Morgunblaðið - 08.03.2019, Page 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2019
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is
„Veist þúað skilgreining
á sótthitabreytist eftir aldri?
Thermoscaneyrnahita-
mælirinnminnveit það.“
Braun Thermoscan
eyrnahitamælar fást í öllum
lyfjaverslunum
ThermoScan® 7
Jonathan Fine-
gold, stofnandi
tónlistarútgáfu-
fyrirtækisins Fine
Gold Music
(FGM), heldur
masterklassa á
Stockfish-
kvikmyndahátíð-
inni í Bíó Paradís
í dag frá kl. 16 til
18. Þar mun hann fræða viðstadda
um yfirumsjón tónlistar í kvikmynd-
um og sjónvarpsefni og í framhald-
inu verða haldnar stuttar pallborðs-
umræður um efnið með nokkrum
fulltrúum frá innlendum aðilum á
sviðinu. Í pallborði munu sitja, auk
Finegold, þau Guðrún Björk Bjarna-
dóttir frá STEF, Pétur Jónsson frá
Medialux og Cheryl Ang frá ÚTÓN
sem einnig mun stýra umræðum.
FGM er umboðsaðili vinsælla og
sjálfstæðra merkja og tónlistar-
manna á borð við Westbound og Em-
inem og Finegold hefur starfað sem
tónlistarleiðbeinandi fyrir ýmsar
kvikmyndir og heimildarmyndir.
Aðgangur er ókeypis.
Masterklassi með
Jonathan Finegold
Jonathan Finegold
Rapparinn R.
Kelly er aftur
kominn í fang-
elsi, rétt tæpri
viku eftir að hafa
verið leystur
þaðan út gegn
tryggingu.
Ástæða fangels-
unarinnar í þetta
sinn eru himin-
háar skuldir Kellys vegna ógreidds
meðlags en áður hafði honum verið
stungið inn vegna ákæra um kyn-
ferðislegt ofbeldi. Kelly skuldar
fyrrverandi eiginkonu sinni
160.000 dali í meðlag, jafnvirði um
19,4 milljóna króna. Kelly var
ákærður í tíu liðum fyrir að hafa
beitt fjórar konur kynferðisofbeldi
og voru þrjár þeirra undir lögaldri
þegar brotin eiga að hafa átt sér
stað. Hann var settur í gæsluvarð-
hald og eftir að hafa verið leystur
út veitti hann viðtal. Aðeins örfáum
klukkustundum eftir að það var
birt var honum aftur stungið inn
vegna meðlagsskuldarinnar.
R. Kelly aftur á
bak við lás og slá
R. Kelly
Writing nefnist einkasýning Henn-
ing Lundkvist sem opnuð verður í
OPEN á Grandagarði 27 í dag kl.
19 en kveikt verður á hljóðverkum
kl. 20. Er þetta jafnframt fyrsta
sýning Lundkvist á Íslandi og
fyrsta myndlistarsýning hans frá
útgáfu fyrstu tveggja skáldsagna
sinna, Planned Obsolescence - A
Retrospective og Jolene sem gefn-
ar voru út í fyrra. „Þrátt fyrir að
Writing byggist á leifum og efni-
við áðurnefndra bóka, kemur hún
þeim alls ekki við,“ segir í tilkynn-
ingu. Öfugt við Writing saman-
standi bækurnar af skrifum – orð-
um sem sé raðað í langar
setningar á blað og á meðan Writ-
ing sé rými sundurskorið af mynd-
um og sýningin hugsuð til lesturs.
Lundkvist er sænskur og býr og
starfar sem myndlistarmaður og
rithöfundur í Kaupmannahöfn.
Hann vinnur með ólíka miðla og
má af þeim nefna texta, rödd,
hljóð og myndir. Hann hefur sýnt
og flutt gjörninga víða, m.a. í
Rollaversion Gallery í London,
Moderna Museet í Stokkhólmi og
Malmö og hafa verk hans birst í
útgáfum CLP Works, Atlas Pro-
jectos, Provence/Paraguay Press
og OEI Editör. Hann stjórnar
Ch’ien Chien, handahófskenndri
syrpu einstaka sýninga og við-
burða heima hjá honum.
Henning Lundkvist
sýnir Writing í Open
Einkasýning Verk á sýningu Henning Lundkvist í OPEN.
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Það er mikið flug í nýjum málverkum
Önnu Jóelsdóttur myndlistarkonu,
einskonar flugeldar og marglitar
sprengingar, litatónar sem flæða og
vella um milli lína og forma sem lista-
konan mótar með penna. „Já, það eru
læti í þessum myndum, það vantar
ekki,“ segir Anna þegar hún sýnir
blaðamanni verkin á sýningunni sem
hún kallar Einn á báti og verður opn-
uð í Tveimur hröfnum listhúsi á
Baldursgötu 12 í dag, föstudag,
klukkan 17.
