Morgunblaðið - 14.05.2019, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2019
Smiðjuvegi 66 • 580 5800 • landvelar.is
Loftpressur af öllum
stærðum og gerðum
SKRÚFUPRESSUR
Mikð úrval af aukahlutum
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Bretar, Frakkar og Þjóðverjar vör-
uðu Bandaríkjastjórn í gær við því
að auka frekar spennu í samskipt-
um sínum við Írani vegna kjarn-
orkusamkomulagsins, en Íranir til-
kynntu í síðustu viku að þeir
hygðust ekki lengur hlíta skilmál-
um þess að fullu.
Fjögur olíuflutningaskip urðu
fyrir dularfullum skemmdarverk-
um í Persaflóa í gær, en tvö þeirra
tilheyrðu Sádi-Arabíu, helsta
keppinauti Írans. Ekki var ljóst í
gær hver bæri ábyrgðina og köll-
uðu írönsk stjórnvöld eftir fullri
rannsókn málsins.
Mike Pompeo, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, frestaði fyrirhug-
uðum fundi sínum með Vladimír
Pútín Rússlandsforseta og Sergei
Lavrov, utanríkisráðherra Rússa, í
Moskvu um einn dag vegna
ástandsins.
Hélt Pompeo þess í stað til
Brussel, þar sem hann ræddi við
utanríkisráðherra Bretlands,
Frakklands og Þýskalands, sem
þar sátu á fundi utanríkisráðherra
Evrópusambandsins. Lýstu ráð-
herrar Evrópuríkjanna þriggja all-
ir yfir óánægju sinni með stefnu
Bandaríkjastjórnar í málinu sem
og að aukin harka virtist vera að
færast í samskipti Bandaríkjanna
og Írans, en Bandaríkjaher sendi í
síðustu viku flugmóðurskip og
langdrægar sprengjuflugvélar til
Persaflóa. Voru ráðherrar ríkjanna
þriggja jafnframt einhuga um að
samkomulagið frá 2015 væri besta
leiðin til þess að koma í veg fyrir
að Íranir eignuðust kjarnorkuvopn.
Sagði Jeremy Hunt eftir fund
sinn með Pompeo að bresk stjórn-
völd óttuðust að aukin hervæðing
Persaflóans gæti leitt til þess að
stríðsátök hæfust á milli Banda-
ríkjanna og Írans af slysni, og
hvatti til þess að báðir aðilar sýndu
stillingu.
Sagði Hunt það skipta mestu
máli að Íranir hæfu ekki aftur að
koma sér upp kjarnorkuvopnum,
því að slíkt myndi leiða til þess að
önnur ríki Mið-Austurlanda myndu
sækjast eftir því sama, sem aftur
yrði risaskref í ranga átt fyrir
þennan órólega heimshluta.
Vara við aukinni spennu
Óttast að átök geti hafist í Persaflóa „af slysni“ Pompeo til fundar í Brussel
AFP
Íran Mike Pompeo og Jeremy Hunt
funduðu í gær um málefni Írans.
Nigel Farage, formaður hins nýja Brexit-flokks, og
Ann Widdecombe, fyrrverandi þingmaður Íhalds-
flokksins og frambjóðandi Brexit-flokksins, leiddu kór-
söng á kosningafundi í norðurhluta Englands í gær.
Skoðanakannanir fyrir Evrópuþingkosningarnar í
næstu viku benda til þess að Brexit-flokkurinn njóti
fylgis um 34% kjósenda, á meðan Íhaldsflokkurinn, sem
nú er í ríkisstjórn, fær einungis um 10% stuðning.
AFP
Svífa hátt í skoðanakönnunum og söng
Saksóknarar í
Svíþjóð lýstu því
yfir í gær að þeir
hefðu hafið rann-
sókn á nauðg-
unarkæru gegn
Julian Assange,
stofnanda Wiki-
Leaks-heimasíð-
unnar, á ný, en
von þeirra er sú
að takast megi
að rétta yfir Assange áður en meint
brot fyrnist í ágúst á næsta ári.
Eva-Marie Persson, vararíkis-
saksóknari Svíþjóðar, sagði við fjöl-
miðla í gær að það væri enn rök-
studdur grunur um að Assange
hefði gerst sekur um nauðgun, og
að málinu hefði ekki verið lokað í
maí 2017 vegna skorts á sönnunar-
gögnum heldur vegna annarra
erfiðleika við rannsókn málsins.
Assange var dæmdur í Bretlandi
í upphafi mánaðarins í 50 vikna
fangelsi fyrir að hafa óhlýðnast fyr-
irmælum bresks dómstóls þegar
hann leitaði hælis í sendiráði Ekva-
dor árið 2012 frekar en að vera
framseldur til Svíþjóðar.
