Morgunblaðið - 08.03.2019, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2019
✝ Ólína G. Mel-sted fæddist í
Reykjavík 11. apríl
1946. Hún lést á
heimili sínu 23.
febrúar 2019. Ól-
ína var dóttir
hjónanna Unnar E.
Melsted, f. 18.11.
1921, d. 23.8. 1998,
og Gunnars H.
Melsted, f. 13.2.
1919, d. 17.11.
2014. Systkini Ólínu eru Eyj-
ólfur, f. 1942, Guðrún Erla, f.
1944, Auður, f. 1947, d. 2013,
Erna, f. 1949, Steinunn, f.
1952, Halldóra, f. 1955, d.
1990, Unnur, f. 1957, og Þóra,
f. 1959.
Ólína giftist 1965 Guðmundi
Jónssyni, f. 1947. Foreldrar
hans voru Jón Þorvarðarson, f.
Diljá Heimisdóttur og á hann
einn son. 3) Gunnar, f. 1969, í
sambúð með Tinnu Magnús-
dóttur, dætur hans eru a) Arna
Margrét, f. 1995, b) Inga Sóley,
f. 2004, og c) Lilja Dögg, f.
2009. Börn Tinnu og stjúpbörn
Gunnars eru a) Ragnheiður
Röskva, f. 1998, b) Hilda Rögn,
f. 2006, og c) Sigmar Rökkvi, f.
2007. 4) Jón, f. 1973, d. 2014.
Eiginkona hans var Fríða
Ragna Ingvarsdóttir, f. 1975.
Dætur þeirra eru a) Elfa Rut, f.
1997, b) Katla Rut, f. 2006, og
c) Tinna Rut, f. 2009.
Ólína fæddist og ólst upp í
Reykjavík en fluttist árið 1967
til Keflavíkur ásamt eig-
inmanni sínum og bjó þar síð-
an. Hún starfaði við versl-
unarstörf, fiskvinnslu og
hreingerningar þar til hún lét
af störfum sökum aldurs.
Útför Ólínu verður gerð frá
Keflavíkurkirkju í dag, 8. mars
2019, klukkan 13.
1924, d. 1998, og
Vilborg Jóna Guð-
mundsdóttir, f.
1927, d. 1993.
Börn Ólínu og
Guðmundar eru 1)
Þorvarður, f. 1966,
giftur Ingunni
Pedersen, og synir
þeirra eru a)
Andri Már, f. 1988,
í sambúð með
Fanneyju Jón-
asdóttur og eiga þau tvö börn,
b) Bergur Óli, f. 1992, í sambúð
með Nadíu Jóhannsdóttur, c)
Hjörtur Geir, f. 1994. 2) Unnur,
f. 1967, gift Ásgeiri Þórðarsyni
og börn þeirra eru a) Kolbrún
Ósk, f. 1988, í sambúð með
Hafsteini Þór Friðrikssyni og
eiga þau tvær dætur, b) Árni
Freyr, f. 1992, í sambúð með
Það er óraunverulegt að vera
að kveðja hana mömmu hinstu
kveðju í dag og erfitt að koma
hugsunum í orð. Hugurinn reik-
ar fram og til baka um konuna
sem var yfirleitt á þönum, kvik í
hreyfingum, að snúast eitthvað.
Mamman sem ásamt pabba
bjó okkur systkinunum heimili
sem alltaf var hægt að koma á og
biðja um aðstoð við nokkurn veg-
inn hvað sem var. Heimili þar
sem við lærðum vinnusemi, iðni,
hófsemi og svo margt fleira sem
var gott veganesti út í lífið.
Amman sem alla tíð sýndi
barnabörnum og barnabarna-
börnum sínum einlægan áhuga
og umhyggju og þau áttu öruggt
skjól hjá. Hún var alltaf reiðu-
búin að sinna börnunum, spjalla
við þau, spila og mæta á viðburði
hjá þeim og alltaf unnu börnin
ömmuna í spilum.
Verkakonan sem gekk af full-
um krafti til hverrar þeirrar
vinnu sem hún réð sig til og
sinnti af alúð, dugnaði og stolti.
Handavinnukonan sem prjón-
aði, saumaði út og var snillingur
á saumavélina og fannst lítið mál
að skipta um rennilása eða laga
hverja þá flík eða jafnvel reið-
tygi sem eitthvað var að.
