Morgunblaðið - 08.03.2019, Síða 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2019
✝ GunnsteinnStefánsson
fæddist á Egils-
stöðum 13. júní
1947. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans 1. mars
2019.
Foreldrar hans
voru Stefán Péturs-
son, bóndi í Bót og
á Flúðum í Hróars-
tungu og vöru-
bifreiðarstjóri á Egilsstöðum, f.
22. nóvember 1908, d. 1. mars
1992, og kona hans Laufey
Valdemarsdóttir húsfreyja, f. 31.
október 1911, d. 9. nóvember
2002.
Systkini Gunnsteins eru Birna
Helga, f. 13. nóvember 1935, gift
Jóni Bergsteinssyni, Pétur, f. 23.
mars 1939, giftur Hlíf Samúels-
dóttur, og Stefanía Valdís, f. 25.
maí 1942, sem var gift Skúla
Johnsen.
Eiginkona Gunnsteins er
Helga Snæbjörnsdóttir
hjúkrunarfræðingur, f. 28. sept-
7. júlí 1987, sambýliskona hans
er Rósa Guðjónsdóttir verkfræð-
ingur, f. 5. desember 1986, börn
þeirra eru Klara, f. 2015, og Elías
Bergur, f. 2017.
Gunnsteinn ólst upp á Egils-
stöðum og útskrifaðist sem stúd-
ent frá Menntaskólanum á Akur-
eyri 1968. Hann lauk kandídats-
prófi í læknisfræði frá Háskóla
Íslands 1975 og sérfræðinámi í
heimilislækningum í Svíþjóð
1982. Hann starfaði sem heilsu-
gæslulæknir á Egilsstöðum 1982
til 1988, síðar sem heilsugæslu-
læknir á Sólvangi og Firði í
Hafnarfirði og samhliða sem
vaktlæknir í Hafnarfirði og á
Læknavaktinni í Kópavogi frá
1988 til 2015.
Gunnsteinn tók virkan þátt í
kjarabaráttu heimilislækna og
var gerður að heiðursfélaga í Fé-
lagi íslenskra heimilislækna árið
2018. Hann var áhugamaður um
skógrækt og garðyrkju.
Útför Gunnsteins fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 8.
mars 2019, klukkan 11.
ember 1950. For-
eldrar hennar eru
Áslaug Magnúsdóttir
húsfreyja, f. 1924, og
Snæbjörn Bjarnason
tæknifræðingur, f.
1924, d. 1981. Börn
Gunnsteins og Helgu
eru: 1) Snæbjörn,
hagfræðiprófessor, f.
25. september 1980,
eiginkona hans er
Jennifer Elizabeth
Green stjórnmálafræðingur, f. 17.
maí 1979, börn þeirra eru Hekla
Lóa, f. 2014, og Magni Valur, f.
2017. 2) Stefán Sturla, verkfræð-
ingur, f. 19. desember 1981, eig-
inkona hans er Alís Heiðar tann-
læknir, f. 5. mars 1985, börn
þeirra eru Steinar Thor, f. 2013,
og Finnur Steinn, f. 2017. 3) Árni
Pétur, verkfræðingur, f. 26. júlí
1984, eiginkona hans er Sandra
Gestsdóttir lyfjafræðingur, f. 23.
júlí 1984, börn þeirra eru Helga
Sóley, f. 2012, Rebekka Lena, f.
2015, og Agnes Lilja, f. 2018. 4)
Gunnar Helgi, verkfræðingur, f.
Pabbi var einstaklega góður
maður. Hann var umhyggju-
samur, traustur og ósérhlífinn;
stoð og stytta fyrir okkur bræður,
fjölskylduna alla og vini. Ef barna-
barn var lasið var hann mættur
um hæl. Þegar hann var beðinn
um kerru að láni fyrir fram-
kvæmdir þá birtist kerran ásamt
manni í vinnugalla án þess að það
væri rætt frekar. Ef einhver í fjöl-
skyldunni þurfti aðstoð við erfitt
málefni tók hann á þeim með
festu, dugnaði og samúð. Svona
var það ekki bara oftast, heldur
man enginn okkar eftir öðru.
