Morgunblaðið - 08.03.2019, Side 39
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Matthildur (Stóra sviðið)
Þri 12/3 kl. 19:00 Fors. Sun 24/3 kl. 19:00 8. s Sun 14/4 kl. 19:00 20. s
Mið 13/3 kl. 19:00 Fors. Mið 27/3 kl. 19:00 9. s Þri 16/4 kl. 19:00 21. s
Fim 14/3 kl. 19:00 Fors. Fim 28/3 kl. 19:00 10. s Mið 24/4 kl. 19:00 22. s
Fös 15/3 kl. 19:00 Frums. Sun 31/3 kl. 19:00 12. s Fim 25/4 kl. 19:00 23. s
Lau 16/3 kl. 19:00 2. s Mið 3/4 kl. 19:00 13. s Fös 26/4 kl. 19:00 24. s
Sun 17/3 kl. 19:00 3. s Fös 5/4 kl. 19:00 15. s Sun 28/4 kl. 19:00 25. s
Mið 20/3 kl. 19:00 4. s Sun 7/4 kl. 19:00 16. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s
Fim 21/3 kl. 19:00 5. s Mið 10/4 kl. 19:00 17. s Fim 2/5 kl. 19:00 27. s
Fös 22/3 kl. 19:00 6. s Fös 12/4 kl. 19:00 18. s Mið 8/5 kl. 19:00 29. s
Lau 23/3 kl. 19:00 7. s Lau 13/4 kl. 13:00 19. s Fim 9/5 kl. 19:00 30. s
Frumsýning 15. mars.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 8/3 kl. 20:00 207. s Lau 27/4 kl. 20:00 212. s Fös 31/5 kl. 20:00 217. s
Lau 9/3 kl. 20:00 208. s Sun 5/5 kl. 20:00 213. s Lau 8/6 kl. 20:00 218. s
Lau 30/3 kl. 20:00 209. s Sun 12/5 kl. 20:00 214. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas.
Lau 6/4 kl. 20:00 210. s Fös 17/5 kl. 20:00 215. s
Lau 13/4 kl. 20:00 211. s Fös 24/5 kl. 20:00 216. s
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Fös 29/3 kl. 20:00 15. s Fim 4/4 kl. 20:00 16. s Fim 11/4 kl. 20:00 Lokas.
Síðustu sýningar komnar í sölu.
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Fös 8/3 kl. 20:00 47. s Mið 13/3 kl. 20:00 50. s Lau 16/3 kl. 20:00 53. s
Lau 9/3 kl. 20:00 48. s Fim 14/3 kl. 20:00 51. s Sun 17/3 kl. 20:00 Lokas.
Sun 10/3 kl. 20:00 49. s Fös 15/3 kl. 20:00 52. s
Síðustu sýningar komnar í sölu.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fös 8/3 kl. 20:00 41. s Fös 15/3 kl. 20:00 43. s Lau 30/3 kl. 20:00 45. s
Lau 9/3 kl. 20:00 42. s Lau 23/3 kl. 20:00 44. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Kæra Jelena (Litla sviðið)
Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s
Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s
Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s
Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s
Kvöld sem breytir lífi þínu.
Club Romantica (Nýja sviðið)
Sun 10/3 kl. 20:00 4. s Lau 16/3 kl. 20:00 5. s Fös 22/3 kl. 20:00 6. s
Hvað varð um konuna?
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Lau 13/4 kl. 20:00 aukas.
Aukasýning komin í sölu.
Bæng! (Nýja sviðið)
Fös 26/4 kl. 20:00 Frums. Mið 8/5 kl. 20:00 4. s Fim 23/5 kl. 20:00 7. s
Sun 28/4 kl. 20:00 2. s Fim 9/5 kl. 20:00 5. s Sun 26/5 kl. 20:00 8. s
Fös 3/5 kl. 20:00 3. s Fim 16/5 kl. 20:00 6. s Fim 30/5 kl. 20:00 9. s
Alltof mikið testósterón
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas.