En fyrst og fremst var
mamma fjölskyldumanneskja,
hún vildi fylgjast með fólkinu
sínu og vita hvað það hafði fyrir
stafni. Hún var stolt af afkom-
endum sínum og var ófeimin að
segja frá því sem þeir voru að
fást við.
Með trega þakka ég elsku
mömmu fyrir allt sem hún gerði
fyrir mig og mína og mun sakna
hennar óendanlega. Minningin
lifir áfram með afkomendum og
hjálpar okkur í sorginni. Hvíldu í
friði.
Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að
sér.
Hún heitast þig elskaði’ og fyrirgaf
þér.
Hún ætíð er skjól þitt, þinn skjöldur og
hlíf.
Hún er íslenska konan, sem ól þig og
þér helgaði sitt líf.
Með landnemum sigldi’ hún um svarr-
andi haf.
Hún sefaði harma. Hún vakti’ er hún
svaf.
Hún þerraði tárin. Hún þerraði blóð.
Hún var íslenska konan, sem allt á að
þakka vor þjóð.
Ó! Hún var ambáttin hljóð.
Hún var ástkonan rjóð.
Hún var amma, svo fróð.
Ó! Athvarf umrenningsins,
inntak hjálpræðisins,
líkn frá kyni til kyns.
Hún þraukaði hallæri, hungur og fár.
Hún hjúkraði’ og stritaði gleðisnauð
ár.
Hún enn í dag fórna sér endalaust
má.
Hún er íslenska konan, sem gefur þér
allt sem hún á.
Ó, hún er brúður sem skín!
Hún er barnsmóðir þín
eins og björt sólarsýn!
Ó! Hún er ást, hrein og tær!
Hún er alvaldi kær
eins og Guðsmóðir skær!
Og loks þegar móðirin lögð er í mold
þá lýtur þú höfði og tár falla’ á fold.
Þú veist, hver var skjól þitt, þinn
skjöldur og hlíf.
Það var íslenska konan sem ól þig og
gaf þér sitt líf.
En sólin, hún sígur, – og sólin, hún rís,
og sjá: Þér við hlið er þín hamingjudís,
sem ávallt er skjól þitt, þinn skjöldur
og hlíf:
Það er íslenska konan, – tákn trúar og
vonar,
sem ann þér og þér helgar sitt líf.
(Ómar Ragnarsson)
Unnur Guðmundsdóttir.
Ótal minningar koma upp í
hugann þegar ég sest niður til að
skrifa um mömmu, þá mann-
eskju sem alltaf hefur verið mér
hvað kærust, svo góð, hlý og hug-
ulsöm. Það er ekki ofsögum sagt
að ég hef alltaf verið mikill
mömmustrákur enda höfum við
mamma alltaf verið mjög náin.
Í gegnum tíðina hefur hún svo
oft sagt þegar ég hef hringt í
hana „mikið óskaplega er sterkt
samband núna, ég var að fara að
hringja í þig“.
Mamma var alla tíð mjög
snaggaraleg, falleg, grönn og
lágvaxin, fljót til svars, vann
hratt, og lét ekki bíða eftir sér.
Hún vildi ljúka sínum verkefnum
bæði vel og fljótt. Henni féll ekki
oft verk úr hendi og virtist alltaf
eiga ótakmarkaða orku.
Eitt af því sem einkenndi
mömmu var áhugi hennar á
mönnum og málefnum og við
finnum það núna þegar hún er
farin hvað áhugi hennar á fjöl-
skyldunni spilaði mikla rullu og
hún vildi helst vita allt um var í
gangi hjá öllum sínum nánustu.
Hún vildi veita öllum lið og í
gegnum tíðina hafa fjölmargir
notið krafta hennar á margvís-
legan hátt. Á Kirkjuteiginn til
ömmu og afa vildu öll börnin
koma og þar vildu þau vera. Þar
var alltaf til tími, athygli, hlustun
og ómetanlegur kærleikur veitt-
ur öllum þeim sem vildu. Mamma
naut samvista við fólkið sitt og
fannst gaman þegar afkomend-
urnir kíktu inn og best fannst
henni þegar hún fékk að passa
barnabörnin og langömmubörnin
eða snúast í kringum þau á ein-
hvern hátt. Mamma var lífsglöð
og hress og þegar hún varð sjö-
tug fyrir tæpum þremur árum,
þá komum við saman og borð-
uðum góðan mat. Þegar krakk-
arnir fóru út að leika sér fór
mamma út með þeim og verpti
með þeim eggjum í sparikjólnum
og háhæluðum skóm. Hún blés
ekki úr nös og espaði krakkana
til að vera með og leika sér.
