Morgunblaðið - 08.03.2019, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 8. M A R S 2 0 1 9
Stofnað 1913 57. tölublað 107. árgangur
HLAKKAR TIL AÐ
SNERTA SNJÓINN
Í FYRSTA SINN
ÞAÐ ERU LÆTI
Í ÞESSUM
MYNDUM
HVERNIG
SAFNAR FÓLK
FYRIR ÍBÚÐ?
ANNA JÓELSDÓTTIR 41 FASTEIGNIR 32 SÍÐUREÞÍÓPÍSKUR SÖNGUR 12
Guðni Einarsson
Snorri Másson
Hóteleigendur og yfirmenn hótela
ætla margir að vinna störf hrein-
gerningafólks í Eflingu sem fer í
verkfall kl. 10.00 í dag og til kl.
23.59 í kvöld. Forsvarsmenn
tveggja af stærstu hótelkeðjum
landsins, Íslandshótela og Cent-
erHotels, telja að hótel þeirra geti
yfirstigið verkfallið í dag. Staðan
sé þó erfið og til lengdar gangi
svona ástand ekki.
Á sex hótelum CenterHotels eru
um 600 gistirými og pláss fyrir
1.200 gesti. „Við reiknum með að
komast yfir þetta,“ sagði Kristófer
Oliversson, eigandi og fram-
kvæmdastjóri CenterHotels og
formaður FHG - fyrirtækja í hót-
el- og gistiþjónustu. Hann ætlar að
ganga í störf hótelþerna í dag.
Íslandshótel reka sex hótel í
Reykjavík með ríflega 1.000 her-
bergjum. Davíð Torfi Ólafsson
framkvæmdastjóri sagði að um
leið og þau vissu af verkfallsað-
gerðunum hefði verið lokað fyrir
bókanir nýrra gesta í dag. Davíð
sagði að skaðinn væri því þegar
orðinn.
Efling - stéttarfélag gagnrýndi í
gær harðlega í bréfi „þá hóteleig-
endur sem hafa í hyggju að stunda
verkfallsbrot á alþjóðlegum bar-
áttudegi kvenna, 8. mars, þegar
Efling hefur boðað verkfall meðal
hótelþerna.“ Þar sagði að Efling
hefði fengið fjölmargar tilkynning-
ar um að hótelrekendur hygðust
beita starfsfólk þrýstingi, ýmist til
að sniðganga verkfallsboðun eða
ganga í störf starfsfólks í verkfalli.
Verkfallið hefur þegar
valdið fjárhagslegu tjóni
Hóteleigendur og yfirmenn ætla að þrífa herbergi Íslandshótel lokuðu fyrir
bókanir vegna verkfalls Efling fékk ábendingar um áformuð verkfallsbrot
MVerkfall á hótelum… »2
Verkfallið
» Um 700 félagsmenn í Efl-
ingu sem vinna við þrif á hót-
elum leggja niður störf í dag.
» SA segja að ýmsir megi
ganga í störf verkfallsmanna.
Morgunblaðið/Eggert
Verkalýðsforingjar Sólveig Anna Jónsdóttir í Eflingu og Ragnar Þór Ing-
ólfsson, VR, komu á fund hjá ríkissáttasemjara í gær eftir tveggja vikna hlé.
Í Karphúsinu Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari og Halldór Benja-
mín Þorbergsson og Eyjólfur Árni Rafnsson frá SA ganga til fundar.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Vinnuumhverfi þess fólks sem starf-
ar við þrif á hótelum landsins er
ábótavant að ýmsu leyti að því er
fram kom í eftirlitsátaki Vinnueft-
irlitsins. Gaf eftirlitið 239 tímasett
fyrirmæli um úrbætur sem varða
heilsu og öryggi starfsfólks.
Í niðurstöðum kemur fram að
flestar kröfur um úrbætur, 110 tals-
ins, sneru að líkamlegu álagi vegna
ófullnægjandi vinnuaðstæðna á hót-
elunum. Einnig skorti mikið á að
unnið væri skipulegt vinnuverndar-
starf í forvarnaskyni því í 70% til-
vika var engin eða aðeins ófullnægj-
andi áætlun um öryggi og
heilbrigði.
Niðurstöðum könnunar meðal
starfsfólks ber ekki að öllu leyti
saman við niðurstöður athugunar
Vinnueftirlitsins. Aðeins lítill hluti
starfsfólks telur sig verða fyrir
miklu líkamlegu álagi við vinnu.