Eftir því sem við best vitum las
hann sér aldrei til um stóíska
heimspeki en hann virðist hafa
þróað með sér speki sem átti
henni margt sameiginlegt. Hann
átti auðvelt með að einbeita sér að
því sem skiptir raunverulegu máli
í lífinu, sér í lagi að hugsa um fjöl-
skylduna og þá sem leituðu til
hans. Hann var nægjusamur og
ósnertur af neyslukapphlaupinu
sem okkur finnst virðingarvert og
til eftirbreytni.
Pabbi naut þess að hjálpa fólki í
gegnum starf sitt sem læknir.
Hann var líka mikill bílaáhuga-
maður og þótti gaman að ganga á
fjöll. Það hentaði honum því vel að
starfa austur á Egilsstöðum þar
sem vitjanir voru oft farnar á vél-
sleðum eða í snjóbíl. Þær eru eft-
irminnilegar fjallaferðirnar með
okkur bræður í gömlum Bronco
sem var iðulega kjölfestur í snjó
og við þreyttum þá íþrótt að leysa
jeppann.
Pabbi var góður sögumaður og
sagði okkur margar sögur aftur
og aftur. Í sögunum fólst lærdóm-
ur og innsýn í heim sem við þekkt-
um ekki – hvort sem þær voru um
flugferðir í óveðri með sjúklinga
frá Egilsstöðum, fræknar farir
smalamanna eða fábreyttari tíma
á Héraði. Við nutum þess líka að
sitja við gamla eldhúsborðið í
Lækjarberginu og ræða þjóð- og
heimsmálin, enda var hann víðles-
inn um allt frá sagnfræði og ævi-
sögum yfir í nútímamenningu,
fjármál og hagfræði.
Elsku pabbi, nú er baráttunni
lokið. Þú færð loksins frið og ró.
Hugsunarsemi og skilyrðislaus
stuðningur ykkar mömmu hefur
veitt okkur ómetanlega öryggistil-
finningu alla tíð. Þessi gildi, ásamt
heiðarleika, vinnusemi og að vera
samkvæmur sjálfum sér, höfum
við sem veganesti frá ykkur á lífs-
leiðinni og í uppeldi okkar barna.
Það er sárt að þú skulir vera
farinn en það sem er efst í huga er
þakklæti. Takk fyrir allt saman,
pabbi.
Þínir synir,
Snæbjörn, Stefán,
Árni og Gunnar.
Gunnsteinn bróðir minn fædd-
ist árið 1947, fyrsta barnið í ný-
stofnuðu Egilsstaðakauptúni. Að
loknu námi á Eiðum og stúdents-
prófi frá MA settist hann í Há-
skóla Íslands og las læknisfræði í
litlu kvistherbergi á Hjarðarhag-
anum. Útskrifaður hóf hann starf
sem læknakandídat á Landspítal-
anum.
Gunnsteinn var grannvaxinn,
röskur meðalmaður á hæð, ljós-
hærður og svaraði sér vel. Hann
var ekki maður fjöldans, hlédræg-
ur, nánast feiminn og naut sín best
í fárra vina hópi. Hann var alger
reglumaður en var haldinn ætt-
gengri bíladellu. Gamli Volvoinn
alltaf eins og nýr. Hamingjunni
mætti Gunni bróðir óvænt
snemma einn morguninn á Lans-
anum. Hún kom út úr lyfjabúrinu,
rétti honum höndina og sagði:
Komdu sæll, ég heiti Helga. Þetta
handtak var þétt og losnaði ekki
fyrr en á líknardeildinni í síðustu
viku. Helga var hjúkrunarkona,
Snæbjörnsdóttir Bjarnasonar
læknis í Hafnarfirði.
Árið 1977 héldu þau Helga og
Gunnsteinn til Svíþjóðar þar sem
hann lagði stund á heimilislækn-
ingar. Þarna áttu þau fimm góð ár
og þarna fæddust tveir fyrstu
strákarnir. Heimkomin til Íslands
fluttu Helga og Gunnsteinn til Eg-
ilsstaða, þar sem hann gerðist hér-
aðslæknir. Hann var ódrepandi
ferðaþjarkur, naut þess að brjót-
ast á Borgarfjörð á Laplander eða
þeysa á snjósleðum með Jökul-
dælingum í blindhríð um Fljóts-
dalsheiði á leið í læknisvitjun. Oft
nefndi hann ferðir á sjúkraflugvél-
inni með Kolbeini Arasyni flug-
manni. Minnisstætt var honum
þegar þeir lentu á Borgarfirði við
lugtarljós og flugu með sjúkling-
inn undir fullu tungli á stjörnu-
bjartri vetrarnóttinni til Akureyr-
ar. Það var þó ekki alltaf tungl og
stjörnur. Oft skók veðurhamurinn
þennan litla farkost.
