Morgunblaðið - 08.03.2019, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2019
8. mars 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 121.12 121.7 121.41
Sterlingspund 159.02 159.8 159.41
Kanadadalur 90.49 91.01 90.75
Dönsk króna 18.333 18.441 18.387
Norsk króna 13.926 14.008 13.967
Sænsk króna 12.967 13.043 13.005
Svissn. franki 120.45 121.13 120.79
Japanskt jen 1.082 1.0884 1.0852
SDR 168.31 169.31 168.81
Evra 136.82 137.58 137.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 166.294
Hrávöruverð
Gull 1285.55 ($/únsa)
Ál 1845.5 ($/tonn) LME
Hráolía 65.49 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is
Bjóðum uppá húsgögn
eftir marga fræga
húsgagnahönnuði.
Mörg vörumerki.
● Fasteignafélagið Eik hagnaðist um
tæpa 2,6 milljarða í fyrra, samanborið
við tæplega 3,8 milljarða hagnað árið
2017. Rekstrartekjur félagsins námu
8,1 milljarði í fyrra og jukust um tæpar
500 milljónir milli ára. Leigutekjurnar
jukust úr 6,3 milljörðum í tæpa 6,8
milljarða. EBITDA reyndist 5,2 millj-
arðar og jókst um ríflega 200 milljónir
króna. Fjárfestingareignir félagsins
voru 90,3 milljarða í árslok og höfðu
aukist um 5,3 milljarða frá fyrra ári.
Eigið fé var 30,9 milljarðar og jókst um
tæpa 1,7 milljarða króna. Eiginfjárhlut-
fallið lækkaði hins vegar lítillega og stóð
í 31,9% en hafði verið 32,1% 12 mán-
uðum fyrr.
Eik hagnaðist um
2,6 milljarða króna
leggja ætti línur um launaþróunina.
„Opinberir starfsmenn ættu aldr-
ei að leiða launaþróunina í samfélag-
inu. Á Iðnþingi 2017 fordæmdi ég
þessar hækkanir í boði kjararáðs og
ég fordæmi þær líka hér og nú. Þær
voru fráleitar,“ sagði Guðrún.
Í ræðu sinni minntist Guðrún
einnig á stöðuna á vinnumarkaði.
Sagði hún að merki um kólnun í
hagkerfinu væru skýr í fyrsta sinn í
sjö ár.
„Lamandi verkföll beint ofan í
þessa stöðu gætu valdið miklum
skaða. Um það er ekki deilt. Því er
jafnvel hótað að skaða sem mest,“
sagði Guðrún.
Stofna samstarfsvettvang
Í máli Sigurðar Hannessonar,
framkvæmdastjóra Samtaka iðnað-
arins, kom fram að það stæði til að
stofna formlegan samstarfsvettvang
um loftslagsmál og grænar lausnir
þar sem öllum fyrirtækjum býðst að
vera með en það er Íslandsstofa
sem mun hýsa vettvanginn. Ríki
heims hafa sett sér markmið um
minni útblástur, en í stjórnarsátt-
mála ríkisstjórnarinnar er boðað
kolefnishlutleysi árið 2040. Sagði
Sigurður að sterkari ímynd Íslands
yki eftirspurn eftir því sem íslenskt
er og þannig ykist virði útflutnings.
„Þessi skilaboð stjórnvalda hafa
falið í sér hvatningu til atvinnulífs
um að vinna að metnaðarfullum
markmiðum í málaflokknum. Þann
bolta gripum við á lofti ásamt öðrum
samtökum og fyrirtækjum og höfum
átt uppbyggileg samtöl við stjórn-
völd um slíkt samstarf undanfarið
ár,“ sagði Sigurður en gengið verð-
ur frá yfirlýsingu um samstarf
stjórnvalda og atvinnulífs í þessum
málum á næstu dögum.
Fordæmir launahækkanir
opinberra starfsmanna
Iðnþing var haldið í Hörpu í gær á 25 ára afmæli Samtaka iðnaðarins
Þingað Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ávarpaði fjölsótt Iðnþing
sem haldið var í Hörpu. Iðnaðarráðherra var einnig meðal ræðumanna.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Enn mun verða dráttur á því að
skýrsla sem Seðlabankinn ákvað að
vinna um veitingu neyðarláns til
Kaupþings í október 2008 líti dags-
ins ljós. Þetta kom fram í máli Más
Guðmundssonar seðlabankastjóra í
viðtali á sjónvarpsstöðinni Hring-
braut á miðvikudag. Í skýrslunni,
sem ákveðið var að ráðast í ritun á
snemma árs 2015, verður einnig
fjallað um söluferlið á FIH-
bankanum í Danmörku en Seðla-
banki Íslands tók allsherjarveð í
bankanum í tengslum við veitingu
fyrrnefnds láns til Kaupþings.
