Morgunblaðið - 08.03.2019, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2019
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
Verð 12.990 kr.
St 38-54
Úlpur
R
GUNA
GÓÐAR
I
Nefnd um umbætur á löggjöf á sviði
tjáningarfrelsis kynnti í gær síðustu
fjögur frumvörp af níu sem nefndin
telur til þess fallin að styrkja stöðu
tjáningarfrelsis og vernd uppljóstr-
ara. Fyrstu fimm frumvörpin fjölluðu
meðal annars um afnám refsinga
vegna ærumeiðinga, tjáningarfrelsi
og þagnarskyldu opinberra starfs-
manna og ábyrgð hýsingaraðila.
Frumvörpin eru nú aðgengileg í sam-
ráðsgátt stjórnvalda.
Frumvörpin sem kynnt voru í gær
sneru að breytingum á gildandi lög-
um, meðal annars útvíkkun á gild-
issviði upplýsingalaga, breytingu á að-
ferð við beitingu lögbanns á tjáningu
og breyttum skilyrðum fyrir end-
urkröfur blaðamanna og fjölmiðla-
veitna. Þá leggur nefndin einnig til
setningu nýrra laga um vernd upp-
ljóstrara.
Aukin vernd
Lagt er til að upplýsingalög nái til
Alþingis og dómstóla, ásamt því að
breytingar verði gerðar á máls-
meðferð til þess að hraða afgreiðslu
beiðna um aðgang að upplýsingum.
Jafnframt er lagt til að starfandi verði
ráðgjafi um upplýsingarétt almenn-
ings og að ráðuneytum verði gert að
hafa frumkvæði að birtingu upplýs-
inga úr málaskrám.
Tillaga að nýjum lögum um vernd
uppljóstrara er ætlað að vernda þá
sem ljóstra upp um brot á lögum eða
aðra ámælisverða háttsemi í starf-
semi vinnuveitenda. Lögunum er ætl-
að að ná til bæði starfsmanna á einka-
markaði og opinberra starfsmanna,
einnig verður þeim sem starfa hjá
hinu opinbera skylt að ljóstra upp um
slíka háttsemi. Samkvæmt frumvarp-
inu telst miðlun slíkra upplýsinga ekki
brot á þagnar- eða trúnaðarskyldu.
Þá er lagt til að óheimilt verði af hálfu
vinnuveitenda að refsa starfsmanni
fyrir uppljóstrun og verður öfug sönn-
unarbyrði, sem felur í sér að vinnu-
veitandi þarf að sanna að hann hafi
ekki gert það sem ljóstrað er upp um.
Lögbannsákvæðum breytt
Lagt er til að lögbannsákvæðum
laga verði breytt og er það rökstutt
með vísan í að sýslumaður hafi sett
lögbann á tjáningu sem dómstólar
hafa löngu síðar hafnað. Gildandi
ákvæði eru sögð skapa vandkvæði
með tilliti til ákvæða stjórnarskrár og
er lagt til að hægt verði að bera af-
stöðu sýslumanns undir dómstóla áð-
ur en lögbann tekur gildi.
Eitt þeirra frumvarpa sem nefndin
kynnti er sagt hafa það markmið að
bæta réttarstöðu blaðamanna, en til
þessa hafa blaðamenn í ýmsum til-
vikum þurft að greiða bætur vegna
umfjöllunar um mál fyrir fjölmiðil.
Lagt er til að ábyrgð fjölmiðilsins
verði aukin með því að honum verði
almennt gert að standa undir kostnaði
efkrafist er bóta vegna umfjöllunar.
gso@mbl.is
Fjögur frumvörp
um tjáningarfrelsi
Lagt til að uppljóstrun verði skylda
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fjölmiðlar Ábyrgð verður færð frá
blaðamanni yfir til vinnuveitenda.
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Samþykkt var á fundi bæjarstjórnar
Akureyrar á þriðjudag að breyta
reglum sérstakan húsnæðisstyrk
með þeim hætti að innleitt verður
lágmark greiddrar húsaleigu upp á
40 þúsund krónur, sem veldur því
framlag bæjarins til 81 einstaklings
lækkar um 3.194 krónur á mánuði
eða 38.328 krónur á ári, að sögn
Gunnars Gíslasonar, bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins. „Þetta er fólk
sem hefur mjög takmarkaðar bjarg-
ir,“ segir hann og bendir á að upp-
hafleg tillaga hafi verið að lágmarkið
miðaðist við 50 þúsund krónur.
