Morgunblaðið - 08.03.2019, Side 21
21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2019
Íslenskur efnahagur
á svo mikið undir aðild-
inni að sameiginlega
markaðnum í Evrópu,
EES-samstarfinu, að
óhjákvæmilegt er að
hafa auga með öllu sem
þar gerist. Mikilvægt
er að missa ekki sjónar
á markmiðunum sem
sett voru fyrir ald-
arfjórðungi. Sóknin
eftir þeim hefur gjörbreytt íslensku
samfélagi eins og að var stefnt.
Í skýrslu utanríkisráðherra frá
mars 1991 um stöðu samninga-
viðræðna um evrópska efnahags-
svæðið kom fram að samræmd fram-
kvæmd og túlkun á EES-reglunum í
öllum aðildarríkjunum væri forsenda
þess að markmiðum samningsins
yrði náð. Á það var bent að sameig-
inlegar stofnanir samningsaðilanna
væru óhjákvæmilegar til eftirlits.
Lagt var mat á þessar hugmyndir
á sínum tíma og niðurstaðan varð að
sjónarmið sem vörðuðu valdsvið
sameiginlegra stofnana á evrópska
efnahagssvæðinu féllu innan ramma
íslensku stjórnarskrárinnar eins og
hún hafði verið túlkuð fram að því.
Samstarfið við ESB hefur þróast í
samræmi við þetta og sameiginlegi
markaðurinn tekur breytingum mið-
að við nýjar áherslur.
Verkefnum hefur verið deilt til
stofnana innan upphaflega ramm-
ans. EES-samningurinn stendur
óhaggaður og fellur innan marka ís-
lensku stjórnarskrárinnar.
Sérhæfðar fagstofnanir
Vegna krafna um eftirlit í þágu
neytenda er sérhæfðum fagstofn-
unum falið að fylgjast með ein-
stökum sviðum. Hér má til dæmis
nefna Póst- og fjar-
skiptastofnun, Lyfja-
stofnun, MATÍS og
Persónuvernd auk
Orkustofnunar sem fær
skýrara umboð til neyt-
endaverndar með 3.
orkupakkanum svo-
nefnda. Í þessum til-
vikum og fleirum, til
dæmis vegna fjármála-
eftirlits, flugöryggis og
persónuverndar, hefur
verið hugað sér-
staklega að stöðu Ís-
lands með tilliti til fullveldis þjóð-
arinnar. Öll álitamál hafa verið leyst
innan ramma stjórnarskrárinnar.
Þessi dreifing á valdi til stofnana
þar sem lögð er áhersla á sérþekk-
ingu, söfnun faglegra upplýsinga og
miðlun þeirra skapar aðhald sem
nýtist í þágu neytenda. Lögð er
áhersla á sameiginlega túlkun og úr-
lausn mála. Takist það ekki geta
EES/EFTA-ríkin, Ísland, Liechten-
stein og Noregur, leitað réttar síns
innan eigin eftirlitsstofnunar og eig-
in dómstóls, EFTA-dómstólsins í
Lúxemborg.
Afstaða dómara
Í liðinni viku birtist viðtal hér í
Morgunblaðinu við svissneska pró-
fessorinn Carl Baudenbacher sem
sat í rúm 22 ár í EFTA-dómstólnum
fyrir Liechtenstein. Hann var forseti
dómstólsins í 15 ár og hefur því átt
ríkan hátt í að tryggja virðingu hans.
Það lá ekki endilega í augum uppi að
niðurstöður EFTA-dómstólsins yrðu
virtar á öllu EES-svæðinu, það er í
EFTA- og ESB-ríkjunum sem
mynda rúmlega 500 milljón manna
sameiginlega markaðinn.
Springer Verlag gaf nýlega út
æviminningar Baudenbachers á
ensku: Judicial Independence,
Memoirs of a European Judge –
Sjálfstætt dómsvald, minningar evr-
ópsks dómara. Bókin er um 500 bls.
og þar er að finna ómetanlegan fróð-
leik um upphaf og þróun EES-
samstarfsins.
