Morgunblaðið - 08.03.2019, Page 22
Tvö pálmatré á torgi
í íbúðabyggð í 10 metra
glerhjúpi en opinn að
ofan. Óneitanlega
frumleg hugmynd en
hversu fögur eða prakt-
ísk hún er vekur stórar
spurningar.
En auðvitað er þessi
hönnunartillaga alveg
bráðsmellin að bera á
borð fyrir borgar-
stjórn, þar sem vitað er að borg-
arstjórinn er í eilífri skógargöngu en
aðalliðið, Hjálmar og co., er oft sólgið
í að kaupa og framkvæma hinar fá-
ránlegustu hugdettur sem eiga oft
greiða leið upp á pallborðið þar sem
kostnaðurinn er aukaatriði og pen-
ingaskápurinn opnaður.
Allir þurfa sitt lifibrauð, hönnuðir
sem og aðrir menn og að hanna eitt-
hvað fallegt og selja fyrir góðan pen-
ing, ég tala nú ekki um ef hönnunin
verður með tímanum viðurkennt
listaverk, það hlýtur að vera góð til-
finning.
En hvað er fallegt og hvað finnst
hverjum og einum er auðvitað ein-
staklingsbundið.
Hönnuðurinn hefur
sjálfsagt ekkert velt því
fyrir sér hvort pálmi
geti lifað í glerhólknum
eða ekki, enda skiptir
það ekki máli, aðal-
atriðið er að selja hug-
myndina og það sem
snýr að Reykjavíkur-
borg í þeim efnum er
allt mögulegt.
Ég er nú ekki mikill
gróðursérfræðingur en
einhvern veginn finnst
mér ég hafa vit á þessu
eins vitlaust og það kannski lætur.
Pálmi á heimaslóðum suður í höf-
um við sól, sjó og þægilega vindgjólu
þrífst þar auðvitað alveg glimrandi.
Þannig að það er kannski ekki hið
saltmengaða sjávarloft hér á Íslandi
sem mundi bana pálma.
Rætur pálma eru langar og sverar
og þurfa þess vegna mjúkan jarðveg
til að geta safnað raka.
Hugsanlega væri hægt að halda lífi
í pálmanum með réttri vökun inni í
hólknum. En sólarleysið og kuldinn
gæti orðið honum að fjörtjóni á stutt-
um tíma, á þessu óskaplega lægða-
keðjusvæði þar sem erfitt er að láta
hárlokkinn tolla nema hann sé bað-
aður í margaríni.
Glerhólkurinn sjálfur njörvaður
niður við sjávarsíðuna með pálma
inni í yrði fljótlega grámattur af salt-
mengaða loftinu sem mundi leika um
hann sí og æ.
Hverju ætlar fólk þá að dást að,
gráskítugum 10 metra glerhólk með
deyjandi pálma innan í sem varla
glittir í? En hugmyndin er samt snið-
ug en ekki einstök og þess vegna datt
mér í hug að gera fegrun torgsins
svolítið öðruvísi. Hugmyndin er sú að
gleyma glerhólkunum og lifandi
dauðum pálmum en setja í staðinn
gervipálmatré, t.d. úr ryðfríu stáli
sem mundi standa til eilífðar.
Í stálpálma mætti leika sér með
ýmislegt, t.d. setja lítil ledljós hér og
þar um greinarnar sem mundi gera
skammdegið á torginu bara sérlega
vinalegt í myrkrinu og kuldanum.
Kveðjum lifandi dauðann pálma en
plöntum í staðinn dauðum pálma sem
myndi lifa að eilífu.
Pálmi
Eftir Jóhann L.
Helgason » Sólarleysið og kuld-
inn gæti orðið hon-
um að fjörtjóni á stutt-
um tíma
Jóhann L Helgason
Höfundur er húsasmíðameistari.
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2019
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2019 GMC Denali 3500
Litur: Silver, svartur að innan.
6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ, 2019 Módel.
Vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, BOSE hátalarakerfi,
dual alternators, upphituð og loftkæld sæti, geymsla
undir aftursæti, heithúðaður pallur og kúla í palli
(5th wheel pakki) og fleira.
VERÐ
11.360.000 m.vsk
2019 GMC 3500
Sierra SLT, 35”
Litur: Summit white, svartur að innan.
6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ, 2019 Módel, 35”
breyttur. Vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, sóllúga,
BOSE hátalarakerfi, dual alternators,
upphituð og loftkæld sæti, Z71-pakki heithúðaður
pallur og kúla í palli (5th wheel pakki) og fleira.
VERÐ
11.640.000 m.vsk
2018 RAM 3500 Laramie
Litur: Svartur (brilliant black), dökk grár að innan.
Black apperance pakki.
35” Dekk
Ekinn 17.000 km.
6,7L Cummins, Aisin sjálfskipting, loftpúðafjöðrun,
heithúðaður pallu, fjarstart, 5th wheel towing pakki
VERÐ
8.530.000 m.vsk
2019 RAM 1500 Rebel
Litur: Flame red, svartur að innan.
Glæsilega útbúinn off-road bíll.
