Morgunblaðið - 08.03.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2019
Hafnarbraut 25 | 200 Kópavogi | Sími 554 0000 | www.klaki.is
HVOLFARARKARA
Handhægir ryðfríir karahvolfarar
í ýmsum gerðum.
Tjakkur vökvadrifinn með
lyftigetu frá 900 kg.
Halli að 110 gráðum.
Vinsælt verkfæri í
matvælavinnslum
fiski – kjöti – grænmeti
„Fólk hefur leitað til okkar, en við
höfum þurft að bera til baka orð-
róm. Það eru samningaviðræður í
gangi og þær dragast á langinn.
Við vitum ekki annað en stefni í
rétta átt,“ segir Vignir Örn
Guðnason, formaður Íslenska flug-
mannafélagsins (ÍFF), spurður
hvort félagsmenn hafi áhyggjur af
stöðu flugfélagsins WOW. Hann
segir fréttaflutning af stöðu flu-
félagsins vissulega hafa áhrif á
fólk en það sé „ágæt stemning í
hópnum“.
Fátt vitað um framhaldið
Viðræður um fjárfestingu In-
digo Partners í WOW hafa staðið
frá því í desember og hafði verið
gefið út að frestur til þess að
ganga frá samningum um fjárfest-
inguna væri 28. febrúar. Viðræður
hafa þó verið framlengdar til 29.
mars. Spurður hvort ÍFF hafi ver-
ið að koma upplýsingum til fé-
lagsmanna um stöðu mála segir
Vignir að það hafi ekki verið lagt
sérstaklega í slíka upplýsingagjöf.
„Við höfum ekki mikið að segja.
Það eina sem okkur er sagt er að
það séu viðræður í gangi og að
það taki sinn tíma, höfum það eftir
yfirmönnum okkar að þetta sé allt
í rétta átt.“
„Fólk er bara að fylgjast með,
við vitum ekki neitt meira en aðr-
ir,“ segir Orri Þrastarson, vara-
formaður Flugfreyjufélags Ís-
lands. Hann segir fólk leita til
félagsins af ýmsum ástæðum en
félagið eigi fá svör. „Fjölmiðlar
eru oft að leita til okkar til þess
að fá einhver viðbrögð en við höf-
um ekkert að segja vegna þess að
við vitum ekkert. Ég myndi gjarn-
an vilja geta fært jákvæðar fréttir
eða brugðist við neikvæðum frétt-
um. Síðasta neikvæða fréttin var
eftir að við fórum í gegnum mjög
sársaukafulla hópuppsögn í des-
ember, sem var mjög mikið áfall
fyrir fólkið mitt. Fólk er bara
ennþá að jafna sig eftir það,“ út-
skýrir Orri. gso@mbl.is
Hafa ekkert að segja um WOW
Stéttarfélögin hafa fá svör þegar til þeirra er leitað
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flug Beðið er niðurstöðu viðræðna.
SVIÐSLJÓS
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við erum með viðbragðsáætlun fyr-
ir alla daga og allar helgar. Við get-
um brugðist við öllu nýju smiti, erum
með bóluefni og getum tekið sýni.
Við ætlum að standa þetta af okkur,“
segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir,
settur framkvæmdastjóri lækninga
hjá Heilsugæslu
höfuðborgar-
svæðisins.
Mikið álag hef-
ur verið á heil-
brigðisstarfs-
mönnum síðustu
daga vegna fyr-
irspurna um misl-
inga og hugs-
anlegt
mislingasmit.
Segir Sigríður
Dóra að hjúkrunarfræðingar taki á
móti tugum símtala á hverri heilsu-
gæslustöð dag hvern vegna þessa.
Um 500 símtöl bárust Læknavakt-
inni í fyrradag af sömu sökum, að því
er fram kom á mbl.is.
„Þetta hefur valdið gríðarlegu
álagi á öllum heilsugæslustöðvum.
Við ráðleggjum fólki að hafa sam-
band í gegnum síma, ef grunur er um
smit viljum við ekki fá viðkomandi á
heilsugæslustöðina. Allar stöðvar
hafa gert ráðstafanir til að geta sinnt
þessu aukna álagi sem og að veita
upplýsingar um hvernig bregðast á
við. Við höfum líka mannað bíl frá
Læknavaktinni sem fer heim til fólks
á daginn ef þurfa þykir eða við ger-
um ráðstafanir til að bólusetja þá
sem bólusetja þarf utan stöðv-
arinnar,“ segir Sigríður Dóra.
Hún segir að erindi fólks séu fjöl-
breytt; margir hafi áhyggjur af því
að þeir séu smitaðir, aðrir vilji fá
bólusetningu eða upplýsingar um
bólusetningar. „Það er kannski
ágætt að hnykkja á því að fólk taki
tillit til aðstæðna og þeir sem eiga
ekki brýn erindi bíði kannski aðeins.
Vinnuveitendur og skólar geta til að
mynda slakað á kröfum um skil á
vottorðum meðan þetta gengur yfir.
Það væri vel þegið.“
Í gærkvöldi var greint frá því á
mbl.is að grunur léki á mislingasmiti
á leikskólanum Tjarnarskógi á Egils-
stöðum en það ætti að fást staðfest í
dag. Enn eru nokkrir tugir ein-
staklinga taldir í smithættu og eru
undir eftirliti. Nýsmit getur komið
fram á næstu tíu dögum.
Fjórir hafa smitast af mislingum
hér á landi að undanförnu og er það
mesti fjöldi smitaðra í yfir 40 ár.
