Morgunblaðið - 08.03.2019, Qupperneq 38
Morgunblaðið/Eggert
Leikarinn og leikstjórinn Albert Halldórsson, t.v., leikur allar persónur í Istan eftir Pálma Frey Hauksson.
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Skyldi vera hægt að halda þræði í
rúmlega klukkustundar leiksýn-
ingu þar sem einn leikari fer með
35 rullur; karla, kvenna og barna?
Eru blæbrigðin í rödd leikarans,
Alberts Halldórssonar, slík að
áhorfendur læri einn, tveir og
bingó að greina á milli þegar hann
skiptir á milli persóna á mínútu
fresti eða svo? Er kannski of mikið
lagt á heilabúið að ætla þeim að
leysa morðgátu í leiðinni? Pálmi
Freyr Hauksson, höfundur Istan,
verksins sem um ræðir, svarar
fyrstu tveimur spurningunum ját-
andi, þeirri þriðju neitandi.
Líka þegar hann er spurður
hvort Istan eigi sér einhverja sam-
svörun í Ystad í Svíþjóð þar sem
Kurt Wallander leysti hverja
morðgátuna af annarri meðan
hann var og hét, bæði í bókum
Henning Mankels og sjónvarps-
þáttum. Pálmi Freyr hlær bara og
fullyrðir að Wallander hafi ekki
einu sinni verið í undirmeðvitund-
inni þegar hann samdi verkið. Og
yfirhöfuð hvorki fyrr né síðar.
Istan og Ystad eru óneitanlega
býsna lík nöfn. En þótt í Istan í
samnefndu verki sé framið morð
er höfundurinn, sem jafnframt er
leikstjóri, enginn unnandi glæpa-
sagna. Honum finnst þær klisjur,
margar hverjar. „Leiksýningin er
úrskriftarverkefni mitt vorið 2018
frá sviðshöfundabraut í Listahá-
skóla Íslands og hefur því áður
farið á fjalirnar. Albert bregður
sér því aftur í fjölda persóna líki
kl. 20 í kvöld í Tjarnarbíói, einnig
15. og 17. mars á sama tíma,“ segir
Pálmi Freyr og lýsir söguþræð-
inum í stórum dráttum:
Morð skekur bæjarbúa
„Sögusviðið er smábærinn Istan
á Bretlandi á 19. öld þar sem allt
er með kyrrð og spekt þangað til
dularfullt morð skekur bæjarbúa.
Þeir fara að sýna sitt raunverulega
andlit og eru fljótir að kenna hver
öðrum um hvernig komið er fyrir
bænum þeirra. Frændur verða
fjandmenn, óvæntar persónur
skjóta upp kollinum og grafið er
undan því trausti sem áður ríkti í
þessum saklausa bæ. Allir liggja
undir grun og því reynir svolítið á
áhorfendur af komast til botns í
þessari flóknu morðgátu,“ segir
Pálmi Freyr og bætir við að mark-
miðið sé þó fyrst og fremst að þeir
njóti verksins og skemmti sér.
Hann lofar að þar til bær yfirvöld í
Istan muni hvort eð er afhjúpa
morðingjann í lokin. Allt sam-
kvæmt klassískum minnum
krimmans, eins og hann segir.
„Í hreinskilni sagt finnst mér
glæpasögur mjög leiðinlegar sem
og lögguþættir í sjónvarpinu. Meg-
inþemun og klisjurnar, sem ég
raunar byggi Istan á, eru alltaf til
staðar. Ég sný klisjunum á haus
og finnst skemmtilegt að læða inn
húmor því yfirleitt er strúktúrinn
sá sami í þessum sögum. Persón-
urnar eru líka klisjur og m.a. þess
vegna er auðvelt að þekkja þær af
látbragði Alberts.“
Óður til baðstofumenningar
Spurður um aðalklisjurnar nefn-
ir hann lögreglukonuna í bænum,
sem fær að heyra að morðmálið sé
alltof stórt fyrir hennar litla
reynsluheim og raunar bæinn
sjálfan. Kannski er hún þó frekar
viðsnúningur á klisjunni í ljósi
þess að sagan á að gerast á 19. öld
og þá má ætla að konur hafi ekki
gegnt svo ábyrgðarmiklum emb-
ættum. „Þær eru þarna allar erki-
týpurnar, strákurinn sem þráir að
fara úr bænum, presturinn sem er
að kljást við innri djöfla, bæjar-
stjórinn, slúðurberinn, hjónin sem
eiga bæjarkrána og fleiri og fleiri,“
segir Pálmi Freyr og kveðst alveg
vera að „munstra“ breskt smábæj-
arsamfélag.