5,7 L HEMI, 390 hö. 8 gíra sjálfskipting,
hæðarstillanleg loftpúðafjöðrun, lok á palli.
VERÐ
12.890.000 m.vsk
Síðustu vikur hefur
nokkuð verið um það
rætt að stjórnir bank-
anna hafi ekki farið að
tilmælum fjár-
málaráðherra frá
árinu 2017 um að gæta
hófs í samningum um
laun stjórnenda. Þessi
tilmæli voru hluti af
eigendastefnu um
fjármálafyrirtæki frá
árinu 2017 og í raun synd að fór sem
fór, því svona tilmæli geta stjórnir
nýtt sér sem gott stjórntæki á tím-
um þegar samfélagið er farið að
gera kröfur um að sátt ríki um leik-
reglur. Í viðskiptum og atvinnulífi er
það nefnilega svo að í dag gildir ekki
lengur að spila leikinn bara eins og
manni sjálfum finnst eða nokkrum
best hentar. Veruleikinn er breyttur
og nýir tímar hafa þegar tekið við.
Sterkasti leikur stjórna og eigenda
stórfyrirtækja er því að styðjast við
þær leikreglur sem hafa verið mót-
aðar upp á nýtt síðustu árin og
stuðla þannig að því að fyrirtæki á
vegum þeirra séu leiðandi fyrir-
mynd. Þar langar mig
sérstaklega að benda á
texta í kynjakvótalög-
unum sem tóku gildi
haustið 2013. Þar segir í
1. mgr. 65.gr. „Gætt
skal að kynjahlutföllum
við ráðningu fram-
kvæmdastjóra og skulu
hlutafélagaskrá gefnar
upplýsingar í tilkynn-
ingum til skrárinnar um
hlutföll kynjanna meðal
framkvæmdastjóra.“
Rétt eins og tilmælin
margumræddu um laun æðstu
stjórnenda í bönkum fólu ekki í sér
viðmiðanir í krónum og aurum talið
tilgreina kynjakvótalögin ekki hver
æskileg hlutfallsskipting stjórnenda
í framkvæmdastjórnum þyrfti helst
að vera. Skilaboðin eru þó skýr og
vert að huga svolítið að því hvaða
fyrirtæki eru að fara eftir þeim. Í
tölum Jafnvægisvogar FKA sem
Deloitte tók nýverið saman má sjá
að í 100 stærstu fyrirtækjum lands-
ins eru 90% forstjóra karlmenn og
74% framkvæmdastjórnenda. Í
skráðum fyrirtækjum á hlutabréfa-
markaði eru allir forstjórar karl-
menn og 78% framkvæmdastjórn-
enda. Ljóst er að einkageirinn er því
ekki að fylgja eftir þeim tilmælum
sem kynjakvótalögin þó fela í sér,
sbr. fyrrgreind tilmæli í 1. mgr. 65.
gr. Sum fyrirtæki eru reyndar kom-
in mjög langt og vel það. Besta
dæmið er Sjóvá, sem tók ákvörðun
um að jafna hlutfall kynja í öllum
deildum félagsins. Algengari birt-
ingarmyndir eru hins vegar sam-
setningar framkvæmdastjóra, þar
sem karlmenn eru í miklum meiri-
hluta en konum fer síðan að fjölga á
öðrum sviðum sem neðar teljast í
skipuritinu. Hjá Icelandair eru til
dæmis þrjár konur í fram-
kvæmdastjórn en sex karlmenn. Í
framkvæmdastjórn Eimskips eru
karlmennirnir sex og ein kona. Í
Origo eru fimm karlmenn og ein
kona. Hjá TM eru fimm karlmenn
og ein kona. Í Sýn eru fjórir karl-
menn og ein kona (reyndar gæti
þetta breyst með ráðningu nýs for-
stjóra). Í Högum eru fimm karl-
menn og ein kona. Síðan eru það
fyrirtækin sem eru hreinlega kven-
mannslaus í framkvæmdastjórn.
Það eru fyrirtæki eins og Síminn og
Heimavellir. Fleiri fyrirtæki er
hægt að tilgreina en áhugasömum er
bent á að skoða heimasíður stórfyr-
irtækja. Við slíka skoðun vakna
stundum spurningar um lykilstjórn-
endur. Ég nefni sem dæmi helstu
stjórnendur HB Granda. Á vefsíðu
fyrirtækisins eru stjórnarmönnum
gerð góð skil með nafni, mynd og
texta. Engin nöfn eru hins vegar til-
greind á mynd með skipuriti lyk-
ilstjórnenda.
Í dag er hins vegar góður dagur
til að taka ákvörðun um að breyta
hlutunum þannig að aukið jafnvægi
náist í þeim fyrirtækjum sem kynja-
kvótalögin ná til og enn á eftir að
bæta úr. Lágmarkskrafa er að sam-
setning í framkvæmdastjórnum
endurspegli þau tilmæli sem skila-
boð kynjakvótalaganna fela í sér. Ég
hvet til aðgerða í dag vegna þess að
8. mars er Alþjóðadagur kvenna og í
dag er hann haldinn hátíðlegur und-
ir yfirskriftinni„Náum jafnvægi“ (e.
