Morgunblaðið - 08.03.2019, Síða 44
LONDON
KALLAR!
VERÐFRÁ
4.999k
Tímabil: apríl -
r.
maí 2019
DAGLEGT FLUG TIL LONDON STANSTED
London er ómissandi áfangastaður fyrir
alla sem vilja upplifa stuð og stemningu,
kíkja á söfn eða skella sér á söngleik.
Svo er auðvitað tilvalið að skottast til
Cambridge, sem er fæðingarstaður hinnar
goðsagnakenndu rokkhljómsveitar Pink
Floyd,og fær það af leiðandi nokkur rokkstig!
Geri aðrar borgir betur!
*Verðmiðast viðWOWbasic aðra leiðmeð sköttumef greitt ermeðNetgíró og flug bókað framog til baka.
Sinfóníuhljómsveit Íslands efnir til
barnastundar í Norðurljósum
Hörpu á morgun kl. 11.30 og er að-
gangur ókeypis. Tónleikarnir eru
um hálftími að lengd og á efnis-
skránni eru bæði fjörmikil og sígild
lög sem stytta biðina eftir vorinu.
Gestir eru hvattir til að mæta í
náttfötum og með uppáhalds-
bangsann sinn eða mjúkan kodda.
Kynnar eru Hjördís Ástráðsdóttir
og Sigurður Þór Óskarsson.
Barnastund Sinfóníu-
hljómsveitar í Hörpu
FÖSTUDAGUR 8. MARS 67. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Valdís Þóra Jónsdóttir náði í fyrri-
nótt besta skori íslenskrar konu á
golfmóti erlendis þegar hún lék
fyrsta hringinn á NSW Open mótinu
á Evrópumótaröðinni sem fram fer í
Ástralíu á aðeins 63 höggum og tók
með því forystuna í mótinu. Áður
höfðu hún og Ólafía Þórunn Krist-
insdóttir báðar leikið best einn
hring á 65 höggum. »1
Fyrst kvenna til að
leika á 63 höggum
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Rauða skáldahúsið heldur uppi
ljóðaveislum í leikhúsanda sem
fara fram í Iðnó fjórum sinnum á
ári. Áttunda sýning hússins verð-
ur í kvöld kl. 20 og í tilefni dags-
ins koma aðeins fram konur. Að
vanda geta gestir keypt einka-
lestra með skáldum kvöldsins,
látið spá fyrir sér, dansað, drukk-
ið og blandað geði hver við ann-
an. Aðalskáld
kvöldsins er
Elísabet Jök-
ulsdóttir og
yfirskriftin er
Nornaseiður,
en norn
hússins er
spákonan
Bára Hall-
dórsdóttir.
Elísabet Jökulsdóttir
skáld kvöldsins í Iðnó
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þegar fólk gistir á Copenhagen Star-
hótelinu á horni Istedgade og Col-
bjørnsensgade skammt frá aðaljárn-
brautarstöðinni í Kaupmannahöfn
eru miklar líkur á því að söngkonan
Karen Þráinsdóttir móttökustjóri
sjái um að skrá viðkomandi inn á hót-
elið eða geri upp við þá að dvöl lok-
inni. „Ég er á morgunvakt alla virka
daga aðra hverja viku og á kvöldvakt
hina vikuna auk þess sem ég tek oft
aukavaktir um helgar,“ segir hún
brosandi og jákvæð.
Íslendingar hafa lengi verið áber-
andi í Kaupmannahöfn. Þeir vinna
víða og þegar gengið er um miðbæ
höfuðborgar Danmerkur eru miklar
líkur á því að heyra íslensku manna á
milli. Það kemur ekki á óvart, því
hátt í 12.000 Íslendingar búa í Dan-
mörku og Kaupmannahöfn er einn
algengasti viðkomustaður Íslendinga
erlendis. „Það er alltaf gaman að
taka á móti Íslendingum og við fáum
marga gesti frá Íslandi, ekki síst
þegar frí er í íslenskum skólum,“
segir Karen.
Hún flutti af Njálsgötunni í
Reykjavík til Vig á Norður-Sjálandi,
skammt frá Holbæk, 2013. Var þá í
Menntaskólanum við Hamrahlíð, en
tónlistin heillaði meira og hún settist
á skólabekk í tónlistarlýðháskóla. Að
honum loknum tók hún stúdentspróf
ytra. „Mér leist strax vel á námið og
umhverfið og ákvað að láta á það
reyna að búa í Danmörku.“
Bróðir hennar býr með konu og
börnum í Lundi í Svíþjóð og for-
eldrar þeirra fluttu til Kaupmanna-
hafnar ekki alls fyrir löngu, ekki síst
til þess að vera nálægt börnunum.
„Það er alltaf gaman að koma til Ís-
lands en nú er fjölskyldan nánast í
kallfæri og samverustundirnar því
fleiri fyrir vikið. Það er algjör lúxus
að geta skroppið í mat til mömmu og
pabba.“
Gott að búa í Danmörku
Karen hefur búið á ýmsum stöðum
á Sjálandi og Jótlandi en segir að
draumurinn hafi alltaf verið að setj-
ast að í Kaupmannahöfn. „Ég vildi
vera þar sem flestir Íslendingarnir
eru, en vandamálið var fyrst að fá
vinnu og hafa efni á því að búa í borg-
inni, því það kostar sitt. Er í raun
rándýrt.“
Þrátt fyrir háa leigu segir Karen
að lífið virðist vera auðveldara í Dan-
mörku en á Íslandi. „Danir eru líkir
okkur, frekar lokaðir, en tónlistar-
senan er allt önnur og betri en á Ís-
landi, mikið framboð á tónleikum og
möguleikar til náms miklu meiri, en
mig langar til þess að halda áfram í
tónlistarnámi,“ segir Karen. Hún
bendir samt á að vegna mikillar
vinnu hafi hún ekki haft tíma til að
sinna söngnum sem skyldi. „Kærasti
minn, Michael Hansen, er upptöku-
stjóri með eigið stúdíó og ég reyni að
búa til eitthvað skemmtilegt þegar
ég get í frístundum.“
Karen hefur verið móttökustjóri á
Copenhagen Star í rúma þrjá mánuði
en starfað hjá Ligula-hótelkeðjunni í
eitt og hálft ár, var áður á Copen-
hagen Plaza. Keðjan er með fjögur
hótel í Kaupmannahöfn auk hótela í
Svíþjóð og Þýskalandi. „Það tók mig
nokkra mánuði að ná dönskunni
100%, en þetta er skemmtileg og vel
borguð vinna og ég verð hér áfram
að óbreyttu,“ segir móttökustjórinn
nánast syngjandi.
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Danmörk Karen Þráinsdóttir, móttökustjóri á Copenhagen Star-hótelinu, mætir morgunvaktinni með bros á vör.
Syngjandi móttökustjóri
Karen stendur vaktina á Copenhagen Star-hótelinu