Árið 1988 fluttu Helga og
Gunni til Hafnarfjarðar, þar sem
Gunnsteinn fékk stöðu við heilsu-
gæsluna. Þau réðust fljótlega í að
byggja stórt einbýlishús að Lækj-
arbergi 13. Það tók langan tíma,
en það voru hamingjuár þótt ým-
islegt vantaði. Þarna uxu úr grasi
fjórir heilbrigðir strákar, þrír
verkfræðingar og einn hagfræð-
ingur. Skrítið hvað það þarf lítinn
harðvið til að ala upp heilbrigð
börn.
Árið 2003 greindist Gunnsteinn
með krabbamein í blöðruháls-
kirtli. Hann þekkti andstæðinginn
og snerist til varnar af þekkingu
og sínu óbugandi jafnaðargeði.
Hann vissi að vísu alltaf hvor
myndi sigra. Laust fyrir sjötugt
lét hann af starfi og vildi eiga eftir
tíma til að búa í haginn fyrir Helgu
og afkomendurna. Hann stækkaði
sumarbústaðinn í Borgarfirði og
keypti bíl sem hann treysti fyrir
Helgu. Ef Helgu leið vel, ef strák-
unum leið vel og ef gamla Volvon-
um leið vel þá leið honum líka vel.
Þrátt fyrir nokkurn aldursmun
vorum við bræður mjög samrýnd-
ir hin síðari ár. Vart leið svo vetr-
arkvöld með fullu tungli að við
færum ekki upp í Heiðmörk og
gengum suður með Hjöllum,
hlustuðum á þögnina og lofuðum
dýrð tilverunnar. Nú verða þær
ferðir ekki fleiri í bili. Þó að sökn-
uður fjölskyldunnar sé mikill er
líka þakklætið mikið fyrir hans
farsæla ævistarf og yndislegu
samveru. Svo er kannski líka
tunglsljós hinum megin.
Pétur Stefánsson.
Með sorg í hjarta ég orð þessi skrifa,
tíminn heldur víst áfram að tifa.
Við fengum þessu ekki breytt,
sama hvað við þráðum það heitt.
Dætur mínar munu sögur heyra,
um góðmennsku, dugnað og svo margt
fleira.
Mín yngsta fær þér ekki að kynnast,
en með ást og kærleik við munum þín
minnast.
Ég lofa að hugsa um trén hvað best ég
kann,
við málum brúna rauða og smíðum kof-
ann.
Kåken verður okkar griðastaður,
þá veit ég þú brosir til okkar glaður.
Þakklát fyrir allt sem þú fyrir okkur
gerðir,
samveruna, rabbið og bústaðarferðir.
Alla daga, við munum sakna þín,
minning þín ljúfa í huga’ okkar skín.
Hvíldu í friði, elsku tengda-
pabbi.
Sandra.
Elsku Gunnsteinn.
Þó að endalok þín hafi verið
ákveðin þegar ég kynntist þér, þá
er óraunverulegt til þess að hugsa
að nú sértu farinn. Farinn úr
Lækjarberginu og farinn úr
Varmabrekku. Skarðið sem hefur
verið höggvið í fjölskylduna er
stórt. Nærvera þín fyllti mikið,
traustur og vinalegur, samkvæm-
ur sjálfum þér, áhugasamur og
með ógrynni af góðum sögum uppi
í erminni.
Þegar ég kom fyrst inn í fjöl-
skylduna bjuggum við Gunnar
Helgi í Kaupmannahöfn. Mín
fyrstu kynni af ykkur Helgu voru
því í gegnum síma, þegar ég var að
hlusta á Gunnar Helga spjalla við
ykkur. Ég gleymi ekki röddinni
sem tók á móti hinum megin á lín-
unni þegar Gunnar hringdi heim.
Rólegt og vinalegt „halló“ frá
pabba sínum. Þetta sama „halló“
átti ég svo eftir að heyra í ófáum
hringingum mínum í Lækjarberg-
ið. Tónninn breyttist aldrei hjá
þér, alltaf vingjarnlegur og til í
spjall.
