Morgunblaðið - 08.03.2019, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2019
Guðni Einarsson
Freyr Bjarnason
Arnar Þór Ingólfsson
Félagsdómur sýknaði í gær Alþýðu-
samband Íslands (ASÍ), fyrir hönd
Starfsgreinasambands Íslands
vegna Eflingar - stéttarfélags, af
kröfum Samtaka atvinnulífsins (SA)
um að boðun verkfalls Eflingar, sem
kemur til framkvæmda í dag, hefði
verið ólögmæt. Meirihluti Fé-
lagsdóms, þau Arnfríður Ein-
arsdóttir, Kolbrún Benediktsdóttir,
Valgeir Pálsson og Dagný Aradóttir
Pind, komst að þessari niðurstöðu.
Einn dómaranna, Guðni Á. Haralds-
son, skilaði sératkvæði og taldi verk-
fallsboðunina vera ólögmæta.
SA telja atkvæðagreiðslu Eflingar
hafa verið andstæða lögum enda
verði vinnustöðvun, sem einungis sé
ætlað að ná til ákveðins hóps fé-
lagsmanna, einungis borin undir þá
félagsmenn sem vinnustöðvun er
ætlað að taka til.
Einnig er vísað til þess að at-
kvæðagreiðsla Eflingar hafi ekki
verið póstatkvæðagreiðsla í skilningi
laga enda hafi atkvæða að mestu
verið aflað með kjörfundum fyrir ut-
an einstaka vinnustaði.
Guðna Á. Haraldssyni fannst ekki
hægt að líta fram hjá athugasemd-
um í lögskýringargögnum þess efnis
að undanþága sem lýtur að póst-
atkvæðagreiðslum „geti ekki átt við
um atkvæðagreiðslur um vinnu-
stöðvun þegar einungis hluti fé-
lagsmanna leggur niður störf“. Því
hafi Eflingu verið óheimilt að notast
við almenna póstatkvæðagreiðslu
þegar greidd voru atkvæði um verk-
fallsaðgerðirnar í dag.
„Þannig greiddu ekki einungis
þeir félagsmenn stefnda atkvæði er
leggja eiga niður störf heldur aðrir
félagsmenn hans sem ekki leggja
niður störf. Það samrýmist ekki að
mínu mati ákvæði 2. mgr. 15. gr.
laga nr. 80/1938 [um stéttarfélög og
vinnudeilur]. Álit mitt er því að boð-
uð vinnustöðvun félagsmanna
stefnda sé ólögmæt,“ segir í sér-
atkvæði Guðna.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formað-
ur Eflingar, fagnaði niðurstöðu Fé-
lagsdóms og kvaðst hlakka mikið til
að fara í verkfall. Halldóri Benjamín
Þorbergssyni, framkvæmdastjóra
SA, fannst ekki við hæfi að fólk
hlakkaði til verkfalla. Þau yllu miklu
tjóni í samfélaginu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eflingarfólk Viðar Þorsteinsson, Sólveig Anna Jónsdóttir og Karl Ó. Karlsson lögmaður fögnuðu niðurstöðunni.
Verkfallsboðun Eflingar
var dæmd lögmæt í gær
Félagsdómur klofnaði Formaður Eflingar hlakkar til
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Verkfall hreingerningafólks á hót-
elum, sem starfar undir hótel- og
veitingasamningi Eflingar - stéttar-
félags, stendur frá kl. 10.00 í dag til
kl. 23.59 í kvöld. Verkfallið nær til
um 700 félagsmanna í Eflingu, að
sögn Viðars Þorsteinssonar, fram-
kvæmdastjóra Eflingar.
Hann sagði að áhersla yrði lögð á
viðburð fyrir verkfallsfólk í Gamla
bíói í dag. Viðar segir að margar vís-
bendingar hafi borist um fyrirhuguð
verkfallsbrot og rökstuddur grunur
um hvar þau verði framin. Verk-
fallsvörslu verði forgangsraðað með
tilliti til þess og munu verkfallsverð-
ir fara á þá staði.
Vinnustöðvunin nær til allra
þrifa, hreingerninga og frágangs
herbergja og annarrar gistiaðstöðu,
þar með talið á göngum, salernum
og í sameiginlegu rými, á öllum hót-
elum og gistihúsum á því fé-
lagssvæði Eflingar sem tekur til
starfa á veitinga- og gistihúsum.
Það eru lögsagnarumdæmi Reykja-
víkur, Kópavogs, Seltjarnarness,
Mosfellsbæjar og Kjósarsýslu að
Botnsá, Grímsnes- og Grafnings-
hrepps, Hveragerðisbæjar og Sveit-
arfélagsins Ölfuss auk Hafnarfjarð-
ar og Garðabæjar.
