Morgunblaðið - 14.05.2019, Blaðsíða 4
Eftir að hafa setið í blaðamanna-
höllinni hérna í Tel Aviv heilan dag
og hlustað á lögin í undanriðli Ís-
lands aftur og aftur get ég fullyrt
að það yrði meiri skandall en deil-
urnar um þriðja orkupakkann ef
Hatari færi ekki í úrslit á laugar-
dagskvöldið.
Dómararennslið fór fram í gær-
kvöldi og Íslendingarnir stóðu fyrir
sínu, eins og von var á. Það sama er
kannski ekki hægt að segja um alla
aðra keppendur í riðlinum sem er
talinn sá slakari af sérfræðingum.
Ónefndur Eurovision-aðdáandi
sagði mér til að mynda að lag
Svartfellinga væri líklega það slak-
asta í keppninni í 45 ár.
Flestum Íslendingum er líklega
alveg sama um önnur lög þannig að
ég læt staðar numið í gagnrýni á
lög sem hefðu varla gengið á Live
pub þegar hann var og hét.
Hvort sem fólk viðurkennir það
eða ekki þá elska allir Íslendingar
þegar útlendingar tala fallega um
okkur. Það er nóg af því hér. Ég
leyfði leigubílstjóra sem hafði, ótrú-
legt en satt, ekki heyrt lag Hatara
hlusta á snilldina. Hann virtist fíla
lagið og hækkaði meira að segja í
græjunum á bílnum sínum. Að lok-
inni hlustun sagðist hann ætla að
kjósa okkur. Ég veit reyndar ekki
hvort maðurinn var einstaklega
kurteis af því að ég átti eftir að
borga honum eða hvort hann hafi
raunverulega heillast af kraftinum í
Hatara. Vonandi það síðarnefnda.
Tveir hollenskir blaðamenn sem
ég ræddi við voru nokkuð bjartsýn-
ir á að ofmetna hollenska lagið
myndi vinna en veðbankar telja þá
líklegasta til sigurs. Annar þeirra
var á leið í tveggja vikna brúð-
kaupsferð til Íslands í júní og sagði
að Tel Aviv væri ágætis undirbún-
ingur fyrir ferðina. Ekki út af hit-
anum eða óskiljanlegu stafrófinu,
heldur út af verðlaginu. Mér leið
alla vega eins og ég væri kominn
heim þegar ég var rukkaður um
það sem jafngildir 520 krónum fyrir
kaffibolla. Kannski er Reykjavík
ekki dýrasta borg í heimi eftir allt
saman?
Morgunblaðið/Eggert
Eurovision Sigurður Andrean Sigurgeirsson dansari og Matthías Haraldsson á sviðinu við dómararennslið í gær.
Leigubílstjórinn lofaði
að kjósa lag Hatara
Veðbankar telja hollenska lagið sigurvænlegast
Morgunblaðið/Eggert
Flottur Klemens Hannigan naut sín
virkilega á sviðinu í Tel Aviv í gær.
MORGUNBLAÐIÐ Í TEL AVIV
Jóhann Ólafsson
blaðamaður
Eggert Jóhannesson
ljósmyndari
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2019
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
K371 sófi
Fáanlegt í leðri og tauáklæði, margir litir
3ja sæta 2ja sæta og stólar
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
Erum á
facebook
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Bæjarráð eða bæjarstjórnir flestra
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
hafa það á dagskrá á næstu fundum
sínum að taka fyrir aðild að sameig-
inlegri fjármögnun er varðar und-
irbúning fyrir útboð fyrsta hluta
borgarlínu. Reykjavíkurborg sam-
þykkti fjárútlát til verkefnisins á
fundi borgarráðs í síðustu viku.
Eins og kom fram í máli Páls
Björgvins Guðmundssonar, fram-
kvæmdastjóra Samtaka sveitarfé-
laga á höfuðborgarsvæðinu (SSH), í
Morgunblaðinu í gær er vonast til
þess að hin sveitarfélögin samþykki
að koma að fjármögnuninni. Í verk-
efninu felst að sveitarfélögin leggi
samtals til 800 milljónir á árunum
2019 og 2020 og ríkið jafnhátt fram-
lag.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í
Garðabæ, segir að kynning á þessu
verkefni fari fram í bæjarráði í dag,
þriðjudag. Hann undirstrikar að
Garðabær sé til í að taka þátt í
þessu skipulagsferli og undirbún-
ingi borgarlínu með því skilyrði að
einnig náist samningur við ríkið.