Dómarinn Baudenbacher er skýr
og gagnorður. Vegna þess hve um-
ræður um aðild Íslands að EES-
svæðinu hafa farið út og suður und-
anfarið er við hæfi að rifja upp lýs-
ingu Baudenbachers í upphafi bókar
sinnar á eðli EES-samstarfsins:
„EFTA-ríkin sem eiga aðild að
EES eru Ísland, Liechtenstein og
Noregur. EES-samningurinn (einn-
ig „EES“ eða „samningurinn“) er
fjölþjóðlegur samningur gerður milli
Evrópusambandsins (ESB) og aðild-
arríkja þess annars vegar og EFTA-
ríkjanna þriggja hins vegar. Hann er
reistur á tveggja stoða kerfi og lýtur
hvor stoð um sig, ESB og EES/
EFTA, stjórn eigin stofnana. Í ESB-
stoðinni eru framkvæmdastjórn og
dómstóll Evrópusambandsins, gagn-
aðilar þeirra í EFTA-stoðinni eru
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) og
EFTA-dómstóllinn. EFTA-
dómstóllinn er þannig nátengdur
systurdómstóli sínum, ESB-
dómstólnum. Hann er hluti af ein-
stæðum lagaramma sem átti sér
ekkert fordæmi þegar hann kom til
sögunnar og hefur síðan þróast til
einstakrar samþættingar. Tilgangur
EES er að fella Ísland, Liechten-
stein og Noreg að sameiginlega
markaðnum en ekki inn í tollabanda-
lag ESB. EES/EFTA-ríkin þrjú
hafa þannig haldið fullveldi sínu á
sviði alþjóðaviðskipta.“
Lokasetningin í þessari gagnorðu
lýsingu skiptir miklu þegar litið er til
Brexit-viðræðnanna. Spurningin
sem vefst hvað mest fyrir Bretum er
hvort þeir eigi áfram að vera í tolla-
bandalagi með ESB-ríkjunum til að
tryggja hindrunarlausa umferð milli
Írska lýðveldisins og Norður-
Írlands.
Icesave-dómurinn
Í sérstökum kafla, The Icesave
Saga, lýsir Baudenbacher aðdrag-
anda bankahrunsins hér, afleið-
ingum þess, örlögum Icesave-
samninganna og loks málaferlunum
fyrir EFTA-dómstólnum í Lúxem-
borg þar sem hann var í forsæti og
las upp dóminn 28. janúar 2013.
Hann segir að skort hafi skýr
lagaákvæði um ríkisábyrgð í EES-
reglur um innstæðutryggingar.
Dómararnir hafi því staðið frammi
fyrir frekar einfaldri aðferðafræði:
áttu þeir að beita framsækinni (e:
dynamic) túlkun og loka glufunni og
segja íslenska ríkið ábyrgt fyrir
greiðslu, dygði innstæðutrygging-
arkerfið ekki til uppgjörs, jafnvel
þótt um kerfishrun væri að ræða,
eða áttu þeir að segja að án skýrra
lagareglna gætu þeir ekki stigið
þetta skref? „Dómstóllinn tók af-
stöðu með íslenska ríkinu,“ segir
Baudenbacher.
Honum verður tíðrætt um
freistnivanda (e. moral hazard).
Sporna verði gegn honum, það er
gegn því að tekin sé áhætta í trausti
þess að aðrir borgi ef illa fer. Máli
sínu til stuðnings vitnar dómarinn í
hagfræðiprófessorinn og nóbels-
verðlaunahafann (2001) Joseph E.
Stiglitz sem hefur orðað vandann á
þennan hátt: „[Þ]ví meiri og betri
trygging er gegn einhverri hættu
þeim mun minni hvata hafa ein-
staklingar til að komast hjá því að
tryggða atvikið verði vegna þess að
full ábyrgð þeirra á afleiðingum eig-
in gerða minnkar …“
Þá áréttar Baudenbacher einnig í
ævisögu sinni að Icesave-deilunni
hafi lokið með dóminum og sé það til
marks um að á árunum 19 sem
EFTA-dómstóllinn hafði þá starfað
hafi hann áunnið sér traust utan
EFTA-stoðarinnar.
