Morgunblaðið - 08.03.2019, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 08.03.2019, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2019 Íslenskur efnahagur á svo mikið undir aðild- inni að sameiginlega markaðnum í Evrópu, EES-samstarfinu, að óhjákvæmilegt er að hafa auga með öllu sem þar gerist. Mikilvægt er að missa ekki sjónar á markmiðunum sem sett voru fyrir ald- arfjórðungi. Sóknin eftir þeim hefur gjörbreytt íslensku samfélagi eins og að var stefnt. Í skýrslu utanríkisráðherra frá mars 1991 um stöðu samninga- viðræðna um evrópska efnahags- svæðið kom fram að samræmd fram- kvæmd og túlkun á EES-reglunum í öllum aðildarríkjunum væri forsenda þess að markmiðum samningsins yrði náð. Á það var bent að sameig- inlegar stofnanir samningsaðilanna væru óhjákvæmilegar til eftirlits. Lagt var mat á þessar hugmyndir á sínum tíma og niðurstaðan varð að sjónarmið sem vörðuðu valdsvið sameiginlegra stofnana á evrópska efnahagssvæðinu féllu innan ramma íslensku stjórnarskrárinnar eins og hún hafði verið túlkuð fram að því. Samstarfið við ESB hefur þróast í samræmi við þetta og sameiginlegi markaðurinn tekur breytingum mið- að við nýjar áherslur. Verkefnum hefur verið deilt til stofnana innan upphaflega ramm- ans. EES-samningurinn stendur óhaggaður og fellur innan marka ís- lensku stjórnarskrárinnar. Sérhæfðar fagstofnanir Vegna krafna um eftirlit í þágu neytenda er sérhæfðum fagstofn- unum falið að fylgjast með ein- stökum sviðum. Hér má til dæmis nefna Póst- og fjar- skiptastofnun, Lyfja- stofnun, MATÍS og Persónuvernd auk Orkustofnunar sem fær skýrara umboð til neyt- endaverndar með 3. orkupakkanum svo- nefnda. Í þessum til- vikum og fleirum, til dæmis vegna fjármála- eftirlits, flugöryggis og persónuverndar, hefur verið hugað sér- staklega að stöðu Ís- lands með tilliti til fullveldis þjóð- arinnar. Öll álitamál hafa verið leyst innan ramma stjórnarskrárinnar. Þessi dreifing á valdi til stofnana þar sem lögð er áhersla á sérþekk- ingu, söfnun faglegra upplýsinga og miðlun þeirra skapar aðhald sem nýtist í þágu neytenda. Lögð er áhersla á sameiginlega túlkun og úr- lausn mála. Takist það ekki geta EES/EFTA-ríkin, Ísland, Liechten- stein og Noregur, leitað réttar síns innan eigin eftirlitsstofnunar og eig- in dómstóls, EFTA-dómstólsins í Lúxemborg. Afstaða dómara Í liðinni viku birtist viðtal hér í Morgunblaðinu við svissneska pró- fessorinn Carl Baudenbacher sem sat í rúm 22 ár í EFTA-dómstólnum fyrir Liechtenstein. Hann var forseti dómstólsins í 15 ár og hefur því átt ríkan hátt í að tryggja virðingu hans. Það lá ekki endilega í augum uppi að niðurstöður EFTA-dómstólsins yrðu virtar á öllu EES-svæðinu, það er í EFTA- og ESB-ríkjunum sem mynda rúmlega 500 milljón manna sameiginlega markaðinn. Springer Verlag gaf nýlega út æviminningar Baudenbachers á ensku: Judicial Independence, Memoirs of a European Judge – Sjálfstætt dómsvald, minningar evr- ópsks dómara. Bókin er um 500 bls. og þar er að finna ómetanlegan fróð- leik um upphaf og þróun EES- samstarfsins. Dómarinn Baudenbacher er skýr og gagnorður. Vegna þess hve um- ræður um aðild Íslands að EES- svæðinu hafa farið út og suður und- anfarið er við hæfi að rifja upp lýs- ingu Baudenbachers í upphafi bókar sinnar á eðli EES-samstarfsins: „EFTA-ríkin sem eiga aðild að EES eru Ísland, Liechtenstein og Noregur. EES-samningurinn (einn- ig „EES“ eða „samningurinn“) er fjölþjóðlegur samningur gerður milli Evrópusambandsins (ESB) og aðild- arríkja þess annars vegar og EFTA- ríkjanna þriggja hins vegar. Hann er reistur á tveggja stoða kerfi og lýtur hvor stoð um sig, ESB og EES/ EFTA, stjórn eigin stofnana. Í ESB- stoðinni eru framkvæmdastjórn og dómstóll Evrópusambandsins, gagn- aðilar þeirra í EFTA-stoðinni eru Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) og EFTA-dómstóllinn. EFTA- dómstóllinn er þannig nátengdur systurdómstóli sínum, ESB- dómstólnum. Hann er hluti af ein- stæðum lagaramma sem átti sér ekkert fordæmi þegar hann kom til sögunnar og hefur síðan þróast til einstakrar samþættingar. Tilgangur EES er að fella Ísland, Liechten- stein og Noreg að sameiginlega markaðnum en ekki inn í tollabanda- lag ESB. EES/EFTA-ríkin þrjú hafa þannig haldið fullveldi sínu á sviði alþjóðaviðskipta.