Elsku Gunnsteinn, það er vand-
að til verka í öllu sem þú skilur eft-
ir þig. Fjórir vandaðir synir, vand-
lega byggt Lækjarbergið, allt eins
og það á að vera í Varmabrekku
og svona mætti lengi telja. Mig
langar að þakka þér fyrir svo
margt, fyrir góða eiginleika sem
Gunnar Helgi hefur fengið frá þér
og sem ég sé í okkar börnum
núna, fyrir alla þá hjálp sem þú
hefur veitt okkur, fyrir að sækja
Klöru í leikskólann og fyrir að
óska eftir því að sækja hana jafn-
vel þó að þú þyrftir þess ekki. Það
þykir mér vænt um. Mikið vona ég
að þér líði vel núna. Ég hugsa til
þín og hláturskastanna þinna, þau
eru heppin sem fá að njóta þeirra
og hlæja með þér. Við sem eftir er-
um hérna megin tökum við keflinu
og hlúum að því sem þú gerðir svo
vel.
Elsku Gunnsteinn, takk fyrir
allt. Þangað til næst.
Rósa Guðjónsdóttir.
Látinn er frændi minn og vinur,
Gunnsteinn Stefánsson læknir,
langt fyrir aldur fram. Hann var
fæddur Héraðsbúi og því langt
milli okkar á barnsaldri. Þótt báð-
ir sætu í Menntaskólanum á Ak-
ureyri þá skildi okkur þrjú ár og á
þeim stað og tíma í lífinu var him-
inn og haf milli busa og brottfar-
arkandídats. Það var því ekki fyrr
en ég kom suður til náms að við
kynntumst almennilega er föður-
systir mín, Laufey Valdimarsdótt-
ir Snævarr, hóf að kalla á Svarf-
dælinginn í mat með reglulegu
millibili.
Nú voru æfingar teknar upp
eins og heræfingarnar hjá Vigfúsi
amtmanni Þórarinssyni eftir
messu á sunnudögum. Okkur
skildu, sem fyrr sagði, þrjú ald-
ursár og þau skiluðu sér í skák-
inni. Gunnsteinn var mun sterkari
en ég en fyrir kom að ég náði á
honum taki. Skákin tók yfirleitt
allt að þremur tímum og aldrei var
sagt orð allan tímann. Þegar Lauf-
eyju frænku ofbauð þögnin braut
hún hana og bauð í kaffi. Hún
sagði svo reyndar eitt sinn: Þeir
þegja svo vel saman, Gunni og
Gulli, strákarnir mínir, bætti hún
við með stolti.
Við skákborðið birtust eigin-
leikar Gunna hvað skýrast, ró,
yfirvegun, glöggskyggni og heið-
arleiki. Yfirleitt heyrðist tsja, og
svo strauk hann vangana annarri
hendi ef ég lék svo vitlausan leik
að skákin var búin. Hann var alltaf
tilbúinn að gefa annan möguleika
ef afleikurinn var augljós. Á þess-
um árum var hann að læra lækn-
isfræði og hafði því mjög mikið að
gera en skákin var alltaf á dag-
skránni og annað sem ég þori
varla að segja frá en það var það
að við fórum í bíltúr á bíl Gunna,
stífbónuðum og hreinum og leit-
uðum uppi bíla með utanbæjar-
númeri því ökumenn þeirra voru
oft skrautlegir í umferðinni og við
skellihlógum að þeim með ís í
brauðformi.
Hans eigin lífsins skák var far-
sæl. Hann kvæntist Helgu Snæ-
bjarnardóttur hjúkrunarfræðingi
og eignuðust þau fjóra stráka
mannvænlega sem eru nú full-
orðnir, menntaðir fjölskyldu-
menn. Þeir eru Snæbjörn, Stefán
Sturla, Árni Pétur og Gunnar
Helgi.
Líf Gunnsteins snerist um að
búa fjölskyldu sinni sem best og
öruggast heimili og ekki síst síð-
ustu árin. Líf Gunna var fallegt og
framlag hans og þeirra hjóna til
þjóðarbúsins glæsilegt. Gunni var
mjög fær læknir og naut þar áð-
urnefndra eiginleika sinna. Ég
heyrði marga segja frá því hve
glöggur hann væri og ekki síður
mannlegur og vildi fylgjast með
sjúklingum sínum og hvernig
þeim vegnaði í baráttunni við
sjúkdóm sinn. Hann var sjálfskip-
aður læknir stórfjölskyldunnar og
á hann miklar þakkir fyrir alla lip-
urðina og alúðina. Sjálfur átti
hann í langri baráttu og þeirri
skák hlaut hann að tapa og lagði
niður vopnin 1. mars sl. Það getur
verið að einhverjum þyki skrýtið
að kveðja frænda með þessum
orðum Valdimars Briem en tilfell-
ið er að ástvinum kann nú að finn-
ast dimm nóttin en bak við hana
bíður björt sól með fegurri veröld
þar sem ástvinir finnast á ný:
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlauztu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
Auður og
Gunnlaugur V. Snævarr.