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri
í Hafnarfirði, staðfestir að málið
verði tekið fyrir á bæjarstjórnar-
fundi á morgun, miðvikudag, og á
ekki von á öðru en að aðild bæjarins
að verkefninu verði samþykkt. Har-
aldur Sverrisson, bæjarstjóri í Mos-
fellsbæ, segir málið verða tekið fyr-
ir í bæjarráði á fimmtudag. Hingað
til hafi verkefnið verið litið jákvæð-
um augum og gerir hann ráð fyrir
því að það sama verði uppi á ten-
ingnum nú.
Frá Kópavogi bárust þau svör að
ekki væri komin dagskrá að næsta
bæjarráðsfundi sem fram fer á
fimmtudag. Þá er málið ekki á dag-
skrá bæjarstjórnarfundar sem hald-
inn er í dag, en fundað er næstu
þrjá þriðjudaga. Ásgerður Hall-
dórsdóttir, bæjarstjóri á Seltjarn-
arnesi, segir málið verða tekið fyrir
á næsta bæjarráðsfundi þann 23.
maí. Hún býst við umræðum og
skiptum skoðunum á fundinum, en í
bókun meirihlutans frá því í fyrra
kom fram að bæjarstjórn vildi
leggja megináherslu á frekari efl-
ingu Strætó og taldi hugmyndir um
nýja borgarlínu hæpnar, ekki síst
forsendur um heildarkostnað verk-
efnisins, áætlaða nýtingu og rekstr-
arkostnað.
Ekki í áætlun á Seltjarnarnesi
Ásgerður segir jafnframt að ekki
sé gert ráð fyrir fjármunum í þetta
verkefni í fjárhagsáætlun bæjarins
fyrir árið 2019. Það sé ekki heldur
gert í þriggja ára áætlun bæjarins
2020-2022. „Forsendur þessa verk-
efnis eru að ríkið komi að veruleg-
um hluta að þessari framkvæmd
eins og umræðan hefur ávallt verið
hjá bæjarfélögunum innan SSH,“
segir Ásgerður Halldórsdóttir.
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa flest undirbúning borgarlínu á dagskrá næstu funda sinna
Veltur á aðkomu ríkisins Borgarstjórn hefur samþykkt fjármögnun Seltjarnarnes sker sig úr
Funda um aðkomu að borgarlínu
Morgunblaðið/Hari
Samvinnuverkefni Stefnt er að því að framkvæmdir við borgarlínu hefjist
árið 2021 en bæði ríki og sveitarfélög taka nú fyrir undirbúning útboðs.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta verða áfram 12 Tónar eins og
verið hefur. Það verða bara fleiri og
fjölbreyttari ástæður til að kíkja við
hjá okkur,“ segir Lárus Jóhannes-
son, annar eigandi plötubúðarinnar
12 Tóna við Skólavörðustíg.
Lárus og félagar hans hafa sótt
um leyfi til að breyta húsnæði plötu-
búðarinnar, koma fyrir snyrtingum
fyrir gesti í kjallara hennar og
breyta í veitingastað. Umsókn
þeirra er nú í meðförum skipulags-
fulltrúa Reykjavíkurborgar.
„Hugmyndin er að þú getir komið
á föstudegi og náð þér í nýjustu vín-
ylplötuna og fengið þér glas af eðal-
rauðvíni um leið. Verslunin verður
rekin áfram með sama sniði, við ætl-
um bara að bæta við veitingum og
auka tónleikahald og uppákomur.
Til að mynda viljum við nýta betur
þennan risastóra garð sem við erum
með fyrir aftan húsið. Þetta er tón-
listarhús og þessar breytingar
munu vonandi auka upplifunina og
styrkja reksturinn,“ segir Lárus.
Hann segir að nú sé unnið að því
að gera breytingar svo húsnæðið
standist allar kröfur sem þarf til að
fá leyfi. Lárus leggur auk þess
áherslu á að ekki sé verið að opna
bar sem opinn verði fram á kvöld.
Hugmyndin sé einfaldlega að gera
12 Tóna enn betri. Þó má deila um
hvort þörf sé á því í ljósi þess að
breska blaðið NME valdi búðina
bestu plötubúð í heimi í fyrra. „Ef
þú ferð í bestu plötubúð í heimi þá
hlýtur allt sem í henni er að vera
best í heimi. Líka veitingarnar,“
segir Lárus í léttum dúr. „Þróunin
hefur verið í þessa átt. Þær plötu-
búðir sem hafa náð að sigla í gegn-
um þessar breytingar á rekstrar-
umhverfinu hafa gert eitthvað í
líkingu við þetta. Sumar hafa styrkt
sig enda hafa þær breiðari skír-
skotun,“ segir Lárus sem telur að
veitingasala gæti hafist innan nokk-
urra mánaða.
Eðalvín í bestu
plötubúð í heimi
Stefna að veitingasölu í 12 Tónum
12 Tónar Stefnt er að því að hefja
veitingasölu í kjallaranum.