Ófeigur - 01.05.1946, Blaðsíða 31
ÓFEIGUR
31
lands, sem lítt kunna til vinnubragða í deilum við bæjar-
menn, eins og glögglega kom fram 1944. Kom þar loks,
að frá hálfu stjórnarflokkanna var gert eins konar sátta-
tilboð um sjóðinn. Að láta hvert búnaðarsamband fá sí-na
peninga til jarðræktar- og búanðarframkvæmda á sínu
umráðasvæði. Ef ekki var gengið að þessu tilboði, var for-
ráð sj-óðsins ennþá raunverulega í höndum ríkisstjórnar-
innar. Um leið og þetta gerðist, hreinsaði Brynjólfur
Bjarnason úr öllum skólanefndum á landinu hvern ein-
asta mann borgaraflokkanna og setti kommúnista í stað-
inn. Urðu Sjálfstæðismenn og Alþýðuflokksmenn að búa
við sama réttleysi og Framsóknarmenn í þessum efnum.
Með smávægilegri verkaskiptingu í ríkisstjórninni getur
valdið yfir þessum sjóð verið komið í hendur Brynjólfs
eða Áka. Samkvæmt starfsháttum þeirra, hefðu þeir varið
þessum peningum eingöngu í þarfir sinna flokksmanna.
En þótt ekki sé gert ráð fyrir slíkri stjórn á sjóðnum að
staðaldri, þá er hitt sýnilegt, eins og Gunnar Þórðarson sá
_frá upphafi, að bæjarflokkarnir myndu í staðinn fyrir lög-
festingu Alþingis ætíð heimta einhvers konar yfirstjórn
og eftirlit með sjóðnum, ef honum yrði ekki varið til
beinna jarðræktarframkvæmda.
Ég hafði engan þátt átt í tíu króna frumvarpinu, eða
nokkrum kosningakappleik um búnaðarmálasjóðinn, en
yfirleitt haft sömu skoðun og Gunnar Þórðarson á mál-
inu. Nú kom málið til úrslita í efri deild. Þá var um
tven-nt að velja: Að fella tillögu neðri deildar og ráðstafa
sjóðnum aftur undir yfirráð ríkisstjórnarinnar, eins og
lögin höfðu verið. — Bændastéttin var þá framvegis
fjötruð og ómyndug um meðferð fjár, sem hafði verið frá
henni safnað. Eða samþykkja frumvarp neðri deildar og
korna sjóðnum þannig undir yfirstjórn bændanna, sinna
réttu eigenda. Ég tók þann kost, að hjálpa til að sh'ta fjöt-
urinn af bændum landsins. Nú er bændastéttin frjáls
ferða með sinn veltuskatt, og aldrei hefir bændum komið
betur að fá handbært fé til umráða en í þetta sinn.
í missögnum um þetta mál er fullyrt, að ef ég hefði
fellt frumvarp neðri deildar um búnaðarmálasjóð, myndu
bændur haft haft full umráð yfir fé sínu. Þetta eru vísvit-