Tveir fullorðnir hafa smitast, annar
erlendis en hinn í flugvél Air Iceland
Connect á milli Reykjavíkur og Eg-
ilsstaða 15. febrúar síðastliðinn. Tvö
börn sem voru um borð í þeirri vél
smituðust einnig. Annað þeirra er 11
mánaða og er í einangrun á Barna-
spítala Hringsins. Hitt barnið er 18
mánaða gamalt.
Lyfjastofnun tilkynnti í vikunni að
vegna mislingatilfella síðustu daga
hefði eftirspurn eftir bóluefni gegn
mislingum, hettusótt og rauðum
hundum aukist til muna. Arnþrúður
Jónsdóttir, lyfjafræðingur og mark-
aðsstjóri hjá Vistor sem flytur lyfið
inn, staðfesti í samtali við Morgun-
blaðið að 3.000 skammtar af bóluefni
kæmu með hraðsendingu í dag og
aðrir 1.000 skammtar kæmu með
skipi í næstu viku. Hún segir að
fyrirtækið hafi átt í góðu samstarfi
við sóttvarnalækni og heilbrigðisyf-
irvöld og allir leggi nú hönd á plóg
svo hægt sé að bregðast við ástand-
inu. Nóg verði til af bóluefninu. Und-
ir það tekur Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir: „Það verður enginn
skortur.“
Til stendur að efna til samráðs-
fundar í dag með fulltrúum frá Emb-
ætti landlæknis, heilsugæslunnar,
Landspítala og Læknavaktarinnar.
Þar verður staðan metin og næstu
skref ákveðin.
Eins og fram hefur komið hafa
mislingar ekki greinst hér í lengri
tíma og því hefur þess orðið vart að
læknar séu óvissir um þekkingu sína
á sjúkdómnum.
„Já, það er bara þannig. Mislingar
hafa ekki verið að ganga svo læknar,
almenningur og heilbrigðisstarfs-
menn hafa ekki séð einkenni þeirra.
Þetta er samt kennt í læknanámi alls
staðar og fólki ber að viðhalda sinni
þekkingu. Það ber hver ábyrgð á því
að dusta rykið af því sem hann
lærði,“ segir Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir.
Gríðarlegt álag á heilsugæslunni
Margir áhyggjufullir vegna mislingasmits 3.000 skammtar af bóluefni sendir með hraðsendingu
Heilbrigðisstarfsmenn þurfa að rifja upp þekkingu á mislingum Grunur um smit á leikskóla
Á samfélagsmiðlum má sjá að
margir vita lítið um hvernig
bólusetningar þeir hafa fengið,
enda ekki neinn rafrænn gagna-
grunnur um slík mál áratugi aft-
ur í tímann.
Sigríður Dóra Magnúsdóttir
hjá heilsugæslunni kannast við
að margir séu óvissir um hvort
þeir hafi fengið bólusetningu.
Hún segir að þeir sem fæddir
eru eftir 1975 eigi að vera bólu-
settir og þurfi ekki að óttast
sjúkdóminn, ekki frekar en þeir
sem hafa fengið hann.
„Ef maður er óviss um bólu-
setningu er gott að hringja í
tengdó eins og ég gerði eða
fletta upp í dagbók barnsins ef
hún er til. Þessir barna-
sjúkdómar voru oftast skráðir
af foreldrum, fólk bar virðingu
fyrir mislingum og þetta var
oftast skráð,“ segir hún. „Þeir
sem eru fæddir fyrir 1970 hafa
líklega fengið mislinga en mesti
vafinn er með hópinn sem
fæddur er á þessum árum,
1970-1975. Á þeim árum var
bólusetning í boði en hún var
ekki almenn.“
Fimm ára
óvissugat
BÓLUSETNINGAR
AFP
Bólusetning Metaukning varð á mislingasmiti í Evrópu á síðasta ári og far-
aldurinn er ekki í rénun. Hér er ungur drengur í Úkraínu bólusettur.
Þórólfur
Guðnason
Heimild: UNICEF, Khartis
Mislingasmit
á hverja milljón íbúa
árið 2018
0,02
1,00
10,00
50,00
100,00
200,00
821,81
Úkraína
Serbía
Jemen
Líbía
Súdan
a Brasilí
Filippseyjar
Lýðveldið Kongó
Frakkland
Bandaríkin Kína
Argentína
Ástralía
0,3
822
44
147
106 328
2,9
156
3,9
49
618
70
1,9
Mislingasmit eftir löndum árið 2018
Fjöldi mislingatilfella í Evrópu 1999-2018 Hlutfall bólusettra barna í Evrópu 1983-2017
Þúsundir tilkynntra tilfella Börn á aldrinum 12-23 mánaða
60
50
40
30
20
10
0
100%
90%
80%
70%
60%
50%
40%
’99’00 ’01 ’02 ’03’04’05’06 ’07 ’08’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18
Árið 2018 var metár
í fjölda tilfella á
þessari öld í Evrópu
Heimild: WHO Heimild: worldbank.org
’83 ’85 ’87 ’89 ’91 ’93 ’95 ’97 ’99 ’01 ’03 ’05 ’06 ’07 ’09 ’11 ’13 ’15 ’17
94%
92%
99%
81%
40%
Ísland
Evrópa
Hlutfall bólusettra barna 2017
Ísland 94%
Bandaríkin 92%
Frakkland 90%
Serbía 86%
Úkraína 86%