Morgunblaðið - 08.03.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2019
Í frétt Morgunblaðsins í fyrradager sagt frá ungu fólki sem ólst
upp í Sýrlandi, Afganistan og Sómal-
íu en er flutt til Svíþjóðar. Þetta
unga fólk veit hvar Ísrael er á landa-
kortinu en hafði
aldrei heyrt
minnst á helför-
ina gegn gyð-
ingum fyrr en í
námi í Svíþjóð. Í
þriðju stærstu
borg Svíþjóðar,
Malmö, fæddist
um þriðjungur
íbúa í öðru landi,
margir í þeim löndum sem nefnd eru
hér að framan. Hætt er við að fá-
fræði um þetta efni sé útbreitt.
Borið hefur á gyðingahatri ogsem betur fer verið brugðist
við því, meðal annars af stofnun sem
rithöfundurinn Stieg Larsson kom á
fót.
Og ekki veitir af fræðslu um þessimál, því að stofnunin gaf út sér-
stakan bækling um helförina eftir að
90 af 100 kennurum sem spurðir
voru árið 2016 sögðu að nemendur
sínir tryðu samsæriskenningum um
að helförin hefði ekki átt sér stað
eða að röng mynd væri gefin af
henni í sögubókum.
Þetta er alvarlegt því að nauðsyn-legt er að ungt fólk, og auðvitað
allur almenningur, viti hvaða óhugn-
að nasistar í Þýskalandi stóðu fyrir.
Með sama hætti er nauðsynlegtað fólk átti sig á hvaða óhugn-
aður hefur fylgt sósíalisma og
kommúnisma síðustu öldina.
Ekki er hægt að ganga út frá þvísem vísu að allir muni þann
hrylling eða setji atburði í Norður-
Kóreu og Venesúela, svo dæmi séu
tekin, í rétt samhengi.
Hættuleg
vanþekking
STAKSTEINAR
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Nettoline fær 5 stjörnur frá
dönskum gagnrýnendum
styrkur - ending - gæði
Eldhúsinnréttingar
hÁgÆÐa dansKar
OpiÐ:
Mán. - fim. kl. 09 til 18
Föstudaga kl. 09 til 17
Laugardagar kl. 11 til 15
úrVal innréttingaViÐ hönnum Og tEiKnum VönduÐ gÆÐaVaragOtt sKipulag
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Lagt er til að Seðlabanki Íslands og
Fjármálaeftirlitið verði sameinuð í
eina stofnun í drögum að frumvörp-
um sem forsætisráðuneytið og fjár-
mála- og efnahagsráðuneytið hafa
birt á samráðsgátt stjórnvalda.
Í frumvarpsdrögunum er m.a. lagt
til að forsætisráðherra skipi seðla-
bankastjóra til fimm ára í senn, að
hámarki þó tvisvar sinnum og þrjá
varaseðlabankastjóra einnig til fimm
ára í senn og að hámarki tvisvar
sinnum. „Einn leiðir málefni er
varða peningastefnu, einn leiðir mál-
efni er varða fjármálastöðugleika og
einn leiðir málefni er varða fjármála-
eftirlit. Varaseðlabankastjórar fjár-
málastöðugleika og fjármálaeftirlits
eru skipaðir eftir tilnefningu fjár-
mála- og efnahagsráðherra,“ segir í
skýringum.
Gert er ráð fyrir að rekstur og
stjórnun Seðlabankans verði í hönd-
um seðlabankastjóra, sem beri
ábyrgð á rekstri bankans og fari með
ákvörðunarvald í öllum málefnum
hans sem ekki eru öðrum falin.
„Sumar ákvarðanir eru teknar sam-
eiginlega af seðlabankastjóra og
varaseðlabankastjórum.
Ákvarðanir um beitingu tiltekinna
valdheimilda bankans eru teknar af
peningastefnunefnd, fjármálastöð-
ugleikanefnd og fjármálaeftirlits-
nefnd,“ segir ennfremur. Varaseðla-
bankastjórar eiga að hafa faglega
umsjón með vinnu bankans á sínum
sérsviðum.
Í frumvarpi sem fjármála- og
efnahagsráðherra mun leggja fram
samhliða koma fram breytingar á
samtals þrjátíu lögum sem gera þarf
vegna sameiningarinnar, m.a. um
eftirlit með fjármálastarfsemi o.fl.
Seðlabanki og FME verði sameinuð
Frumvarpsdrög lögð fram Forsætisráðherra skipi 3 varaseðlabankastjóra
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Við eigum von á þessu fólki í lok
apríl eða byrjun maí, en það á þó enn
eftir að ganga frá nokkrum lausum
endum áður,“ segir Valdimar O.
Hermannsson, sveitarstjóri á
Blönduósi, í samtali við Morgun-
blaðið og vísar í máli sínu til komu
kvótaflóttamanna hingað til lands.
Alls kemur hingað um 70 manna
hópur sem samanstendur af fjöl-
skyldufólki frá Sýrlandi og hinsegin
fólki og fer hann að hluta til á
Hvammstanga, Blönduós og til
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Hefst fólk þetta nú við í flótta-
mannabúðum í Úganda í Afríku.
Valdimar segir þann hóp sem
sendur verður á Blönduós kjarna-
fjölskyldur, þ.e. hjón með tvö til þrjú
börn. „Það er að vissu leyti auðveld-
ara að taka á móti kjarnafjöl-
skyldum þó að það geti einnig verið
gott að hafa stórfjölskylduna á
staðnum, en það er hins vegar erf-
iðara upp á hentugt húsnæði.“
Spurður hvort búið sé að ganga
frá öllum húsnæðismálum fyrir þann
hóp sem kemur til með að setjast að
á Blönduósi kveður Valdimar nei við.
„Þetta er ekki alveg fullfrágengið,
en við höfum verið að kemba bæinn.
Húsnæðismál voru okkar stærsti
fyrirvari, hér er mikill uppgangur og
almennt erfitt að fá húsnæði þó að
margt sé í byggingu. En eftir að
hafa farið náið yfir stöðuna í bænum
erum við búin að leysa húsnæðis-
hlutann að hálfu leyti. Þetta er hins
vegar allt í vinnslu og við erum nógu
bjartsýn til að geta slegið því föstu
að þetta muni allt ganga,“ segir
Valdimar.
Þá segir hann einnig næga at-
vinnu vera í boði á svæðinu fyrir þá
sem þar vilja setjast að.
Hópur frá Sýrlandi
kemur á næstu vikum
Verið að ganga
frá húsnæðismálum
á Blönduósi
Morgunblaðið/Eggert
Leifsstöð Þessi hópur Sýrlendinga
kom hingað snemma í janúar 2016.