Anna nam myndlist við The School
of the Art Institute of Chicago og
lauk þaðan MFA-námi árið 2002.
Hún hefur haldið margar einkasýn-
ingar og tekið þátt í enn fleiri sam-
sýningum, þar á meðal í Bandaríkj-
unum, á Íslandi og annars staðar í
Evrópu. Má þar á meðal nefna sýn-
ingar í Nýlistasafninu, Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarborg, Museum
of Contemporary Art í Chicago,
Listasafni ASÍ og hinu þekkta Stux
Gallery í New York en Anna vinnur
með því galleríi eins og Zg Gallery í
Chicago.
Anna flutti sig nýlega um set eftir
23 ár í Chicago og býr nú og starfar í
Reykjavík.
Í texta sem fylgir sýningunni úr
hlaði segir Anna að í myndsköpun-
inni geti einfalt verkfæri á borð við
penna hrint af stað hugmynd. „Með
penna get ég stýrt offlæði upplýs-
inga, hægum eða gjósandi tilfinn-
ingum, óreiðu, skilningi og misskiln-
ingi. Línurnar sem penninn dregur
skila því sem ég sé í huga mér á flöt-
inn og skapa þar eigin veröld –
abstrakt samhengi fyrir brota-
kenndar hugsanir. Þegar teikningin
umbreytist í málverk koma til pensl-
ar og litir sem víkka þessa veröld út.
Verkin spretta af óeirð, skýrri sýn og
óvissu, og þróast svo í samtal milli
óvissu og þekkingar, skynsemi og til-
finninga,“ skrifar hún.
„Eitt verkanna hér málaði ég
skömmu eftir að ég flutti aftur heim
fyrir fjórum árum en á öllum hinum
byrjaði ég í fyrra,“ segir Anna um
sýninguna. „Og þau taka sinn tíma;
það er átta vikna vinna í þessum
stóru.“ Hún segist líta á hvert verk
sem einskonar abstrakt smásögu,
þar sem má lesa milli línanna eins og
í ljóðum, og titlarnir vísa til þess. „Ég
er að fást við áreitið og óreiðuna,
hugsanir og minningar, ýmislegt sem
ég skil eða skil ekki; það er alltaf
spenna á milli alls þessa. Titlarnir
eru eins og myndirnar, gefa eitthvað
til kynna sem má leika sér með að
hugsa um þegar horft er á þær.“ Hún
rennir augum yfir salinn og telur
nokkra titlanna upp: „Bleksvört
lygi,“ „Hún söng dirrindí“, „Flýtur á
bleikum fjöðrum,“ „Dúkað á dimm-
um sandi“ og loks „Einn á báti“.
Frá fyrri sýningum Önnu þekkir
fólk hvernig hún er vön að vinna
margbrotnar innsetningar inn í rým-
in, með marglitum pappír og fleiri
efnum. Hér glittir aðeins í slíkt, í litlu
slíku verki við glugga í salnum og þá
hefur hún líka unnið marglit form á
glerið. „Það er orðið mjög langt síðan
ég hef gert svona sýningu þar sem
málverkið er útgangspunkturinn,“
segir Anna. „En sjáðu þetta verk
þarna, það eins og slettist upp af því
og á glerið,“ segir hún og sýnir hreyf-
ingu litanna með hressilegri hand-
arsveiflu.
Grunnþáttur í verkum Önnu er
einmitt sprengingar og litríkir flug-
eldar. „Það verður til svo mikil
spenna í óvissunni,“ segir hún til út-
skýringar á því. „Ég reyni ekki að ná
stjórn á óreiðunni en úr öllu þessu
uppbroti, úr hljóðum, minningum og
orðum, reyni ég að búa eitthvað til,
eitthvað sem endurspeglar það sem
ég er að upplifa.“
Hvernig veit hún hvenær verk er
tilbúið?
„Það er bara einhver tilfining sem
ég fæ og stundum skyndilega, að ég
megi ekki gera meira, það myndi
drepa verkið.
Þegar ég hef kannski unnið í mál-
verki í þrjár vikur þá fer það að
stjórna mér og þá er gaman. Fram að
því getur þetta verið ströggl.“
Þegar Anna sýndi í Listasafni ASÍ
árið 2014 þá var hún enn búsett í Chi-
cago og sagðist alltaf fljúga heim til
Íslands í huganum þegar hún færi að
vinna að nýjum verkum þar ytra. En
hvert leitar hugurinn nú, þegar hún
býr aftur hér?
Anna brosir að spurningunni og
segist vera með vinnustofu úti á
Granda. „Nú horfi ég bara til hafs!“
„Það eru læti í þessum
myndum, það vantar ekki“
Sýning Önnu Jóelsdóttur verður opnuð í Tveimur hröfnum listhúsi í dag
Morgunblaðið/Einar Falur
Litagleði „Úr öllu þessu uppbroti, úr hljóðum, minningum og orðum, reyni ég að búa eitthvað til,“ segir Anna.