Við fráfall móðurbróður míns,
Gunnsteins Stefánssonar, er mér
hugsað til þess sem skapar ham-
ingju í lífinu. Hvað er það sem hef-
ur mest spágildi um hvort fólk öðl-
ist langvarandi lífshamingju á
æviskeiði sínu? Samkvæmt lang-
tímarannsókn við læknadeild Har-
vard-háskóla í Bandaríkjunum
eru niðurstöðurnar afdráttarlaus-
ar og skýrar. Félagsleg tengsl og
innihaldsrík tilfinninga- og fé-
lagsleg sambönd hafa mest um
það að segja hvort fólk nýtur ham-
ingju eður ei og það eru gæði
tengslanna en ekki fjöldi þeirra,
sem munar um. Það mátti merkja
að Gunni frændi væri meðvitaður
um þessar niðurstöður og þýðingu
þeirra, bæði út frá þeim mörgu
innihaldsríku og löngu samræðum
sem ég átti við hann eftir að hann
veiktist og ég vitkaðist (eitthvað),
en einnig hvernig hann ræktaði
sambönd sín við sína nánustu; sem
jafningi, af ósérhlífni, gestrisni og
væntumþykju með ómetanlegri
hjálp konunnar hans, Helgu Snæ-
björnsdóttur.
Hann sagði mér frá því að sjálf-
ur hafi hann rambað í læknis-
fræðina á sínum tíma ekki síst
vegna þess að Skúli, faðir minn og
mágur hans, var rétt að ljúka
henni þegar hann átti sjálfur að
skila inn umsókn til Háskólans.
Besti vinur hans, Stefán Þórarins-
son, ætlaði líka þangað, svo honum
kom ekkert annað í hug. Skóla-
gangan á þessum tíma var engin
skemmtiganga, en hún skilaði þó
ýmsu og reyndist ef til vill mesta
gæfa hans. Þegar hann gekk til
vinnu í fyrsta skipti strax eftir út-
skrift úr læknadeild mætti hann
Helgu, sem var yfirhjúkrunar-
kona á deildinni þar sem hann átti
að hefja störf. Þau hafa allar götur
síðan stigið saman ölduna, hönd í
hönd.
Gunnsteinn og Helga hafa
ávallt verið okkur ómetanlegt
akkeri í þeim lífsins ólgusjó sem
okkur var úthlutaður. Við erum
þeim og forsjóninni ævarandi
þakklát fyrir að hafa fengið að
koma upp í bátinn þeirra af og til.
Helga, af sinni einstöku alúð og
elsku, hefur opnað sitt vandaða og
fallega heimili, og Gunni rétti út
hönd sína þegar einhver okkar
hefur barist við kraft öldunnar eða
þaðan af minna. Það er breitt
skjólið og hlýtt sem Gunni og
Helga skópu okkur öllum sem að
þeim standa. Það skal ekki vera
launungarmál, að þau hafa bæði
verið frábær fyrirmynd í fjöl-
skyldulífi, almennri lífshæfni, fag-
mennsku, uppeldi, húsbygging-
um, bílakaupum og matreiðslu svo
fátt eitt sé nefnt.
Aðdáunarvert er hvernig þau
hjónin, strákarnir allir; Snæbjörn,
Stefán Sturla, Árni Pétur og
Gunnar Helgi, og tengdadætur
þeirra tóku á krabbameini Gunn-
steins, sem hann hefur borið í hálf-
an annan áratug. Sú barátta lýsti
sér í yfirvegun, æðruleysi, fag-
mennsku og aukinni fjölskyldu-
samveru, eins og kostur var. Þrátt
fyrir nístandi sorg sem fylgir því
að geta ekki deilt dögunum lengur
með manninum sínum, föður,
tengdaföður og afa, mun uppskera
þeirra verða eins og til var sáð;
sterk fjölskyldu- og félagstengsl
þeirra, sem spá sterklega fyrir um
það, að þau muni hamingjunnar
njóta, þótt skarð fyrir skildi sé
gapandi stórt.
