Morgunblaðið - 08.03.2019, Side 35
Starfsferill Birnu er mjög fjöl-
breyttur, hún hefur m.a. sinnt land-
vörslu í Öskju og Herðubreiðar-
lindum, stundað grásleppuveiðar,
gistihúsarekstur og kennt í leik- og
grunnskólum. „Síðustu árin hef ég,
ásamt eiginmanni mínum, Guðbergi
Agli Eyjólfssyni, rekið eigið hönn-
unarfyrirtæki og verslun á Skóla-
vörðustíg undir merkinu Gjóska. Þar
seljum við mína hönnun sem er hand-
skreyttur ullarfatnaður með tilvísun í
íslenska náttúru og eru erlendir
ferðamenn 99% okkar kúnna.
Annað verkefni sem á hug okkar
allan er húsdýragarðurinn Daladýrð
sem við rekum á býlinu okkar,
Brúnagerði í Fnjóskadal. Við erum
að fara inn í okkar þriðja rekstrar-
sumar en í fyrra heimsóttu okkur 10
þúsund gestir. Aðstaðan til að hoppa í
heyið og kisurnar eru það sem bræddi
flesta og bætum við stöðugt aðstöðuna
á milli ára.
Helstu áhugamál eru allskonar
sköpun, hvort sem það er textíll, tré,
skartgripir, keramik eða matargerð,
náttúra Íslands, svo sem plöntur og
fuglar.“
Fjölskylda
Eiginmaður Birnu er Guðbergur
Egill Eyjólfsson, f. 27. nóvember
1971, framkvæmdastjóri Daladýrðar
Foreldrar hans eru Finnbjörg Guð-
mundsdóttir f. 5. ágúst 1951, launa-
fulltrúi, bús. á Selfossi, og Eyjólfur
Hjaltason, f. 24. september 1951, mat-
reiðslumaður, bús. í Noregi. Stjúpfað-
ir Guðbergs var Benedikt Davíðsson,
f. 3. maí 1927, d. 13. nóvember 2009,
fv. formaður ASÍ og Félags eldri
borgara.
Börn Birnu og Guðbergs eru 1)
Ingvar, f. 29. ágúst 2001, vinnur í
Pharmarctica á Grenivík; 2) Benedikt,
f. 20. maí 2003. nemandi við Stóru-
tjarnaskóla; 3) Anna Kristjana, f. 27.
júní 2005, Nemandi við Stórutjarna-
skóla. Þau búa öll í foreldrahúsum
Systkini Birnu eru: Þorsteinn Ey-
fjörð Friðriksson, f. 21. ágúst 1967,
sjómaður og smiður á Grenivík;
Sveinlaug Friðriksdóttir, f. 20. febr-
úar 1978, hárgreiðslumeistari, bús. í
Reykjavík; Bjarni Eyfjörð Frið-
riksson, f. 8. maí 1985, verkfræðingur
hjá KPMG, bús. í Reykjavík.
Foreldrar Birnu eru hjónin Friðrik
Kristján Þorsteinsson, f. 29. desember
1947, útgerðarmaður og húsasmíða-
meistari, Kristjana Björg Hallgríms-
dóttir, f. 10. júní 1949, matráður og
hefur unnið við ýmis störf tengd eigin
útgerð. „Foreldrar mínir búa enn í
húsinu sem þau byggðu sér á Grenivík
fyrir 50 árum.“
Úr frændgarði Birnu Kristínar Friðriksdóttur
Jón Þorsteinsson
bóndi á FinnastöðumBirna Kristín
Friðriksdóttir
Þorsteinn
Eyfjörð
Friðriksson
sjómaður
og smiður á
Grenivík
Karen Björg
Þorsteinsdóttir
uppistandari og
yngsti meðlimur
„Bara góðar“
Stefán
Eyfjörð
Jónsson
sjómaður
og
verkamaður
í Reykjavík
lís Eyfjörð
tefánsson
prentari í
Hafnarfirði
E
S
Þórey
Edda
Elísdóttir
stangar-
stökkvari
og verk-
fræð-
ingur
Bára
Eyfjörð
Jónsdóttir
húsfreyja
á Grenivík
Elísa
Ingólfs-
dóttir
fiskverka
kona á
Grenivík
Heimir
Ásgeirsson
eigandi
Eyjabita og
guðfaðir
Magna á
Grenivík
Elísa Stefánsdóttir
húsfreyja á Finna-
stöðum á Látraströnd
Sveinlaug Friðriksdóttir
húsfreyja á Grenivík
Friðrik Kristinsson
bóndi og verkamaður í
Hléskógum og á Grenivík
Anna Margrét Vigfúsdóttir
úsfreyja í Hléskógum í Höfðahverfi
Friðrik Kristján Þorsteinsson
útgerðarmaður og
húsasmíðameistari á Grenivík
Jón Þorsteinsson
