Morgunblaðið - 14.05.2019, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2019
PFAFF • Grensásvegi 13 • 108 Reykjavík • Sími: 414 0400 • www.pfaff.is
– þegar gæði og ending skipta máli.
síma- og tölvuh
eyrna
rtólSENNHEISE
R
14. maí 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 121.89 122.47 122.18
Sterlingspund 158.73 159.51 159.12
Kanadadalur 90.56 91.1 90.83
Dönsk króna 18.323 18.431 18.377
Norsk króna 13.946 14.028 13.987
Sænsk króna 12.668 12.742 12.705
Svissn. franki 120.14 120.82 120.48
Japanskt jen 1.1089 1.1153 1.1121
SDR 168.87 169.87 169.37
Evra 136.82 137.58 137.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.3063
Hrávöruverð
Gull 1285.4 ($/únsa)
Ál 1764.0 ($/tonn) LME
Hráolía 70.45 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Seðlabanki Íslands
hefur greint frá því að
boðuð skýrsla á hans
vegum um neyðarlánið
sem bankinn veitti
Kaupþingi í október
2008 upp á 500 milljónir evra frestist
um a.m.k. 10 daga frá áður áætlaðri
birtingu.
Þann 30. apríl greindi Morgunblaðið
frá því að skýrslan myndi koma út í dag,
14. maí, en samkvæmt upplýsingum frá
bankanum þarf að fresta skýrslunni þar
sem viðræður standa enn við aðila er-
lendis um birtingu upplýsinga. Þá segir
bankinn að væntanlega verði hægt að
birta skýrsluna eftir næstu vaxta-
ákvörðun, þ.e. 23. eða 24. maí.
Í skýrslunni er einnig ætlunin að
varpa ljósi á sölu SÍ á FIH-bankanum en
neyðarlánið var veitt gegn allsherjar-
veði í honum á sínum tíma.
Seðlabankinn boðaði ritun skýrsl-
unnar árið 2015. Margoft síðan hefur
því verið lýst yfir að birting hennar væri
á næsta leiti.
Seðlabankaskýrsla
frestast enn
STUTT
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Nálægt þrjú þúsund manns hafa náð
í app markaðstorgsins Noona á að-
eins einni viku, en með appinu getur
almenningur bókað tíma hjá 100
ólíkum þjónustu-
fyrirtækjum.
Á markaðs-
torginu, sem
einnig er vefur,
má finna margar
af vinsælustu
hárgreiðslustof-
um, snyrtistofum,
sálfræðistofum,
kírópraktorstof-
um og nuddstof-
um landsins, að
sögn Kjartans Þórissonar, stofnanda
og stjórnarformanns fyrirtækisins.
Appið byggist á forritinu Tímatal
sem hefur verið í þróun síðastliðin
fimm ár, en það er skipulags- og
tímaskráningarkerfi sem fyrirtæki
nota innbyrðis. Þar skrá starfsmenn
tíma sem þeir hafa bókað fram í tím-
ann, og alla viðskiptavini sem hafa
bókað tíma. Hafa íslensk fyrirtæki
að sögn Kjartans bókað tæplega
milljón tíma í gegnum kerfið frá því
það kom á markaðinn. „Ég settist
niður til að skrifa Tímatal þegar ég
var 18 ára gamall nemi í Verslunar-
skólanum. Upphafið var þannig að
eigandi hárgreiðslustofunnar Sjopp-
unnar hafði samband við mig og bað
mig að smíða svona kerfi. Núna
fimm árum seinna hefur teymið
stækkað og ég starfa að þessu með
tveimur af bestu vinum mínum.“
Óraði ekki fyrir umfanginu
Hann segir að á þeim tíma þegar
hann byrjaði að skrifa Tímatal hafi
hann ekki órað fyrir því að verkefnið
myndi verða jafn umfangsmikið og
raunin varð. „Fólk tók strax vel í
þetta, og þetta spurðist út. Þetta fór
svo að dreifast enn víðar þegar Jón
Hilmar Karlsson kom í teymið og fór
að sjá um sölumennskuna.“
Kjartan segir að allt frá byrjun
hafi rík áhersla verið lögð á að hlusta
grannt á viðskiptavini og vinna náið
með þeim. „Það viðhorf hefur komið
okkur alveg ótrúlega langt.“
Fyrirtækið hefur lengst af vaxið
innri vexti, en nýverið kom nýtt fé
inn í fyrirtækið í formi skuldabréfa-
láns með breytirétti í hlutafé. „Við
erum núna fluttir í nýjar skrifstofur
og erum að leita að hæfileikaríku
fólki til að stækka teymið og hjálpa
okkur að fylgja þessu eftir.“
Spurður um muninn á Tímatali,
sem um 170 fyrirtæki nota, og
Noona, segir Kjartan að Tímatal sé
innra kerfi fyrirtækjanna, en Noona
sé glugginn inn í það kerfi fyrir al-
menning. „Ég og þú getum núna
bókað beint lausa tíma hjá þessum
fyrirtækjum sem eru með lausnina,
því Tímatal veit allt um hvenær
tímar eru lausir. Þú getur bókað
tíma í klippingu, nudd, golfherminn
eða hjá sálfræðingi jafnvel þó að lok-
að sé hjá fyrirtækinu. Þú getur svo
séð alla tíma sem þú átt bókaða í
framtíðinni og ef eitthvað kemur upp
á getur þú líka afbókað.“
Kjartan telur að í framtíðinni
muni fólk hætta að bóka tíma í gegn-
um síma. „Ég held að það verði
smátt og smátt úrelt fyrirkomulag.
