaklega illa úti. Þá snjóaði
einnig í Aþenu, höfuðborg Grikklands, í gær.
AFP
Frostavetur herjar nú á meginland Evrópu
Snjóþunginn fagnaðarefni fyrir suma
Rahaf Moham-
med al-Qunun,
sádiarabíska
konan sem flúði
fjölskyldu sína til
Taílands, flaug í
gær til Kanada,
þar sem hún mun
sækja um hæli.
Sagði Justin Tru-
deau, forsætis-
ráðherra Kan-
ada, að hún væri velkomin til
landsins.
Rahaf sem er átján ára gömul
hefur verið úrskurðuð flóttamaður
af Sameinuðu þjóðunum en hún
hefur meðal annars afneitað íslam.
Liggur dauðarefsing við slíku í
Sádi-Arabíu.
Taílensk yfirvöld ætluðu upp-
haflega að senda hana aftur til Kúv-
eit, þaðan sem hún kom, en Rahaf
læsti sig þá inni á hótelherbergi
sínu og notaði samfélagsmiðilinn
Twitter til að vekja athygli á mál-
stað sínum.
Rahaf leitar
hælis í Kanada
Rahaf Mohammed
al-Qunun
TAÍLAND
Tom Hagen, eig-
inmaður Anne-
Elisabeth Falke-
vik Hagen, sem
var rænt 31.
október síðastlið-
inn, fann þétt-
skrifað bréf
heima hjá sér eft-
ir mannránið
með lausn-
argjaldskröfu
ræningjanna og hótunum um hvaða
afleiðingar það hefði ef hann leitaði
til lögreglunnar. Samkvæmt heim-
ildum norska ríkisútvarpsins NRK
var bréfið skrifað á „bjagaðri
norsku“, sem sögð var einhvers
konar blanda af norsku, Austur-
Evrópumáli og Google-Translate,
að sögn heimildarmanns.
Lögreglan vildi ekki tjá sig um
frétt NRK, en sagði að lausnar-
gjaldsbréfið væri eitt af veigameiri
sönnunargögnum við rannsókn
málsins.
Lausnargjaldsbréfið
á „bjagaðri norsku“
Anne-Elisabeth
Falkevik Hagen
NOREGUR
Jean-Claude Juncker, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins, sagði í gær að leita yrði allra
mögulegra leiða til þess að leysa
Brexit-málið áður en breska þingið
greiðir atkvæði um samkomulagið
sem lagt hefur verið fyrir það.
Ummæli hans komu sama dag og
nánir samverkamenn Theresu May
forsætisráðherra gáfu til kynna að
haldbær loforð frá Evrópusamband-
inu um írska „þrautavarann“, sem
valdið hefur þingheimi hvað mestum
áhyggjum, gætu legið fyrir á mánu-
daginn. Hafa breskir þingmenn lýst
yfir þeim áhyggjum sínum að
þrautavarinn, eins og hann er orð-
aður nú, gæti læst Bretland inni í
óhagkvæmu viðskiptasambandi við
Evrópusambandið um aldur og ævi.
Allt stefnir í að samkomulagið
verði fellt af breska þinginu, en bæði
stuðningsmenn og andstæðingar að-
ildar Breta að Evrópusambandinu
hafa gagnrýnt það að undanförnu,
sem aftur hefur ýtt undir ótta um að
Bretar muni yfirgefa sambandið án
samnings hinn 29. mars næstkom-
andi. Juncker sagði hins vegar að út-
ganga Breta án samnings yrði
hörmuleg fyrir bæði Breta og hin
Evrópusambandsríkin. Því þyrfti að
leggja allt kapp á að leysa hnútinn.
„Við erum í stöðugum samskipt-
um, framkvæmdastjórnin og ég, við
breska forsætisráðuneytið og við
munum sjá á þriðjudaginn hvað
breska þingið segir um textann sem
lagður hefur verið til,“ sagði Juncker
og ítrekaði að ekki væri hægt að
semja upp á nýtt.
Neðri deild breska þingsins hefur
rætt samninginn síðan á miðviku-
daginn. Ríkisstjórn Bretlands fór
halloka í tveimur atkvæðagreiðslum
við upphaf umræðunnar og mun hún
neyðast til þess að vera tilbúin með
næstu skref í málinu fyrir lok næstu
viku, fari svo að hún tapi atkvæða-
greiðslunni á þriðjudaginn.
Verða að leita
allra leiða
Juncker kallar
eftir lausn á Brexit
fyrir þriðjudaginn
AFP
Brexit Stuðningsmenn aðildar mót-
mæltu við breska þinghúsið í gær.
Martin Fayulu, forsetaframbjóðandi
í Austur-Kongó, tilkynnti í gær að
hann hygðist kæra úrslit forseta-
kosninganna sem haldnar voru 30.
desember síðastliðinn til stjórnlaga-
dómstóls landsins. Mun hann þar
krefjast endurtalningar á atkvæð-
unum sem greidd voru í kosning-
unum, en bráðabirgðaniðurstöður
gáfu til kynna að Felix Tshisekedi
hefði hlotið 38,57% atkvæða, en Fa-
yulu 34,8%.
Fayulu og Tshisekedi tilheyra báð-
ir stjórnarandstöðuflokkum landsins,
en Emmanuel Ramazani Shadary,
frambjóðandi stjórnarflokksins, varð
þriðji í kjörinu með einungis 23,8%.
Úrslitin komu mörgum á óvart,
þar sem flestar kannanir sem gerðar
höfðu verið í aðdraganda kosning-
anna bentu til þess að Fayulu myndi
verða hlutskarpastur, en kaþólska
kirkjan sagði fljótlega eftir kjörið að
niðurstaðan passaði illa við þær út-
gönguspár sem eftirlitsmenn hennar
í kosningunum hefðu látið gera.
Atkvæðin
mögulega
talin aftur
Úrslitin kærð til
stjórnlagadómstóls