En af hverju breskt frekar en ís-
lenskt? Og hvers vegna 19. öldin
en ekki 21.?
„Ég er spunaleikari, sýni reglu-
lega með Improv Ísland í Þjóðleik-
húsinu. Meðal annars hef ég
spunnið á ensku í útlöndum og
finnst miklu skemmtilegra að fara
í erkitýpur úr annarri menningu
frekar en kannski frá Eskifirði eða
Dalvík. Lögregluþjónninn er til
dæmis með miklu sterkari ímynd í
bresku smábæjarsamfélagi heldur
en því íslenska þar sem allir eru í
tveimur til þremur djobbum til að
halda því gangandi. Þar fyrir utan
finnst mér bara fyndnara að láta
söguna gerast þar ytra. Ég lít
samt svolítið á verkið sem óð til
baðstofumenningar á Íslandi og
kaus því að láta söguna gerast á
19. öld þegar engir bílar voru til og
fólk fór á hestum og í hestvögnum
og var hrætt við stórborgarlífið.“
Einn sögumaður
Pálmi Freyr fékk hugmyndina
að Istan í fyrrasumar. Hann fór að
velta fyrir sér hvort og hvernig
hægt væri að segja og leikstýra
glæpasögu án sögumanns og með
aðeins einum leikara sem þyrfti að
bregða sér í hátt á fjórða tug hlut-
verka. „Erfitt en samt hægt og
veltur mikið á leikaranum. Þótt ég
gjörsamlega dýrki spuna, þarf Al-
bert að fylgja handritinu nákvæm-
lega. Hlutverkum hans má líkja við
að ganga á jafnvægisbandi í sirk-
us, hann er einn á sviðinu og þarf
að fara með sínar línur með fáein-
um kúnstpásum í samfellt um 70
mínútur án þess að hafa nokkuð
eða nokkurn til þess að stóla á.
Stundum líður mér eins og ég hafi
komið honum í alveg hræðilegar
aðstæður og sé hálfgerður pynt-
ingarmaður. Albert er stórkostleg-
ur leikari, sjálfur gæti ég ekki
munað allan þennan texta, en þó
mögulega bjargað mér með
spuna.“
Pálmi Freyr segir að Istan sé
gamanleikur, en með alvarlegum
undirtón.
En í lokin – hvernig er hægt að
vita hver er hvað þegar einn leik-
ari er í öllum hlutverkum og alltaf
í sömu fötunum?
„Sumir af þessum 35 eiga reynd-
ar bara eina setningu, svo áhorf-
endur þurfa ekkert að leggja þá á
minnið. Auk þess gerði ég mér far
um að skrifa handritið þannig að
áhorfendur eru lævíslega minntir á
hver á í hlut hverju sinni,“ segir
Pálmi Freyr og bætir við að hann
hafi látið útbúa ættartré til glöggv-
unar fyrir áhorfendur. Á því eru 35
andlitsmyndir af Albert og pílur
þvers og krus sem sýna skyldleik-
ann eða tengslin – í gríni.