Í fjölskylduútilegu fyrir u.þ.b.
20 árum var farið í alls konar úti-
leiki við unga fólkið. Þá var það
mamma sem entist lengst af full-
orðna fólkinu að leika við krakk-
ana, hljóp með þeim þindarlaust.
Unga fólkið skiptist á að leika en
alltaf var mamma með í leiknum
og hljóp alla af sér. Það má segja
að hún hafi bara stoppað til að
kveikja sér í sígarettu og fá sér
kaffisopa. Svo var haldið áfram.
Svona var bara mamma. Mamma
gat allt og gerði allt. Það stóð
fátt í vegi fyrir henni.
Núna er límið í fjölskyldunni
farið og fór snöggt eins og henn-
ar var vani. Eftir stend ég stjarf-
ur og tómur og hugsa um allt það
sem ég átti eftir að segja við
hana, spjalla við hana og spyrja
hana um. Það verður að bíða
betri tíma. Hún mamma skilur
eftir sig stórt skarð í hjartanu
mínu. Hún skilur líka eftir sig
ljúfar minningar sem eiga eftir
að ylja mér og mínum.
Sterkasta tilfinningin sem ég
finn þegar ég hugsa um mömmu
mína er þakklæti. Þakklæti fyrir
allt það sem hún var mér og mín-
um. Þakklæti fyrir það uppeldi
sem ég hlaut, skjólið sem ég átti
alltaf hjá henni og þakklæti fyrir
að hafa átt hana að mömmu og
vini alla tíð. Ég gleðst í hjarta
mér að hafa sagt henni á jóladag
að ég elskaði hana og það gerði
ég svo sannarlega. Meira en orð
mín fá lýst.
Mamma var kjarnakona sem
vann sín störf af virðingu, barst
ekki á en var alla tíð stolt af sér
og sínu. Það er eftirsóknarverð-
ur eiginleiki.
Hvíldu í friði, elsku mamma.
Þín er sárt saknað. Þinn sonur
Þorvarður.
Það er óraunverulegt að setj-
ast niður til að skrifa minning-
arorð um elskulegu tengdamóð-
ur mína, sem hvarf úr lífi okkar
bæði hratt og óvænt. Það var að
vísu hennar háttur að vera ekki
að draga það sem þurfti að gera,
en mín vegna hefði hún alveg
mátt gera það í þetta sinn. Ég
var tæplega 18 ára þegar ég kom
fyrst á Kirkjuteiginn og ég datt
heldur betur í lukkupottinn, því
það er ekki sjálfgefið að falla vel
við tengdafólk sitt en það gerði
ég svo sannarlega því í öll þessi
ár hefur aldrei borið skugga á
samskipti okkar og það er nokk-
uð sem má þakka. Ég man eftir
einu skipti sem Ollý skammaði
okkur hjónin. Okkur fannst við
býsna sniðug í þeirri skyndi-
ákvörðun að koma óvænt suður á
páskadag með elsta son okkar en
móttökurnar sem við fengum
voru allt annað en blíðar til að
byrja með og þungi lá í orðum
hennar við skammirnar sem við
fengum að við skyldum vera á
ferðinni með barnið án þess að
nokkur vissi, það væri ekki í lagi.
Þessi leikur var aldrei leikinn
aftur.
Í mínum huga var Ollý hvunn-
dagshetja, hún barst ekki á og
var sátt með það sem hún hafði
og hver hún var. Hún átti stórt
hjarta sem rúmaði marga en
aldrei barði hún sér á brjóst fyrir
neitt sem hún gerði fyrir aðra,
hún var líka af gamla skólanum
eins og sagt er þar sem dugn-
aður er dyggð, því vann hún öll
sín verk vel, af natni og metnaði
sama hvert verkið var bæði í
vinnu og utan hennar.
