Morgunblaðið - 08.03.2019, Page 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2019
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástS s vinnuföt í
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Forsvarsmenn Evrópusambandsins
sögðu í gær að Bretar yrðu helst að
setja fram nýjar tillögur um hvernig
leysa ætti deiluna um „írska varnagl-
ann“ svonefnda ekki síðar en í dag.
Þrjár vikur eru þar til Bretar eiga að
ganga úr sambandinu, og eiga við-
ræðunefndir Breta og sambandsins
að funda um helgina.
Ríkisstjórn Theresu May sækist
enn eftir lagalega bindandi breyting-
um á varnaglanum, en hann er talinn
helsta fyrirstaðan gegn því að neðri
deild breska þingsins samþykki sam-
komulag um útgöngu Bretlands úr
Evrópusambandinu. Þingið mun
kjósa aftur um samkomulagið á
þriðjudaginn í næstu viku. Verði það
fellt þá, mun þingið ákveða á miðviku-
daginn hvort fresta eigi útgöngunni
eða hvort að Bretar muni yfirgefa
Evrópusambandið án samnings.
„Lausnin er á borðinu“
Evrópuþingmaðurinn Guy Verhof-
stadt og Nathalie Loiseau, Evrópu-
málaráðherra Frakka, voru hins veg-
ar á meðal þeirra sem ítrekuðu í gær
að ekki væri hægt að breyta sam-
komulaginu sem samþykkt var í lok
síðasta árs. Sagði Loiseau við breska
ríkisútvarpið BBC að lausnin væri
þegar „á borðinu“ og að samkomulag-
ið væri hið besta sem mögulega væri
hægt að fá.
Manfred Weber, leiðtogi íhalds-
manna á Evrópuþinginu, sagði einnig
að það væri óhugsandi að Bretar
myndu fresta útgöngunni, þar sem þá
yrðu þeir að taka þátt í næstu kosn-
ingum til Evrópuþingsins í maí næst-
komandi. Sagði Weber að ríki sem
ætlaði sér ekki að vera í ESB ætti
ekki að hafa neitt að segja um framtíð
sambandsins.
Ræðast við alla helgina
Forkólfar Evrópusambandsins vilja nýjar tillögur um varnaglann sem fyrst
AFP
Brexit Skiptar skoðanir eru um út-
gönguna í Bretlandi og mótmæli tíð.
Fjöldi fólks flýr nú síðasta vígi Ríkis íslams, en loka-
sóknin gegn hryðjuverkasamtökunum stendur nú yfir.
Þessi stúlka var á meðal þeirra sem flúðu yfir til kúrd-
ískra hersveita í vikunni, en áætlað hefur verið að um
7.000 manns, einkum konur og börn, hafi flúið átaka-
svæðið á síðustu dögum.
AFP
Þúsundir flýja undan yfirráðum Ríkis íslams
Barist um síðasta vígið
Justin Trudeau,
forsætisráðherra
Kanada, neitaði í
gær öllum ásök-
unum á hendur sér
um að hann hefði
beitt sér á flokks-
pólitískan hátt í
sakamáli ríkisins
gegn verktaka-
fyrirtækinu SNC-
Lavalin.
Trudeau hélt sérstakan blaða-
mannafund þar sem hann sagðist
aldrei hafa rætt við Jody Wilson-
Raybould, fyrrverandi dóms-
málaráðherra, um mál fyrirtækisins
frá þeim sjónarhóli.
Sagði Trudeau að hann áttaði sig
nú á því hvernig samskipti hans og
Wilsons-Raybould hefðu versnað
vegna málsins, en sagði að hún hefði
átt að greina sér frá áhyggjum sín-
um vegna málsins fyrr. „Ég áttaði
mig ekki á því að trúnaðarbrestur
hefði orðið,“ sagði Trudeau og baðst
afsökunar á því. Hann hefði þó ekki
beitt hana neinum þrýstingi vegna
málsins.
Trudeau neitar
öllum ásökunum
Justin
Trudeau
KANADA
Joseph Votel, yf-
irmaður herafla
Bandaríkjanna í
Mið-Aust-
urlöndum, sagði í
gær að of snemmt
væri að draga her-
sveitir landsins frá
Afganistan. Þá
varaði hann við
því að enn stafaði
ógn af Ríki íslams.
