Morgunblaðið - 08.03.2019, Blaðsíða 4
Borgarráð sló sameiningu á frest
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Við frestuðum þessu máli og mun-
um gefa okkur meiri tíma og heyra í
starfsfólki og foreldrum,“ segir Líf
Magneudóttir, borgarfulltrúi
Vinstri-grænna, í samtali við Morg-
unblaðið og vísar í máli sínu til til-
lögu skóla- og frístundaráðs
Reykjavíkurborgar þess efnis að
sameina yfirstjórn tveggja leik-
skóla, Suðurborgar og Hólaborgar, í
Suðurhólum í Breiðholti. Tillagan
var lögð fyrir borgarráð til sam-
þykktar í gær, en afgreiðslu var
sem fyrr segir frestað.
Greint var frá því í Morgun-
blaðinu í gær að mikil andstaða er í
garð sameiningar hjá bæði starfs-
fólki leikskólanna og foreldrum
þeirra barna sem þar eru. Hafa alls
tíu starfsmenn sagt upp störfum
eða íhuga að segja upp vegna þessa.
Þá hafa samkvæmt heimildum
blaðsins nær allir foreldrar ritað
undir yfirlýsingu þar sem þeir segj-
ast andvígir sameiningaráformum
borgarinnar og mun yfirlýsingin
hafa verið send Reykjavíkurborg.
Líf segir mikilvægt að „vanda sig
vel“ þegar kemur að málefnum leik-
skólanna og að þessi mikla gagnrýni
hafi ekki komið henni á óvart.
„Nei, hún gerði það ekki,“ segir
Líf spurð hvort gagnrýni starfsfólks
og foreldra hafi komið henni á
óvart. „Ég held að í ljósi sameininga
fyrri ára séu þessi viðbrögð mjög
skiljanleg. Það þarf auðvitað að
kanna alla fleti málsins, en það sem
á ávallt að vera í forgrunni er hagur
og menntun barna,“ segir hún.
Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti
Sjálfstæðisflokksins, fagnar því að
búið sé að fresta afgreiðslu þessa
máls. „Ég held að best væri að
hætta við þessi áform eins og þau
voru kynnt í stað þess að fara fram
með svo illa ígrundað mál sem fælir
frá starfsfólk, við megum ekki við
því,“ segir hann, en búið er að boða
stjórnendur leikskólanna tveggja á
fund strax eftir helgi.
Mikil gagnrýni kom Vinstri-grænum ekki á óvart Fundað með leikskólastjórnendum eftir helgi
Líf
Magneudóttir
Eyþór Laxdal
Arnalds
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Breiðholt Mikil óánægja er með hugmynd um sameiningu leikskólanna.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2019
olympium 350Nú bjóðum við til sölu hestakerrur frá reyndum framleiðenda
Fautrax sem eru nú að bjóða upp á nýja línu af kerrum sem
eru sérhannaðar fyrir íslenska hestinn.
8 ára ábyrgð á grind og lífstíðarábyrgð á gólfplötu.
Einnig mikið úrval aukabúnaða.
Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í síma 480 0400
Austurvegur 69 - 800 Selfoss
Lónsbakk i - 601 Akureyr i
Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
maxipodium 500
Hestakerrur frá Fautras
maxipodium 500
Veður víða um heim 7.3., kl. 18.00
Reykjavík 2 léttskýjað
Hólar í Dýrafirði -2 skýjað
Akureyri -4 léttskýjað
Egilsstaðir -4 skýjað
Vatnsskarðshólar 1 skýjað
Nuuk 0 skýjað
Þórshöfn 2 heiðskírt
Ósló 0 rigning
Kaupmannahöfn 7 skýjað
Stokkhólmur 2 þoka
Helsinki 0 snjókoma
Lúxemborg 7 skúrir
Brussel 9 skúrir
Dublin 8 skúrir
Glasgow 7 rigning
London 8 skúrir
París 10 rigning
Amsterdam 9 rigning
Hamborg 10 rigning
Berlín 11 skúrir
Vín 14 heiðskírt
Moskva -1 heiðskírt
Algarve 15 léttskýjað
Madríd 11 léttskýjað
Barcelona 16 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 16 heiðskírt
Aþena 19 heiðskírt
Winnipeg -17 léttskýjað
Montreal -11 léttskýjað
New York -2 skýjað
Chicago -4 alskýjað
Orlando 12 heiðskírt
8. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:12 19:07
ÍSAFJÖRÐUR 8:20 19:08
SIGLUFJÖRÐUR 8:03 18:51
DJÚPIVOGUR 7:42 18:35
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á laugardag Austlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s
og snjókoma eða él sunnanlands, en að mestu þurrt
norðantil. Frost 1 til 8 stig, kaldast í innsveitum, en
sums staðar frostlaust við ströndina.
Austan 15-23 m/s sunnanlands, hvassast og snjókoma eða slydda syðst, en mun hægari og víða
bjart nyrðra og eystra. Hiti 0 til 4 stig syðst, en annars frost 1 til 8 stig, kaldast inn til landsins.
Fjöldi togara hefur síðustu daga verið á
miðunum fyrir vestan Vestmannaeyjar og
vestur fyrir Reykjanes. „Það er að færast
vertíðarstemning yfir þetta og ég held að
það séu allir að fiska ágætlega,“ sagði Jó-
hannes Ellert Eiríksson, skipstjóri á Viðey
RE, skipi HB Granda, í símtali um miðjan
dag í gær. Hann bætti því við að það eina
sem vantaði væri loðnan.
Þeir komu á miðin suðvestur af Surtsey á
miðvikudagskvöld og er landað eftir
ákveðnu kerfi. „Þetta er allt njörvað niður
nú orðið,“ segir Jóhannes Ellert. „Veiðunum
er stjórnað af því hvernig markaðurinn er
hverju sinni og kvótastöðunni.
Menn veiða ekki á lager lengur. Megin-
reglan er sú að við förum út á miðviku-
dögum og komum inn á þriðjudögum. Núna
erum við í ufsa, karfa og fleiru, en förum
svo í þorskinn þegar líður á túrinn því við
reynum að koma með hann sem nýjastan í
land.“
Jóhannes Ellert segir að fyrir vestan
Reykjanes hafi menn verið að fá góðan
þorsk, nokkur skip væru austan við þá og
frystitogarar sunnan við í rauðakarfa og
fleiri tegundum. „Það eru allir að fiska eftir
pöntun,“ sagði Jóhannes Ellert Eiríksson.
aij@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Haldið til veiða Viðey RE 50 er eitt þriggja systurskipa sem HB Grandi lét smíða í Tyrklandi og komu til landsins 2017. Hinar systurnar eru Engey RE 91 og Akurey AK 10.
Jóhannes Ellert Við komu Viðeyjar 2017.
„Það eru allir að fiska eftir pöntun“
Vertíðarstemning
Vantar bara loðnuna