Morgunblaðið - 14.05.2019, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2019
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
SvandísSvav-arsdóttir
heilbrigðis-
ráðherra segir að
fóstureyðingar-
lögin, sem eru
önnur af tveimur
afmælisgjöfum
flokksforystu til fólksins
síns, séu komin úr Valhöll,
herbúðum þess flokks. Það
vekur nokkra undrun, þótt
viðurkenna megi að það sé
fátt sem veki undrun nú
orðið. Uppfinningamenn
hafa lengi reynt að finna
upp eilífðarvélina og ekki
tekist. Stjórnmálaflokkar
eru ekki eilífir og hafi þeir
ekki lengur fyrir neinu að
berjast styttist í tilverunni
og þýðir ekki að fárast yfir
því. Enda þarf það í sjálfu
sér ekki endilega að vera
harmsefni.
Stundum eru flokkar
stofnaðir um fá málefni og
jafnvel aðeins eitt. Nái það
fram geta menn á þeim bæ
glaðbeittir pakkað saman.
UKIP í Bretlandi var þess
háttar flokkur. Eftir að þeir
sem vildu ekki láta höggva
meira í fullveldi landsins
náðu meirihluta í þjóðar-
atkvæði hurfu helstu leið-
togar hans úr forystu og
kjósendur sáu ekki nauðsyn
á framhaldslífi fyrir hann.
Svo gerðist hið óvænta.
Stjórnmálamennirnir, sem
hver um annan þveran
höfðu lofað fyrir þjóðar-
atkvæðið að þeir myndu
virða niðurstöðuna töldu sig
eygja kost til að fara aftan
að kjósendum þrátt fyrir
það. Það var auðvitað auð-
velt fyrir þá sem börðust
fyrir „brexit“ að lofa því að
standa á bak við þjóðarvilja.
Ynnu þeir þá var stuðningur
þeirra sjálfgefinn. Töpuðu
þeir þá þyrfti engan atbeina
til.
Loforð hinna, sem börð-
ust fyrir áframhaldandi
veru í ESB var reyndar
einnig léttbært. Ynnu þeir
yrði landið kyrrt í ESB án
sérstakra ákvarðana og þeir
gætu áfram stutt sam-
bandið við að sneiða þunnar
sneiðar af fullveldi Breta.
Ef þeir töpuðu? Þannig vildi
til að „kannanir“ sögðu að á
því væri sáralítil hætta svo
þeir gætu sýnt ábyrgð og
lofað að standa við gefin
fyrirheit. En þeir töpuðu
óvænt.
David Cameron forsætis-
ráðherra sagði af sér morg-
uninn eftir. Íhaldsflokkur-
inn varð að velja
sér leiðtoga taf-
arlaust. Boris
Johnson þótti
líklegastur.
Segði leiðtogi af
sér vegna taps
þótti líklegast að
helsti merkisberi
sigursins úr röðum stjórn-
arflokksins tæki við. En
samherji hans sveik lit einni
nóttu síðar svo leiddi til
bræðrabyltu og annað
stjórnmálaslys varð til þess
að flokkurinn sat uppi með
Theresu May. Það reyndist
dýrkeypt. Hún boðaði til
kosninga sem fóru illa og
Íhaldsflokkurinn tapaði
þingmeirihluta sínum þótt
hann ynni 6% á. May hefur
haldið illa á sínum málum
og sundurlyndi í flokknum
aukist dag frá degi sem
jafnan gerist sé leiðsögnin
slöpp eða verri en engin.
Það er lýsandi fyrir klúð-
ur forsætisráðherrans að
Bretar eru lentir í því að
kjósa þingmenn til setu á
þingi sambandsins sem þeir
áttu að vera komnir úr! Nig-
el Farage, sem leitt hafði
UKIP-flokkinn, stofnaði
nýjan flokk fyrir mánuði og
honum er spáð 34% fylgi í
kosningunum eftir rétta
viku. Það er meira fylgi en
spáð er að Íhalds- og Verka-
mannaflokur fái sameigin-
lega í þessum kosningum.
Tony Blair sagði í sjón-
varpsviðtali um helgina að
Farage gæti fengið enn
meira fylgi en þetta.
Hitt er auðvitað þekkt
líka að spútnikflokkar geta
einnig skroppið saman á
kjördag. En hvað sem verð-
ur segir þetta mikla sögu
um upplausnina.
Danski Íhaldsflokkurinn
var stundum kallaður syst-
urflokkur Sjálfstæðis-
flokksins, þótt ekki væri
það nákvæmt. Hann skipti
lengi verulegu máli í dönsk-
um stjórnmálum. Seinast
var Poul Schlüter, forsætis-
ráðherra landsins, úr þeim
flokki og sat í 10 ár rúm,
’82-’93 sem forsætisráð-
herra og hefur það met ekki
verið jafnað af þeim forsæt-
isráðherrum sem setið hafa
síðan. Íhaldsflokkurinn
gerði aðild að ESB að aðal
og jafnvel eina máli sínu.
Flokknum er nú spáð
þriggja prósenta fylgi í
kosningunum í næsta mán-
uði í Danmörku og því ekki
útilokað að hann fái menn á
þing.