útgerðarmaður og
húsasmíðameistari á Grenivík
Þorsteinn Eyfjörð
Jónsson eigandi
Handverkshússins
í Kópavogi
Guðrún Friðriksdóttir húsfreyja
á Jarlsstöðum í Höfðahverfi
h
nna Margrét
Bjarnadóttir
skverkakona
á Grenivík
A
fi
Bjarni Gunnarsson eigandi
GíslaEiríksHelga kaffihúss
Bakkabræðra á Dalvík
Anna Gunnarsdóttir
húsfreyja Sultum í Kelduhverfi
Gunnar Sigurðsson
bóndiAuðbjargarstöðum í Kelduhverfi
Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja á
Auðbjargarstöðum í
Kelduhverfi
Kristjana Björg Hallgrímsdóttir
matráður og vann við eigin
útgerð á Grenivík
Þorsteinn Eyfjörð Jónsson
útgerðarmaður á Grenivík
Sigríður Hallgrímsdóttir veðureftirlitsm. og
ferðaþjónustub. á Grímsstöðum á Fjöllum
Friðbjörg Karólína Hallgrímsdóttir
sundlaugarvörður áAkureyri
Hafþór Hreiðarsson
ljósmyndari
á Húsavík og
umsjónarmaður
640.is
Halla
Hallgrímsdóttir
húsfreyja á Húsavík
Hallgrímur Björnsson
bóndi í Sultum
Kristín Hallgrímsdóttir
húsfreyja á Víkingavatni í
Kelduhverfi
Björn Stefánsson
bóndi á Víkingavatni
Hönnunin Gjóska Birna að nála-
þæfa norðurljósamynstur.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2019
FYRIR MÓÐUR
OG BARN
Spíra Omega3 PREGNANCY er ætlað
þunguðum konum eða konum sem hyggja
á barneignir. Varan innheldur bæði EPA
og DHA, auk D-vítamíns og fólats.
www.lysilife.is
F
æ
st
í
a
p
ó
te
k
u
m
NÝ
TT FRÁ
LÝ
S
I
F
Y
R
IR
M
Ó
ÐUR OG
BA
R
N
NÝTT
95 ára
Jón Jónsson
Sigríður Sigurðardóttir
Þorgerður Kolbeinsdóttir
90 ára
Ástríður Þórey Þórðardóttir
Gunnhildur Njálsdóttir
Hartmann Eymundsson
Reynir Karlsson
Sigurdís H. Erlendsdóttir
85 ára
Erla Traustadóttir
María Albertsdóttir
80 ára
Lilja Guðrún Sigurðardóttir
75 ára
Bogi Þórðarson
Elísabet Gígja
Guðbjörg Hermannsdóttir
Guðríður Gígja
Steinunn Áslaug Pétursd.
Þórunn A. Sveinbjarnard.
70 ára
Agnar Óttar Norðfjörð
Erla Emilsdóttir
Gerður Sveinsdóttir
Guðlaug Aðalsteinsdóttir
Helgi Hálfdánarson
Hjálmar Sveinsson
Ingunn Ásdís Sigurðard.
Már Þorvaldsson
Sigríður Jónsdóttir
Unnur Ingvadóttir
60 ára
Auður Vilhelmsdóttir
Elín Ásdís Ásgeirsdóttir
Erla Aðalgeirsdóttir
Erla Björg Garðarsdóttir
Freyja Júlía Þorgeirsdóttir
Guðjón Hólm Guðjónsson
Guðni Geirsson
Höskuldur B. Gunnarsson
Jóhanna Hauksdóttir
Jón Hilmar Jónsson
Þorvaldur Steingrímsson
50 ára
Eggert Bjarki Eggertsson
Guðný Zoéga
Hilmar Þór Jónsson
Jóakim Ragnar Guðlaugss.
Lúðvík Elíasson
Margrét Erlingsdóttir
Sigríður Margrét Gunnarsd.
Theódór Skúli Þórðarson
Valgerður M. Gunnarsdóttir
40 ára
Agnes Björnsdóttir
Alice Wanjiku Kimani
Erla Tryggvadóttir
Frank Höybye Christensen
Helga Guðrún Vilmundard.
Helga Valdís Árnadóttir
Hjördís Sif Bjarnadóttir
Jón Atli Magnússon
Jón Ingi Einarsson
Kristján Heiðar Kristjánss.
Lilja Jónsdóttir
María M. Steinarsdóttir
Ólafur Ómar Bjarnason
Rögnvaldur Harðarson
Sigurður Óli Sigurðarson
Svavar Viktorsson
30 ára
Anna G. Hólm Bjarnadóttir
Anthony Joseph Davis
Ágústa Guðjónsdóttir
Einar Þór Björgvinsson
Hilmar Þorbjörn Halldórus.
Jón Brynjar Jónsson
Linda Ósk Árnadóttir
Pétur Þór Jaidee
Sigrún B. Valdimarsdóttir
Tómas Páll Máté
Tryggvi Örn Gunnarsson
Valur Sigurðarson
40 ára Gunnar er Reyk-
víkingur og er listrænn
stjórnandi hjá Jónsson &
Le’macks.
