Morgunblaðið - 08.03.2019, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2019 33
Smáauglýsingar
Fatnaður
Laugavegi 178, 105 Reykjavík
sími 551 3366. Opið virka daga
kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14
Misty
Eco Ra - Stærðir M-XXL.
Svart og hvítt. Verð 1.790 kr.
Promessa - Stærðir M - XXL
Svart og hvítt. Verð 2.650 kr.
Tahoo Maxi - Stærðir S-3XL
Svart, hvítt og húðlitt.
Verð 1.790 kr.
Gabe - Stærðir M-XXL
Svart og hvítt. Verð 2.650 kr.Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Verslun
ERNA 95 ára,
hreinsum til á lagernum
25 til 75% afsláttur. Silfurmunir,
skartgripir, armbandsúr og gjafavara.
Gott tækifæri til að eignast vandaða
muni. ERNA Skipholti 3,
s. 552 0775, www.erna.is
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Hreinsa
þakrennur
og tek að mér
ýmis smærri
verkefni
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
með
morgun-
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Asparteigur 2, Mosfellsbær, fnr. 208-2815, þingl. eig. Svava Óskars-
dóttir og Ævar Ingi Pálsson, gerðarbeiðandi Tollstjóri, þriðjudaginn
12. mars nk. kl. 10:30.
Úr landi Mela, Reykjavík, fnr. 208-5347, þingl. eig. Ólafur Valberg
Ólafsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Vörður tryggingar hf.
og Tollstjóri, þriðjudaginn 12. mars nk. kl. 11:30.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
7. mars 2019
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Zumba Gold 60+ kl. 10.30,
nýtt námskeið hefst föstudaginn 15. mars, skráning á skrifstofu í síma
4112702. Bingó kl. 13.30, spjaldið kostar 250 kr. Veglegir vinningar.
Kaffi kl. 14.30-15.20.
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Botsía með Regínu kl. 10. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við
Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-
12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Velkomin. S. 535-2700.
Áskirkja Safnaðarfélag Áskirkju verður með kaffisölu á sunnudag
eftir messu kl. 12. Kaffi/djús og vaffla með sultu og rjóma á 500 kr.
Allir velkomnir. Vonumst til að sjá sem flesta.
Boðinn Hugvekja kl. 13.30. Vöfflukaffi kl. 14.30. Línudans kl. 16.
Bólstaðarhlíð 43 Fjölskyldujóga kl. 10.15-11.30. Opin handverksstofa
kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-10.30. Heimsókn frá Stakkaborg kl. 10.30.
Leikfimi kl. 12.50-13.30. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8.50, kaffisopi
og blöðin. Frjáls tími í listasmiðju kl. 9-12. Thai chi kl. 9-10. Botsía kl.
10.15-11.20. Hádegismatur kl. 11.30. Zumbaleikfimi kl. 12.30-13.30.
Myndlistarnámskieið hjá Margréti Zóphaníasd. kl. 13.30-15.30. Hæð-
argarðsbíó kl. 13.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri.
Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Leikfimi kl. 13.45. Kaffiveitingar kl.
14.30. Allir velkomnir!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Heilsuefling á Vitatorgi kl. 10-11.15,
þjálfun / ganga / botsía / æfingatæki, föstudagshópurinn kl. 10-11.30,
handaband kl. 13-15.30, vinnustofa í skapandi handverki, ókeypis og
öllum opið, bingó kl. 13.30-14.30, vöfflukaffi kl. 14.30-15.30. Tónleikar
kl. 15-16 ,,Lög liðinna tíma" tónleikar með gítarleikaranum Hannesi
Guðrúnarsyni, ókeypis inn og allir velkomnir. Vitatorg, Lindargötu 59,
sími 411-9450.
Garðabær Dansleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi
kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20,
Hleinum kl. 12.30 og frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokinni
félagsvist ef óskað er. Smiðja í Kirkjuhvoli opin kl. 13-16. Velkomin!
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
12.45 tréskurður, kl. 14 söngstund, Sigrún Erla Hákonardóttir tón-
menntakennari leikur undir á píanó, kl. 20 félagsvist.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9-12. Útskurður kl. 9, verkfæri á staðnum og
nýliðar velkomnir. Botsía kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30. Bingó kl.
13.15. Kaffi kl. 14.30.
Hraunsel Kl. 8-12 ganga í Kaplakrika, kl. 10.30 línudans, kl. 13 brids,
kl. 13.30 botsía, kl. 11.30 leikfimi í Bjarkarhúsi.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45
og hádegismatur kl. 11.30. Gönguferð á kaffihús kl. 13.30, og eftirmið-
dagskaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga með Ingibjörgu kl. 9, sundleikfimi í
Grafarvogssundlaug kl. 9, brids í Borgum kl. 12.30 og hannyrðahópur
Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum. Tréútskurður í umsjón Davíðs kl. 13 í dag
í Borgum. Hið vinsæla vöfflukaffi kl. 14.30 til 15.30 í dag í Borgum,
gleði og gaman.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl .8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja
með leiðbeinanda kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11,
bingó kl. 14, ganga með starfsmanni kl. 14. Uppl í s. 4112760.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi með Evu í saln-
um á Skólabraut kl. 11. Syngjum saman í salnum á Skólabraut kl. 13.
Spilað í króknum kl. 13.30. Brids í Eiðismýri kl. 13.30. Ath. spilakvöld
Lions í salnum á Skólabraut nk. þriðjudagskvöld 12. mars kl. 19.30.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða bíó
kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4 Íslendingasögur / fornsagnanámskeiðið kl. 13, þar
sem sögusviðið er Ísafjarðardjúp. Kennari Baldur Hafstað. Dansað
sunnudagskvöld 27. janúar kl. 20-23. Hljómsveit hússins leikur fyrir
dansi. Allir velkomnir.
Vesturgata 7 Sungið við flygilinn með Gylfa Gunnarssyni frá kl. 13-
14. Kaffi frá kl. 14-14.30. Allir velkomnir.
Nú þú það sem
þú eia að
FINNA.is
✝ Unnur Torfa-dóttir fæddist í
Stykkishólmi 5.
ágúst 1937. Hún lést
á Heilbrigðis-
stofnun Vestur-
lands á Akranesi 28.
febrúar 2019.
Foreldrar Unnar
voru Ástríður Jón-
ína Jónsdóttir, f. 1.
júlí 1909, d. 24.
ágúst 1968, og Torfi
Siggeirsson, f. 31. maí 1905, d.
14. mars 1983. Systir Unnar sam-
mæðra er Marta Magnúsdóttir, f.
5. nóvember 1938, húsmóðir á
Stóra-Vatnsskarði í Skagafirði.
Unnur ólst upp í Stykkishólmi
með móður sinni og móðursyst-
kinum. Eftir fráfall móður sinnar
árið 1968 tók Unnur við hús-
móðurstörfum á heimilinu og
hélt þeim heimili alla tíð.
Unnur gekk í
Barnaskólann í
Stykkishólmi. Hún
vann um skeið í
Reykjavík en flutti
aftur í Hólminn og
hóf störf á sjúkra-
húsinu í Stykkis-
hólmi árið 1961 og
vann þar allan sinn
starfsaldur. Unnur
flutti á Dvalarheim-
ilið í Stykkishólmi 1.
mars 1996 og bjó þar fram á síð-
asta dag.
Unnur hafði mikinn áhuga á
lestri bóka, starfaði í kvenfélag-
inu í Stykkishólmi um margra
ára skeið og tók virkan þátt í fé-
lagsstarfi íbúa á Dvalarheim-
ilinu.
Útför Unnar fer fram frá
Stykkishólmskirkju í dag, 8.
mars 2019, klukkan 14.
Í dag skein sól á sundin blá
og seiddi þá,
er sæinn þrá
og skipið lagði landi frá.
Hvað mundi fremur farmann gleðja?
Það syrtir að, er sumir kveðja.
(Davíð Stefánsson)
Já, sólin skein á sundin blá og
skýjabólstrarnir mynduðu dul-
úðlega umgjörð þennan fallega
fimmtudagseftirmiðdag í febr-
úar, daginn sem við fréttum að
Unnur frænka okkar hefði lagt
upp í sína hinstu för. Þar með
kvarnaðist enn úr tengingu okk-
ar systkina við Hólminn en Unn-
ur var svo sannarlega einn af
hornsteinum okkar þar.
Í hugann koma margar minn-
ingar og ekki laust við að oft sé
stutt í brosið enda var Unnur
mikill húmoristi og náði að sjá
hið spaugilega í mörgum hlutum
og ekki hvað síst sjálfri sér. Það
eru komin nokkur ár síðan við
systkinin þyrptumst öll að
sjúkrabeði hennar hér í Reykja-
vík þar sem talið var að hún ætti
ekki langt eftir. Já, þarna mars-
eruðum við inn, já öll nema
Benni bróðir, sem var kannski
eins gott því Unnur varð svo
hissa á að sjá okkur öll þarna að
hún hafði á orði að sennilega
hefði hún ekki lifað það af ef
Benedikt hefði komið líka.
Já, Unnur hafði húmor, það er
alveg öruggt og kannski eins
gott þar sem lífið fól henni mörg
verkefni af þeim toga sem húm-
orinn hefur hjálpað henni að tak-
ast á við. Hún var heldur ekki að
erfa það við okkur systkinin þótt
við ötuðumst svolítið í þeim
Immu sem náði þó sennilega há-
marki þegar Gummi reyndi
ítrekað að stöðva reykingar
þeirra með því að sprauta úr
úðabrúsa á sígarettuna hjá þeim
úti á svölunum á Stóra-Vatns-
skarði.
Í Unni sameinaðist gjafmildi
og frændrækni og var það jafnan
mikill spenningur að opna pakk-
ana frá henni á jólunum þar sem
hún hélt mikilli tryggð við okkur
systkinin og okkar börn. Spenn-
ingurinn var ekki hvað síst til-
kominn vegna þess að merkimið-
ar áttu það til að missa tryggð
við pakkana og þá var úr vöndu
að ráða við að para rétt saman
aftur. Unnur átti það líka til að
bæta nokkrum aukagjöfum í
pokann sem mátti opna strax.
Já, hún Unnur var trygg og
trú sínum nánustu eins og við
sáum svo glöggt í sambandi
þeirra Immu heitinnar. Fyrir
okkur systkinin var þetta bara
ein heild, Unnur og Imma, og
nánast aldrei nefndar nema báð-
ar í einu. Þó svo að við höfum
ekki leitt hugann að því á þeim
tíma hefur það verið mikil vinna
og óeigingjörn sem Unnur lagði
á sig við umönnun Immu. Það
var varla komið sumar á Stóra-
Vatnsskarði fyrr en Unnur og
Imma komu og trilluðu út á tún
að raka eða eitthvað að huga að
heyskapnum.
Það er því með þakklæti í
hjarta fyrir margar ánægjulegar
samverustundir og minningar
sem við kveðjum hana Unni okk-
ar og biðjum góðan Guð að gefa
henni góða heimkomu.
Fyrir hönd systkinanna frá
Stóra-Vatnsskarði,
Guðmundur.
Í einum af textum Megasar
spyr hann: „Finnst þér ekki Esj-
an vera sjúkleg?“ Um það veit
ég ekki en hitt veit ég að Hólm-
urinn er æði og þar fæddist
Unnur og ólst upp. Eyddi reynd-
ar allri ævinni þar utan vetrar-
tíma sem hún var í vist í Reykja-
vík eins og títt var um ungar
stúlkur á þeim árum og þótti af
því nokkur þroski. Starfsævinni
eyddi hún svo í þágu St. Frans-
iskusspítala í Stykkishólmi því í
yfir 30 ár vann hún þar og nær
alla tíð á næturvöktum. Mikið
álag hefur það verið og ekki van-
þörf á því að skreppa annað
slagið í reykpásur eftir langar
vaktir og enginn talaði um að
breyta klukkunni á þessum
árum.
Unnur hafði alla tíð gaman af
því að ferðast og gerði talsvert
af því bæði með kvenfélaginu og
eldri borgurum í Hólminum. Á
árunum frá 1964 til ársins 2000
kom hún á hverju sumri norður í
Skagafjörð að heimsækja okkur
Mörtu systur sína á Stóra-
Vatnsskarði. Börnum okkar var
hún ávallt afar notaleg. Það var
líka siður okkar á Vatnsskarði að
fara á hverju sumri í Hólminn og
þá var jafnan komið við hjá
Unni. Einhverju sinni tókum við
Unni og Immu með okkur út á
Sand en þar bjuggu ættingjar.
Það vakti talsverða kátínu í ferð-
inni að á milli Grundarfjarðar og
Ólafsvíkur fór Imma að reykja
og rétti höndina út um aftur-
gluggann á Landróvernum en
sökum þrengsla setti hún öxlina
í litlu afturrúðuna og út og síðan
hefur ekki til rúðunnar spurst.
Síðustu árin hefur Unnur átt
heimili á Dvalarheimili aldraðra
í Stykkishólmi og hafi þau öll
góða þökk fyrir þeirra umönnun.
Mæðgunum Guðnýju og Árþóru
eru einnig færðar bestu þakkir.
Síðustu ár Unnar hefðu orðið
henni talsvert einmanalegri
hefði þeirra ekki notið við.
Þó að nú sé komið kveld
og kul um vanga strjúki.
Við minninganna eigum eld
þó öðru ég tel að ljúki.
Unnur hafði á ýmsu skil
sem aðeins var til bóta.
Henni tókst að eiga yl
sem aðrir fengu að njóta.
Austan golan eflaust strýkur
undurmjúk við kaldan svörð.
Þegar að degi löngum lýkur
ljómar sól um Breiðafjörð.
(Ben Ben)
Kveðja,
Benedikt (Benni) og Marta.
Unnur Torfadóttir