Morgunblaðið - 08.03.2019, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2019
TILBOÐSDAGAR
15-20% afsláttur af öllum vörum.
ÞV
O
TT
AV
ÉL
A
R
KÆ
LI
SK
Á
PA
R
HELLUBORÐ
ÞURRKARAR
SMÁTÆKI
U
PPÞVO
TTAVÉLA
R
OFNAR
RYKSUGUR
VIFTUR OG HÁFAR
Skoðaðu úrvalið okkar á
*FRí heImkeyRSLA í neTveRSLun
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Gert er ráð fyrir að fiskeldissvæði í
þeim fjörðum þar sem burðarþol
vegna sjókvíaeldis hefur ekki verið
metið verði auglýst og óskað eftir til-
boðum. Umsóknir um rekstrarleyfi í
þessum fjörðum falla niður og ekki
er ætlunin að taka tillit til þeirra fyr-
irtækja sem lagt hafa í vinnu og
kostnað við mat á umhverfisáhrifum
vegna laxeldis á svæðunum.
Unnið eftir gildandi lögum
„Við erum með staðfestingu frá
Skipulagsstofnun á heimild okkar til
að vinna umhverfismat fyrir okkar
kvíar innarlega í Eyjafirði og erum
að vinna að því, í samræmi við gild-
andi lög. Samkvæmt frumvarpinu
verða svæði sem ekki hafa verið
burðarþolsmetin boðin út, sama hver
staðan er í undirbúningi með að nýta
þau,“ segir Rögnvaldur Guðmunds-
son, framkvæmdstjóri Akva Future
ehf., sem er að undirbúa laxeldi í lok-
uðum sjókvíum samkvæmt tækni
sem móðurfélag fyrirtækisins, Akva
Design AS, hefur þróað í Noregi og
notar á þremur svæðum í sveitar-
félögunum Brønnøysund og Vevel-
stad í Suður-Helgeland í Nordland-
fylki. Eyjafjörður er einn þeirra
fjarða sem ekki hefur verið lokið við
að burðarþolsmeta.
Tæknin hefur þá kosti að hægt er
að stýra eldinu betur, safna úrgangi
úr kvíunum og draga úr hættu á
lúsasmiti og slysasleppingum.
„Laxalús hefur aldrei fundist í kví-
unum okkar,“ segir Rögnvaldur.
Hann bætir við að þessi eldistækni
henti alls ekki alls staðar en vinnan
við umhverfismatið sýni að innan-
verður Eyjafjörður henti einstak-
lega vel fyrir lokaðar eldiskvíar.
„Mér finnst að lagasetning eigi að
vera þannig að hún feli í sér hvata til
framþróunar. Ég sé enga slíka hvata
í þessu frumvarpi,“ segir Rögnvald-
ur ennfremur.
Auglýst eftir tilboðum
Í frumvarpinu segir að ráðherra
ákveði hvenær nýjum eldissvæðum
er úthlutað. Við mat tilboða komi
fjárhæð tilboðs til skoðunar og einn-
ig reynsla, fjárhagslegur styrkur og
upplýsingar um það hvernig tilboðs-
gjafi hyggst stunda reksturinn. Þar
verður meðal annars litið til um-
hverfissjónarmiða.
Næstu firðir sem metnir verða eru
Mjóifjörður eystra, Norðfjarðarflói
og Eyjafjörður. Mælingar eru hafn-
ar í Norðfjarðarflóa og Eyjafirði.
Rögnvaldur segir að ef ekki verði
búið að burðarþolsmeta Eyjafjörð
þegar breytingar á lögunum ganga í
gildi verði öll vinna Akva Future þar
unnin fyrir gýg. Fyrirtækið er með
menn í vinnu við umhverfismatið en
hefur haldið að sér höndum með aðra
aðkeypta vinnu vegna óvissunnar.
