Morgunblaðið - 08.03.2019, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2019
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Vinnueftirlitið hefur gefið stjórn-
endum hótela 239 tímasett fyrirmæli
um úrbætur sem varða heilsu og ör-
yggi starfsfólks við hótelþrif. Við
könnun og úttekt á aðstæðum þessa
hóps kom í ljós að vinnuumhverfi
þeirra sem starfa við hótelþrif er að
mörgu leyti ábótavant. Fyrirmælin
sem gefin voru um úrbætur voru af-
rakstur þessa eftirlitsátaks.
Vegna aukinnar ferðaþjónustu
hefur starfsmönnum gististaða fjölg-
að mikið. Eftirlitsátak Vinnueftir-
litsins sem hófst í lok árs 2017 og
lauk í vikunni með útgáfu skýrslu um
helstu niðurstöður beindist eingöngu
að starfsfólki við þrif.
Heimsótt voru 36 hótel með 10
starfsmenn eða fleiri. Spurninga-
könnun var lögð fyrir starfsfólk og
gerð úttekt á vinnuumhverfi þess.
Tilgangurinn var að aðstoða atvinnu-
rekendur við að skapa heilsusamlegt
vinnuumhverfi fyrir þennan starfs-
mannahóp með því að miðla upplýs-
ingum og gefa fyrirmæli um úrbætur
þar sem þörf krefði.
Of mikið líkamlegt álag
Niðurstöður könnunar meðal
starfsfólks sýndu að langflestir sem
vinna við hótelþrif hér á landi eru
konur af erlendum uppruna. Meiri-
hlutinn er Pólverjar. Íslenska er að-
eins tungumál tæplega 9% starfs-
manna. Starfsaldur er skammur, eða
rúmlega tvö ár á vinnustað.
Ef litið er til mats Vinnueftirlitsins
á aðstæðum og þeirra fyrirmæla um
úrbætur sem gefin voru sést að
helstu brotalamirnar eru í vinnu-
aðstæðum, of miklu líkamlegu álagi
og rangri líkamsbeitingu. Voru 110
fyrirmæli gefin um úrbætur á því
sviði. Í skýrslu Vinnueftirlitsins kem-
ur fram að þau sneru að líkamlegu
álagi vegna ófullnægjandi vinnuað-
stæðna þar sem unnið var í slæmum
vinnustellingum, meðal annars vegna
lítillar vinnuhæðar, þrengsla, erfiðs
aðgengis og ófullnægjandi búnaðar.
Verulega skorti á að skipulegt
vinnuverndarstarf í forvarnarskyni
færi fram á hótelunum því í tæplega
70% tilvika var engin eða aðeins
ófullnægjandi áætlun um öryggi og
heilbrigði fyrir vinnustaðinn. Áber-
andi var að áhættumat gagnvart lík-
amlegum álagsþáttum skorti auk for-
varnaraðgerða og voru því gefin
fjölmörg fyrirmæli um úrbætur á því
sviði. Þá voru gefin fyrirmæli um fé-
lagslegan og andlegan aðbúnað, um
öryggi varðandi efni og notkun efna
og fleira.
Öðruvísi upplifun starfsfólks
Niðurstöðum spurningakönnunar
meðal starfsfólks ber ekki að öllu
leyti saman við niðurstöður athug-
unar Vinnueftirlitsins. Samkvæmt
könnuninni telur lítill hluti starfs-
fólks sig verða fyrir miklu líkamlegu
álagi við vinnu sína. Vinnueftirlitið
skýrir þetta með stuttum starfsaldri
og lágum lífaldri þátttakenda. Er-
lendar rannsóknir bendi til að þar
sem meðalaldur og starfsaldur
starfsfólks er hærri sé líklegra að
starfsmenn upplifi álag og einkenni á
stoðkerfið. Þá gæti verið menning-
armunur á upplifun þátttakenda.
Þó kemur fram í könnuninni að
tæp 68% hótelþerna sögðu samskipti
við næsta yfirmann valda þeim
streitu og pólskir starfsmenn töldu
samskipti á vinnustaðnum verri en
íslenskumælandi samstarfsfólk.
Telur Vinnueftirlitið mikilvægt að
grípa til aðgerða og bæta vinnu-
aðstæður áður en starfsfólkið verður
fyrir heilsutjóni. Vakin er athygli á
því að meirihluti starfsfólksins er
konur af erlendum uppruna og þær
séu einn viðkvæmasti hópurinn á ís-
lenskum vinnumarkaði. Vert sé að
huga sérstaklega að forvörnum og
stuðningi við þann hóp.
Slæmar aðstæður hótelþerna
Vinnueftirlitið gaf stjórnendum hótela 239 tímasett fyrirmæli um úrbætur á vinnuumhverfi til að
tryggja heilsu og öryggi starfsfólks við hótelþrif Starfsfólkið lætur ekki illa af aðstæðum sínum
ASÍ, BSRB, Kvenréttindafélag Ís-
lands, Jafnréttisstofa, Samtök
starfsmanna fjármálafyrirtækja og
Kennarasamband Íslands. Erindi
fluttu rithöfundarnir Hildur Knúts-
dóttir og Auður Ava Ólafsdóttir og
einnig þær dr. Gyða Margrét Pét-
Árlegur alþjóðlegur baráttudagur
kvenna er í dag, 8. mars. Af því til-
efni er efnt til nokkurra viðburða.