Ýmsir mega ganga í störfin
Yfirmenn og verkstjórar á hótel-
um og gistihúsum, eigendur og fjöl-
skyldur þeirra auk ófélagsbundn-
inna starfsmanna geta gengið í störf
hreingerningafólks í Eflingu sem fer
í verkfall í dag, að sögn Jóns Rúnars
Pálssonar, lögmanns hjá Samtökum
atvinnulífsins. Hafi fólk úr öðrum
stéttarfélögum unnið þessi störf má
það halda því áfram, þrátt fyrir verk-
fall Eflingar. Jón telur að stjórn hót-
els sem t.d. er í eigu hlutafélags megi
einnig ganga í störf verkfallsmanna
og vísar til útskipunarbannsins hjá
Rio Tinto 2016 þegar stjórnarmenn
og yfirmenn gengu í útskipunina.
„Verkfall bindur félagsmenn í því
félagi sem boðar til verkfallsins,“
sagði Jón. Hann bendir á að á hót-
elunum starfi margir sem eru í öðr-
um stéttarfélögum en Eflingu. Verk-
fallið nái ekki til þeirra. Auk þess
leggi ekki allir félagsmenn Eflingar
á hótelum niður störf í dag, t.d. ekki
þeir sem vinna við veitingaþjónustu.
Meint verkfallsbrot gagnrýnd
Efling - stéttarfélag sendi frá sér
póst í gær þar sem fyrirhuguð „verk-
fallsbrot hóteleigenda“ voru harð-
lega gagnrýnd. Þar kom fram að Efl-
ing hefði fengið fjölmargar
tilkynningar um að hóteleigendur
hygðust beita starfsfólk sitt þrýst-
ingi til að sniðganga verkfallsboðun
eða ganga í störf verkfallsmanna.
Hvort tveggja væri verkfallsbrot.
Margar tilkynninganna bárust
þegar starfsfólk Eflingar heimsótti
vinnustaði í tengslum við atkvæða-
greiðslu utan kjörfundar.
Í bréfi sem Sólveig Anna Jóns-
dóttir, formaður Eflingar, sendi
hótelrekendum 5. mars segir m.a. að
samkvæmt frásögnum félagsmanna
hafi yfirmenn boðað til funda og látið
frá sér skrifleg skilaboð þar sem því
var hótað að verkfallsaðgerðir og
jafnvel kosningaþátttaka gæti haft
skaðlegar efnahagslegar afleiðingar
fyrir starfsmenn.
Verkfall á hótelum til miðnættis
Morgunblaðið/Eggert
Viðræður Fjögur stéttarfélög sem slitu viðræðum 21. febrúar hittu samninganefnd SA hjá ríkissáttasemjara í gær.
Um 700 hótelþernur í Eflingu leggja niður störf Verkfallið bindur bara félagsmenn Eflingar, segja SA
Ýmsir mega ganga í störfin Verkfallsverðir munu fara þangað sem grunur er um verkfallsbrot
Guðni Einarsson
Ómar Friðriksson
Fulltrúar SGS og SA funduðu hjá
ríkissáttasemjara fram á kvöld í gær
og verður fundarhöldum haldið
áfram í dag og á morgun. Stíf fund-
arhöld hafa verið undanfarna daga
milli SA og sex manna samninga-
nefndar SGS, m.a. um launalið vænt-
anlegra samninga, og munu formenn
allra 16 aðildarfélaga SGS vera boð-
aðir í Karphúsið í dag til að fara yfir
stöðuna og afrakstur vinnunnar að
undanförnu, skv. heimildum Morg-
unblaðsins.
SA og VR, Verkalýðsfélag Grinda-
víkur, Verkalýðsfélag Akraness og
Efling hittust á klukkustundar
löngum fundi í gærmorgun. Hálfur
mánuður var þá síðan verkalýðs-
félögin slitu viðræðunum.
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri SA, sagði að
fundurinn hefði verið ágætur. Farið
hefði verið yfir verklag og vinnu-
brögð og fundurinn gagnlegur að því
leyti. Viðar Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Eflingar, sagði að
ekki hefði verið slæmur andi á fund-
inum. Menn væru í þessu til að geta
samið. Viðar sagði að viðræðuslit og
verkfallsboðun sýndu að ekki hefði
náðst nægilegur árangur með við-
ræðum. Nauðsynlegt hefði verið að
beita þrýstingi verkfallsboðana.
Ræða launalið
fram á kvöld
Formenn SGS-félaganna kallaðir til
Kjaradeilur og verkföll
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
FYRIR BÍLINN
ENDURHEIMTIR
UPPRUNALEGT ÚTLIT OG LIT
VERNDAR
FYRIR UMHVERFISÁHRIFUM
AUÐVELT
AÐ BERA Á FLÖTINN ENDIST LENGI
GÚMÍ
NÆRING
FYRIR DEKK