Fyrir mína hönd og minna nán-
ustu votta þeim öllum okkar
dýpstu samúð.
Guðrún Johnsen.
Treystu náttmyrkrinu
fyrir ferð þinni
heitu ástríku
náttmyrkrinu
Þá verður ferð þín
full af birtu
frá fyrstu línu
til þeirrar síðustu
(Sigurður Pálsson)
Í dag kveðjum við Gunnstein;
góðan vin, mág og svila. Hann
barðist af miklu æðruleysi og hug-
rekki við illvígan sjúkdóm sem að
lokum hafði betur. Lífið er ekki
alltaf sanngjarnt. Kynni okkar
Gunnsteins hófust þegar hann
kynntist Helgu sinni en urðu nán-
ari þegar þau fluttu í Lækjarberg-
ið. Gunnsteinn reyndist okkur
ávallt vel og var alltaf reiðubúinn
að veita læknisaðstoð þegar þörf
var á og sinnti því af alúð og mikilli
fagmennsku eins og honum var
lagið. Gunnsteinn og Helga voru
mjög samstíga í öllu og hlúðu vel
að fjölskyldunni. Ekkert var þeim
dýrmætara en börnin og barna-
börnin.
Gunnsteinn naut sín best í fá-
mennum hópi vina og komu þá
skemmtilegir frásagnarhæfileikar
hans í ljós. Ófá skipti tók langan
tíma að klára sögurnar því hann
hló svo mikið sjálfur og við hin
með svo lá við að grátur tæki völd.
Þótt sjúkdómsferlið hafi verið
langt og strembið komu góðir
tímar á milli þar sem þau gátu not-
ið lífsins. Ef tækifæri gafst var þá
gjarnan rennt úr hlaði og keyrt í
Varmárbrekku þar sem Gunn-
steinn átti sínar allra bestu stund-
ir og undi sér vel við garðrækt og
göngutúra í náttúrunni. Undan-
farin ár hefur tími gefist fyrir
margar yndislegar samveru-
stundir og erum við afar þakklát
fyrir þær hlýju minningar sem við
eigum þegar litið er til baka á
kveðjustund.
Elsku Helga, Snæbjörn, Stefán
Sturla, Árni Pétur, Gunnar Helgi
og fjölskyldur. Við sendum ykkur
okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Blessuð sé minning Gunnsteins
Stefánssonar.
Magnús og Ásrún.
Þolgóður og þrautseigur,
í þeli hlýr,
einatt traustur, æðrulaus
við alla hýr
Þannig varstu ætíð allan
ævidag;
sár er þinna söknuður
við sólarlag
Völdu góðar vættir allan
veginn þinn
til ferðaloka, félagi
og frændi minn.
(Sigurður Óskar Pálsson)
Þessa meitluðu kveðju vil ég
gera að minni við fráfall Gunn-
steins frænda. Tíu ára aldursmun-
ur er umtalsverður þegar lítill
snáði af mölinni í heimsókn hjá afa
og ömmu í Birkihlíð á Egilsstöð-
um lítur með mikilli lotningu til
frænda sem er forframaður síma-
maður niðri á fjörðum. Aldurs-
munurinn er verulegur þegar
unglingurinn horfir með tals-
verðri lotningu á læknanemann
djúpt niðursokkinn í hnausþykkar
kennslubækur læknisfræðinnar.
Enn er aldursmunurinn talsverð-
ur þegar unglæknirinn stígur sín
fyrstu skref við hlið nýútskrifaðs
sérfræðings í heimilislækningum
og eignast þar með sinn faglega
„fóstra“. Minni verður aldursmun-
urinn þegar báðir eru kollegar á
sama báti faglega, með barna-
skara á svipuðum aldri og með
áþekka sýn á margt í lífinu og til-
verunni.
En áratugirnir líða við leik og
störf og samband frænda þróast í
einhvers konar bræðraband, verð-
mætt og rætt band. Margt hefur
verið skrafað og skeggrætt, fagleg
mál, bílar, menn og málefni, lands-
ins gagn og nauðsynjar og oft
hlegið dátt.
Gunnsteinn var grandvar mað-
ur og traustur, vel menntaður og
Gunnsteinn Stefánsson