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2019
Gjöfin frá Amy Engilberts nefnist
sýning á verkum samtímalista-
manna sem Listasafn Íslands hefur
eignast fyrir tilstuðlan listaverka-
sjóðs Amalie Engilberts sem opnuð
verður í dag. Á
sýningunni eru á
þriðja tug verka
eftir Bjarka
Bragason, Bryn-
hildi Þorgeirs-
dóttur, Eygló
Harðardóttur,
Guðmund Thor-
oddsen, Helga
Þórsson, Hildi-
gunni Birgis-
dóttur, Huldu
Vilhjálmsdóttur, Jeannette Castioni,
Jón Axel Björnsson, Magnús Helga-
son, Pétur Thomsen, Siggu Björgu
Sigurðardóttur og Þórdísi Aðal-
steinsdóttur.
„Það eru til óteljandi leiðir til að
setja saman sýningar. Þessi sýning
er forvitnileg sökum þess að við ár-
leg innkaup í safneignina var undir-
liggjandi sú kvöð að sýna þau sam-
an,“ segir Harpa Þórsdóttir,
safnstjóri Listasafns Íslands, sem
situr í sýningarnefnd sýningarinnar
ásamt Dagnýju Heiðdal, Júlíu Mar-
ínósdóttur og Ragnheiði Vignis-
dóttur. Á liðnum áratug hafa sam-
tals fimm innkaupanefndir
Listasafns Íslands keypt verk sýn-
ingarinnar samkvæmt forskrift frá
Amalie Engilberts, sem jafnan var
kölluð Amy og var vinsæl spákona
hérlendis á sínum tíma. Amy var
dóttir Jóns Engilberts listmálara og
Tove Engilberts. Hún fæddist í Dan-
mörku 1934 og lést hérlendis 2007.
Örlagavaldar safnsins
„Amy var einn fjölmargra vel-
unnara safnsins, en velunnarar
safnsins eru örlagavaldar safnsins í
sögulegum skilningi,“ segir Harpa
og bendir á að framlag hinna ýmsu
velunnara safnsins hafi verið órjúf-
anlegur þáttur í sögu uppbyggingar
safneignar Listasafns Íslands.
„Safnið er það sem það er í dag,
bæði í eigin húsnæði og m.t.t. safn-
eignarinnar, fyrir verk velunnara
sem eru margir hverjir almennir
borgarar með hugsjónir.“
Harpa rifjar upp að Amy hafi,
þegar hún lést, ánafnað fjármunum
sem nam 11,5 milljónum króna til
Listasafns Íslands til kaupa á nýjum
verkum í safneign safnsins. „Safnið
hefur hlotið dánargjafir áður, en
þetta var í fyrsta sinn sem slíkri gjöf
var ætlað að auka við safneignina
með skipulögðum hætti. Með gjöf-
inni fylgdu skilyrði um að kaupa ætti
nýja íslenska myndlist næstu 10 árin
og að þeim tíma liðnum halda sýn-
ingu á þeim verkum sem keypt
höfðu verið,“ segir Harpa og bendir
á að markmið Amy með þessari
rausnarlegu gjöf hafi verið að heiðra
minningu föður síns. „Yfirleitt er
það þannig að safninu er gefin
ákveðin verk, en af göfuglyndi sínu
felur Amy safninu sjálfu að meta
hvaða verk skuli kaupa. Sýningunni
er ætlað að heiðra minningu Amy
fyrir það sem hún er að gefa sam-
félaginu,“ segir Harpa og dregur
ekki dul á að í sýningunni séu einnig
falin skilaboð. „Ég er alveg ófeimin
við að hvetja bæði borgara og fyrir-
tæki til að gerast velunnarar Lista-
safns Íslands, slíkt er hluti af menn-
ingarlífi þjóða.“
Málþing um velgjörðarmenn
Að sögn Hörpu endurspegla verk-
in sem innkaupanefndirnar hafa
keypt á umliðnum áratug úr sjóði
Amy þann fjölbreytileika sem er
ríkjandi hjá starfandi listamönnum í
dag. „Það hefur verið mjög gaman
að leita að verkum inn í þetta sam-
hengi,“ segir Harpa og bendir á að
„Spádómar og snilligáfa“ eftir Eygló
Harðardóttur hafi verið fyrsta verk-
ið sem keypt var. „Það er auðvitað
við hæfi í ljósi þess hver Amy var að
kaupa verk með þessu heiti,“ segir
Harpa og tekur fram að gaman sé að
hafa á sýningunni verk eftir Eygló í
ljósi þess að hún var nýverið útnefnd
myndlistarmaður ársins.