Eitt af því sem ég dáði í fari
hennar var tíminn sem hún átti
alltaf fyrir ömmubörnin. Það var
sem tíminn stæði í stað þegar
komið var til ömmu og afa og
þangað vildu krakkarnir fara og
vera því þau vissu að hverju var
gengið og langömmubörnin
gengu að sömu hlutunum vísum
eins og foreldrar þeirra gerðu
fyrir 30 árum og allir þar á milli.
Þar var alltaf nægur tími til að
spjalla, lita, spila og perla eða
bara vera og það er nokkuð sem
má taka til eftirbreytni. Ollý var
stolt af fólkinu sínu og vildi fylgj-
ast með og vita hvað á daga okk-
ar drifi, svo flutti hún okkur hin-
um fréttirnar svo við værum nú
með á nótunum og hún hafði
gaman af að segja frá ömmu-
börnunum. Já hún vildi fylgjast
vel með; fótbolti, fimleikar,
karfa, tónlist eða hestar skipti
ekki máli, hún mætti til að fylgj-
ast með ömmubörnunum en ekki
bara þeim, því það hafa ekki ver-
ið þeir tónleikar hjá sönghópn-
um mínum undanfarin ár sem
hún hefur ekki mætt á.
Þó Ollý hafi verið lítil og nett
kona var hún svo risastór og býr
brotthvarf hennar til stórt skarð
í fjölskyldunni, hún var sú sem
sameinaði okkur. Við ferðalok
takast á margar tilfinningar sem
stundum er erfitt að koma orð-
um að en í þeirri sorg sem býr í
hjarta mínu þessa dagana er líka
þakklætið fyrir allan kærleik-
ann, umhyggjuna og hlýjuna
sem hún sýndi mér og mínum
alltaf.
Elsku Ollý, hjartans þökk fyr-
ir samfylgdina.
Ingunn.
Eins óraunverulegt og það er
þá erum við að kveðja þig í dag,
elsku amma. Síðustu dagar hafa
verið skrýtnir og erfitt að hugsa
til komandi tíma án þín. Við höf-
um rifjað upp góðar minningar
og þar sem þú átt í hlut eru þær
ansi margar ljúfar og skemmti-
legar. Eins og allir sem komust í
kynni við þig vita var ekki til
ljúfari og betri kona, þú tókst öll-
um vel og áttir alltaf tíma til að
sinna fólkinu þínu. Við barna-
börnin nutum góðs af því og þær
eru margar stundirnar sem við
áttum með þér og afa. Það klikk-
aði aldrei að kíkja til þín í spil
eða mat, það að koma á Kirkju-
teiginn skapaði notalega tilfinn-
ingu sem var engu lík. Við systk-
inin áttum einstakt samband við
þig sem byggðist á trausti og að-
dáun enda ekki hægt að finna
duglegri og traustari konu en
þig. Það sem gleður í dag og hef-
ur gert undanfarin ár er hversu
heppin börnin okkar voru að
kynnast þér og eiga með þér all-
ar þessar sömu góðu stundir og
við höfum átt, spil við eldhús-
borðið, ótakmarkaður aðgangur
að ís í frystinum hjá þér, spjall,
vöfflukaffi og einlægur áhugi
þinn á hversdagslífi og ævintýr-
um okkar allra. Það vorum við
sem unnum í lottóinu þegar við
fengum þig sem ömmu.
Elsku besta amma okkar
kveðjan er svo erfið.
Ávallt hjá þér opið var,
lýstir upp allt hverfið.
Minningarnar margar lifa
um góða sál og hlýja.
Amma besta kona var
ekki er hægt að fá nýja.
(Árni Freyr)
Elsku amma, takk fyrir allt
saman. Við kveðjum þig sorg-
mædd með brotin hjörtu en
höldum minningu þinni á lífi með
því að reyna að tileinka okkur
þína frábæru kosti, dugnað,
hlýju og kærleik.
Þín barnabörn
Kolbrún Ósk og
Árni Freyr.
Elsku amma Ollý. Það er erf-
itt að koma söknuðinum sem
fylgir brotthvarfi þínu í orð. Við
höfum mikið rætt það bræðurnir
hvaða minningar við ættum að
skrifa hér því þær eru margar og
góðar en það sem stendur hvað
mest upp úr er litlu hlutirnir í
hversdagsleikanum sem manni
fannst sjálfgefnir fyrir ekki svo
löngu, eins og brosið, þéttu
faðmlögin og hláturinn þinn sem
fyllti húsið ykkar afa af gleði.