Umsóknir um leyfi falla úr gildi
Fiskeldisleyfi á nýjum svæðum verða boðin út Framkvæmdastjóri Akva Future, sem undirbýr eldi
í lokuðum kvíum í Eyjafirði, segir að ef ekki fáist leyfi sé vinna við umhverfismat unnin fyrir gýg
Ljósmynd/Akva design
Lokaðar kvíar Þriðja eldisstöð Akva future hefur verið sett upp í Hamnsundet í sveitarfélaginu Vevelstad.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ungmennafélag Íslands mun bjóða
ungmenna- og íþróttafélögum afnot
af nýrri aðstöðu á Laugarvatni, um
helgar og á sumrin, þegar húsnæðið
er ekki í notkun hjá Ungmenna- og
tómstundabúðum UMFÍ. Auður
Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmda-
stjóri UMFÍ, segir að starfsfólkið
hafi þegar fengið nokkrar fyrir-
spurnir.
Fulltrúar Bláskógabyggðar og
UMFÍ skrifuðu í gær undir samn-
ing um leigu UMFÍ á Íþrótta-
miðstöðinni á Laugarvatni en svo er
gamla heimavist Íþróttakennara-
skóla Íslands nefnd. Jafnframt fá
samtökin tíma í íþróttamann-
virkjum sveitarfélagsins; sundlaug
og íþróttahúsi.
Ungmenna- og tómstundabúðir
UMFÍ sem í mörg ár hafa verið
starfræktar á Laugum í Sælingsdal
fyrir nemendur í 9. bekk grunnskóla
flytjast í haust í þessa aðstöðu á
Laugarvatni. „Með þessu tryggjum
við reksturinn til framtíðar og
starfsöryggi starfsmanna okkar,“
segir Auður en óvissa var um starf-
semina á Laugum vegna áforma um
sölu eigna Dalabyggðar þar.
Lyftistöng fyrir samfélagið
„Það verður lyftistöng fyrir sam-
félagið að fá þessa starfsemi hingað.
Við komum Íþróttamiðstöðinni í
notkun og nýtum betur sundlaug og
íþróttahús og eflum að nýju þá
íþrótta- og útivistarhefð sem Laug-
arvatn var þekkt fyrir,“ segir Helgi
Kjartansson, oddviti Bláskóga-
byggðar. Sveitarfélagið fékk þessar
eignir í fangið frá ríkinu eftir að Há-
skóli Íslands hætti kennslu í
íþrótta- og heilsufræðum í húsnæði
gamla Íþróttakennaraskólans.
Bláskógabyggð leggur í veru-
legan kostnað við viðhald og end-
urnýjun Íþróttamiðstöðvarinnar í
ár, áður en UMFÍ tekur hana á
leigu. Helgi segir að ástandið hafi
verið orðið bágborið á öllum þessum
eignum enda viðhaldi lítið sinnt
undanfarin ár. Hann segir að áfram
þurfi að vinna að endurbótum.
Auður segir að ungmenna- og
tómstundabúðirnar nýti húsnæði og
aðstöðu virka daga yfir vetrartím-
ann. Hún sé því laus um helgar og á
sumrin. Segir Auður að Íþrótta-
samband fatlaðra hafi rekið þar
sumarbúðir í hálfan mánuð á sumrin
og segir að til standi að þær haldi
áfram. Að öðru leyti sé aðstaðan
laus, ekki síst fyrir ungmenna- og
íþróttafélög. Hún geti nýst fyrir
fræðslustarf, hópefli og jafnvel æf-
ingabúðir. „Við erum spennt fyrir
þessu,“ segir Auður.
Bjóða félögum aðstöðu á sumrin
UMFÍ leigir Íþróttamiðstöðina á
Laugarvatni fyrir ungmennabúðir
Ljósmynd/Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
Laugarvatn Fulltrúar UMFÍ og Bláskógabyggðar ásamt gestum eftir undirritun samninga í gær.