Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Page 141

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Page 141
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2013 · 3 141 Með þessu móti er frásögninni haldið opinni og merkingarsköpunin verður leitandi og en ekki afhjúpandi. Lesand- inn getur ekki treyst á neina ‚lausn‘, því allt það öryggi sem vísað var til með siglingu úr þoku og farsælli lendingu hverfist á ný í togstreitu og (hæfilegt) ójafnvægi. Eða með orðum Gyðu: „Vinur minn, við öll hér eigum fram- undan langa … langa fortíð.“ Tilvísanir 1 Richard Kearney, On Stories, Routledge, London og New York 2002, bls. 4. 2 Jean-François Lyotard, Hið póstmóderníska ástand: skýrsla um þekkinguna, þýð. Guð- rún Jóhannsdóttir, Reykjavík, Bókmennta- fræðistofnun Háskóla Íslands og Háskóla- útgáfan 2008. 3 Linda Hutcheon, A Poetics of Postmodern- ism: History, Theory, Fiction, London og New York, Routledge 1988, sjá sérstaklega kafla 10. 4 Gunnþórunn Guðmundsdóttir, ritdómur um Siglinguna um síkin á Bókmenntavef Borgarbókasafnsins, bokmenntir.is, nóvember 2012, http://www.bokmenntir.is/ desktopdefault.aspx/tabid-3409/5648_read- 33776/6711_view-5191/6709_page-3/, síðast skoðað 20. ágúst 2013. 5 Ingi Björn Guðnason, ritdómur um Siglinguna um síkin, f luttur í Víðsjá, RUV, 2. nóvember 2012, http://www.ruv.is/bok- menntir/siglingin-um-sikin-gagnrynd, síðast skoðað 20. ágúst 2013. 6 Gyða minnir um margt á fyrri kvenpers- ónur Álfrúnar, þá sérstaklega Elínborgu úr Hringsóli og Rán úr samnefndri bók. Hún hefur misst barn og saknar þess sárt og er föst í minningum – og gleymsku – fortíðarinnar. Guðni Elísson líkir þessum persónur við afturgöngur eða uppvakninga (revenant) í grein sinni „„Menn gleyma fljótt, ekki síst ef þeir eru dauðir“: Gotnesk merkingarsköpun í Hringsóli og Rán eftir Álfrúnu Gunnlaugsdóttur“, í Rúnir: Greinasafn um skáldskap og fræðastörf Álfrúnar Gunnlaugsdóttur, ritstj. Guðni Elísson, Reykjavík, Háskólaútgáfan 2010, bls. 180. Vésteinn Ólason Alljóðaverk Stefán Snævarr: Bók bókanna, bækur ljóðanna. Alljóðaverk. [Reykjavík] 2013 Stefán Snævarr hefur verið mjög virkur rithöfundur nær fjóra áratugi, ljóðskáld, heimspekingur og þjóðfélagsrýnir. Fyrsta bók hans var ljóðabókin Limbó- rokk 1975, og síðan birtust sex aðrar ljóðabækur á árunum fram til 1997, auk ljóða í tímaritum á þessum árum og síðar. Rómúlía hin eilífa birtist árið 2002 og geymir margs konar skáldskap, einkum í lausu máli en einnig ljóð. Stef- án hefur líka birt fjölda bóka og greina um heimspeki, ekki síst fagurfræði, á íslensku, norsku og ensku, og árið 2011 kom út bókin Kredda í kreppu. Frjáls- hyggjan og móteitrið við henni. Margir munu kannast við Stefán sem orðhvatan og margfróðan bloggara um þjóðfélags- mál. Þrátt fyrir þessi miklu afköst við ritstörf af ýmsu tagi hefur Stefán ekki fengið verulega athygli eða umfjöllun, líklega vegna þess að hann hefur lengst af síðan hann hóf háskólanám um tví- tugt búið og starfað erlendis. Það er oft hlutskipti útlagans að lifa hálfgerðu skuggalífi í því samfélagi sem ól hann og er sífellt innan sjónmáls í verkum hans. Á þessu ári sendi Stefán frá sér Bók bókanna, bækur ljóðanna. Alljóðaverk. Nafnið ber að skilja svo að þetta er bók sem geymir í sér aðrar bækur, en það er vitaskuld um leið gamansöm eða tvíræð skírskotun til Biblíunnar. Bókinni er líka ætlað að spanna öll svið ljóðsins og vera þannig bók ljóðanna og „alljóða- verk“, sbr. Gesamtkunstwerk Wagners, Allt þetta og fleira skýrir höfundur í stuttum formálsorðum. Hann vísar þar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.