Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Blaðsíða 83

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Blaðsíða 83
Vo n n e g u t o g é g TMM 2013 · 3 83 endurtekið atriði í bílferðum okkar var að ég sagði honum að á Íslandi væru lög og reglur aðeins leiðbeinandi. Þessu til áréttingar ók ég alltaf í gegn þar sem umferð bíla var bönnuð með ýmiss konar skiltum. Eftir hrunið 2008 hef ég óneitanlega stundum íhugað þessa framgöngu mína. Skipulag hátíðarinnar var með þeim hætti á þessum tíma að lesið var upp á kvöldin í Gamla bíói sem hýsti óperuna. Á daginn voru síðan umræður og höfundaspjall í Norræna húsinu. Við stjórnarmenn unnum á öllum víg- stöðvum, röðuðum upp dagskrá, skrifuðum prógramm og fylgdum í prent, tókum á móti höfundum og skipulögðum móttökur. Á kvöldin skiptumst við á að kynna á upplestrum og það var einmitt mitt hlutverk að kvöldi þess fimmtánda. Ef eitthvað gengur í stórum dráttum vel verða mistök eða pínlegar uppá- komur sem betur fer oft að kærum minningum. Bókmenntahátíðin hefur alveg fengið sinn skammt af slíku. Við eigum minningu um norrænt skáld sem var svo drukkið að það tók um það bil þrjá daga að koma því um borð í vél til Íslands og svipaðan tíma að losna við það aftur. Þá var eftirminnlegt þegar ljóðskáld, sem var hér í okkar boði, fannst að morgni inni í þvottahúsi á heimili virts íslensks tónskálds og gat ekki sagt neitt annað en: „Thor Vil- hjálmsson“. Þessar upplýsingar nægðu að sjálfsögðu til að skila því aftur á Bókmenntahátíð. Kvöldið sem viðkomandi las var hann allsgáður en titrandi af timburmönnum sem gerði upplifunina magnaða. Þarna um kvöldið í Gamla bíói kom fljótlega í ljós að það var eitthvert ólag á hljóðkerfinu. Hljóðið var allt of lágt og engin leið að hækka það. Áhorf endur þurftu því virkilega að leggja sig fram til að heyra lestur skáldanna. Isabel Allende las upp þetta kvöld og þurfti að standa á kassa til að ná vel upp fyrir púltið. Ég man eftir að hafa haft talsverðar áhyggjur af ásakandi augnaráði hennar þegar hún prófaði kassann með fótunum enda ber kynnirinn ábyrgð á allri framkvæmd. Eg sá hana í huganum missa annan hælinn niður á milli fjalanna í botninum – til allrar hamingju gerðist það ekki. Þetta kvöld sá ég aldrei til sólar svo notaður sé þekktur frasi úr íþrótt- unum. Ég ruglaðist meðal annars tvisvar þannig að ég fékk öfluga hláturs- roku frá salnum í andlitið. Í fyrra skiptið var ég að bera öllum kveðju frá Vigdísi Finnbogadóttur forseta sem var stödd í Japan. Ég gerði það fyrst á íslensku og svo á dönsku. Í dönsku útgáfunni tókst mér að orða þetta svo að Vigdís Finnbogadóttir forseti Japans bæði að heilsa. Í seinna skiptið gekk ég ábúðarmikill að púltinu og uppgötvaði þar að ég hafði gleymt punktunum sem ég ætlaði að nota til kynningar. Þegar ég varð fyrst orðlaus og sagði svo salnum aumingjalega hvers vegna mætti mér enn öflugri hlátursroka en áður. Thor kom til mín þegar kvöldinu var lokið og sagði við mig. „Þegar ég horfði á þig úti í sal hugsaði ég: „Þetta er nú jassmaður“.“ Þar hefur skáldið sennilega verið að vísa til ákveðins yfirborðs-æðruleysis og hæfileika til að spinna af fingrum fram og einnig þess að ég hafði spilað í jasshljómsveit nokkrum árum áður. Aðalatriðið var þó að hann vildi vera uppörvandi við
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.