Í ljósi þess að um er að ræða
óhefðbundna leið til að setja saman
sýningu liggur beint við að spyrja
hvort samsetning verkanna á sýn-
ingunni myndi heildstæða heild.
„Þegar síðasta innkaupanefndin fór
að sjá fyrir endann á þessum inn-
kaupum fórum við að hugsa um sýn-
inguna og hvernig hún yrði. Það er
glettilega merkilegt samtal milli
verka úr ólíkum miðlum, sem dæmi
vídeóverk, innsetningar, vatnslita-
verk, ljósmyndir, skúlptúr og mál-
verk. Það er ekki síst áhugavert að
sjá samtímasenuna og allan þann
kraft sem sýningin afhjúpar. Hvað
inntakið varðar, þ.e. sjálf umfjöll-
unarefnin, þá spanna þau allt frá
innhverfri íhugun í anda verks
Eyglóar yfir í ádeiluverk á borð við
ljósmyndaverk Péturs Thomsen um
Kárahnjúkavirkjun.“
Á sunnudag kl. 14 leiðir Dagný
Heiðdal listfræðingur gesti um sýn-
inguna og 6. apríl kl. 10.30 stendur
Listasafn Íslands fyrir málþinginu
„Velgjörðarmenn myndlistar“. Þar
ræðir Harpa um velgjörðarmenn
Listasafns Íslands, Ragnheiður
Pálsdóttir safnafræðingur um vel-
gjörðarmanninn Ragnar í Smára,
Edda Halldórsdóttir listfræðingur
um velgjörðarmenn Kjarvals og
Kjarval sem velgjörðarmann og loks
Skúli Gunnlaugsson hjartalæknir
um velgjörðarmenn myndlistar í
samtímanum. silja@mbl.is
Rausnarleg gjöf
Sýning opnuð á verkum sem Listasafn Íslands hefur
eignast fyrir tilstuðlan listaverkasjóðs Amalie Engilberts
Harpa
Þórsdóttir
Reisn Kona í fullri reisn nefnist verk eftir Huldu Vilhjálmsdóttur frá 2001.
Streymisveitan
Netflix mun í
samstarfi við erf-
ingja hins dáða
kólumbíska rit-
höfundar Gabr-
iel García Már-
quez (1927-2014)
ráðast í gerð
þáttaraðar sem
byggist á þekkt-
ustu skáldsögu
höfundarins, Hundrað ára einsemd
sem kom fyrst á prent árið 1967 og
er líklega þekktasta saga Suður-
amerískra bókmennta.
Þetta verður í fyrsta skipti sem
Hundrað ára einsemd verður kvik-
mynduð. Samkvæmt The New York
Times verða synir höfundarins
meðframleiðendur þáttanna og
segja þeir marga hafa falast eftir
kvikmyndaréttinum gegnum tíðina
en höfundurinn taldi að þessi mikla
saga hentaði ekki einni eða tveimur
kvikmyndum og hafnaði því slíkum
óskum. Þá vildi hann að kvikmynd-
ir gerðar eftir henni yrðu leiknar á
spænsku og verður farið eftir þeirri
ósk við gerð þáttanna.
Gabriel García
Márquez
Kvikmynda Hundr-
að ára einsemd
Tónlistarkonan Taylor Swift hef-
ur einsett sér að verða virkari í
stjórnmálaumræðunni í aðdrag-
anda forsetakosninganna í
Bandaríkjunum 2020. Í nýjasta
tölublað tímaritsins Elle segist
hún finna til ákveðinnar ábyrgð-
ar gagnvart því að fordæma
ógeðfellda orðræðu. „Ég vil ekki
að leiðtogar landsins ýti undir
kynþáttafordóma og veki ótta
með því að tala undir rós. Mér
finnst það vera á mína ábyrgð að
nota áhrifamátt minn til að vinna
á móti svo ógeðfellri orðræðu,“
skrifar Swift í grein þar sem hún
skrifar um þá 30 hluti sem hún
hefur lært fyrir þrítugt. „Ég mun
leggja meira af mörkum, enda
mikilvægar kosningar fram und-
an á næsta ári.“
Swift tók í fyrsta sinn skýra
pólitíska afstöðu seint á síðasta
ári þegar hún á instagramsíðu
sinni lýsti opinberlega yfir stuðn-
ingi við tvo frambjóðendur demó-
krata í heimaríki sínu, Tenn-
essee, í þingkosningunum í
nóvember 2018
og hvatti fólk til
að kjósa. Í kjöl-
far færslu henn-
ar bættist met-
fjöldi á
kjörskrá.
