Ófeigur - 01.05.1946, Page 1

Ófeigur - 01.05.1946, Page 1
3. órg. Reykjavík, maí 1946 2. tbl. Falsskeytið til Þingeyinga i. Fyrstu dagana í maímánuði 1946 reyndi lítill hópur manna í Reykjavík að gera Þingeyinga andlega ómynd- uga. Enginn þessara manna hafði haft nokkur veruleg kynni af Þingeyingum eða haft nokkra þýðingu fyrir at- vinnu- eða menningarstarfið í sýslunni. Helztir í þessum hópi voru Páll Zophoníasson, Sigurvin Einarsson, Guð- brandur Magnússon, Hermann Jónasson, Jón Hannesson í Deildartungu, Jens Hólmgeirsson, Bjarni Ásgeirsson og Gunnar Þórðarson í Grænumýrartungu. Þessum mönnum datt í hug sú ósvinna, að þeir gætu kúgað meginhluta af bezt mennta fólki í einu héraði á íslandi til að afhenda opinberlega sannfæringu sína og mannréttindi. Hér er um að ræða frumhlaup, sem er einstakt í sögu íslenzkra frelsis- og mannréttindamála, og þykir rétt að birta nú þegar skýrslu um málið, til viðvörunar góðu fólki í landinu. II. Seint í apríl s.l. fékk ég að vita frá Karli Kristjánssyni, formanni Framsóknarmanna í Suður-Þingeyjarsýslu, að nokkuð væri sótt á hann um að halda fulltrúaráðsfund í sýslunni, til að ákveða þar framboð fyrir vorið. Nefndi hann tiltekinn dag, sem væri hentugur, einkum, ef próf- kjör þyrfti að fara fram um alla sýsluna. Ég taldi málið koma mér nokkuð við og benti á, að ég gæti ekki verið kominn norður þennan dag, nema að hlaupa frá fjár- skiptamáli Þingeyinga óafgjörðu, en það taldi ég ekki fært, þar sem um væri að ræða hallærisvarnir fyrir hálfa

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.