Á mánudaginn síðasta lagði
Morgunblaðið fyrirspurn fyrir
skrifstofu seðlabankastjóra varð-
andi skýrsluskrifin. Ekki bárust
svör við spurningunni fyrr en upp
úr hádegi á miðvikudag. Var við-
kvæðið þá að ekki hefði gefist tími
til að ljúka við skýrsluna. Þegar
samsvarandi fyrirspurn var send
bankanum í desember síðastliðnum
var svarið hins vegar að enn væri
beðið svara við fyrirspurn sem for-
sætisráðherra hefði óskað eftir að
Seðlabankinn legði fyrir Kaupþing
varðandi það hvert fjármunum sem
komu úr neyðarláninu fyrrnefnda
hefði verið ráðstafað. Í fyrirspurn
Morgunblaðsins til Kaupþings kom
fram að félagið hefði strax í desem-
ber brugðist við fyrirspurninni og
veitt svör við henni.
Vísað til óbirts viðtals
Var Seðlabankinn í kjölfarið inntur
eftir því á hverju skýrsluskrifin
strönduðu, nú þegar svar Kaup-
þings hefði legið fyrir í rúma tvo
mánuði. Svarið var: „Eins og þú
hefur kannski séð þá verður Már í
viðtali á Hringbraut í kvöld – þar
verður þetta til umræðu – en um-
ræðan þar svarar þó ekki frekar
þínum spurningum beint en ég hef
þótt það sé einhver umræða í kring-
um þær.“
Í fyrrnefndu viðtali á Hringbraut
sagði Már Guðmundsson: „Við höf-
um spurt. Við erum komin með svar
sem er kannski ekki alveg full-
komið […] en sem er hægt að draga
þónokkrar ályktanir af. Það verður
í þessari skýrslu. Hún er meira og
minna bara á borðinu. Það þarf að
klára örfá atriði. Það stendur á
þessum karli sem hér er.“
Í svari til Morgunblaðsins 17. jan-
úar í fyrra sagði Seðlabankinn að
lokið yrði við skýrsluna „í þessum
mánuði“. ses@mbl.is
Margboðuð skýrsla mun tefjast enn
Seðlabankastjóri segir standa upp á sig að ljúka skýrslu um neyðarlán
STUTT
● Á aðalfundi Össurar hf., sem haldinn
var í gær, var samþykkt tillaga stjórnar
um að greiða arð sem svarar til 0,14
danskra króna á hvern útgefinn hlut í
félaginu. Jafngildir það um 1,1 milljarði
íslenskra króna. Arðgreiðslan nemur
um 12% af hagnaði síðasta árs.
Á fundinum var dr. Svafa Grönfeldt
kjörin ný inn í stjórnina.
Í kjölfar aðalfundar skipti stjórn með
sér verkum og var Niels Jacobsen
endurkjörinn formaður stjórnar og dr.
Kristján Tómas Ragnarsson endurkjör-
inn varaformaður.
Á aðalfundinum voru stjórnarlaun
ákveðin og fær formaður stjórnar í sinn
hlut 97 þúsund dollara á ári, jafnvirði
um 11,7 milljóna króna. Varaformaður
fær 58.200 dollara eða jafnvirði ríflega
7 milljóna króna og meðstjórnendur fá
greidda 38.800 dollara, jafnvirði 4,7
milljóna króna.
Hluthafar Össurar fá 1,1
milljarð greiddan í arð
Guðrún Hafsteinsdóttir var end-
urkjörin formaður SI með 95,9%
greiddra atkvæða. Nær kjörið til
ársins 2020. Kosið var um fjögur
sæti til stjórnarsetu. Inn í stjórn
SI komu Ágúst Þór Pétursson
húsasmíðameistari. Guðrún
Halla Finnsdóttir, verkefnastjóri
hjá Norðuráli, Magnús Hilmar
Helgason, framkvæmdast.
Launafls, Sigurður R. Ragn-
arsson, forstjóri ÍAV. Fyrir í
stjórn Árni Sigurjónsson, Marel,
Birgir Örn Birgisson, Pizza-Pizza,
Egill Jónsson, Össur, María
Bragadóttir, Alvogen, og Val-
gerður Hrund Skúladóttir, Sensa.
Stjórn Samtaka
iðnaðarins
IÐNAÐURBAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Guðrún Hafsteinsdóttir, nýendur-
kjörinn formaður Samtaka iðnaðar-
ins, gagnrýndi harðlega launa-
hækkanir stjórnmálamanna og
embættismanna í ræðu sinni á Iðn-
þingi sem haldið
var í Hörpu í gær
á 25 ára afmæli
samtakanna. Á
meðal ræðu-
manna voru for-
seti Íslands,
Guðni Th. Jó-
hannesson, sem
var heiðursgest-
ur, og Þórdís
Kolbrún Reyk-
fjörð Gylfadóttir,
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpun-
arráðherra.
Í ræðu sinni sagði Guðrún stöð-
una á vinnumarkaði vera grafalvar-
lega, að skýr merki væru um kólnun
hagkerfisins og að verkföll ofan í þá
stöðu myndu valda miklum skaða.
„Launahækkanir stjórnmála-
manna og embættismanna á einu
bretti um rúm 40% voru algjörlega
út úr korti. Opinberir starfsmenn
ættu aldrei að leiða launaþróunina í
samfélaginu,“ sagði Guðrún í ræðu
sinni. Hún fordæmdi aukinheldur
þessar hækkanir. Það yrði að vera
atvinnulífið, „undirstaðan“, sem
Guðrún
Hafsteinsdóttir