Morgunblaðið - 14.05.2019, Síða 2
Fiðruðu vinirnir við Reykjavíkurtjörn hafa
löngum glatt vegfarendur sem þangað leggja
leið sína. Dúfur, endur, gæsir og álftir eru meðal
þeirra sem þar halda til og fúlsa ekki við brauð-
molum frá þeim sem að þeim gauka. Notalegt er
að setjast niður og spjalla við fugla himinsins.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í góðum félagsskap fugla
við Reykjavíkurtjörn
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2019
413,7 m2 eining
276,3 m2 eining
TIL SÖLU!
Upplýsingar:
Baldur s. 660 6470 baldur@verkefni.is
Gauti s. 894 8060
Flugvellir 20
Nýtt þjónustu- / iðnaðarhúsnæði nálægt Leifsstöð.
(3jamínútna akstur)
Í REYKJANESBÆ
Eða selt saman sem eitt húsnæði samtals
690m2. Stór lóð! Tilbúið til afhendingar,
fullbúið að utan og tilbúið til innréttingar
að innan með rafmagns- og hitalögnum.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Biskup Íslands hefur ákveðið,
byggt á samþykkt kirkjuþings
2018, að embætti sóknarprests í
Bústaðaprestakalli og embætti
sóknarprests í Grensásprestakalli
verði lögð niður 1. júní næstkom-
andi. Séra María Ágústsdóttir
hefur þjónað sóknarprestsembætti
Grensásprestakalls og mun halda
því áfram til mánaðamóta. Séra
Pálmi Matthíasson verður sóknar-
prestur í sameinuðu prestakalli,
Fossvogsprestakalli, frá 1. júní
næstkomandi.
Sameina tvö
prestaköll
Frumvarp heilbrigðisráðherra um
þungunarrof var samþykkt á Alþingi
um kvöldmatarleytið í gærkvöldi og
fagnaði fjölmennur hópur gesta á
þingpöllum úrslitunum. Frumvarpið
hlaut stuðning 40 þingmanna en 18
voru á móti og 3 greiddu ekki atkvæði.
Tekist var hart á undir atkvæða-
greiðslunni og tóku fjölmargir til máls
til þess að gera grein fyrir atkvæði
sínu. Vakti athygli að Sjálfstæðis-
flokkurinn var klofinn í málinu, en hin-
ir ríkisstjórnarflokkarnir studdu mál-
ið. Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði þungunar-
rof á 22. viku vera eitthvað sem væri
til þess fallið að veita konum úrræði í
undantekningartilfellum og væri ekki
léttvægur valkostur. Sigríður Ander-
sen, flokkssystir Bryndísar, nefndi
hins vegar að enginn sem hefði lýst
áhyggjum í málinu hefði verið mótfall-
inn sjálfsákvörðunarrétti kvenna.
Taldi hún frekar að mikilvægt væri að
umræðan yrði meiri til þess að tryggja
víðtækari sátt. Var tekist á um einstök
ákvæði frumvarpsins, sérstaklega
hvað varðaði heimild til þungunarrofs
að lokum 22. viku meðgöngu.
Treystir konum til fulls
Í umræðum um frumvarpið á Al-
þingi sagði Katrín Jakobsdóttir for-
sætisráðherra að sjálf hefði hún viljað
ganga lengra og treysta konum til
fulls með því að hafa engin tímamörk
á þungunarrofi. „Þetta er grundvall-
armál sem snýst um sjálfræði kvenna
að mínu viti, réttindi þeirra til að ráða
yfir eigin líkama og eigin lífi, langþráð
réttindamál, en um leið fylgir því
frelsi sem boðað er í frumvarpinu
mikil ábyrgð. Ég hef þá afstöðu að ég
treysti fólki og konum til að taka ekki
slíkar ákvarðanir af neinni léttúð. Ég
treysti konum fyrir þeirri ábyrgð sem
fylgir þessum réttindum,“ sagði Katr-
ín. „Einhverjir hefðu viljað ganga
lengra og hafa engin tímamörk á og
treysta konum til fulls. Það er mín
persónulega afstaða,“ sagði forsætis-
ráðherra sem brást þar við fyrirspurn
um málið frá Birgi Þórarinssyni,
þingmanni Miðflokksins.
