Ófeigur - 01.05.1946, Side 16
16
Ó F E I G U R
XV.
Ég hefi ekki gagnrýnt þessa undarlegu „vinstri stjórnar
gróðrarstöð“ í Flóanum, af því að ég hefi í lengstu lög
vonað, að koma mundi í ljós einhver möguleiki til að gera
vit úr vitleysunni. En allar vonir hafa brugðizt. Síbería
er óhrekjandi vitnisburður um að Hermann Jónasson og
Steingrímur Steinþórsson þurfa að fá „neistann" annars
staðar að, ef þeir eiga að geta hrundið af stað lífvænlegu
m landnámi. Hermann mun aldrei finna „neistann“, en
Steingrímur getur orðið að meira gæfumanni en hann
hefir verið undangengin ár, ef hann leitar eftir samstarfi
við þá menn, sem meir líkjast Sigurði búnaðarmálastjóra
heldur en Ólafi í Gróðrarstöðinni.
En sá atburður, sem leiddi til þess, að Steingrímur bún-
aðarmálastjóri hlaut að verða fyrir nokkurri gagnrýni, var
þátttaka hans í frumhlaupi Búnaðarfélags íslands haustið
1944. Ólafur Thors og Herittann Jónasson lokkuðu stjórn
félagsins til að kalla saman aukaþing í sláttarlokin. Ólafur
og Hermann voru þá albúnir að mynda stjórn saman, en
þótti erfitt að ná sköttum til að bæta bændum dýrtíðina,
eftir sexmannasáttmálanum. Þeir lögðu hver að sínum
flokksmönnum að gefa eftir nálega 10% af lögmætum
tekjum sveitabænda. Búnaðarþingmönnum og Steingrími
búnaðarmálastjóra var talin trú um, að ef bændur gæfu
eftir tíunda hluta árstekna sinna, þá myndi hin nýja
stjórn knýja fram hækkun frá hálfu annarra stétta, sem
minnkaði alla dýTtíð í landinu.
Steingrímur búnaðarmálastjóri var í svo góðri trú, að
hann lánaði Ólafi Thors skrifstofu sína í hinu fátæklega
Búnaðarfélagshúsi, meðan hann var að beygja mótstöðu
búnaðarþingmanna úr Sjálfstæðisflokknum. Hins vegar
skaut Páll Zophoníasson skjólshúsi yfir Hermann og Ey-
stein, meðan þeir voru að sannfæra Framsóknarmenn á
búnaðarþingi um ágæti eftirgjafanna.
Nú vita allir hversti fór. Ekkert varð úr framleiðenda-
stjórninni. Hermann og Ólafur liöfðu lei-kið sér með Bún-
aðarfélag íslands. Yfirsjón stjórnar og framkvæmdarstjóra
Búnaðarfélags íslands var fyrst og fremst sú, að gera það