Maki: Elín Vigdís Guð-
mundsdóttir, f. 1985, lög-
fræðingur hjá Kærunefnd
útlendingamála.
Börn: Guðrún Lóa, f.
2013, og Guðmundur
Jökull, f. 2016.
Foreldrar: Þorvaldur
Ólafsson, f. 1944, d. 2016,
og Brynja Jóhannsdóttir,
f. 1947, bús. í Kópavogi.
Gunnar
Þorvaldsson
40 ára Hulda er Reykvík-
ingur en býr á Selfossi.
Hún vinnur við bókhald
hjá JÁVERK.
Maki: Axel Davíðsson, f.
1972, verkefnastjóri hjá
JÁVERK.
Börn: Ísak, f. 2003,
Selma, f. 2007, og
Bryndís, f. 2012.
Foreldrar: Jón Albert Sig-
urbjörnsson, f. 1955,
verkstjóri, og Lára Guð-
mundsdóttir, f. 1955,
skólaliði, bús. í Kópavogi.
Hulda
Jónsdóttir
30 ára Hafrún fæddist á
Húsavík en flutti átta ára
gömul í Sandgerði og býr
þar. Hún er leikskólaliði
og stuðningsfulltrúi.
Maki: Reynir Gunnars-
son, f. 1983, hlaðstjóri hjá
Icelandair.
Dóttir: Guðrún Anna, f.
2018.
Foreldrar: Hafþór Aust-
fjörð Haraldsson, f. 1957,
og Guðrún Magnea Teits-
dóttir, f. 1959. Þau eru
bús. í Sandgerði.
Hafrún
Hafþórsdóttir
Til hamingju með daginn
Hinn 26. febrúar síðastliðinn fór fram
doktorsvörn við Háskólann í Skövde,
Svíþjóð. Þar varði Ari Kolbeinsson dokt-
orsritgerð sína í upplýsingafræðum þar
sem fjallað er um aðferðir og kenningar
sem nota má til þess að draga úr nei-
kvæðum áhrifum truflana á starfsfólk í
framleiðsluvinnu í verksmiðjum.
Rannsóknir á truflunum hafa hingað
til mestmegnis skoðað truflanir á vinnu
við tölvur og annarri skrifstofuvinnu,
auk rannsókna á sérhæfðum vinnustöð-
um eins og sjúkrahúsum og flugvélum,
og hafa til þess byggt á hefðbundnum
kenningum um mannshugann sem líkja
mannshuganum við tölvukerfi. Rann-
sóknir Ara byggðust á nýrri kenningum
þar sem mannshugurinn, líkaminn, um-
hverfið, og gagnkvæm áhrif manneskju
og heims geta verið hluti af hugs-
unarferlinu.
Doktorsritgerðin byggist á niður-
stöðum þriggja rannsóknaverkefna sem
unnin voru milli 2015 og 2018 bæði í
sérhæfðri rannsóknaraðstöðu við Há-
skólann í Skövde og í verksmiðju sem
framleiðir bílvélar.
Meginniðurstöður rannsóknanna
sýndu að rannsóknir á truflunum sem
unnar eru eftir hefðbundnum kenn-
ingum um manns-
hugann og við sér-
hönnuð verk þar
sem setið er við
tölvu er ekki hægt
að staðfæra án
breytinga á verk
þar sem hægt er
að nota umheim-
inn til að styðja
hugsanaferli.
Meginniðurstöður doktorsritgerð-
arinnar voru þær að nýrri kenningar
innan hugfræðinnar má nota til að
greina verk þar sem hægt er að nýta
líkamann og umheiminn til stuðnings,
og leiddu þessar niðurstöður til þess
að skapaður var fræðilegur rammi þar
sem nýfengnar rannsóknarniðurstöður
og kenningar um mannshugann voru
samtvinnaðar þannig að auðvelt væri
að nýta þessar nýrri kenningar um
mannshugann til greininga á verkum í
samsetningu í verksmiðjum.
Andmælandi var dr. Tobias Grund-
geiger frá Háskólanum í Würzburg.
Leiðbeinendur voru prófessor Dan
Högberg, dr. Peter Thorvald, og dr.
Jessica Lindblom, öll frá Háskólanum í
Skövde.
Ari Kolbeinsson
Ari Kolbeinsson, fæddur 1976, lauk atvinnuflugmannsprófi 1996 og flugkenn-
araprófi 1998. Eftir það tóku við ýmis flugtengd störf, auk starfa í öðrum geirum,
en í ágúst 2008 flutti Ari ásamt fjölskyldu sinni til Svíþjóðar þar sem hann hóf
nám við Háskólann í Skövde. Hann lauk BSc-prófi í hugfræði 2011 og MSc-prófi í
upplýsingafræðum 2013. Eiginkona hans er Aníta Bergrós Eyþórsdóttir og eiga
þau börnin Hrafntý Atla Arason og Margréti Röskvu Aradóttur.
Doktor