Skessuhorn - 20.12.2005, Blaðsíða 34
34
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005
S
&
Kveðja úr Olafsvík
Þegar ferðast er um Snæfellsnes-
ið nú á aðventunni, vekja athygli
fallegar ljósaskreytingar sem aukist
hafa ár ffá ári. Þetta leiðir hugann
að þeirri miklu breytingu sem orð-
ið hefur á þjóðfélagsgerðinni frá
æskuárum mínum fyrir 1950. Það
var áður en raflýsingin hélt innreið
sína og það sem minnti helst á jól-
in í fátæklegu vöruúrvali verslana,
voru epli og appelsínur. Þá voru
ekki komin rafmagnsljós og því
notast við olíulampa, lugtir og
kerti til að lýsa upp skammdegis-
myrkrið. Myrkrið gat verið yfir-
þyrmandi og því gott að vita að
ljósið tæki við af myrkrinu um jól-
in. Og á aðventunni voru ljós og
lýsing mikilvæg vísbending um það
að jólin væru að koma.
A aðventunni var algengt í
heimasveit minni að fara út í hraun
og leita uppi fallegt lyng, setja það
á trégrind með greinum sem kerti
voru síðan fest á. Utbúa skraut,
gjarnan úr mislitum pappír, og
festa það á jólatréð. Nú kaupa
flestir lifandi jólatré ýmist í versl-
unum, hjá félögum sem selja þau í
góðgerðarskyni eða fá leyfi til að
fara út í skógræktina og velja þar
jólatré til að setja upp í stofunni.
Jólahelgin var að mestu ótrufluð
af utanaðkomandi áreiti og gleðin
var einlæg yfir þeim gjöfum sem þá
voru gefnar. Og síðan hófst jóla-
helgin með tilheyrandi kirkjuferð á
aðfangadag, eða með því að hlusta
á jólamessuna í útvarpinu.
En nú er öldin önnur í bókstaf-
legum skilningi. Jólaskreytingar
prýða heimili, götur og torg og á
aðventunni eru haldnar aðventu-
hátíðir og boðið upp á allskonar
uppákomur, jólahlaðborð, söng-
og tónlistaratriði, auk hinnar hefð-
bundnu jólaverslunar sem á hverju
ári verður umfangsmeiri og dýrari.
Og eldri borgarar á Snæfellsnesi
létu ekki sitt eftir liggja á aðvent-
unni að þessu sinni. Dagana 29.
nóv. til 4. des. fjölmenntu þeir á
sparidaga í Orkinni. Þar var dag-
skrá frá morgni til miðnættis, byrj-
að með morgunleikfimi, einnig
spiluð félagsvist, bingó og veitt til-
sögn í billjard og boccia. Mikið var
sungið, borðaður góður matur og
dansað á hverju kvöldi.
Félagsstarf eldri borgara fer vax-
andi, bæði í einstökum félögum og
sameiginlega og láta félögin sífellt
meira til sín heyra, nú síðast söfn-
uðu þau undirskriftum um áskorun
til Alþingis, um aukin réttindi og
bætt kjör og voru undirskriftarlist-
ar afhentir forseta Alþingis 9. des-
ember s.l.
Og þegar jólin nálgast, þá finn-
um við fyrir helgi þeirra og boð-
skap jólaguðspjallsins um barnið
sem fæddist í jötunni. Við finnum
að jólin eru hátíð hjartans, friðar
og kærleika.
Megið þið góðir lesendur njóta
gleðilegrar jólahátíðar og farsældar
á nýju ári.
Stefdn Jóhann Sigurðsson,
Snæfellshæ.
ý'nfo/f/ty f'i/cfuinar
Hamborgarhryggur
m/sykurhjúp og rauðvmssósu
Þær eru ófáar uppskriftirnar af
hamborgarhryggjum sem til eru
og margir eiga sér sínar uppá-
haldsuppskriftir sem órjúfanleg
hefð er komin fyrir. Hér er ein til-
laga fyrir þá sem enn eru að leita
sér að “sinni” uppskrift. Með fylg-
ir líka rauðvínssósa sem er að sjálf-
sögðu ómissandi með hryggnum.
