Morgunblaðið - 08.03.2019, Page 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2019
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
GLÁMUR
Dvergarnir R
Dvergurinn Glámur
er 35 cm á hæð,
vegur 65 kg og er með
innsteypta festingu fyrir 2“ rör
Öflugur skiltasteinn
fyrir umferðarskilti
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Notaðu tjáningarhæfileika þína til þess
að koma máli þínu til skila. Ef þú leggur þig all-
an fram máttu vera ánægður með störf þín,
hvort heldur um er að ræða í vinnunni eða
heima við.
20. apríl - 20. maí
Naut Vinnan göfgar manninn, en það er fleira
sem gefur lífinu gildi. Mundu bara hvar þinn
raunverulegi fjársjóður er falinn og þá mega
fjármálin víkja.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert vinsæll meðal vina þinna og
þeir leita skjóls hjá þér þegar þeir þurfa á að
halda. Reyndu að sýna fjölskyldu þinni meiri
þolinmæði og stuðla þannig að meira umburð-
arlyndi.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þó að þér sé ekki vel við að viðurkenna
það ertu mannlegur og þarfnast ástar eins og
allir aðrir. Sigrar eru á næsta leiti svo þú skalt
ekki gefa þig í afstöðu þinni til ýmissa málefna.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er ástæðulaust að leggja árar í bát
þótt aðrir skilji ekki fullkomlega hvað þú ert að
fara. Hristu af þér slenið og brjóstu út því þú
hefur þá hæfileika sem til þarf.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Láttu engan hafa svo mikil áhrif á þig
að þú gerir eitthvað sem stangast á við rétt-
lætiskennd þína. Erfiðleikarnir eru til að sigrast
á þeim og þú ert nú betur í stakk búinn en oft
áður.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér mun hugsanlega finnast einhver í fjöl-
skyldunni vera að reyna að draga úr þér kjark-
inn í dag. Aðrir líta til þín um forustu svo þú
mátt hvergi bregðast.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það hefur verið mikið að gera hjá
þér að undanförnu og það verður það áfram
næstu vikurnar. Gefðu þér líka tíma til þess að
staldra við og vega og meta stöðu þína.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Lokaðu þig ekki af frá umheim-
inum þótt þú sért ekki upp á þitt besta. Ekki
vera hræddur við að segja góðum vini leynd-
armál.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Lærðu að slappa af, þú vinnusama
fluga! Í stað þess að dreifa þér skaltu einbeita
þér að einu verki eða manneskju í einu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Að loknu erfiðu verki áttu góða
hvíld skilið. Láttu þetta ekki ergja þig heldur
haltu bara þínu striki.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þeir eru margir sem bíða í ofvæni eftir
því að heyra hvað það er sem þú hefur fram að
færa. Gerðu því ekkert að óathuguðu máli.
Víkverji hefur verið nokkuð hugsiundanfarna daga. Það er eflaust
að bera í bakkafullan lækinn að ræða
framlag Íslands í Eurovision-
keppnina. En Víkverji verður að
koma frá sér hugrenningum sínum,
öðrum vonandi til gagns.
x x x
Víkverji viðurkennir fúslega að lagHatara, með því frekar ógeð-
fellda nafni Hatrið mun sigra, féll
ekki alveg að hans smekk. Fyrir það
skammast Víkverji sín ekki en hann
hneykslast þó hvorki á laginu né
flutningi þess.
x x x
Það er nú bara þannig að tímarnirbreytast og mennirnir með. En
þegar kemur að Eurovision þá virð-
ast ekki allir sætta sig við að tímarn-
ir breytist.
x x x
Himinn og haf er á milli írsku ung-lingstúlkunnar Dönu sem heill-
aði Evrópubúa með laginu All kinds
of everything árið 1970 og rokk-
aranna í Hatara. Fyrir þá sem vilja
líta raunhæft á málin þá eru nú þeg-
ar orðin kynslóðaskipti þeirra sem
fylgjast með og kjósa í Eurovision.