Í fyrrnefndri
grein í Elle út-
skýrir Swift
hvers vegna hún
hafi ekki tekið
pólitíska afstöðu fyrr og hvers
vegna hún hafi valið að taka af
skarið í fyrra. „Ég er að finna
rödd mína hvað snýr að pólitík.
Ég gaf mér góðan tíma til að
kynna mér pólitíska kerfið og
hvernig ákvarðanir eru teknar
sem hafa áhrif á daglegt líf okk-
ar. Í mörgum tilvikum sé ég að
ákvarðanir eru teknar sem hafa
neikvæð áhrif á varnarlausustu
borgarana. Mér fannst ég þurfa
að láta rödd mína heyrast og
reyna að hafa áhrif,“ segir Swift
sem er með 114 milljónir fylgj-
enda á samfélagsmiðlum.
Taylor Swift mótmælir
ógeðfelldri orðræðu
Taylor
Swift
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Sun 5/5 kl. 13:00 56.sýn
Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn Sun 5/5 kl. 16:00 57.sýn
Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn Sun 12/5 kl. 13:00 58.sýn
Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn Sun 12/5 kl. 16:00 59.sýn
Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn Sun 19/5 kl. 13:00 Auka
Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Sun 28/4 kl. 13:00 54.sýn Sun 19/5 kl. 16:00 Auka
Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Sun 28/4 kl. 16:00 55.sýn
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Fös 8/3 kl. 19:30 16.sýn Lau 23/3 kl. 19:39 18.sýn Fös 5/4 kl. 19:30 20.sýn
Lau 9/3 kl. 19:30 17.sýn Fös 29/3 kl. 19:30 19.sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið)
Fös 15/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 3/5 kl. 19:30
Lau 16/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 7.sýn
Fös 22/3 kl. 19:30 5.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 8.sýn
Fyndinn og erótískur gamanleikur
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Fös 8/3 kl. 18:00 13.sýn Lau 23/3 kl. 15:00 17.sýn Sun 31/3 kl. 15:00 22.sýn
Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn Lau 23/3 kl. 17:00 18.sýn Sun 31/3 kl. 17:00 23.sýn
Lau 9/3 kl. 17:00 Auka Sun 24/3 kl. 15:00 19.sýn Lau 6/4 kl. 15:00 24.sýn
Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn Sun 24/3 kl. 17:00 20.sýn Sun 7/4 kl. 15:00 25.sýn
Sun 17/3 kl. 17:00 16.sýn Lau 30/3 kl. 15:00 21.sýn
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn)
Lau 16/3 kl. 19:30 Frums. Fim 28/3 kl. 19:30 6.sýn Mið 10/4 kl. 19:30 Aukas.
Mið 20/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 7.sýn Fim 11/4 kl. 19:30 9.sýn
Fim 21/3 kl. 19:30 3.sýn Mið 3/4 kl. 19:30 Aukas. Fös 12/4 kl. 19:30 10.sýn
Fös 22/3 kl. 19:30 4.sýn Fim 4/4 kl. 19:30 8.sýn
Mið 27/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 Aukas.
Nýtt og bráðfyndið leikrit, fullt af "gnarrískum" húmor
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 13/3 kl. 20:00 Mið 27/3 kl. 20:00 Mið 10/4 kl. 20:00
Mið 20/3 kl. 20:00 Mið 3/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 8/3 kl. 19:30 Lau 9/3 kl. 22:00 Fös 15/3 kl. 22:00
Fös 8/3 kl. 22:00 Fim 14/3 kl. 21:00
Lau 9/3 kl. 19:30 Fös 15/3 kl. 19:30
Dimmalimm (Brúðuloftið)
Lau 16/3 kl. 14:00 Lau 23/3 kl. 14:00 Lau 30/3 kl. 14:00
Ástsælasta ævintýri þjóðarinnar
Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 17/3 kl. 20:00
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200