„Það sem ég var ósáttur við var að
með þessu er verið að lækka ráðstöf-
unartekjur einstaklinga sem eru ör-
yrkjar og þeirra sem eru með lægstu
tekjurnar. Svo er það að rætt hefur
verið um það að sveitarfélögin haldi í
við hækkanir og annað slíkt á þess-
um tímum þegar kjarasamningsvið-
ræður eru í gangi og að komið sé inn
í þær með einhverju móti. Þá finnst
manni hálf skrýtið að verið sé að
stíga þetta skref, sem er réttlætt
með því að þetta [ákvæði um lág-
mark] hafi gleymst þegar við vorum
að taka upp sambærilegar reglur og
Reykjavík. Ég get ekki séð af hverju
við getum ekki verið að gera betur
við okkar fólk en Reykvíkingar,“ út-
skýrir Gunnar. Hann og Þórhallur
Jónsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, greiddu atkvæði gegn til-
lögunni, Sóley Björk Stefánsdóttir,
bæjarfulltrúi VG, og Hlynur Jó-
hannsson, bæjarfulltrúi Miðflokks-
ins, sátu hjá. Aðrir samþykktu tillög-
una.
Skilur ekki tilganginn
„Ef ekkert yrði gert þyrfti viðbót í
þennan lið í fjárhagsáætlun upp á
fimmtán milljónir. Þannig að upp-
haflega var tillagan að lágmarkið
yrði 50 þúsund krónur en þá yrði
skerðingin um sjö þúsund krónur á
mánuði, hátt í 100 þúsund á ári.
Menn voru sammála um það ekki
væri hægt að sætta sig við þessa
skerðingu. Þá velti ég fyrir mér
hvers vegna þurfi yfirhöfuð að fara í
þessa aðgerð, miðað við það að þetta
er ekki að skila neinu nema að búa til
einhverja reglu sem ég skil ekki af
hverju við ættum að taka upp,“ segir
Gunnar.
Hann segist ekki skilja tilgang til-
lögunar, enda myndi það aðeins
kosta Akureyrarbæ um þrjár millj-
ónir króna á ári að sleppa þessari
skerðingu bóta til fólks sem flest er
með um 200 þúsund krónur í ráðstöf-
unartekjur á mánuði.
Akureyrarbær
skerðir bætur
38 þúsund minna í húsnæðisbætur
Morgunblaðið/Hari
Skerðingar Sérstakar húsnæðis-
bætur minnka á Akureyri.
Embætti héraðssaksóknara Reykja-
víkur hefur ákært karlmann fyrir
kynferðisbrot gegn stúlku undir lög-
aldri sem eru sögð hafa verið framin
árið 2017. Hann er sagður hafa villt á
sér heimildir, sagst vera yngri en
hann var, og sent henni svo ítrekað
klámfengin og gróf skilaboð í gegn-
um samskiptamiðla. Meðal þeirra
var mynd af getnaðarlim hans.
Ákæran er í fjórum liðum. Auk
kynferðislegra samskipta á netinu,
er hinn ákærði sakaður um að hafa
afhent stúlkunni áfengi, nánar til
tekið landabrúsa. Hann á svo að hafa
boðið henni heim til sín og lagt til að
hún greiddi fyrir áfengið með því að
hafa kynferðismök við hann. Að lok-
um er hann sagður hafa haft í hót-
unum við stúlkuna er hún varð ekki
við óskum hans, bæði á þá leið að
hann myndi skaða hana og sömuleið-
is kvaðst hann sjálfur mundu svipta
sig lífi.
Ákærði hafði undir höndum tvær
ljósmyndir af stúlkunni sem sýndu
hana á kynferðislegan og klámfeng-
inn hátt sem hann á að hafa fengið
sendar í gegnum Facebook.
Í ákæru kemur fram að um er að
ræða meint brot á hegningar-,
barnaverndar- og áfengislögum. Er
þess krafist að maðurinn sæti refs-
ingu og upptöku á símum og tölvum
þeim sem hann notaðist við. Þá
krefjast foreldrar hins ólögráða
fórnarlambs í málinu 2,5 milljóna
króna í bætur fyrir hönd dóttur
sinnar.
Ákærður fyrir kynferðisbrot
Meint brot karlmanns gegn stúlku undir lögaldri