Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Blaðsíða 57
Tvæ r r e i m l e i k a s ö g u r
TMM 2013 · 3 57
Fimmti starfsmaðurinn, Karólína, sat álengdar og maulaði nestið sitt en
fylgdist þegjandi með framvindu leiksins. Svona hafði þetta verið í nokkrar
vikur.
Þegar leið á leikinn og öll auðveldari köstin höfðu verið dekkuð – parið,
pörin, þrennan, húsið, fernan, ruslið – og þríparið og tvíþrennan gnæfðu líkt
og þrítugir hamrar yfir spilurum, greip eitt þeirra til örþrifaráða sem þó voru
blandin nokkru glensi. Í aðdraganda þessa hafði Lína tekið saman stigin, og
Halldór séð fram á tapaðan leik, ef hann fyllti ekki upp í neðsta reitinn: sjálft
jatsíið sem felur í sér að sama talan snúi upp á öllum sex teningum, þá fær
leikmaður fimmtíu stig að viðbættu gildi teninganna.
„Halldór,“ sagði Ellen og ýtti til hans teningunum.
Hann tók þá í lófann og eftir stutta umhugsun sagði hann: „Ég hef engu að
tapa.“ Bros færðist yfir andlitið. „En til að gulltryggja að þetta heppnist ætla
ég að heita á Thor Jensen. – Til að fá sexu-jatsí.“
Áður en lengra er haldið er rétt að kynna Thor Jensen til sögunnar. Thor
Jensen kom sem barn til Íslands frá Danmörku, starfaði sem búðarloka í
Borgarnesi en vann sig upp í heimi viðskipta af dugnaði og elju, stofnaði
fyrstu togaraútgerð landsins, ásamt nokkrum Íslendingum – Milljóna-
félagið, og gerði meðal annars út fyrsta togara Íslendinga: Jón forseta. Þegar
félagið fór á hausinn dró Thor sig ásamt fjölskyldu í hlé til Hafnarfjarðar,
skipulagði kombakk og tókst það. Á fyrstu áratugum 20. aldar varð hann
einn af auðugustu mönnum Íslands og jafnframt því að slá um sig – til
dæmis með byggingu hússins að Fríkirkjuvegi 11 – lagði hann sig fram um
að endurgreiða allar útistandandi skuldir Milljónafélagsins. (Með þessu má
telja óhætt að segja hann kapítalista af gamla skólanum, ólíkt langafabarni
sínu, Björgólfi Thor, sem níutíu árum síðar varð fyrsti Íslendingurinn á lista
Forbes yfir ríkustu menn heims, en hefur ekki og mun aldrei greiða til baka
það sem hann skuldar þjóðinni. Björgólfur er núverandi eigandi hússins og
efnaðist á sölu bjórs í Pétursborg, á mektarárum rússnesku mafíunnar – eins
helsta draugaframleiðanda Asíu.)
Annað sem fylgir gjarnan sögunni af Thor Jensen varðar frostaveturinn
mikla 1917–18, þegar röð hörmunga gekk yfir Íslendinga. Þá gerði Thor út
fjölda togara frá Reykjavík, og til að brauðfæða bæjarbúa sendi hann allt
að fjóra þeirra, en að jafnaði einn, til að veiða í soðið handa þeim sem áttu
ekki mat. Að auki setti hann á fót eldhús í bænum sem brauðfæddi hundruð
barna á degi hverjum, og leyfði listamönnum, drykkjusvolum og húsfrúm,
að slá sig um lán ef þannig var ástatt hjá þeim.
Það er því skiljanlegt að maður að nafni Halldór, starfsmaður Æskulýðs-
ráðs, hafi álitið Thor vera færan um að hrista eitt sexu-jatsí fram úr erminni.
En sjáum hvað setur.
„Til að fá sexu-jatsí,“ endurtók Halldór, brosti kankvíslega til meðspilara
sinna og Karólínu, hristi teningana í drjúga stund, fleygði þeim loks á borðið
og fékk það sem hann bað um. – Sexu-jatsí.