Erkitýpur krimm-
ans samankomnar
Leiksýningin Istan eftir Pálma Frey Hauksson í Tjarn-
arbíói í kvöld Morðgáta í breskum smábæ á 19. öld
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2019
VINNINGASKRÁ
45. útdráttur 7. mars 2019
63 10218 19720 30364 40285 50294 59443 69393
585 10238 19780 30430 40537 51027 60073 69498
728 10374 20425 30627 40762 51331 60818 69894
1060 10715 20587 31330 40782 51340 61106 70434
1205 11190 20669 31419 40834 51502 61421 71139
1219 11331 20876 31897 40960 51567 61777 71354
1373 11448 20963 31966 41147 51604 61907 71454
1900 11723 21401 32471 41439 51888 62107 72012
1916 11783 21530 33002 41491 51957 62232 72057
2470 11890 21698 33154 42132 52158 62264 72239
2583 12068 21818 33237 42559 52533 62532 72352
2705 12110 22121 33688 42588 52600 63040 72952
2844 12281 22384 33950 43139 52859 63043 73696
3015 12392 22593 34192 43277 52918 63138 73847
3585 12681 22917 34549 43293 53289 63607 75649
3834 12806 22979 35389 43391 53596 63737 76461
3949 13481 23217 35395 43778 54297 63838 76471
4247 13556 23630 35480 43781 54788 63917 76636
4388 13659 24016 35611 43835 54931 64173 76651
4404 14518 24049 35709 44501 55157 64622 76766
4739 15722 24152 35862 45065 55511 65007 76769
5190 15870 25149 35916 45335 55550 65228 77320
5214 16107 25932 35993 45411 55575 65256 77352
5705 16275 27049 36037 46129 56141 65331 78616
6881 16429 27347 36235 46144 56338 65576 78683
7140 16558 27373 36415 46160 56500 65623 78895
7241 16599 27573 36480 47159 56805 66441 78983
7351 16713 28572 36594 48042 57183 66563 79055
7415 17085 28905 37061 48271 57585 66945 79286
7445 17115 29066 37431 48372 57780 67104 79395
7675 17476 29118 38821 48851 57965 67272 79414
8477 17882 29494 38967 49107 58325 67298
8494 18155 29502 39400 49452 58475 68598
8804 18782 29718 39684 49491 58764 68781
9417 19224 29903 39757 49762 58956 68813
9594 19581 30207 39773 49878 59129 69153
9700 19677 30328 39829 50255 59221 69287
1845 11455 19894 32542 42834 54271 63565 75159
3375 11537 20290 32781 43209 54439 64034 75181
3379 12799 20707 33850 44175 54816 65121 75557
4607 13710 21918 34542 44905 55880 65354 78061
4655 14637 22680 36013 45410 56941 66336 78070
5515 14851 23784 37164 48096 57487 66425 78749
5964 15682 23902 37546 48772 57498 66522 78908
6178 15700 26051 38571 49061 58792 66845 78970
7622 16641 26402 38730 49314 60166 67556 79037
9974 16759 26566 39855 49888 60784 67831
10279 17616 27710 39999 51601 61307 68808
11290 17928 28556 40625 53802 61351 70133
11429 18999 29876 41478 53927 61539 75074
Næstu útdrættir fara fram 14., 21. & 28. mars 2019
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
31867 44240 63513 73062
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
4211 14548 32821 41331 48280 61989
11281 16143 36041 43709 50807 70424
12714 17766 37716 45328 56234 73287
14097 31550 39018 45787 57808 74400
Aðalv inningur
Kr. 3.000.000 Kr. 6.000.000 (tvöfaldur)
5 3 6 4 6
Hinn þekkti bandaríski gjörningalistamaður Caro-
lee Schneemann er látin, 79 ára að aldri. Verk henn-
ar voru nokkrum sinum sýnd hér á landi: á Mokka
árið 1994, hún kom fram á Listahátíð í Reykjavík
árið 2008 og var heiðursgestur myndlistarhátíðar-
innar Sequences VII árið 2015. Á sjöunda áratugn-
um vann hún stórt ljósmyndaverk með Erró.
Schneemann er þekktust fyrir líkamlega gjörn-
inga sem iðulega ögruðu fólki og þá er kvikmynda-
verkið Meat Joy frá 1964 rómað.
Carolee Schneemann látin
Carolee Schneemann