ESB átti þess kost að stofna áfram
til ágreinings við Íslendinga vegna
málsins. Með því hefði þó verið vegið
að réttaröryggi í EES-samstarfinu.
Athafnaleysi ESB sýnir að mati Bau-
denbachers að það sé „mjög erfitt ef
ekki ómögulegt fyrir ESB að ganga
gegn dómi EFTA-dómstólsins“ sem
á rætur í kröfum ESA. Til þessa
verði unnt að vísa sem fordæmis í
stöðunni sem myndist eftir Brexit.
Lögmennska í Bretlandi
Baudenbacher lét af störfum við
EFTA-dómstólinn í apríl 2018 og
varð félagi í lögfræðistofunni Monck-
ton Chambers í London. Hann sér-
hæfir sig í EES/ESB-rétti, sviss-
neskum og þýskum viðskiptarétti.
Undir þessum merkjum berst hann
nú ötullega fyrir aðild Breta að EES/
EFTA-stofnunum eftir Brexit.
Sóst er eftir honum sem fyrirles-
ara í Bretlandi. Hann er litríkur og
liggur ekki á skoðunum sínum, fagn-
ar því að íslensk stjórnvöld hvetja til
EES/EFTA-samstarfs við Breta og
harmar ólund Norðmanna gagnvart
hugmyndinni. „Það væri ekkert
gustukaverk að hleypa Bretum að
stofnunum EFTA-stoðarinnar; það
félli best að hagsmunum EES/
EFTA,“ segir Baudenbacher rétti-
lega undir bókarlok.
Eftir Björn
Bjarnason »Umræður um aðildÍslands að EES-
svæðinu hafa farið út og
suður undanfarið, því
má rifja upp lýsingu
Baudenbachers á eðli
EES-samstarfsins.
Björn Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
Baudenbacher-dómari og EES/EFTA-stoðin
Á alþjóðlegum bar-
áttudegi kvenna lítum
við um öxl og fögnum
þeim áföngum sem
barátta fyrri tíma hef-
ur skilað okkur. Um
leið hugum við að
framtíðinni og þeim
áskorunum sem þar
blasa við. Áhrif tækni-
breytinga á jafnrétti
kynjanna eru afar sjaldan til um-
ræðu. Samt vitum við vel að tæknin
er ekki kynhlutlaus og fjórða iðn-
byltingin er það ekki heldur. Breytt
tækni og ný gervigreind munu að
líkindum hafa mismunandi áhrif á
kynin og er kynskiptur vinnumark-
aður þar lykilbreyta.
Þróun vinnumarkaðar og gervi-
greindar á næstu áratugum er með-
al umfjöllunarefna nýrrar skýrslu
um Ísland og fjórðu iðnbyltinguna,
sem unnin var af starfshópi á vegum
forsætisráðuneytisins. Þar eru
dregin fram þau ólíku áhrif sem lík-
legar breytingar næstu áratuga
kunna að hafa á konur annars vegar
og karla hins vegar. Karlar eru til
dæmis töluvert líklegri til að gegna
störfum sem verða fyrir miklum
áhrifum af völdum nýrrar tækni og
geta jafnvel úrelst, til dæmis í bygg-
ingargeiranum. Umönnun og
kennsla, sem konur sinna í miklum
meirihluta, eru dæmi um störf sem
tæknin getur ekki leyst fyllilega af
hólmi, en þau kunna eigi að síður að
taka umtalsverðum breytingum á
næstu árum og áratugum. Í þessu
sambandi þurfum við líka að huga
að áhrifum mögulegra mótvæg-
isaðgerða á kynin og að menntunar-
og endurmenntunarmöguleikar
stuðli að auknu jafnrétti en verði
ekki til þess að auka á
kynjabilið.