Hugsanlega eru kynslóðaskiptin
fleiri en ein frá tímum Dönu og um-
burðarlyndi gagnvart margbreyti-
leika mannskepnunnar hefur aukist
eftir því sem keppnin eldist.
x x x
Víkverji ætlar ekki að reyna að spáum það hvort Íslendingar kom-
ist í úrslitakeppnina eða hvar þeir
lenda ef svo verður. En eitt er víst að
Víkverji mun halda með Höturum,
þ.e.a.s. hjómsveitinni, og styðja alla
leið.
x x x
Nafn lagsins og texti fer í Vík-verja, á sama tíma er hann stolt-
ur af ungu Íslendingunum sem þora
að standa upp og segja sína mein-
ingu. Þora að koma fram með boð-
skap og ögra. Þora að setja fingurinn
á það sem getur gerst ef fram fer
sem horfir og hatrið nær að sigra.
Það er jú möguleiki ef mannskepnan
tekur sér ekki tak og sýnir meiri ást
og umburðarlyndi. vikverji@mbl.is
Víkverji
Af því þekkjum við kærleikann að Jes-
ús lét lífið fyrir okkur. Svo eigum við
og að láta lífið hvert fyrir annað.
(Fyrsta Jóhannesarbréf 3.16)
Sigrún Haraldsdóttir skrifaði íLeirinn á þriðjudag: „Kl. rúm-
lega sjö í morgun þegar rétt var
farið að móta fyrir nýjum degi og
ég var að mæta til vinnu heyrði ég
alveg dásamlegan morgunsöng. –
(Vona að þið þolið þessa væmni)“:
Alveg heilluð stóð í stað
er stefja- glumdu -hljóðin,
þar var kátur þröstur að
þylja morgunljóðin.
Ólafur Stefánsson gat ekki orða
bundist: „Gott að heyra aftur í Sig-
rúnu, en mér blöskrar hvað hún fer
snemma ofan. Mínir fuglar, ekki
einu sinni svartþrösturinn, forma
ekki að hreyfa sig svona snemma, –
hvað þá að syngja!“:
Sigrún mín er mikilsverð
og meiriháttar,
en þessi árans ofanferð
mig alveg gáttar.
Sigrún svaraði: „Já, ég hef tamið
mér að fara snemma til vinnu“:
Þótt lúrinn sé löngum sætur
og lini oft sálarkreppu
betra er að fara á fætur
en festast í bílateppu.
– „Ég þoli bara ekki að sitja föst í
umferðaröngþveiti ef ég þarf þess
ekki.“
Jón H. Arnljótsson spurði: „Var
þetta örugglega þröstur?“
Þó allir fuglar aðrir sitji
og ekki hreyfi tali,
má njóta þess að næturgali
noktúrnurnar flytji.
Sigrún svarar enn: „Þú segir
nokkuð. En alla vega:“
Ljóð hans voru laus við þvaður,
létt og þakkarverð,
svo naumast var þar neysluglaður
næturhrafn á ferð.
Ingólfur Ómar var með á nót-
unum: „Ég kannast við þetta, Sig-
rún, ég hef góðan garð og nóg af
trjám. Þessa gerði ég fyrir
skömmu. Það hafði rignt deginum
áður en þennan morgun upp úr níu
var einstaklega bjart og fallegt veð-
ur og talsverður galsi í þeim greyj-
unum“:
Glóey loftið gyllir blátt
glitrar dögg á lyngi.
Skógarþrestir kvaka kátt
kvikir flögra í hringi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Morgunsöngur og
fuglar himinsins
Í klípu
„ALLTAF ÞEGAR HONUM FINNST SÉR
ÓGNAÐ KALLAR HANN EFTIR LIÐSAUKA.”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞÚ FÆRÐ EKKI ANNAN
TRÚLOFUNARHRING FYRR EN ÞÚ KLÁRAR
AÐ BORGA HINA TVO.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... 24 karata par!
MEÐ ÞVÍ AÐ VERA
GRAFKYRR TRYGGI ÉG AÐ
BRÁÐIN SJÁI MIG EKKI
HEI! SJÁÐU FEITA
KÖTTINN Í RUNNANUM
ÞARNA!
ÞETTA VAR EKKI
BRÁÐIN MÍN
VILTU FARA
EITTHVAÐ?
JÁ! EN EKKI ELTA MIG!
HJÓNABANDS-
RÁÐGJÖF
Fasteignir