Morgunblaðið - 08.03.2019, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2019
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Hér á Íslandi er svo mikiðrými, það er alveg ótrú-lega fátt fólk á götunumhér í borginni. Þetta er
mjög ólíkt því sem ég á að venjast
heima í Eþíópíu þar sem alls staðar
er mannþröng. Þó að hér sé vissu-
lega kalt þá er allt svo hljóðlátt og
hreint, afar notalegt. Ég hlakka mik-
ið til að fara út fyrir Reykjavík og sjá
og snerta snjó í fyrsta sinn á æv-
inni,“ segir Eyerusalem Negya, ung
tónlistarkona frá Eþíópíu, sem kom-
in er til Íslands til að bjóða Frónbú-
um upp á framandi söng sinn. Hún
ætlar að vera með tónleika í Fíladel-
fíukirkju á morgun, laugardag, en
þeir eru hluti af árlegri kristniboðs-
viku Kristniboðssambandsins.
„Ég syng djass í bland við eþí-
ópska sönghefð, sem er mjög ólík
annarri afrískri tónlist. Þegar fólk
heyrir eþíópska tónlist í fyrsta sinn
dettur því stundum í hug arabísk
tónlist eða sígaunatónlist,“ segir
Eyerusalem sem er ekki aðeins að
koma í fyrsta skipti til Íslands held-
ur er þetta í fyrsta skipti sem hún
fer út fyrir heimaland sitt Eþíópíu.
Þetta er því stór stund í hennar lífi,
sem er tilkomin vegna vináttu henn-
ar og Helgu Vilborgar Sigurjóns-
dóttur kristniboða.
Var sífellt að leita ráða
Þær Helga og Eyerusalem
kynntust fyrir þrettán árum þegar
Helga var að kenna við tónlistar-
deild háskóla Mekane Yesus-
kirkjunnar í Addis Ababa í Eþíópíu.
Þar er kenndur djass og Eyerusa-
lem sem þá var aðeins 18 ára, var í
hópi nemenda Helgu.
„Ég fann strax fyrir sérstökum
tengslum milli okkar Eyerusalem,
hún var svo rosalega áhugasamur
nemandi, hana þyrsti í að læra. Ólíkt
öðrum nemendum var hún sífellt að
leita ráða hjá mér í tengslum við tón-
listina, hún vildi alltaf verða betri.
Hún bauð mér að heimsækja barna-
kór sem hún stjórnaði, sem var alveg
einstök reynsla fyrir mig og eftir það
kynntumst við betur.“
En tengslin eru margslungin
milli þeirra vinkvenna, því foreldrar
Helgu styrktu Eyerusalem til náms
síðasta eina og hálfa árið í skólanum,
þegar hana vantaði stuðningsaðila til
að ljúka náminu og útskrifast.
„Ég vissi vel hversu hæfileikrík
Eyerusalem væri og langaði að
hjálpa henni að klára námið svo ég
spurði foreldra mína hvort þau gætu
styrkt hana, sem þau svo gerðu,“
segir Helga og bætir við að þar til
núna hafi þær vinkonurnar aðeins
hist einu sinni á þeim þrettán árum
sem liðin eru frá því Eyerusalem var
í söngnámi hjá henni í Eþíópíu.
„Henni hefur vegnað vel, hún er
orðin nokkuð þekkt í Eþíópíu og hef-
ur gefið út tvær plötur með eigin
efni og vinnur nú að þeirri þriðju.
Einnig hefur hún gefið út nokkur
tónlistarmyndbönd og hún er með
spjallþátt á eþíópskri sjónvarpsrás
sem sendir út á youtube.“
Tala saman á amharísku
Helga var aðeins 19 ára þegar
hún fór fyrst til Eþíópíu.
„Mig langaði til að taka frí frá
námi að loknum menntaskóla, svo ég
fór sem sjálfboðaliði til að aðstoða í
norskum skóla fyrir kristniboðabörn
í Addis Ababa. Þar voru margir ís-
lenskir kristniboðar að störfum á
þeim tíma og fyrir vikið voru mörg
íslensk börn í skólanum. Föður-
bróðir minn bjó á þessum tíma í Eþí-
ópíu og dætur hans voru í skólan-
um,“ segir Helga. „Þegar ég kynnt-
ist manninum mínum, sem hafði
engin tengsl við kristniboð, þá lang-
aði hann til að taka þátt í þessu starfi
og við fluttum saman út til Eþíópíu
árið 2006 og störfuðum þar bæði í
fimm ár. Fyrsta árið vorum við í
tungumálaskóla til að læra amhar-
ísku, ríkismál Eþíópíu, en síðan
störfuðum við sem kennarar í Mek-
ane Yesus Seminary í Addis Ababa.