Votel greindi frá þessu á fundi
með varnarmálanefnd full-
trúadeildar Bandaríkjaþings. Tók
Votel þar sérstaklega fram að engin
fyrirskipun hefði borist um að her-
inn ætti að yfirgefa Afganistan,
þrátt fyrir að Donald Trump Banda-
ríkjaforseti hefði áform uppi um
slíkt. Sagði Votel að öryggissveitir
Afgana treystu enn um of á Banda-
ríkin og að því væri tal um slíka
brottför ótímabært.
Ekki tímabært að
yfirgefa Afganistan
Joseph
Votel
BANDARÍKIN
36 ríki sendu í gær frá sér sameig-
inlega yfirlýsingu í mannréttinda-
ráði Sameinuðu þjóðanna þar sem
framganga Sádi-Arabíu í mannrétt-
indamálum var fordæmd. Var ríkið
meðal annars gagnrýnt fyrir fram-
göngu sína í morðinu á blaðamann-
inum Jamal Khashoggi.
Þá var einnig lýst yfir verulegum
áhyggjum af hvernig ríkið hefði
beitt sér gegn baráttumönnum fyr-
ir auknum mannréttindum, sér í
lagi auknum réttindum kvenna.
Harald Aspelund, fastafulltrúi Ís-
lands hjá Sameinuðu þjóðunum, las
upp yfirlýsinguna fyrir hönd
ríkjanna 36.
Kallað eftir óháðri rannsókn
Í yfirlýsingunni sagði meðal ann-
ars að rannsókn á morði Khashogg-
is yrði að vera skilvirk, sjálfstæð,
óháð og gegnsæ og að þeir sem
bæru ábyrgð á lífláti hans yrðu að
axla hana. Þá var skorað á stjórn-
völd í Ríad að birta allar upplýs-
ingar um sína eigin rannsókn á
málinu ásamt því að þau ættu að
sýna sérstakri rannsókn Samein-
uðu þjóðanna fullan samstarfsvilja.
Auk Íslands stóðu Ástralía, Kan-
ada, Liechtenstein, Mónakó, Nýja
Sjáland, Noregur, Svartfjallaland
og öll 28 ríki Evrópusambandsins
að yfirlýsingunni. Þetta er í fyrsta
sinn sem Sádi-Arabía er gagnrýnd
á vettvangi mannréttindaráðsins,
þrátt fyrir að ríkið hafi löngum ver-
ið gagnrýnt fyrir bágborna stöðu í
þeim málaflokki.
Abdul Aziz Alwasil, fastafulltrúi
Sádi-Arabíu mótmælti yfirlýsing-
unni harðlega. Sagði hann hana
vera inngrip í innanríkismál Sádi-
Arabíu og árás á fullveldi landsins.
Fordæmdu Sádi-
Arabíu í ráðinu
Fulltrúi Íslands
las upp sameigin-
lega yfirlýsingu
AFP
Khashoggi Framganga Sádi-Araba
í rannsókn morðsins var gagnrýnd.
Geimvísindamenn á vegum NASA
og Evrópsku geimferðastofnunar-
innar tilkynntu í gær að þeir hefðu
reiknað nákvæmlega hver massi
Vetrarbrautarinnar væri í fyrsta
sinn. Eru útreikningarnar byggðir á
nýjum gögnum sem gera ráð fyrir
þyngd hulduefnis (e. dark matter).
Massi Vetrarbrautarinnar er sam-
kvæmt niðurstöðum vísindamann-
anna jafn einni og hálfri billjón af
massa sólarinnar. Fyrri útreikn-
ingar gerðu ráð fyrir því að massi
Vetrarbrautarinnar væri á bilinu
500 milljarðar af sólarmassa og
þrjár billjónir, og stafaði óvissan að-
allega af því hvernig reiknað var
með tilvist hulduefnis, en það hvorki
tekur til sín né gefur frá sér ljós.
Vísindamennirnir notuðu hins
vegar hraða ákveðinna stjörnuþyrp-
inga til þess að reikna út massa
þeirra og um leið hulduefnis.
Vetrarbrautin inniheldur allt að
400 milljarða stjarna, þeirra á meðal
okkar eigið sólkerfi.
Áætluðu
magn
hulduefnis
Massi Vetrar-
brautarinnar fundinn