Stjórnmálaflokkar
nútímans, nær og
fjær, eru ekki
stefnufastir og bera
æ minni virðingu
fyrir kjósendum}
Það er þungt í fólki
E
in áhrifamesta tækni stjórnmála-
manna er að benda á óvin og
skapa ótta. Óvinurinn getur ver-
ið raunverulegur maður, þjóð,
sjúkdómur eða jafnvel hug-
mynd eða hlutur. Alls ekki er nauðsynlegt að
neitt af þessu sé til, nóg er að það gæti verið
til eða orðið til.
Pólitíkusar sem beita þessari tækni ná oft
miklum árangri. Nefna má yfirlýsingar
McCarthys öldungadeildarþingmanns í
Bandaríkjunum, sem ollu fári um miðja síð-
ustu öld, um að tugir eða hundruð flokksbund-
inna kommúnista ynnu hjá ríkinu. Þó að hann
segðist hafa lista með 57 eða 205 nöfnum
kommúnista í höndunum komst hann upp með
að sýna þá lista aldrei. Hann beitti þeirri
tækni að draga aldrei í land, jafnvel þó að sýnt
væri að hann færi með staðlausa stafi.
Í nútímanum sjáum við mörg dæmi um þetta. Fólk
neitar að láta sprauta börnin sín gegn sjúkdómum af ótta
við ímyndaðar afleiðingar bólusetningarinnar. Fals-
áróður er settur fram og jafnvel þó að hann sé til baka
borinn trúa einhverjir honum. Það er oft nóg fyrir
stjórnmálamanninn sem spilar á ótta þessa hóps.
Rússar hafa náð miklum árangri með þessum aðferð-
um. Þeir finna þá afkima samfélagsins þar sem jarð-
vegur er frjór fyrir slíkan málflutning og dæla honum
þar út. Nú síðast hefur rússnesk sjónvarpsstöð í Banda-
ríkjunum, RT America, sent út sjö þætti um hætturnar
af 5G-símkerfum sem geti valdið „krabbameini í heila,
ófrjósemi, einhverfu, hjartaæxlum og Alzheimers-
heilabilun“. Engin vísindaleg rök eru fyrir
þessum fullyrðingum og Rússar vinna sjálfir
að 5G-kerfi, en vilja skapa tortryggni í
Bandaríkjunum og tefja þannig þróunina þar.
Svipað mál kom upp vegna loftnets á Úlf-
arsfelli fyrir skömmu. Þá kom færsla frá Eðl-
isfræðivefnum á FB: „Rétt eins og með bólu-
efni eru niðurstöðurnar á þann veg að engin
markverð vensl hafa fundist þrátt fyrir ít-
arlega leit. Við þurfum því ekki að óttast út-
varps- eða örbylgjur. Fáfræðin er hins vegar
öllu verri.“
Þegar Ísland tekur þátt í alþjóðlegu sam-
starfi sá andstæðingar oft fræjum tortryggni.
Jafnvel þótt samstarfið hafi til þessa verið öll-
um til góðs gæti það í framtíðinni snúist upp í
andhverfu sína. Boðskapurinn er einfaldur:
Útlendingar eru varhugaverðir og vilja
klekkja á Íslendingum. Alræði og sovétkerfi eru á næsta
leiti.
Þegar bent er á að hræðsluáróðurinn byggist ekki á
neinum rökum er þrautalending áróðursmeistaranna að
segja: Er ekki vissara að láta [það sem hentar í það
skiptið] njóta vafans? Fólk sem ekki hefur tíma til þess
að kynna sér málin er opið fyrir slíkum málflutningi.
Baldur Sigurðsson, dósent við HÍ, orðaði kjarna máls-
ins vel í nýlegri FB-færslu: „Án þess að fara nánar út í
þá greiningu virðist mér að hjá sumum byggist stjórn-
mál á að rækta óvináttu og tortryggni – hjá öðrum vin-
áttu og traust.“
Benedikt
Jóhannesson
Pistill
Verum hrædd – verum mjög hrædd
Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Alþjóðlegar verslunarkeðjurhafa í auknum mæli færtframleiðslu sína frá Asíutil Afríku, þar sem hægt
er að finna enn ódýrara vinnuafl en
áður hefur þekkst. Meðal þeirra
landa er Eþíópía, þar sem laun eru
meðal þeirra lægstu sem vitað er til
að séu greidd þeim sem starfa við
fataframleiðslu í heiminum. Þau
nema um 26 dollurum á mánuði, sem
jafngildir tæplega 3.200 íslenskum
krónum. Það nemur um 40% af með-
allaunum í landinu.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í nýrri skýrslu stofnunar um
viðskipti og mannréttindi innan New
York-háskólans. Í skýrslunni var
Hawassa-iðngarðurinn (e. industrial
park) í Eþíópíu tekinn fyrir, en um
er að ræða eins konar þyrpingu af
risastórum vöruhúsum sem fram-
leiða vörur fyrir alþjóðleg fyrirtæki.
