Ófeigur - 01.05.1946, Page 12

Ófeigur - 01.05.1946, Page 12
12 6 F E I G U R mönnum, sem vildu heyra skýringar um málið. Land- búnaðarnefndir, undir forystu Jóns á Akri, mæltu með málinu. Pétur Magnússon kvaðst mundi leggja fram fé til fjárskipta, ef Alþingi samþykkti tillögu þess efnis. Þá bárum við Bernharð Stefánsson og Garðar Þorsteins- son fram tillögu um fjárskipti. Urðu um hana nokkrar umræður, en áhugi ekki mikill. Tuttugu þingmenn voru ekki á fundi. Átta sátu hjá, en 24 studdu tillöguna. Var það í tæpasta lagi um stuðninginn, þar sem ekki var meiri hluti þings til fylgis. Þrír af þeim mönnum, sem álitu sig fædda til að fyrirskipa Þingeyingum hvaða skoðanir þeir eigi að hafa, reyndust síðbúnir í þetta sinn. Páll Zophon- íasson sat hjá, af því að hann taldi sennilegt að garna- veikin gæti náð bæði til sauðkinda og nautpenings. Var furðulegt, að síður þætti þörf hallærisvarna, ef tvær pestir legðu allan, en ekki hálfan, bústofn bænda í eyði. Meðan stóð á umræðunum viku þeir Eysteinn Jónsson og Stein- grímur Steinþórsson af fundi. Voru þeir þá sem óðast að undirbúa herferð sína á hendur Þingeyingum og þóttust hafa annað þarfara að gera en hindra landauðn í hérað- inu. Pétur Magnússon greiddi atkvæði með fjárskiptatil- lögunni einn af öllum ráðherrunum og taldi samþykkt málsins þýða það, að nú skyldi haldið áfram fjárskiptun- um í landinu, eftir því sem kringumstæður leyfðu. Fyrir mig voru þessi málalok ánægjuleg. Þegar ég ritaði fyrst um fjárskiptin í Degi fyrir'þrem árum, lá Þingeyjar- sýsla að kalla mátti varnarlaus gegn fjársýkivoðanum. Þá var meginhluti bændastéttarinnar á móti fjárskiptunum. Mæðiveikinefnd var erfið viðskiptis í þessu efni, og yfir- gnæfandi meirihluti Alþingis mótfallinn almennum fjár- skiptum. Nú hafði málð snúizt til betri vegar. Þingeyjar- sýslu var bjargað úr voðanum. Sýnilegt, að þar þurfti eng- inn bær, enn síður byggð, að leggjast í eyði af þeim völd- um. Mæðiveikinefnd mælti með málinu. Allt að helming- ur Alþingis studdi tillögu okkar þremenninganna. Og fjármála- og landbúnaðarráðherra landsins gekk feti fram- ar og taldi samþykkt tillögunnar upphaf að almennum fjárskiptum í landinu. Þetta þóttu mér ánægjuleg mála- lok, eftir þriggja ára viðleitni að fá málinu bjargað.

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.