Alþýðusamband Íslands (ASÍ)
heldur hádegisverðarfund á Grand
Hóteli Reykjavík um efnið: „Öll störf
eru kvennastörf? – Brjótum upp
kynbundið náms- og starfsval“.
Efling stéttarfélag hvetur starfs-
menn sem fara í verkfall í dag til að
koma í Gamla bíó. Þar geta þeir
skráð sig fyrir greiðslu úr vinnu-
deilusjóði og notið dagskrár sem
verður í boði frá klukkan 10.00 til
18.30. Efnt verður til kröfugöngu frá
Gamla bíói fram hjá helstu hótelum í
miðbænum kl. 16.00.
Menningar- og friðarsamtökin
MFÍK efna til fundar í Gamla bíói kl.
17.00. Drífa Snædal, forseti ASÍ, er
fundarstjóri. Ræður halda Sanna
Magdalena Mörtudóttir, Nichole
Leigh Mosty, Magga Stína Blöndal
og Anna Jakobína Björnsdóttir. Ey-
dís Blöndal flytur ljóð og um tónlist-
arflutning sjá Spaðabani, Guðlaug
Fríða og Kvennakórinn Impra.
Hádegisverðarfundur var haldinn
í gær á Grand Hóteli Reykjavík í til-
efni af alþjóðlegum baráttudegi
kvenna. Yfirskrift hans var „Þegar
konur segja frá – #metoo og kraftur
samstöðunnar“. Að fundinum stóðu
ursdóttir og dr. Annadís Greta Rúd-
ólfsdóttir sem eru dósentar við Há-
skóla Íslands. Fundarstjóri var
Steinunn Stefánsdóttir. Erindin
voru tekin upp og verða aðgengileg á
heimasíðum þátttakenda.
gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
8. mars Alþjóðlegur baráttudagur kvenna 2018. Ýmsir viðburðir eru í dag.
Fundarhöld og kröfuganga
í dag á baráttudegi kvenna
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er 8. mars ár hvert
Rúmlega 2% hótelþerna telja
að heilsu þeirra eða öryggi stafi
hætta af ofbeldi eða hótunum í
vinnunni. Rannsóknir sýna að
erlent verkafólk er líklegra til að
upplifa hótanir og ofbeldi á
vinnustað auk þess sem það er
líklegra til að verða fyrir brotum
á réttindum. Rúm 3% segjast
hafa orðið fyrir kynferðislegri
áreitni á vinnustaðnum og held-
ur færri telja að vinnufélagar
þeirra hafi orðið fyrir slíku.
Langflestir svöruðu báðum
spurningunum neitandi. Vinnu-
eftirlitið bendir á að kynferðis-
leg áreitni, hótanir og ofbeldi
hafi slæm áhrif á andlega heilsu
starfsmanna, auki til dæmis
kvíða og þunglyndi.
Kynferðisleg
áreitni í vinnu
KÖNNUN
9%
6%
17%
10%
58%
10%
22%
12%
35%
42%
43%
94%
22%
14%
Vinnuumhverfi starfsfólks í hótelþrifum
Mjög sjaldan
/aldrei
Fremur
sjaldan
Stundum Fremur
oft
Mjög oft
/alltaf
Ósammála
/hvorki né
Sammála Alveg
sammála
Ósammála Hvorki né Sammála
Mjög sjaldan
/aldrei
Fremur
sjaldan
Stundum Fremur
oft
Mjög oft
/alltaf
Heimild: Vinnueftirlitið
Valda samskipti þín við næsta
yfi rmann þér streitu?
Kyn Tungumál
Verður þú að
vinna á miklum
hraða?
Vinnan felur í sér hæfi lega
líkamlega áreynslu
Heilsu minni
eða öryggi
stafar ekki
hætta af
ofbeldi eða
hótunum í
vinnunni
Konur PólskaKarlar Íslenska
Enska
84% 53%
38%
16% 9%
3,6%2%
/alveg sammála
Morgunblaðið/Hari
Verkfall Hótelþernur fara í verkfall á morgun til að knýja á um hækkun
launa. Starfsmenn hótelanna samþykktu verkfallið í atkvæðagreiðslu.
Umtalsverður sparnaður varð við
afnám aksturssamninga starfs-
fólks borgarinnar, að því er fram
kemur í svari fjármálaskrifstofu
Reykjavíkurborgar við fyrirspurn
áheyrnarfulltrúa Miðflokksins og
Flokks fólksins, sem lagt var
fram í borgarráði í gær.
Aksturssamningar við starfs-
fólk borgarinnar voru afnumdir í
lok árs 2014. Í svarinu segir að
aðgerðin hafi sparað borginni um
700 milljónir kr. Á móti hefur
kostnaður við leigubíla hækkað
nokkuð og er kostnaðarauki
vegna leigubílaaksturs 2015-2018
tæpar 60 milljónir. Hafa því spar-
ast rúmlega 600 milljónir kr.
nettó með afnámi aksturssamn-
inga.
Sparnaður með afnámi aksturssamninga