Telur Vinnueftirlitið mikilvægt að
grípa til aðgerða og bæta vinnuað-
stæður áður en starfsfólkið verður
fyrir heilsutjóni. Meirihluti hótel-
þerna er konur af erlendum upp-
runa og bendir Vinnueftirlitið á að
þær séu einn viðkvæmasti hópurinn
á vinnumarkaði hérlendis. »10
Krefjast
úrbóta á
hótelum
Ræsting Mörg handtök eru við þrif
á hótelum og aðstæður mismunandi.
Ófullnægjandi
aðstæður hótelþerna
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Grípa þarf til róttækra aðgerða í
Fossvogsskóla í Reykjavík vegna
raka og myglu í skólahúsnæðinu. Þá
er loftgæðum í skólanum ábótavant.
Þetta kom fram á foreldrafundi síð-
degis í gær. Þar voru kynntar niður-
stöður mælinga Verkís á loftgæðum,
raka og myglu í skólahúsnæðinu.
Ljóst er að umfangsmikilla fram-
kvæmda er þörf og þær hefjast fljót-
lega.
Aðalbjörg Ingadóttir skólastjóri
greindi aðstandendum nemenda frá
stöðunni í bréfi í gær. „Ljóst er að
þessar aðgerðir fela í sér mikla rösk-
un á hefðbundnu skólastarfi næstu
vikurnar,“ sagði m.a. í bréfinu.
Reiknað er með að breytt skipulag á
skólastarfi hefjist 18. mars.
Magnea Árnadóttir, móðir nem-
anda í 1. bekk, knúði á um úttekt á
skólahúsnæðinu. Í samtali við Morg-
unblaðið kvaðst hún hafa veikst
vegna myglu á vinnustað, þekkja
einkennin og finna fyrir þeim. Þegar
sonur hennar byrjaði í skólanum í
haust fann hún til einkenna og sá
áberandi rakaskemmdir í skólanum.
„Ég óskaði eftir því að þetta yrði
skoðað. Svo byrjaði strákurinn minn
að veikjast í skólanum. Hann hafði
áður verið í Kvistaborg þar sem var
mygla og veikst. Eftir lagfæringar
þar jafnaði hann sig en hann fór að
sýna sömu einkenni þarna. Hann
varð veikari og veikari en þegar við
fórum í frí varð hann hraustur,“
sagði Magnea. Hún sendi erindi til
Reykjavíkurborgar í haust og sagði
að stjórnendur skólans hefðu stutt
sig í baráttunni.
Raki og mygla í Fossvogsskóla
Mikil röskun verður á hefðbundnu skólastarfi Móðir nemanda knúði á um úttekt
„Ég er mjög ánægð með að geta farið í verkfall. Ég hlakka mikið til,“
sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, eftir að Félags-
dómur kvað upp dóm sinn í gær.
„Verkföll valda miklu tjóni í samfélaginu öllu og skapa álag á þeim
vinnustöðum sem verkfallið tekur til. Ég legg áherslu á að við ræð-
um þessi mál af yfirvegun og mér finnst ekki við hæfi að fólk hlakki
til verkfalla,“ sagði Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmda-
stjóri SA.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, kvaðst ekki geta tekið undir
orð Sólveigar Önnu í Eflingu um að hlakka til verkfalla og sagði
verkföll vera neyðarúrræði. „Ég get ekki sagt að hlakki í mér að fara
í verkföll. Ég vil forðast þau. En við erum nauðbeygð í þessar að-
gerðir,“ sagði hann. freyr@mbl.is, snorrim@mbl.is
Eru verkföll tilhlökkunarefni?
MISJÖFN AFSTAÐA FORYSTUMANNA Á VINNUMARKAÐI
„Það verður enginn skortur,“
segir Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir en þrjú þúsund skammtar af
bóluefni við mislingum koma til
landsins í dag með hraðsendingu.
Mikið álag hefur verið á heil-
brigðisstarfsmönnum síðustu daga
eftir að fjórir einstaklingar greind-
ust með mislinga vegna fyrirspurna
um sjúkdóminn og hugsanlegt smit.
Grunur leikur nú á að ein-
staklingur með mislingasmit hafi
verið á leikskólanum Tjarnarskógi
á Egilsstöðum á mánudag og
þriðjudag. Búist er við að staðfest-
ing fáist í dag á því hvort um misl-
ingasmit sé að ræða. Er þetta annar
leikskólinn á Austurlandi þar sem
grunur er um mislingasmit. »6
3.000 skammtar
koma með hrað-
sendingu í dag