Við sjáum núna mikinn vöxt í net-
bókunum hjá okkur, en þær hafa
meira en tvöfaldast á seinustu 12
mánuðum. Þetta sparar tíma bæði
fyrir starfsmenn og almenning. Þeg-
ar slíkar lausnir koma fram á sjónar-
sviðið eru þær oft mjög fljótar að
hasla sér völl.“
Spurður um markhópinn segist
Kjartan hafa fundið að þessi smærri
fyrirtæki eigi oft ekki peninga til að
reka eigin tæknideild. „Við viljum
vera tækniarmur fyrir þau.“
Hann bætir við að þó að flest fyrir-
tækin í viðskiptavinahópnum séu
smærri þjónustufyrirtæki, þá eru
einnig stærri félög inn á milli, eins og
bílaumboðið Hekla. „Stærri fyrir-
tækin eru meira og meira að átta sig
á gildi þessara lausna.“
Þúsundir náðu í þjónustu-
appið Noona á einni viku
Skipulag Hægt er að bóka margvíslega þjónustu fram í tímann.
Tímabókanir
» Eigendur Tímatals og Noona
eru Kjartan Þórisson, Jón
Hilmar Karlsson og Gunnar
Torfi Steinarsson.
» 180 íslensk þjónustufyrir-
tæki hafa bókað rúmlega millj-
ón tíma í gegnum Tímatal.
» Rúmlega 60.000 tímar eru
bókaðir í hverjum mánuði, þar
af 6.000 í gegnum markaðs-
torgs-arm Tímatals: Noona.
Telja að bókanir í gegnum síma verði brátt úreltar Fengu fjármagn nýlega
Kjartan
Þórisson
Fyrirtækið Umbúðir & Ráðgjöf hef-
ur fest kaup á Pappír hf. Samúel
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, segir tilganginn með
kaupunum vera að styrkja vöru-
framboð félagsins með sérstaka
áherslu á umhverfisvænar lausnir og
stækka um leið viðskiptavinahópinn.
„Við keyptum Umbúðir & Ráðgjöf
snemma árs í fyrra. Sá rekstur hefur
gengið vel. Nú erum við að nýta
tækifærið til þess að halda áfram að
vaxa,“ segir Samúel við Morgunblað-
ið.
Sóknarfæri í pappír
Að sögn Samúels er fyrirtækið að
stíga inn á nýjan markað með um-
verfisvænum lausnum. Er stefnan að
nýta hratt þau sóknarfæri á mark-
aðnum sem bjóðast. „Þarna erum við
að kaupa fyrirtæki sem hefur selt
bréfpoka til minni aðila í 30 ár. Við
höfum ekki verið þar. Við höfum ver-
ið að þjónusta stærri matvælafyrir-
tæki,“ segir Samúel.
Umbúðir & Ráðgjöf var stofnað
árið 2001 og býður upp á alhliða
lausnir fyrir matvælaframleiðendur
hér á landi. Pappír hf. var stofnað ár-
ið 1988 af Sigurði Jónssyni og fjöl-
skyldu sem hafa alla tíð starfað við
reksturinn. Fyrirtækið hefur sér-
hæft sig í sölu á búðarkassa-, reikni-
véla- og posarúllum, auk sölu á um-
búðapappír, apótekarapokum og
pappírsburðarpokum. Pappír hf.
hefur einnig annast alla dreifingu til
viðskiptavina. peturh@mbl.is
Pokar Pappír hf. selur m.a. pappírs-
burðarpoka til verslana.
Festa kaup
á Pappír hf.
Fyrirtækið
Umbúðir & Ráðgjöf
breikkar vöruúrval