1 1/2 kg hamborgarhryggur
Sykurhjúpurinn á hrygginn:
200 gr tómatsósa,
75 gr súrt sinnep (Dijon),
1 dós sýrður rjómi,
2 dl rauðvín,
1 dl kók (hrært vel saman),
150 gr sykur,
klípa af smjöri.
Rauðvínssósa:
kjötkraftur (hænsna),
pipar,
picanta (má sleppa),
hindherjasulta (ca. 2 msk),
rauðvín (smakkað til),
rjómi (smakkað til).
Smjörbolla:
100 gr smjör mjúkt,
100 gr hveiti hrært saman.
Hamborgarhryggurinn er soð-
inn í potti í 1 klst. Vatnið látið
fljóta vel yfir hrygginn, í soðið
þarf að setja saxaðan lauk, gulræt-
ur og 8 korn af heilum pipar.
Sykurhjúpur:
Sykur og smjör brúnað, öllu
hinu skellt útí þegar sykurinn er
farinn að ffeyða.
Hryggurinn settur í ofnskúffu
og penslaður að ofan með sykur-
blöndunni, 2-3 sinnum. Hafið
eingöngu yfirhita á ofhinum, þá
brúnast hjúpurinn fallega.
Rauðvínssósa:
Soðið af hryggnum sett í pott.
Bragðbætt með kjötkraftinum,
pipar og t.d. picanta.
Sósan bökuð upp með smjör-
bollu. Smjörbollan er sett
smámsaman út í soðið þar til að
hún er orðin nógu þykk. Bætið við
hindberjasultu, rauðvíni, rjóma og
bragðbætið með afganginum af
hjúpnum.
Marengsjólatré
Þetta er gómsætur og einstak-
lega fallegur eftirréttur. Gott er
að bæta í uppskriftina ferskum á-
vöxtum eftir smekk og kókosboll-
ur eru góðar með (þá teknar í
tvennt og stungið á milli hæða í
kökunni).
6 eggjahvítur
300 gr sykur
2 tsk edik
7 1/2 dl rjómi
200 gr dökkir siikkulaðispæmr
450 gr fersk jarðaber
Þeytið eggjahvíturnar, sykurinn
og edikið vel saman og setjið í
sprautupoka og sprautið á bökun-
arpappír þannig að úr verði litlir
toppar. Bakið í 11/2 klst við
135°C.
Stífþeytið rjómann og blandið
súkkulaðispónunum saman við.
Einnig er gott að blanda jarðar-
berjum eða öðrum ávöxtum saman
við rjómann.
Raðið marengstoppunum á
tertudisk (helst á fæti) þannig að
þeir þeki diskinn. Setjið rjóma of-
aná toppana en þó ekki alveg út
við ystu rönd. Setjið færri toppa á
næstu hæð og rjóma þar ofaná og
síðan koll af kolli þannig að kakan
mjókki eftir því sem ofar dregur
og endi í einum toppi.
Stdngið að lokum jarðarberjum
á milli marengstoppanna.
Verði ykkur að góðu!
Heimalagað
rauðkál
Heimalagað rauðkál er
ómissandi meðlæti á jólum.
Einnig er það tilvalin jólagjöf
handa vinum, setjið í krukkur og
skreytið með borða og greni.
1 stk. rauðkálshöfuð, um 1 kg
50-75 g smjör
1 tsk. salt
3 stk. negulnaglar
4 stk. piparkom
1/2 tsk. pipar
1 msk. rauðvínsedik
2 msk. rifsberjahlaup
1 dl hindberjasaft
1 stk. epli
1/21 vatn
Skerið rauðkálið og epli smátt.
Bræðið smjörið í stórum potti og
látið rauðkál og epli krauma í því í
nokkrar mínútur. Bætið kryddi,
ediki, rifsberjahlaupi, vatni og saft
saman við. Setjið negulnagla og
piparkorn í grisju, þannig að auð-
velt sé að fjarlægja að suðu lok-
inni. Látið þetta krauma undir
loki í um 45 mínútur, eða þar til
kálið er orðið mjúkt. Hrærið í
öðru hverju. Bætið örlitlu vatni út
í ef þarf.