Morgunblaðið - 14.05.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2019
Fjármálaskrifstofa Reykjavíkur-borgar vekur athygli á ýmsu í
nýkynntum reikningum borgar-
innar og kemur með ábendingar,
sem í raun eru
varnaðarorð.
Eitt af því sem
fjármálaskrif-
stofan vekur at-
hygli á er að
rekstrar-
afgangur borg-
arsjóðs árið 2018 var að langmestu
leyti, 3⁄4, til kominn vegna söluhagn-
aðar eigna, sem í eðli sínu er
skammgóður vermir.
Fjármálaskrifstofan bendir á aðmikilvægt sé að rekstur borg-
arsjóðs „skili verulegu veltufé frá
rekstri til að standa undir fjár-
mögnun“. Hlutfall veltufjár á móti
tekjum var 9,9%, sem tæpast getur
talist verulegt.
Fjármálaskrifstofan bendir líkaá að lán „OR sem hafa eig-
endaábyrgð nema um 94,7 ma.kr.
en bein ábyrgð borgarsjóðs á þeim
er um 88,6 ma.kr. Mikilvægt er að
gera aðgerðaáætlun hvernig þess-
um ábyrgðum verði mætt ef á reyn-
ir“.
Og fjármálaskrifstofan bætir viðað ljóst sé að OR standi
frammi fyrir „miklu útflæði erlends
gjaldeyris á næstu árum“ og að það
sé „mun meira en þær tekjur sem
OR kemur til með að afla í erlend-
um gjaldmiðlum“.
Þetta hljómar ekki traustvekj-andi. Og það vekur ekki heldur
traust að á sama tíma og borgin
glímir við slíkan vanda eigi að fara
í stórfellda skuldasöfnun til að
leggja borgarlínu sem mun aldrei
borga sig.
Væri ekki nær að borgaryfirvöldhlustuðu á varnaðarorðin?
Skollaeyrun
STAKSTEINAR
S JÁ L F S TÆÐ I S F L O KKUR I N N
Fyrir okkur öll
Hádegisfundurmeð Bjarna
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og
fjármála- og efnahagsráðherra verður gestur á hádegisfundi
Samtaka eldri sjálfstæðismanna á morgun, miðvikudaginn
15. maí, kl. 12 á hádegi í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Húsið verður opnað kl. 11:30.
Boðið verður upp á súpu við vægu gjaldi, 1.000 krónur.
Allir velkomnir!
Stjórnin.
SAMTÖK ELDRI SJÁLFSTÆÐISMANNA
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Á síðasta fundi borgarráðs voru sam-
þykktir sjö leigusamningar vegna
Arnarbakka 2-6 og Völvufells 13-21.
Reykjavíkurborg festi á síðasta ári
kaup á fasteignum í tveimur hverf-
iskjörnum í Breiðholti með það að
markmiði að styðja starfsemina þar.
Þeir sem engar tekjur hafa af sinni
starfsemi fá húsnæðið án endur-
gjalds en aðrir greiða kr. 1.000 fyrir
hvern fermetra.
Lagt er til að eftirfarandi aðilar
verði leigutakar í Arnarbakka 2:
Rauði kross Íslands, verkefni
Karlar í skúrum.
Velferðarsvið Reykjavíkur- borg-
ar, SmiRey – smíðastofa fyrir ein-
hverfa karla, tveir matshlutar.
Áhugahópur kennara og hand-
verksmanna, Verkstæði og kennslu-
rými.
Hjólakraftur á Íslandi, hjóla-
færni.
Fyrir er í húsinu leigutaki á veg- um
Reykjavíkurborgar, Hársnyrti- stof-
an Arnarbakka.
Lagt er til að eftirfarandi aðili verði
leigutaki í Arnarbakka 4-6:
Hljóðvera, upptökuver, Óli
Gneisti Sóleyjarson.
Fyrir eru í húsinu leigutakar á veg-
um Reykjavíkurborgar, Sveins- bak-
arí og matvöruverslun Iceland. Lagt
er til að eftirfarandi aðilar verði
leigutakar í Völvufelli 13-21:
Félagasamtökin Stelpur Rokka!,
þrír matshlutar.
Seljagarður 109, sjálfbær ræktun
– matjurtaræktun í borgarum-
hverfi.
Fyrir eru í húsinu leigutakar á
vegum Reykjavíkurborgar, Nýlista-
safnið, safnageymslur og vinnurý-
mi og Listaháskóli Íslands, sýning-
arsalur nema.
Gert er ráð fyrir í fjárfestingar-
áætlun ársins fjármagni til að bæta
gæði umhverfisins á þessum svæð-
um og lagfæra útlit húsanna til
bráðabirgða. sisi@mbl.is
Borgin leigir sjö
rými í Breiðholti
Ætlað að styrkja hverfiskjarnana
Arnarbakki Hleypa á meira lífi í
hverfiskjarna í Neðra Breiðholti.
Blindrafélagið, sem hélt aðalfund
sinn um helgina, mótmælir hug-
myndum um að leggja niður Hljóð-
bókasafn Íslands og færa starfsemi
þess undir Landsbókasafnið.
Forveri safnsins er Blindrabóka-
safn Íslands, sem á rætur í sam-
starfi Blindrafélagsins og Borgar-
bókasafns Reykjavíkur um
dreifingu hljóðbóka til félags-
manna. Vill Blindrafélagið fá við-
ræður við menntamálaráðherra um
að félagið taki að sér rekstur Hljóð-
bókasafnsins, að því er segir í til-
kynningu.
Vilja fá að reka
Hljóðbókasafnið