Meðal þeirra eru Guess, Calvin
Klein, Tommy Hilfiger og sænska
keðjan H&M, sem meðal annars
rekur verslanir á þremur stöðum
hér á landi. Alls eru um 25 þúsund
manns í vinnu í Hawassa, sem er
einn af um 30 iðngörðum sem eþíóp-
ísk stjórnvöld stefna á að reisa fyrir
árið 2025 til slíkrar framleiðslu.
Það sem gerði stjórnvöldum í
Eþíópíu kleift að fá alþjóðleg stór-
fyrirtæki til þess að reisa verk-
smiðjur í landinu er að lofa lágum
launakostnaði. Áður var mikið fram-
leitt í Kína, Bangladess og annars
staðar í Asíu, en á meðan laun hafa
hækkað á þeim stöðum eru kjörin í
Eþíópíu lægri en áður hefur þekkst.
Lágmarkslaun í fataframleiðslu í
Bangladess nema um 95 dollurum á
mánuði, rúmum 11.500 krónum, sem
eru þó nærri fjórfalt hærri en í Eþí-
ópíu. Ástæðan fyrir þessum lágu
launum í Eþíópíu er sú að engin lög
eru um lágmarkslaun í einkageir-
anum þar í landi. Miðast launin því
við lægstu grunnlaun hins opinbera.
Búa fjórar saman án salernis
Íbúar Eþíópíu eru um 105 millj-
ónir, en landið er þekkt fyrir mikla
þurrka sem koma niður á lífsskil-
yrðum. Með því að fá alþjóðlegar
verslunarkeðjur til þess að hefja
framleiðslu í landinu vonast stjórn-
völd til þess að margfalda útflutn-
ingstekjur sínar. Að sögn þeirra sem
höfundar skýrslunnar ræddu við
fóru fulltrúar stjórnvalda um þorp
landsins og lofuðu íbúum mun betri
kjörum í verksmiðjunum en raunin
varð. Vegna þess mikla fjölda sem
flutti sig nær framleiðslunni hækk-
aði húsnæðisverð þar gríðarlega og
mánaðarlaun duga skammt. Algengt
er að ungar konur búi fjórar saman í
herbergi með engri eldunaraðstöðu
né salerni og sofi á þunnum dýnum.
100% starfsmannavelta
Þessi slæmu lífsskilyrði hafa
leitt til þess að framleiðni í verk-
smiðjunum er lítil og nam aðeins um
30% af áætlaðri getu í desember
Lofa stóru keðjunum
ennþá lægri launum
Ljósmynd/Ethiopian Investment Commission
Iðngarðar Hafa risið víða í Eþíópíu til framleiðslu vara fyrir alþjóðakeðjur.
2018. Margir hafa gefist upp og var
starfsmannavelta fyrsta árið nálægt
100%, sem þýðir að verksmiðjurnar
skiptu út svo til öllu sínu starfsfólki á
ári.
Rétturinn til verkfalla er þó til
staðar í Eþíópíu og starfsfólk hefur
reglulega nýtt sér hann í kröfu sinni
um betri kjör. Þá hafa skapast mörg
þúsund störf, þó kjörin séu léleg, og
stjórnvöld stefna að því að byggja
iðnaðinn enn frekar upp. Skýrslu-
höfundar eru meðvitaðir um þetta
og gefa bæði stjórnvöldum og al-
þjóðlegu verslunarkeðjunum ráð til
þess að bæta aðstæður verkafólks
og byggja upp iðnað sem kæmi landi
og þjóð að lokum til góðs. Fram-
haldið er hins vegar óráðið.
áskoranir sem fylgja því að vera
með starfsemi í löndum sem Eþí-
ópíu,“ segir í svarinu. Spurning-
unni um hversu mikið af vörum
H&M sem eru í sölu á Íslandi eru
framleiddar í Eþíópíu var þó ekki
svarað beint út.
„Í dag störfum við með níu
framleiðendum í Eþíópíu og
framleiðslumagnið þar er lítið á
alþjóðaskala. Við vinnum að því
að stofna til langtíma samstarfs
við framleiðendur og við sjáum
að við getum unnið að því að
minnka atvinnuleysi, styðja við
félagslegar- og umhverfis-
aðstæður ásamt því að setja
staðla fyrir mannsæmandi vinnu-
aðstæður þar í landi.“
„Við setjum þær kröfur á fram-
leiðendur okkar að bjóða upp á
öruggan vinnustað og að komið
sé fram við starfsfólkið af virð-
ingu og jafnrétti,“ segir meðal
annars í skriflegu svari frá H&M
við fyrirspurn Morgunblaðsins
varðandi skýrsluna um aðbún-
aðinn í Eþíópíu.
„Frá því að við hófum fram-
leiðslu í Eþíópíu árið 2013 hafa
um 18.000 störf skapast þar.
Hinsvegar þurfum við sem fyrir-
tæki að ganga úr skugga um að
vöxturinn sé sjálfbær og styðji
við jákvæða framþróun. Við höf-
um ekkert að fela þegar kemur
að framleiðslunni okkar og við
erum opinská varðandi þær
„Við höfum ekkert að fela“
VERSLUNARKEÐJAN H&M BREGST VIÐ SKÝRSLUNNI