Í þessu samhengi
þarf einnig að horfa til
þess að hópurinn sem
mótar og þróar gervi-
greind – og þar af leið-
andi „hugsun“ tækn-
innar – er afar
einsleitur og konur
eiga þar enn of litla að-
komu. Því er hætt við
að gervigreindarvæð-
ingin festi ákveðið
valdaskipulag í sessi og að ákveðin
viðmið og gildismat, sem ekki taka
mið af fjölbreytileika manna, verði
þar ofan á. Mér var til dæmis bent á
að það á fundi Vísinda- og tækniráðs
á dögunum að ef maður slær inn
orðið „human“ í leitarvélum birtast
þar fyrst og fremst myndir af karl-
mönnum. Tilviljun?
Framtíðarhorfur út frá femínísku
sjónarhorni voru umfjöllunarefni
rithöfundarins og aktívistans Beat-
rix Campell í fyrirlestri á 20 ára af-
mælismálþingi VG á dögunum. Hún
fjallaði um þá þróun sem nú á sér
stað í Kína og Indlandi þar sem
stúlkubörnum hefur fækkað tilfinn-
anlega með tilkomu fóstureyðinga
sem byggjast á kyni barns. Ef (en
líklega væri réttara að segja þegar)
hægt verður með tiltölulega einföld-
um hætti að eiga við samsetningu
fóstra má ætla að hlutfallið skekkist
enn frekar. Þetta kemur ekki til af
einskærri illsku, heldur er sam-
félagsgerðin með þeim hætti að það
getur skipt sköpum fyrir afkomu
fjölskyldna að eignast syni. En eins
og Campell benti á þá þarf að hugsa
þetta dæmi til enda. Í þessum lönd-
um, eins og víðast hvar í heiminum,
eru það konur sem sjá mest um
umönnun barna, sjúkra og aldraðra.
Og hvað gerist ef konurnar hverfa?
Hver tekur þá að sér umönnunina?
Þetta er einnig mikilvæg spurn-
ing í samhengi við þau störf sem eru
líkleg til að hverfa með nýrri tækni
og þau störf og hlutverk sem tæknin
getur reynst vanmáttug gagnvart.
Því þótt hægt verði að mæta lík-
amlegum þörfum þeirra sem ekki
geta séð um sig sjálfir með aðstoð
tækninnar, þá má spyrja hvort
tæknin geti sýnt alúð og umhyggju.
Því við vitum að án umhyggju visn-
um við öll. Einmitt þess vegna hefur
tilfinningagreind færst ofar á listum
yfir þá færni sem telst eftirsókn-
arverð á nýrri öld.
Við þurfum að undirbúa okkur
sem best fyrir breytta tíma, endur-
skoða menntun og símenntun og líta
til fjölmargra þátta nú þegar stór-
tækar breytingar eru að verða á
þeim kröfum sem leikur og störf
gera til okkar. Samhliða þurfum við
að tryggja að tæknivæðingin verði
ekki til þess að auka á misrétti milli
kynjanna eða jaðarsetningu annarra
hópa, heldur einmitt að hún færi
okkur ný tækifæri til að byggja upp
samfélag jöfnuðar og jafnra tæki-
færa. Stjórnvöld eru meðvituð um
þetta í sinni stefnumótun og er nýja
skýrslan um Ísland og fjórðu iðn-
byltinguna fyrsta skrefið í átt að
heildstæðri stefnumótun á þessu
sviði.
Eftir Katrínu
Jakobsdóttur » Breytt tækni og ný
gervigreind munu
að líkindum hafa mis-
munandi áhrif á kynin
og er kynskiptur vinnu-
markaður þar lykil-
breyta.
Höfundur er forsætisráðherra.
Fjórða iðnbyltingin og alþjóð-
legur baráttudagur kvenna
Spakur Hundur bíður stilltur og þolinmóður eftir vini sínum í Bankastræti.
Eggert