Að því loknu fluttum við út í sveit í
Eþíópíu og bjuggum þar í tvö ár í
yndislegu samfélagi,“ segir Helga og
bætir við að þau hjónin hafi flutt
heim fyrir níu árum en þau geti vel
hugsað sér að fara aftur út og sama
má segja um börnin þeirra, sérstak-
lega þrjú þau elstu, en þau eiga fimm
börn.
Kristniboðsstarf hefur lengi
verið stór hluti af lífi Helgu og fjöl-
skyldu hennar.
„Amma mín og afi voru mjög
virk í kristniboðsstarfinu og afi ferð-
aðist um landið sem trúboði með
Ólafi Ólafssyni, fyrsta kristniboð-
anum sem starfaði á vegum Kristni-
boðssambandsins. Pabbi var gjald-
keri kristniboðssambandsins í mörg
ár og tveir bræður hans eru líka
kristniboðar, annar var í Eþíópíu í
fimmtán ár en hinn var í Kenía í tólf
ár. Kirkjan sem við höfum starfað
með, Mekane Yesus, er stærsta lút-
erska kirkjan í heiminum og henni
tilheyra 9 miljónir,“ segir Helga sem
hefur lært amharísku, sem er rík-
ismál Eþíópíu og flestir þar tala. Það
er fallegt að hlusta á Helgu og Eye-
rusalem tala saman á hinni framandi
amharísku.
„Í Eþíópíu eru töluð um níutíu
tungumál. Þegar við bjuggum í suð-
urhluta landsins störfuðum við með-
al lítils þjóðflokks sem heitir Tsemai,
sem telur ekki nema um 30 þúsund,
en þau tala sitt eigið tungumál sem
enginn annar í landinu talar. Og
fólkið í næsta þorpi við þau talar allt
annað tungumál, gjörólíkt. Þetta er
mjög sérstakt, en hluti af kristni-
boðsstarfi okkar í Eþíópíu er að
hjálpa fólki að vernda tungumálin
sín og menninguna, m.a. með því að
þýða Nýja testamentið á þeirra
tungumál.“
Hefur svo mikið að gefa
Helga segist í mörg ár hafa látið
sig dreyma um að fá eþíópísku vin-
konu sína Eyerusalem hingað til
lands til að syngja á tónleikum. „Ég
er mjög hrifin af tónlistinni hennar
og hún hefur líka svo mikið að gefa.
Og nú hefur draumurinn orðið að
veruleika því Kristniboðssambandið
langaði að gera eitthvað sérstakt í
tilefni 90 ára afmælis samtakanna
sem við fögnum nú. Við höfum feng-
ið frábæra tónlistarmenn til liðs við
okkur til að sjá um undirleikinn hjá
henni, Pál Elfar Pálsson bassaleik-
ara, Rafn Hlíðkvist píanóleikara,
Bent Marínósson gítarleikara og
Brynjólf Snorrason trommuleikara.
Ég hvet fólk til að láta tónleika Eye-
rusalem ekki framhjá sér fara, því
þessi tónlist er afar sérstök. Auk
þess ætlar fólk frá Eþíópíu sem er
búsett hér á Íslandi að dansa með
henni. Þetta verður því veisla bæði
fyrir augu og eyru.“ Allir eru hjart-
anlega velkomnir á tónleikana sem
verða í Fíladelfíu Hátúni 2, Reykja-
vík, kl. 17 á morgun, laugardag.
Hlakkar til að snerta snjóinn
Hún fór í fyrsta skipti út
fyrir heimalandið, Eþíóp-
íu, til að koma alla leið
til Íslands. Hún ætlar að
syngja fyrir okkur fólkið í
norðrinu en íslensk vin-
kona og fyrrverandi söng-
kennari hennar beitti sér
fyrir því að hún kæmi.
Morgunblaðið/Hari
Vinkonur Helga og Eyerusalem kynntust fyrir 13 árum í Eþíópíu, heimalandi Eyerusalem. Þær hlúa að vináttunni.
Ljósmynd/Bernt Marinósson
Innlifun Eyerusalem að syngja í eþíópskum kjól á æfingu í Fíladelfíu.