Hefja rannsókn
gegn Assange á ný
Julian
Assange
SVÍÞJÓÐ
Ranil Wickre-
mesinghe, for-
sætisráðherra
Srí Lanka, til-
kynnti í gær að
útgöngubann
hefði tekið gildi
um alla eyjuna
eftir að óeirðir
gegn múslimum
áttu sér stað í
þremur héruðum
í norðurhluta hennar. Á útgöngu-
bannið, sem tekur gildi á kvöldin,
að koma í veg fyrir frekara ofbeldi í
hefndarskyni fyrir hryðjuverka-
árásina á páskasunnudag þar sem
258 létust og nærri 500 særðust.
Mikil reiði ríkir meðal kristinna
manna á eyjunni í kjölfar hryðju-
verkanna og hefur hún brotist út í
ofbeldisverkum og óeirðum gegn
múslimum síðustu vikurnar.
Útgöngubann sett
á í kjölfar óeirða
Ranil
Wickremesinghe
SRÍ LANKA
Evrópusambandið varaði Tyrki við
því í gær að hefja leit að olíu og jarð-
gasi á hafsbotninum undan strönd-
um Kýpur. Sagði Federica Mogher-
ini, utanríkismálastjóri Evrópu-
sambandsins, að áform Tyrkja væru
ólögleg og að þeim yrði svarað á við-
eigandi hátt. Fylgdi sambandið þar
með í fótspor Bandaríkjamanna, sem
gagnrýndu tyrknesk stjórnvöld í síð-
ustu viku fyrir olíuleitaráform sín á
Miðjarðarhafi.
Sagði Mogherini eftir fund utan-
ríkisráðherra sambandsins að þeir
hvettu Tyrki til þess að sýna stillingu
og virða fullveldisrétt Kýpverja inn-
an efnahagslögsögu sinnar. Ítrekaði
hún jafnframt að Evrópusambands-
ríkin stæðu þétt við bakið á Kýpverj-
um í þessu máli.
Tyrknesk stjórnvöld hafa hins
vegar lýst því yfir að þau líti á svæðið
sem hluta af eigin landgrunni. Munu
Tyrkir því halda ótrauðir áfram með
olíuleit á svæðinu, en áformað er að
tilraunaboranir hefjist á næstunni og
standi fram til september næstkom-
andi.
Tyrkir hafa tvisvar áður veitt
ríkisolíufélagi sínu samsvarandi olíu-
leitarleyfi, árin 2009 og 2012. Talið er
að gríðarmiklar birgðir af jarðgasi
leynist í austurhluta Miðjarðarhafs-
ins, sem aftur hefur ýtt undir mis-
sætti á milli Kýpverja og Tyrkja,
sem hertóku norðurhluta eyjunnar
árið 1974 eftir deilur á milli þjóða-
brota Grikkja og Tyrkja á eyjunni.
Þá hóf tyrkneski flotinn heræf-
ingu í nágrenni Kýpur í gær, en 131
skip, 57 flugvélar og 33 þyrlur taka
þátt í æfingunni. Hulusi Akar, varn-
armálaráðherra Tyrklands, sagði á
sunnudaginn að Tyrkir myndu gera
hvað sem þyrfti til að verja réttindi
sín á Miðjarðarhafi.
Lýsa yfir stuðn-
ingi við Kýpur
ESB leggst
gegn olíuleitar-
áformum Tyrkja
AFP
Kýpur Federica Mogherini gagn-
rýndi olíuleitaráform Tyrkja í gær.
Kínverjar tilkynntu í gær að þeir
myndu hækka tolla á ýmsar banda-
rískar vörur 1. júní næstkomandi, en
ákvörðunin er tekin í hefndarskyni
fyrir tolla sem Bandaríkjastjórn
lagði á Kína um helgina.
Viðræður ríkjanna í tollamálum
sigldu í strand á föstudaginn og fyr-
irskipaði Donald Trump Bandaríkja-
forseti í kjölfarið að tollar yrðu
hækkaðir eða lagðir á flestar vörur
sem Kínverjar flytja út til Banda-
ríkjanna.
Samkvæmt tilkynningu Kínverja
munu sumar bandarískar vörur bera
allt að 25% háan toll eftir 1. júní
næstkomandi, en í tilkynningunni
var því jafnframt lýst yfir að Kín-
verjar vonuðust til þess að Banda-
ríkjamenn myndu skipta um skoðun
og vinna að því að finna samkomulag
sem hentaði báðum ríkjum. Þá væri
mögulegt að hætt yrði við tolla-
hækkunina ef ríkin ná samkomulagi
fyrir næstu mánaðamót.
Leggja
hefndartolla
á Bandaríkin
Taka gildi um
næstu mánaðamót