Frumvarp um þungunarrof samþykkt
Sjálfstæðisflokkurinn klofnaði við afgreiðslu málsins á Alþingi Tekist á um heimild til þungunar-
rofs fram að lokum 22. viku Forsætisráðherra hefði viljað leyfa þungunarrof alveg fram að fæðingu
Ferðamenn beðnir að
mynda ekki börn án leyfis
Seyðisfjörður setur farþegum skemmtiferðaskipa reglur
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Seyðisfjörður hefur fyrstur bæjar-
félaga sett leiðbeinandi reglur til er-
lendra ferðamanna á skemmtiferða-
skipum sem koma til bæjarins. Mikil
umferð ferðamanna er um Seyðis-
fjörð yfir sumartímann og að sögn
Aðalheiðar Borgþórsdóttur bæjar-
stjóra stefnir í að 70 skemmtiferða-
skip komi til Seyðisfjarðar í sumar.
„Þetta byrjaði fyrir tveimur árum,
þá var hópur sem fór að ræða þessi
mál. Það var orðinn nettur pirringur
því fólk er að taka myndir inn um
glugga hjá fólki er jafnvel að ganga
inn í garða. Þetta er pínulítill bær og
það er rosalega mikil ferðmannaum-
ferð hér. Þá kviknaði þessi hug-
mynd,“ segir Aðalheiður.
Í reglum bæjarins er ferðamönn-
um m.a. bent á að íslensk börn leika
sér á leikvöllum nálægt skólum og
eru þeir vinsamlegast beðnir um að
taka ekki myndir af þeim nema með
leyfi frá foreldrum. Þá er ferða-
mönnum bent á að ganga vel um
náttúru landsins og skilja ekki rusl
eftir sig svo dæmi séu tekin.
Í samstarfi við AECO
„Við komumst í samband við
AECO sem eru samtök leiðsögu-
skipafyrirtækja á norðurslóðum.
Þetta eru samtök sem hafa verið að
vinna á Svalbarða og fleiri stöðum að
aðstoða fólk við að gera leiðbeining-
ar fyrir ferðamenn,“ segir Aðalheið-
ur. Fyrsta skemmtiferðaskipið kom
til Seyðisfjarðar 8. maí en að sögn
Aðalheiðar þarf bærinn að koma
reglunum betur á framfæri. „Þetta
er nýkomið út og það á eftir að taka
langan tíma að koma þessu í umferð
en í gegnum AECO mun þetta fara
til þeirra skipafélaga sem heyra und-
ir þeirra félagasamtök.“ Reglunum
verður einnig dreift í Norrænu sem
siglir vikulega til Seyðisfjarðar á
sumrin.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Seyðisfjörður Norræna kemur
með 1.200 farþega vikulega.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði við umræðurnar
á Alþingi í gær að sjálf hefði hún viljað ganga lengra með því
að hafa engin tímamörk á þungunarrofi. Spurð hvort túlka
eigi ummælin svo að leyfa eigi þungunarrof alveg fram að
fæðingu, segir Katrín svo vera. „Það er náttúrlega fordæmi
sem við höfum t.d. frá Kanada og það hefur ekki aukið þung-
unarrof og er þess merki að konum er í raun treystandi til
þess að taka þessa erfiðu ákvörðun,“ segir hún. „Ég hef að
sjálfsögðu skilning á því að þetta er flókið mál eins og ég
sagði í ræðu minni og ber virðingu fyrir öðrum sjónarmiðum
en ég lít svo á að það sé góður millivegur sem hér er farinn.“
Hefði viljað ganga enn lengra
FORSÆTISRÁÐHERRA UM ÞUNGUNARROF
Katrín
Jakobsdóttir
Stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins var
endurkjörin í gærkvöldi með mikl-
um meirihluta. Þrír eru kjörnir í
stjórn Lífeyrissjóðsins til þriggja
ára og tveir til tveggja ára og síðan
eru þrír varamenn til þriggja,
tveggja og eins árs.
Elín Þórðardóttir hlaut flest at-
kvæði en Elías Jónatansson litlu
færri. Ásamt þeim var Jón Guðni
Kristjánsson kosinn til þriggja ára í
stjórn. Þá voru þau Ásdís Eva
Hannesdóttir og Magnús Pálmi
Skúlason kjörin til tveggja ára í
stjórn sjóðsins.
Stjórn Frjálsa lífeyris-
sjóðsins endurkjörin