Balance for Better). Útgangs-
punktur dagsins er ávallt sá að með
mannauði kvenna og karla eru meiri
líkur á betri árangri. Og hver vill
ekki að fyrirtæki á sínum vegum fari
að lögum og auki þannig um leið lík-
ur sínar til árangurs?
Í félögum í eigu hins opinbera
hafa hlutföllin breyst verulega á síð-
ustu árum og því eru hlutföllin þar
hjá forstjórum og í framkvæmda-
stjórnum nær því að vera 40:60. Það
sama gildir um bankana, þeir hafa
jafnað hlutföllin hjá sér. Við erum
því að tala um áskorun um breyt-
ingar sem aðrir hafa þegar sýnt að
eru vel mögulegar. Nú er það spurn-
ing um þau fyrirtæki sem enn eiga
nokkuð í land en athygli vekur að
mörg þessara fyrirtækja hafa þegar
sett sér jafnréttisstefnu og farið í
gegnum jafnlaunavottunina. Ég
hlakka til að fylgjast með því á
næstu vikum hvaða fyrirtæki verða
fyrst til að taka skilaboð dagsins til
sín og boða breytingar. Náum jafn-
vægi í stærstu fyrirtækjum landsins
og nýtum betur auðlindina sem
mannauðurinn okkar er.
Eftir Rakel
Sveinsdóttur » Svona tilmæli geta
stjórnir nýtt sér sem
gott stjórntæki á tímum
þegar samfélagið er far-
ið að gera kröfur um að
sátt ríki um leikreglur.
Rakel Sveinsdóttir
Höfundur er formaður Félags kvenna
í atvinnulífinu (FKA).
Náum jafnvægi í stærstu fyrirtækjunum
Rafsígarettur eru
orðnar þekkt fyrirbæri
hér og landi og erlendis.
Sífellt fleiri ein-
staklingar virðast vera
farnir að nota rafsíga-
rettur. Þær eru senni-
lega prýðilegt hjálp-
artæki til að venja fólk
af tóbaksnotkun. Það er
óumdeilt að reyktóbak
er eitur og hefur skað-
leg áhrif á heilsu þeirra sem það
nota. Í tóbaksreyk er fjöldinn allur
af eiturefnum öðrum en nikótíni.
Kannanir sýna að stór hluti efri
bekkja grunnskóla notar rafsíga-
rettur daglega. Börn ánetjast vatns-
gufu með kirsuberjabragði eða öðru
bragði og átta sig ekki á fyrr en um
seinan að þau eru orðin nikótínfílar.
Rafsígarettur eru ertandi fyrir
lungu og þar sem lungu ungs fólks er
enn að taka út þroska á þessum tíma
hefur rafrettuvökvi áhrif á lungu.
Læknar hafa sagt að ungt fólk og
fólk með slæm lungu ætti ekki að
vera í sama rými og
gufan sem kemur úr
rafsígarettunni.
Rafsígarettur eru
framleiddar með alls
kyns bragðefnum, þær
eru orðnar að tísku,
einkum meðal ungs
fólks og nú fyrir
nokkru birtist frétt um
að hátískuverslunin
Barneys New York
muni opna lúxus
kannabisbúð í útibúi
sínu í Beverly Hills í
þessum mánuði. Búðin heitir The
High End og verður þar hægt að
kaupa ýmiskonar kannabisvarning
eins og snyrtivörur, rafrettupenna
og 180 þúsund króna kvörn.
Ætlunin er að ýta menningunni í
þá átt að þú getir mætt með fínan
kannabisvarning í matarboð líkt og
þú myndir mæta með vínflösku.
Stefnan er að færa fólki upplifun á
skjön við staðalímynd kannabisneyt-
andans sem dúsir heima hjá sér að
borða pítsu allan daginn.
Fíkniefnaheimurinn er síbreyti-
legur og er markaðssetningin þar í
sífelldri endurskoðun og í leit að nýj-
um viðskiptavinum. Töluverð aukn-
ing er hér á landi á kannabissjúk-
lingum sem reykja þessi fíkniefni í
gegnum rafrettur. Þetta er mikið
áhyggjuefni, ekki síst í ljósi þess að
aukaverkanir, svo sem geðhvarfa-
sýki og fleiri geðsjúkdómar af neyslu
kannabisefna hafa stóraukist síðustu
ár vegna íblöndunar eða breyttrar
ræktunaraðferða plantna.
Þetta er slæm þróun sem ég tel að
þurfi að fara að sporna gegn. Það er
sorglegt að horfa upp á ungt fólk
reykja rafrettur í auknum mæli og
leiðast jafnvel út í sterkara efni en
nikótín.
Rafsígarettur
Eftir Sigurð
Pál Jónsson
Sigurður Páll Jónsson
» Læknar hafa sagt að
ungt fólk og fólk
með slæm lungu ætti
ekki að vera í sama rými
og gufan sem kemur úr
rafsígarettunni.
Höfundur er alþingismaður Mið-
flokksins. sigurdurpall@althingi.is
SMARTLAND