Það voru sannkölluð forréttindi
að eiga ömmu sem var alltaf til í
leik með börnunum, hvort sem
það var að byggja hús úr hey-
böggum í miðjum heyskap,
hoppa út í boltaleik á háum hæl-
um í sjötugsafmælinu sínu eða
að setjast með okkur og spila
einn Ólsen Ólsen. Þú áttir alltaf
til ís í frystinum, saltstangir og
bauðst okkur svo grænan Tópas
þegar við vorum að fara heim.
Þú fylgdist vel með okkur öllum
og vildir fá að fylgjast með því
hvað var í gangi í lífi okkar. Þið
afi áttuð alltaf tíma fyrir okkur
og þegar við bjuggum fyrir norð-
an komum við oft til að vera hjá
ykkur um helgi. Það fannst okk-
ur mjög skemmtilegt og gerðum
við svo margt saman, eins og að
fara í sund með þér, í hesthúsið
með ykkur afa og svo á rúntinn.
Þetta eru góðar minningar sem
við dveljum við núna því þær
koma ekki aftur. Þú áttir alltaf
tíma fyrir okkur og lést alla
ganga fyrir áður en röðin kom að
þér.
Elsku amma, hjartað heitt
og hlýja augna þinna
gat okkur von og yndi veitt,
þú öllum vildir sinna.
Og brosið þitt var ljúft og létt
í leiftri gleðitára
og þú gast dæmt um rangt og rétt
af reynslu margra ára.
Hér fengu blessuð börnin þín
blíðu afar sanna.
Þú lifir, elsku amma mín,
sem yndi minninganna.
(Kristján Hreinsson)
Takk fyrir allt, elsku amma,
þín er sárt saknað.
Andri, Bergur
og Hjörtur.
Ólína G. Melsted
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
KAMMA KARLSSON,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi
föstudaginn 1. mars. Útför hennar fer fram
frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn
12. mars klukkan 13.
Atli Guðlaugsson Halldóra J. Bjarnadóttir
Rósa Lára Guðlaugsdóttir Eiríkur S. Jóhannesson
Hulda G. Guðlaugsdóttir Ólafur S. Sigurjónsson
Svala Guðlaugsdóttir Christian M. Iversen
Guðlaug B. Guðlaugsdóttir Dennis Thögersen
ömmu- og langömmubörn
Elskulegur sonur okkar, bróðir, fósturfaðir,
sambýlismaður og stjúpfaðir,
STEINAR NÓNI HJALTASON,
lést laugardaginn 2. mars.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju
mánudaginn 11. mars klukkan 13.
Hjalti Hafsteinsson Sigríður Jónsdóttir
Hrefna Björk Sigurðardóttir
Unnar Már Hjaltason
Gunnhildur Rán Hjaltadóttir
Særún Eva Hjaltadóttir
Jenný Björk Ragnarsdóttir
Kristrún Eva Róbertsdóttir
Gabríel Róbert Atlason
Maríana Ósk Atladóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
systir og mágkona,
GUÐRÚN MARTA SIGURÐARDÓTTIR,
Skúlagötu 42,
Reykjavík,
lést miðvikudaginn 27. febrúar á
Landspítalanum. Útför fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 15. mars klukkan 13.
Ragnheiður A. Þorsteinsd. Embla Líf Ragnheiðardóttir
Íris Þorsteinsdóttir Kristbjörn Eydal
Óskar Ísfeld Sigurðsson Sólveig Björk Ágústsdóttir
Helga Sigurðardóttir Ágúst Óskarsson
Erlendur Ísfeld Berglind Bjarnadóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
MARGRÉT S. KARLSDÓTTIR
ljósmóðir,
Holtsgötu 41, Ytri-Njarðvík,
lést á Landspítalanum, Fossvogi,
fimmtudaginn 7. mars. Útförin fer fram frá
Frikirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 19. mars klukkan 13.
Svavar Herbertsson
Jóna Karlotta Herbertsdóttir
Sigmundur Már Herbertsson Sigurbjörg E. Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn