Morgunblaðið - 08.03.2019, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2019
SCREEN- OG RÚLLUGARDÍNUR
Henta vel þar sem sól er mikil en þú vilt geta séð út
Láttu sólina ekki trufla þig
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Íslensk framleiðsla eftir máli
Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku
OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18
alnabaer.is
Birkir Agn-arsson,netagerð-
armeistari í Vest-
mannaeyjum, á 60
ára afmæli í dag.
Hann byrjaði að
læra netagerð árið
1974 og hefur
starfað við það
nánast óslitið síð-
an eða í 45 ár.
Hann er fram-
leiðslustjóri Ísfells
ehf. og útibús-
stjóri í Vest-
mannaeyjum en
Ísfell rekur sjö
netaverkstæði
víða um landið og
eins á Grænlandi.
„Við útbúum all-
ar gerðir veiðarfæra fyrir stór og smá skip sem notuð eru hér á landi
og erum með þónokkurn útflutning á veiðarfærum til nágrannaríkja
okkar.
Það eru mjög daprar fréttir að ekki skuli finnast meira af loðnu
hér við land og það á eftir að hafa mikil áhrif á allt samfélagið okkar,
sérstaklega á staði eins og Vestmannaeyjar þar sem lífið snýst mikið
um uppsjávarveiðar,“ segir Birkir aðspurður. „En við erum með næg
verkefni og erum í hinu og þessu. Við vorum klára stórt verkefni fyr-
ir beluga-hvalina [einnig kallaðir mjaldrar] sem væntanlegir eru frá
Kína í byrjun apríl næstkomandi. Við vorum að setja upp tvær 226
metra langar girðingar ásamt búrum, sem komið verður fyrir í Klett-
svík hér í Eyjum, þar sem Keikó var á sínum tíma.
Birkir er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum og var kominn
þangað mjög fljótlega aftur eftir gosið árið 1973 þar sem faðir hans
starfaði í lögreglunni í Eyjum og í raun og veru flutti fjölskyldan
aldrei upp á fastalandið vegna þess.
Áhugamál Birkis eru fjölskyldan, íþróttir og útivist og ætlar fjöl-
skyldan að hittast í tilefni dagsins, borða góðan mat og njóta þess að
vera saman.
Eiginkona hans er Inga Hrönn Guðlaugsdóttir, ræstitæknir hjá
Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum. Dætur þeirra hjóna eru
Anna Kristín, sem býr ásamt eiginmanni sínum og tveimur dætrum í
Kópavogi, Silvía Björk sem býr ásamt sambýlismanni sínum í Eyjum
og Bylgja Dís sem býr ásamt sambýlismanni sínum í Hveragerði.
Barnabörnin eru orðin tvö.
Hjónin Inga Hrönn og Birkir á Þjóðhátíð í Eyjum.
Undirbýr komu
mjaldranna til Eyja
Birkir Agnarsson er sextugur í dag
B
irna Kristín Friðriks-
dóttir fæddist 8. mars
1969 á Akureyri en ólst
upp á Grenivík. Hún
gekk í Grenivíkurskóla
fyrstu 7 bekkina en tilheyrði síðasta
árgangi Grenvíkinga sem fóru á
heimavist í Stórutjarnaskóla tvo síð-
ustu bekki grunnskólans.
„Ég hefði alls ekki vilja missa af
þeirri dvöl því þar var frábær text-
ílkennari, Ragnheiður Kristjáns-
dóttir, sem hafði mikil áhrif á starfs-
val mitt í framtíðinni.“ Birna
útskrifaðist með stúdentspróf frá
Menntaskólanum á Akureyri 1990 og
fór sem skiptinemi til Ástralíu 1988.
Hún útskrifaðist með B-ed. gráðu frá
KHÍ 1996 og hefur auk þess leiðsögu-
mannaréttindi, diploma í ferða-
málafræðum frá Háskólanum á Hól-
um og lærði textílhönnun í
Danmörku.
Birna Kristín Friðriksdóttir, textílhönnuður og kennari – 50 ára
Fjölskyldan Frá vinstri: Ingvar, Guðbergur, Benedikt nýfermdur, Birna og Anna Kristjana árið 2017.
Rekur húsdýragarð
og hönnunarfyrirtæki
Í Daladýrð 10.000 manns sóttu húsdýragarðinn heim í fyrra.
Akureyri Arna Líf Reyn-
isdóttir fæddist 4. júní
2018 á Akureyri. Hún vó
3.694 g og var 52 cm að
lengd. Foreldrar hennar
eru Rebekka Rut
Rúnarsdóttir og Reynir
Már Sigurvinsson.
Nýr borgari
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is