“ Lokasetningin í þessari gagnorðu lýsingu skiptir miklu þegar litið er til Brexit-viðræðnanna. Spurningin sem vefst hvað mest fyrir Bretum er hvort þeir eigi áfram að vera í tolla- bandalagi með ESB-ríkjunum til að tryggja hindrunarlausa umferð milli Írska lýðveldisins og Norður- Írlands. Icesave-dómurinn Í sérstökum kafla, The Icesave Saga, lýsir Baudenbacher aðdrag- anda bankahrunsins hér, afleið- ingum þess, örlögum Icesave- samninganna og loks málaferlunum fyrir EFTA-dómstólnum í Lúxem- borg þar sem hann var í forsæti og las upp dóminn 28. janúar 2013. Hann segir að skort hafi skýr lagaákvæði um ríkisábyrgð í EES- reglur um innstæðutryggingar. Dómararnir hafi því staðið frammi fyrir frekar einfaldri aðferðafræði: áttu þeir að beita framsækinni (e: dynamic) túlkun og loka glufunni og segja íslenska ríkið ábyrgt fyrir greiðslu, dygði innstæðutrygging- arkerfið ekki til uppgjörs, jafnvel þótt um kerfishrun væri að ræða, eða áttu þeir að segja að án skýrra lagareglna gætu þeir ekki stigið þetta skref? „Dómstóllinn tók af- stöðu með íslenska ríkinu,“ segir Baudenbacher. Honum verður tíðrætt um freistnivanda (e. moral hazard). Sporna verði gegn honum, það er gegn því að tekin sé áhætta í trausti þess að aðrir borgi ef illa fer. Máli sínu til stuðnings vitnar dómarinn í hagfræðiprófessorinn og nóbels- verðlaunahafann (2001) Joseph E. Stiglitz sem hefur orðað vandann á þennan hátt: „[Þ]ví meiri og betri trygging er gegn einhverri hættu þeim mun minni hvata hafa ein- staklingar til að komast hjá því að tryggða atvikið verði vegna þess að full ábyrgð þeirra á afleiðingum eig- in gerða minnkar …“ Þá áréttar Baudenbacher einnig í ævisögu sinni að Icesave-deilunni hafi lokið með dóminum og sé það til marks um að á árunum 19 sem EFTA-dómstóllinn hafði þá starfað hafi hann áunnið sér traust utan EFTA-stoðarinnar. ESB átti þess kost að stofna áfram til ágreinings við Íslendinga vegna málsins. Með því hefði þó verið vegið að réttaröryggi í EES-samstarfinu. Athafnaleysi ESB sýnir að mati Bau- denbachers að það sé „mjög erfitt ef ekki ómögulegt fyrir ESB að ganga gegn dómi EFTA-dómstólsins“ sem á rætur í kröfum ESA. Til þessa verði unnt að vísa sem fordæmis í stöðunni sem myndist eftir Brexit. Lögmennska í Bretlandi Baudenbacher lét af störfum við EFTA-dómstólinn í apríl 2018 og varð félagi í lögfræðistofunni Monck- ton Chambers í London. Hann sér- hæfir sig í EES/ESB-rétti, sviss- neskum og þýskum viðskiptarétti. Undir þessum merkjum berst hann nú ötullega fyrir aðild Breta að EES/ EFTA-stofnunum eftir Brexit. Sóst er eftir honum sem fyrirles- ara í Bretlandi. Hann er litríkur og liggur ekki á skoðunum sínum, fagn- ar því að íslensk stjórnvöld hvetja til EES/EFTA-samstarfs við Breta og harmar ólund Norðmanna gagnvart hugmyndinni. „Það væri ekkert gustukaverk að hleypa Bretum að stofnunum EFTA-stoðarinnar; það félli best að hagsmunum EES/ EFTA,“ segir Baudenbacher rétti- lega undir bókarlok. Eftir Björn Bjarnason »Umræður um aðildÍslands að EES- svæðinu hafa farið út og suður undanfarið, því má rifja upp lýsingu Baudenbachers á eðli EES-samstarfsins. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Baudenbacher-dómari og EES/EFTA-stoðin Á alþjóðlegum bar- áttudegi kvenna lítum við um öxl og fögnum þeim áföngum sem barátta fyrri tíma hef- ur skilað okkur. Um leið hugum við að framtíðinni og þeim áskorunum sem þar blasa við. Áhrif tækni- breytinga á jafnrétti kynjanna eru afar sjaldan til um- ræðu. Samt vitum við vel að tæknin er ekki kynhlutlaus og fjórða iðn- byltingin er það ekki heldur. Breytt tækni og ný gervigreind munu að líkindum hafa mismunandi áhrif á kynin og er kynskiptur vinnumark- aður þar lykilbreyta. Þróun vinnumarkaðar og gervi- greindar á næstu áratugum er með- al umfjöllunarefna nýrrar skýrslu um Ísland og fjórðu iðnbyltinguna, sem unnin var af starfshópi á vegum forsætisráðuneytisins. Þar eru dregin fram þau ólíku áhrif sem lík- legar breytingar næstu áratuga kunna að hafa á konur annars vegar og karla hins vegar. Karlar eru til dæmis töluvert líklegri til að gegna störfum sem verða fyrir miklum áhrifum af völdum nýrrar tækni og geta jafnvel úrelst, til dæmis í bygg- ingargeiranum. Umönnun og kennsla, sem konur sinna í miklum meirihluta, eru dæmi um störf sem tæknin getur ekki leyst fyllilega af hólmi, en þau kunna eigi að síður að taka umtalsverðum breytingum á næstu árum og áratugum. Í þessu sambandi þurfum við líka að huga að áhrifum mögulegra mótvæg- isaðgerða á kynin og að menntunar- og endurmenntunarmöguleikar stuðli að auknu jafnrétti en verði ekki til þess að auka á kynjabilið. Í þessu samhengi þarf einnig að horfa til þess að hópurinn sem mótar og þróar gervi- greind – og þar af leið- andi „hugsun“ tækn- innar – er afar einsleitur og konur eiga þar enn of litla að- komu. Því er hætt við að gervigreindarvæð- ingin festi ákveðið valdaskipulag í sessi og að ákveðin viðmið og gildismat, sem ekki taka mið af fjölbreytileika manna, verði þar ofan á. Mér var til dæmis bent á að það á fundi Vísinda- og tækniráðs á dögunum að ef maður slær inn orðið „human“ í leitarvélum birtast þar fyrst og fremst myndir af karl- mönnum. Tilviljun? Framtíðarhorfur út frá femínísku sjónarhorni voru umfjöllunarefni rithöfundarins og aktívistans Beat- rix Campell í fyrirlestri á 20 ára af- mælismálþingi VG á dögunum. Hún fjallaði um þá þróun sem nú á sér stað í Kína og Indlandi þar sem stúlkubörnum hefur fækkað tilfinn- anlega með tilkomu fóstureyðinga sem byggjast á kyni barns. Ef (en líklega væri réttara að segja þegar) hægt verður með tiltölulega einföld- um hætti að eiga við samsetningu fóstra má ætla að hlutfallið skekkist enn frekar. Þetta kemur ekki til af einskærri illsku, heldur er sam- félagsgerðin með þeim hætti að það getur skipt sköpum fyrir afkomu fjölskyldna að eignast syni. En eins og Campell benti á þá þarf að hugsa þetta dæmi til enda. Í þessum lönd- um, eins og víðast hvar í heiminum, eru það konur sem sjá mest um umönnun barna, sjúkra og aldraðra. Og hvað gerist ef konurnar hverfa? Hver tekur þá að sér umönnunina? Þetta er einnig mikilvæg spurn- ing í samhengi við þau störf sem eru líkleg til að hverfa með nýrri tækni og þau störf og hlutverk sem tæknin getur reynst vanmáttug gagnvart. Því þótt hægt verði að mæta lík- amlegum þörfum þeirra sem ekki geta séð um sig sjálfir með aðstoð tækninnar, þá má spyrja hvort tæknin geti sýnt alúð og umhyggju. Því við vitum að án umhyggju visn- um við öll. Einmitt þess vegna hefur tilfinningagreind færst ofar á listum yfir þá færni sem telst eftirsókn- arverð á nýrri öld. Við þurfum að undirbúa okkur sem best fyrir breytta tíma, endur- skoða menntun og símenntun og líta til fjölmargra þátta nú þegar stór- tækar breytingar eru að verða á þeim kröfum sem leikur og störf gera til okkar. Samhliða þurfum við að tryggja að tæknivæðingin verði ekki til þess að auka á misrétti milli kynjanna eða jaðarsetningu annarra hópa, heldur einmitt að hún færi okkur ný tækifæri til að byggja upp samfélag jöfnuðar og jafnra tæki- færa. Stjórnvöld eru meðvituð um þetta í sinni stefnumótun og er nýja skýrslan um Ísland og fjórðu iðn- byltinguna fyrsta skrefið í átt að heildstæðri stefnumótun á þessu sviði. Eftir Katrínu Jakobsdóttur » Breytt tækni og ný gervigreind munu að líkindum hafa mis- munandi áhrif á kynin og er kynskiptur vinnu- markaður þar lykil- breyta. Höfundur er forsætisráðherra. Fjórða iðnbyltingin og alþjóð- legur baráttudagur kvenna Spakur Hundur bíður stilltur og þolinmóður eftir vini sínum í Bankastræti. Eggert

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.